24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir Útsölustaðir eru í verslunum Byko og verslun Rangá. „Mér þætti það fínt ef orðskrípið „barnaklám“ væri afnumið. Fólk hugsar […] ekki um börn í sam- hengi við orðið „klám“. Þetta orð er notað yfir skemmtiefni fyrir fullorðna þar sem fólk er að hafa mök. Þegar börn eru sett í þetta samhengi þá er það alltaf án und- antekninga ofbeldi …“ Margrét Hugrún Gústavsdóttir eyjan.is/goto/maggabest „Nú ætla ég að biðla til allrar þjóðarinnar, hvorki meira né minna. Leggja til að við tökum nú öll höndum saman [...] og reyn- um að stöðva fyrirhugaða eyði- leggingu á dásamlegri nátt- úruperlu með því að reisa þar jarðgufuvirkjun - á Ölkeldu- hálsi.“ Lára Hanna Einarsdóttir larahanna.blog.is „Ég sá aðeins í sjónvarpinu frá heimsókn hins konungborna Dana og spúsu hans. Rosalega held ég að þetta sé leiðinlegt partí allt saman. Þarna held ég að snobbið og yfirborðsmennskan nái hæstu hæðum. […] Hvað ætli honum sé ekki skítsama um þessi blessuðu handrit?“ Jakob Smári Magnússon jakobsmagg.blog.is BLOGGARINN Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is Það er skemmtileg staðreynd að síðustu tónleikar Sprengjuhall- arinnar í Norður-Ameríku verða haldnir á staðnum Rehab á Man- hattan-eyju New York-borgar eftir tæpar tvær vikur. Síðasta stoppið er sem sagt á „meðferðarstofnun“. „Já, það verður mjög gott að taka smá afvötnun áður en maður fer svo aftur í vinnuna,“ segir Bergur Ebbi í gríni um væntanlegt tón- leikaferðalag er hljóðar upp á sjö tónleika, bæði í Bandaríkjunum og Kanada, á tólf dögum. „Nei, við verðum stilltir eins og japanskir ferðamenn. Við reynum að fara í einhvern svona gervi-rokkgír.“ Nokkrir textar á ensku. Þetta verður annar túr Sprengju- hallarinnar til útlanda, en áður spiluðu þeir í Danmörku. Bergur Ebbi segir sveitina þó eiga nokkur lög á ensku. „Við eigum nokkra enska texta frá því þegar við vorum að byrja. Ég skipti samt ekkert alveg yfir í ensku, tek bara þá texta sem eru til á ensku. Þeir eru kannski þriðjungur af tónleikadagskránni.“ Þannig verða lögin „Þá hlupu hestar á skeið“ og „Verum í sam- bandi“ kynnt fyrir Kananum sem „All the Horses are Gone“ og „Wor- ried Until Spring“. Bergur segir þó sveitina ekki ætla að leggja áherslu á erlenda land- vinninga og muni áfram einbeita sér að Íslandi. Hann segir sveitina þó eflaust ætla að halda út aftur, verði frekari eftirspurn. Tónleikaferðin kom eiginlega upp fyrir slysni eftir að sveitinni var boðið að leika á tveimur Íslands- tengdum hátíðum í Kanada á svip- uðum tíma. Sveitin var svo dugleg við að bæta við tónleikum. Helgi Pétursson úr Ríó Tríó kom svo líka til hjálpar en hann er einmitt pabbi Snorra gít- arleikara. Einhvern tímann hafði Ríó-ið hitað upp fyrir kanadísku sveitina The Guess Who, sem átti m.a. slagarann „American Wom- an“, og sá gamli sló aftur á þráðinn. „Í þeirri sveit er víst Vestur- Íslendingur sem getur rakið ættir sínar aftur til Snorra. Sonur hans er svo í hljómsveit sem heitir Major Makers og við fáum að spila með þeim á hinum sögufræga El Mo- cambo í Toronto,“ segir Bergur að lokum, stuttu áður en hann stígur upp í vél. Sprengjuhöllin í túr til Norður-Ameríku Enda í afvötnun í New York Sprengjuhöllin fór af landi brott í gær í tveggja vikna tónleikaferðalag um Bandaríkin og Kan- ada. Bergur Ebbi segist ætla að syngja einhver lög á ensku. Helgi P Reddaði strákunum giggi í Kanada gegnum frændskap. Sprengjuhöllin Búnir að pakka og til í slaginn. HEYRST HEFUR … Mikil leynd er yfir því hvar meistari Bob Dylan kemur til með að gista hér á landi. Hann kemur hingað beint frá Kanada með 25 manna föruneyti daginn eftir tónleika sína þar í landi 24. maí. En Dylan er svo annt um einkalíf sitt að hann hefur skipað umboðsmanni sínum að láta tónleikahald- ara hér á landi ekki vita hvar hann kemur til með gista, fyrr en eftir að hann er lentur. bös Enn bætast við nöfn á undirskriftalista Henry Birg- is en hann safnar nöfnum þeirra á bloggi sínu er vilja fá Bjarna Fel til þess að lýsa leik í sjónvarps- útsendingum frá EM í sumar. Í gær voru komin rétt tæp 850 nöfn á listann og spurning hversu mörg nöfn þarf til þess að hreyfa við ráðamönnum hjá RÚV. Samkvæmt heimildum 24 stunda er Bjarni Fel að minnsta kosti til í slaginn. bös Haffi Haff mun frumflytja nýtt lag í Zúúber, morg- unþætti FM957, á morgun. Lagið heitir Move og samdi Haffi það ásamt Vidda, félaga sínum, en Dj Shaft hljóðblandaði. Þeir sem fylgdust með afhend- ingu Hlustendaverðlauna FM um síðustu helgi ættu að kannast við lagið en Haffi flutti það þar. Um helgina fer hann svo á svið í Sjallanum á Akureyri ásamt Merzedes Club. bös Hljómsveitin Amiina er nú langt komin með að klára kvikmynda- tónlist við myndina Is There Any- body There? sem Michael Caine fer með aðalhlutverkið í. Myndin er eftir breska leikstjórann John Crowley sem þykir með þeim efni- legri þar í landi í yngri kantinum. „Við erum að bíða eftir síðustu klippunum því það þurfti að skjóta einhverjar tvær aukasenur,“ stað- festir María Huld Markan Sigfús- dóttir úr Amiinu. „Við ætlum að demba okkur í síðustu upptökur fyrir þetta um leið og við erum búnar með tónleikana fyrir Listahátíð í næstu viku.“ María segir tónlistina ekki ósvipaða þeim stíl sem var að finna á fyrstu breiðskífu þeirra, Kurr, er kom út í fyrra og hefur hlotið lof gagnrýnenda erlendis. „Andinn í myndinni hæfir okkar stíl mjög vel en svo er maður náttúrlega líka alltaf að ljá rödd sína kvikmynd sem er hugarsmíð annars lista- manns.“ Ábending frá Yoko Ono Segja má að leikstjóri mynd- arinnar hafi fengið ábendingu um sveitina frá Yoko Ono. „Óbeint, því leikstjórinn var að hlusta á útvarpið þegar Yoko Ono valdi lag með okkur. Ég veit ekki hvort hann var byrjaður á mynd- inni en honum fannst tónlistin til- valin fyrir sig.“ María segir það hafa verið draum Amiinu lengi að fá fjöl- breytt verkefni. Myndin verður kláruð í lok júlí á þessu ári og líklegast frumsýnd einhvern tímann fyrir jól. bös Amiina breiðir út anga sína Tónlist við mynd Michaels Caines Amiina Höfðu nóg að gera, en ákváðu að slá til þar sem þeim þótti myndin góð. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 2 4 3 9 6 8 7 1 5 5 8 9 7 2 1 6 3 4 7 1 6 3 4 5 8 9 2 8 3 4 1 5 6 9 2 7 9 2 5 8 3 7 1 4 6 6 7 1 2 9 4 5 8 3 3 5 7 4 1 9 2 6 8 1 6 2 5 8 3 4 7 9 4 9 8 6 7 2 3 5 1 Hann verður 42 ára í næsta mánuði. 24FÓLK folk@24stundir.is a Nei, strákarnir okkar í Snæfelli eru búnir að standa sig svo rosalega vel í vetur að það er ekki hægt að taka Kellogs fram yfir körfuna. Ætlið þið að taka Kellogs fram yfir körfuna? Kellogs fyrirtækið leitar nú að leikurum til að leika í aug- lýsingu sem verður tekin upp í Stykkishólmi. Hólmarar hafa lengi verið þekktir fyrir einstaka hæfileika á sviði körfuboltans en ekki fyrir að japla á Kellogs kornflögum. Erla Friðriksdóttir er bæjarstjóri Stykkishólms.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.