24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Guðmundur Finnbogason heimil-
isfræðikennari leggur sérstaka
áherslu á útieldun í heimilisfræði-
tímunum.
Skrifaði handbók um efnið
„Ég ákvað að fjalla um útieldun í
lokaverkefni mínu í Kennarahá-
skólanum meðal annars vegna þess
að ég er gamall skáti og hef farið í
margar útilegur. Lokaverkefnið
mitt var því nokkurs konar hand-
bók um útieldun sem hugsuð er
fyrir kennara sem og alla þá sem
hafa áhuga á útieldun,“ segir Guð-
mundur.
Talað er um útieldun þegar mat-
seld fer fram utan dyra. Þá gildir
einu hvort notað er grill, prímus
eða opinn eldur.
Sérfræðingar í að brenna
„Að grilla er útieldun en ég hef
samt sett það í sérflokk vegna þess
að það er svo viðamikið og auðvelt
að nálgast efni um grill og grillmat.
Það mætti reyndar alveg kenna Ís-
lendingum að grilla betur enda er-
um við sérfræðingar í brunnum
kjötbitum. Þetta er þó allt að koma
og það verður sífellt algengara að
fólk leggi metnað í grillmatinn.“
Útieldun fer yfirleitt fram á
ferðalögum þegar prímusnum er
kippt með í útileguna.
„Flestir Íslendingar hafa stundað
einhverja útieldamennsku hvort
sem hún er inni í tjaldi eða fyrir ut-
an tjaldið. Það er allt önnur hugsun
í gangi þegar eldað er utan dyra
enda þarf að skipuleggja sig öðru-
vísi og eldamennskan tekur lengri
tíma. Ég tel að það sé mjög hollt að
gefa sér tíma í að gera hlutina og
þess vegna fer nær öll mín kennsla
fram utan dyra.“
Poppað á grilli
Guðmundur fer út með nem-
endurna í hvaða veðri sem er og
setur meðal annars upp prímus og
gasgrill. „Ég nota grillið sem hita-
gjafa og set stóra pönnu ofan á það.
Við erum því í raun ekki að grilla
matinn. Það er til dæmis mjög vin-
sælt að poppa á grillinu eða jafnvel
yfir opnum eldi.“
Töfrar eldsins
„Matseldinni fylgir miklu meira
en bara eldamennska enda eru
ákveðnir töfrar í eldinum sem gera
að verkum að fólk getur starað í
eldinn klukkustundum saman. Það
fylgir því mikil stemning að kveikja
lítinn eld og fólk áttar sig alltaf
meira og meira á því,“ segir Guð-
mundur að lokum.
Útilegufólk Guðmundur
fer út í hvaða veðri sem er
Nemendur í heimilisfræði elda yfir opnum eldi
Elda úti í hvaða
veðri sem er
Fyrir nokkrum árum fór
heimilisfræðikennsla allt-
af fram í kennslustofu
þar sem nemendurnir
bökuðu brauð og elduðu
grauta. Nú hefur útieldun
hins vegar bæst við þar
sem nemendurnir læra að
bjarga sér á útilegumáta.
➤ Er heimilisfræðikennari íLaugarnesskóla.
➤ Sinnir einnig ráðgjafar-störfum í öðrum skólum þar
sem áhugi er á útieldun.
➤ Heldur úti vefsíðunni www.utieldun.is.
GUÐMUNDUR FINNBOGA
Salat:
1 eggaldin
1 rauðlaukur
1 græn paprika
1 rauð paprika
2 tómatar
Dressing:
2-3 pressaðir hvítlauksgeirar
slatti af kapers
2 tsk. dijon-sinnep
slurkur af rauðvínsediki
slurkur af sérríediki
slatti af ólífuolíu
1 búnt steinselja
Maldon-salt.
Aðferð: Grænmetið skorið niður
í hentuga bita fyrir grillið, sett í
skál. Slatta af ólífuolíu er hellt yfir
ásamt smá salti og allt sett á grillið.
Dressing: Hvítlaukurinn press-
aður í skál, dijon-sinnep, kapers,
rauðvínsedik, sérríedik og ólífuolí-
an sett út í. Steinselja rifin niður og
sett út í ásamt smá salti. Að lokum
er grillaða grænmetinu og dress-
ingunni blandað saman.
Uppskrift af www.matseld.is.
Grillað sumarsalat
Hráefni:
1 meðalstórt laxaflak
1 msk. salt
4 msk. sykur
2-3 msk. sítrónupipar
4 msk. þurrkað dill
Aðferð:
Beinhreinsið flakið og þerrið.
Blandið því næst saman salti, sykri
og sítrónupipar og nuddið vel í
flakið. Sáldrið dillinu yfir flakið,
leggið það saman og pakkið í plast.
Geymið í ísskáp undir fargi í 5-6
klst., ef flakið er þunnt þarf það
minni tíma. Skafið mesta kryddið
af flakinu og penslið með mat-
arolíu. Skellið á grillið með roðið
upp í 5 mín. Snúið síðan flakinu
við og grillið áfram í um 5 mín.
eða þar til það er tilbúið.
Grillaður lax
Það gefur augaleið að slíkt er
stranglega bannað enda er lítið
gaman að koma á útilegusvæði
sem er meira og minna sviðið og
brennt. Lítið mál er að koma í
veg fyrir þetta með því að setja
grillið á sand eða steina áður en
kveikt er í. Hugsum vel um nátt-
úruna.
iris@24stundir.is
Algengt er að útilegugrillarar
kippi með sér ódýru einnota
grilli í stað þess að taka í sundur
heimilisgrillið. Einnota grill-
unum fylgja ýmis þægindi enda
þarf enga aukahluti aðra en eld-
spýturnar. Eitt er þó mikilvægt
að hafa í huga en það er að grillin
skilja eftir sig sviðna jörð ef þau
eru sett beint á óvarið grasið.
Gætið að einnota grillunum
VORIÐGRILLIÐ
grillið@24stundir.is a
Ég tel að það sé mjög hollt að gefa sér
tíma í að gera hlutina og þess vegna fer
nær öll mín kennsla fram utan dyra.
Sumardekk hjólbarðaþjónusta
Sumar- og heilsársdekk fyrir allar gerðir fólksbíla og jeppa.
Hagstætt verð og traust þjónusta.
Reykjavík Akureyri
Tangarhöfða 15 : 587 5810 Réttarhvammi 1 : 464 7900
Vagnhöfða 6 : 577 3080
www.alorka.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
07
53
Við tökum vel á móti þér
á þjónustustöðvum okkar!
Umboðsaðili fyrir Bridgestone hjólbarða