24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 34

24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir Samkvæmt kvikmyndavefjunum á netinu er leikarinn Matthew McConaughey líklegastur til að hreppa hlutverk ofurhetjunnar Captain America í væntanlegum kvikmyndum um hetjuna. Kaf- teinninn er ein vinsælasta of- urhetja Marvel-fyrirtækisins en þó hefur enn ekki verið gerð kvikmynd um ævintýri hans. Það mun breytast árið 2011 þegar kvikmyndin The First Avenger: Captain America á að líta dagsins ljós. Framleiðsla myndarinnar gæti þó orðið erfið þar sem heimsbyggðin er ekki sérlega hliðholl Bandaríkjunum um þessar mundir og því kannski ekki margir sem vilja sjá mynd um ofurhetju sem er bókstaflega klædd í ameríska fánann. vij McConaughey Kafteinn Kani? Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Það er ekkert eftir í vöruhúsinu okkar. Fólk þarf að bíða dágóða stund ef það vill næla sér í svona,“ sagði starfsmaður leikfangaversl- unarinnar Toys ’R’ Us í viðtali við The New York Times varðandi þann gríðarlega áhuga sem við- skiptavinir sýndu leikfangaköllum sem byggðir eru á kvikmyndinni The Dark Knight. Leikföngin eru uppseld í nær öllum leik- fangaverslunum New York-borgar og margar búðir eru á biðlista eftir að fá þessi vinsælu leikföng á lag- er. Biðraðir á Times Square Það er nær einvörðungu per- sóna Jókersins sem er svo eftirsótt af viðskiptavinum verslunarinnar en hlutverk Jókersins í þeirri mynd var eitt af síðustu hlut- verkum leikarans ástsæla Heaths Ledgers. Því eru margir aðdáendur Ledgers sem vilja næla sér í þenn- an leikfangakall sem minning- argrip um hinn magnaða leikara. Biðröð af æstum aðdáendum myndaðist fyrir framan verslun Toys ’R’ Us á Times Square í New York þegar leikföngin fóru í sölu og þurftu margir frá að hverfa án þess að fá hinn vinsæla Jóker- leikfangakall. Leikföngin eru seld á tæpar 800 krónur í leikfangaverslunum í Bandaríkjunum en nú þegar er farið að braska með leikföngin á uppboðsvefnum eBay og þar er verðið nokkru hærra, um 2000 krónur. Óhugnanlegur Heath Ledger þykir hafa farið á kostum í hlutverki Jókersins. Leikfanga-Jóker í líki Heaths Ledgers vinsæll Uppseldur Jóker-leikfangakallar úr nýjustu Batman-kvik- myndinni, The Dark Knight, seljast nú eins og heitar lummur í Banda- ríkjunum. Dótið eru upp- selt í New York. ➤ Ledger fannst látinn í íbúðsinni í New York 22. janúar. ➤ Dánarorsökin var of stórskammtur af svefn- og verkja- lyfjum. ➤ Hann var tvívegis tilnefndurtil Óskarsverðlauna. HEATH LEDGER en þessi vopn geta komið sér vel þegar menn þurfa að ráðast á mót- herja sína til að ná af þeim fyrsta sætinu. Þegar menn hafa hins vegar náð forystunni vandast málið því þá er maður eins og síðasta rjúpan á hálendinu sem allir veiðimenn- irnir keppast við að ná. Þá dynja á manni stórskotaliðsárásir og verð- ur maður þá fljótt pirraður. Maður fær því oft á tilfinninguna að sigur manns snúist ekki um færni heldur hreina og klára heppni. Þrátt fyrir þetta er Mario Kart Wii skemmtilegur leikur. Það geta allir, hvort sem það eru þaulvanir spilarar eða viðutan afar, spilað leikinn og haft gaman af. Og það eru líklega bestu meðmæli sem tölvuleikur getur fengið. Tölvuleikir viggo@24stundir.is Mario Kart Wii er einn af þessum leikjum sem bókstaflega angar af hamingju og gleði. Þegar maður fær slíkan leik í hendurnar er lítið annað hægt en að gleðjast með og sökkva sér djúpt í hinn ofur ham- ingjusama heim. Mario Kart- formúlan er margreynd og hefur sannað sig. Frægar Nintendo- persónur á borð við Mario, Luigi, Donkey Kong og Wario koma sam- an með bifreiðar sínar og mót- orhjól og útkljá deilumál sín á kappakstursbrautinni. Þegar á brautina er komið tekur við ofsa- fenginn kappakstur þar sem ekkert er gefið eftir og skjaldbökuskeljar fljúga manna á milli. Einn helsti kostur Mario Kart er hversu aðgengilegur hann er. Fólk sem hefur aldrei spilað tölvuleik á ævinni mun geta spilað leikinn án teljandi vandræða. Leikurinn lætur vel að stjórn og er stýrikerfið enn einn sigur fyrir hina mögnuðu Wii-fjarstýringu. Vopnakerfi leiksins er hinsvegar hans stærsti galli. Meðan á kapp- akstrinum stendur geta menn náð sér í vopn svo sem skjaldbökuskelj- ar, stjörnur, risasveppi og eldingar Á mótorfák með skjaldböku á hælunum Grafík: 86% Ending: 80% Spilun: 93% Hljóð: 85% Mario Kart (Wii) NIÐURSTAÐA: 86% Ef eitthvað er að marka The New York Times hefur Grand Theft Auto IV selst enn betur en bjart- sýnustu menn þorðu að vona. Samkvæmt heimildum New York Times hafa nú þegar selst rúm- lega 6 milljónir eintaka af leikn- um og þar af 3,6 milljónir á fyrsta degi. Áætlaður ágóði af allri þess- ari leikjasölu er um 500 milljónir dollara og það er bara fyrir fyrstu vikuna. Fyrirfram var búist við því að um fimm milljónir eintaka myndu seljast á fyrstu tveimur vikunum og reiknað var með að um 9 milljónir eintaka af leikn- um væru seld fyrir árslok. Ljóst er af þessum tölum að aðsókn í leikinn var mun meiri en menn þorðu að vona og því væntanlega mikil gleði hjá framleiðendum leiksins. vij GTA IV selst vonum framar 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Þegar menn hafa hins vegar náð for- ystunni vandast málið því þá er maður eins og síðasta rjúpan á hálendinu sem allir veiðimennirnir keppast við að ná. HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Rosalega flott bikini bh í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,- buxur í stíl frá kr. 3.550,- Pils í stíl á kr. 4.685,- Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.