24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 16

24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Björgum mannslífum! • Ávallt tilbúið til notkunar • Einfalt og öruggt • Einn aðgerðarhnappur • Lithium rafhlaða • Íslenskt tal PRIMEDIC hjartastuðtæki 16 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a En það sem [Jóhanna Sigurðardóttir] tekur ekki inn í myndina, er að bank- arnir hafa nánast horfið af fasteignamark- aði á þessum tíma. Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra féll í þá gryfju að skoða ekki íbúðalánamarkaðinn sem eina heild, heldur aðeins út- lán Íbúðalánasjóðs, þegar hún hélt því fram á Alþingi á mánuadag að meiri hreyfing væri á fasteigna- markaði en haldið hefur verið fram. Þetta segir Hallur Magnússon ráðgjafi, sem bendir á að hlutur banka í heildarfasteignalánum hafi minnkað gríðarlega á þessu ári og bankarnir séu nánast hættir að veita gjaldeyrislán. Markaðurinn ekki helfrosinn Í utandagskrárumræðu á Al- þingi á mánudag vakti Birkir J. Jónsson, þingmaður Framóknar- flokks, máls á stöðnun á fasteigna- markaði. Spurði hann félagsmála- ráðherra hvað ríkisstjórnin ætli að gera til að bregðast við stöðunni, og vísaði sérstaklega til stöðu Íbúðalánasjóðs. Jóhanna Sigurðardóttir svaraði því til að útlán Íbúðalánasjóðs hefðu verið svipuð á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og á sama tímabili í fyrra og fasteignamark- aðurinn væri því „ekki eins hel- frosinn og margir vilja vera láta“. Bankarnir látið sig hverfa „Íbúðalánamarkurinn hefur aldrei verið eins kaldur og núna frá stofnun Íbúðalánasjóðs. Það er rétt hjá Jó- hönnu að Íbúða- lánasjóður er ekki hættur að veita lán. En það sem hún tekur ekki inn í myndina er að bankarnir hafa nánast horfið af fasteignalánmarkaði,“ segir Hallur. Hann bendir á að heildarútlán til fasteignakaupa hafi verið rúmir níu milljarðar í marsmánuði í fyrra, fyrir utan þau gjaldeyrislán sem veitt voru. Þar af hafi lán sem bankarnir veittu verið tæpir fjórir og hálfur milljarður. Í mars á þessu ári hafi veitt fasteignalán hins vegar numið fjórum og hálf- um milljarði; en þar af veittu bankarnir aðeins rúmlega 900 milljónir. Þá bendir Hallur á að af þeim 3,6 milljörðum sem Íbúðalána- sjóður veitti í marsmánuði, hafi 900 milljónir verið leiguíbúðalán. Einnig verði að horfa til fækk- unar þinglýstra kaupsamninga, en eins og sagt hefur verið frá í 24 stundum voru þeir 58 í Reykjavík á fyrstu fjórum mánuðum ársins, samanborið við 164 á sama tíma- bili í fyrra. „Kaupsamningar hafa ekki verið jafn fáir frá árinu 2001, eða á þeim tíma sem tölur Fasteigmatsins ná til. Jóhanna segir að það sé ekki eins mikil kólnun á fasteigna- marrkaðnum og sumir vilja meina. Það er kannski rétt, en hann er þó verulega farinn að nálgast frostmark,“ segir Hallur. Rétti tíminn til örvunar Jóhanna sagði í svörum sínum að farið yrði í aðgerðir í húsnæðis- málum eins fljótt og hægt væri, en sjálf hefur hún t.d. sagt að nauð- synlegt sé að hækka hámarkslán sjóðsins. Hún sagði þó ekki tíma- bært að fara í slíkar aðgerðir um þessar mundir, enda væri hætta á aukinni verðbólgu ef ráðist yrði í aðgerðir til að örva fasteignamark- aðinn. „Mín skoðun er sú, að rétti tím- inn til að hefja slíkar aðgerðir sé núna,“ segir Hallur. Nauðsynlegt sé að taka lítil skref í einu til að örva fasteignamarkaðinn, áður en hann nær alkuli. Segir ráðherra mis- reikna markaðinn  Jóhanna Sigurðardóttir leit framhjá því að bankarnir hafa horfið af íbúðalánamarkaði Lítið að gerast Kaup- samningar eru töluvert færri það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. ➤ Þinglýstir kaupsamningar fyr-ir sérbýli í Reykjavík á tíma- bilinu janúar til apríl á þessu ári voru 58. Á sama tíma í fyrra voru þeir 164. ➤ Þinglýstir kaupsamningar áfyrstu fjórum mánuðum árs- ins voru því 35% af því sem þeir voru á sama tímabili í fyrra. ➤ Í mars í fyrra námu veitt fast-eignalán í íslenskum krónum rúmum 9,2 milljörðum; þar af veittu bankar 4,3 milljarða. ➤ Í mars á þessu ári voru veittir3,6 milljarðar í íslenskum krónum til íbúðakaupa; þar af veittu bankarnir 900 millj- ónir. ➤ Fasteignalán bankanna í ís-lenskum krónum hafa því dregist saman um 80%, auk þess sem þeir eru nánast hættir að veita lán í erlendri mynt til fasteignakaupa. KÓLNUN Á MARKAÐI a[Fasteignamarkaður-inn ]er ekki eins hel- frosinn og margir vilja vera láta ... [S]íðast í morgun hafði ég samband við Íbúða- lánasjóð og bað um samanburð á útlánum sjóðsins á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs og útlánin eru ósköp svipuð ... Ég hef ekki hitt einn einasta sérfræðing sem fjallar um húsnæðismálin, fast- eignamarkaðinn og fjármálamark- aðinn, sem mælir því bót eða telur ástæðu til þess að örva fast- eignamarkaðinn akkúrat á þessari stundu. Félagsmálaráðherra á Alþingi 6. mars. Hallur Magn- ússon ráðgjafi 24stundir/Golli MARKAÐURINN Í GÆR             !""#                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   '    01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                                        : -   0 -< = $ ' >?3@3@3> ?34AA55B3 C?>4B@B>C 55B@543C C>?C44CA4D 3ABBD@D? C4?5?5@ ??D>44@A@@ C>>5D3>B43 CCD??A334 4B5@@>@@ ?@@@3B>B@ , A>3C4345 45@@@@ C5C>4@@@ @ ?CAD3C55 >>CB@AC , 5CD5>BD , , CC>>3>BB , , 443>5B3@ 35CD5@ , DECB 33E?@ CCE@3 4E3> C4EA@ ?CE?5 ?CE45 B@@E@@ ?DEA@ A?EB@ >E4C CCEA> 3E4@ A4E4@ CE?A 4ED? ?3BE5@ C5@5E@@ 3?AE@@ , C>?E@@ , , , , , 55@@E@@ C@E@@ , DE?? 33E4@ CCE@4 4E3A C4EA5 ?CE55 ?CEB@ B@?E@@ ?BE@@ A3E>@ >E44 CCEA5 3E43 ADE3@ CE3@ 4ED4 ?>CE5@ C53@E@@ 33>E@@ @EBC C>DE@@ , ?CEA@ DE35 , , 5545E@@ C@E@@ 4E@@ /   - D ?3 3C CA 4> ?? ? B> D? CA ?> ?B , ?3 ? > , ?A 5 , C3 , , ? , , 4 3 , F#   -#- D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B 45?@@B D5?@@B D5?@@B D5?@@B 3@>?@@B D5?@@B D5?@@B 55?@@B D5?@@B C@3?@@B CD>?@@B D5?@@B 4C??@@D ??B?@@D D5?@@B D5?@@B D3?@@B ● Mest viðskipti í kauphöll OMX í gær voru með bréf Kaupþings, fyrir um 2,3 milljarða króna. ● Mesta hækkunin var á bréfum Atlantic Petroleum, eða 7,25%. Bréf Marels hækkuðu um 4,24% og bréf Glitnis um 3,35%. ● Mesta lækkunin var á bréfum Eimskipafélagsins eða 1,62%. Bréf Atorku lækkuðu um 0,69% og bréf Bakkavarar um 0,60%. ● Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,15% í gær og stóð í 4.941 stigi í lok dags. ● Íslenska krónan styrktist um 0,62% í gær. ● Samnorræna OMX40- vísitalan hækkaði um 1,69% í gær. Breska FTSE-vísitalan hækk- aði um 0,7% og þýska DAX- vísitalan um 0,8%. Michael Treschow, stjórn- arformaður nokkurra stærstu iðnfyrirtækja Svíþjóðar, sagði á samkomu í tilefni útgáfu nýs við- skiptatímarits að karlar yrðu óör- uggir á fundum vegna þess að konur hegðuðu sér öðruvísi en þeir. Þær segðu til dæmis skoðun sína án þess að vitna þar með í orð fyrrverandi ræðumanns. Stjórnarformaðurinn sagði frá baráttu sinni fyrir jafnrétti en jafnframt þeim vanda að konur sneru ekki aftur til vinnu eftir fæðingarorlof. Hann sagði lausn- ina vera þá að breyta mynstrinu, eins og til dæmis því að hafa enga fundi eftir klukkan 17. ibs Konur gera karla óörugga Verð í Heilsuhúsinu hefur hækk- að að undanförnu. Lesandi 24 stunda benti á að verð Udo’s Choise olíu hefði hækkað úr 1990 krónum í 2619, eða um þriðjung, á þessu ári. „Við erum ekki að leggja meira á vöruna en áður,“ segir Jóhanna Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri verslana Heilsuhússins. Hækk- unin stafi af hækkun á verði frá birgjum. Jóhanna segir verð á ýmsum vörum Heilsuhússins hafa hækkað, þótt almennt hafi hækkanirnar ekki verið jafn miklar og á áðurnefndri vöru. „Það hefur orðið 60% hækkun á kornverði í heiminum. Þar að auki hefur verð hækkað frá birgj- um vegna olíuhækkana og hærri flutningskostnaðar. Þetta safnast allt saman,“ segir Jóhanna og bætir því við að gengisbreytingar hafi einnig haft sitt að segja. hos Heilsuhúsið hækkar verð

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.