24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Það eru fiðrildi í maganum fyrir fyrsta leikinn og eðlilega spenna í strákunum enda komnir í efstu deild að nýju og við vitum mætavel að erfitt sumar er framundan,“ segir Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar. Fyrsti leikur nýliðanna er á heimavelli gegn nýliðum Fjölnis en sagan undanfarin tvö ár hefur ekki verið á bandi Þróttara þegar kemur að slag þessara tveggja liða. Hópurinn? „Við höfum fengið styrk frá síð- asta ári og veitir ekki af enda deild- in einnig sterkari. Ég er missáttur við gengið í æfingaleikjum að und- anförnu. Sumir hafa unnist, aðrir ekki en við höfum att kappi við nokkur lið úr efstu deild og aldrei farið illa úr þeim viðureignum, höfum ekki tapað stórt og það er gott veganesti.“ Fjölnir? „Þetta verður fjörugur slagur og það yrði frábært að byrja slaginn á sigri og sérstök vítamínsprauta að vinna Fjölni enda hafa leikir okkar við þá síðustu árin endað fremur illa. Lið þeirra er skemmtilegt og þeir eru harðir af sér en við erum reiðubúnir í þennan slag.“ Deildin? „Öllu erfiðari en í fyrra en já- kvætt að mínu mati að fleiri lið taka þar þátt. Deildin verður opn- ari fyrir vikið og barátta neðstu liða að líkindum enn harðari. Okkar markmið er að festa Þrótt í efstu deild og lykill að því er að vinna heimaleikina.“ Spáin? „Valsmenn líklegastir en mörg önnur lið eiga möguleika. Verra að spá fyrir um botnbaráttuna en lík- legt að nýliðarnir flestir verði þar á meðal.“ Lykilatriði að byrja vel  Þróttarar bjartsýnir en varir um sig fyrir leikinn gegn Fjölni Stoðir undir stórveldi Þrótt- arar aftur komnir meðal þeirra bestu og ætla að halda sér þar. ➤ Þróttur endaðií efsta sæti 1. deildar fyrir ári ásamt Grindavík en með lakara markahlutfall. ➤ Tveimur stig-um ofar en Fjölnir en vann hvoruga viðureign sína gegn þeim. FYRIR ÁRI „Persónulega veit ég ekki hvað olli þessum tveimur slysum í Bol- öldu en brautin sjálf var í góðu ásigkomulagi,“ segir Hrafnkell Sig- tryggsson, formaður Vélhjóla- íþróttaklúbbsins. Eftir tiltölulega langt tímabil án alvarlegra slysa í mótorkrossi hér á landi hafa nú orðið þrjú slík með stuttu millibili og telur Hrafnkell brýnt að brýna fyrir mótorkrossfólki að fara var- lega enda séu margir í einu í braut- um nú þegar vorið hefur haldið innreið sína. Hafin er söfnun fyrir þann er verst varð úti, Jón G. Einarsson, en hann slasaðist illa fyrir þremur vik- um nálægt Skagaströnd. Er hann nú laus af sjúkrahúsi og er í end- urhæfingu. Verður sérstakt styrkt- armót haldið hans vegna á laug- ardaginn í Skagafirði en þátttökugjöld munu renna óskipt til Jóns. Þrjú slys á skömmum tíma í mótorkrossinu Brýnt að fara með gát ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Kannski má segja að einn af jákvæðu punkt- unum sé að við þekkjum vel það leikálag úr fyrstu deild sem nú verður tekið upp í Lands- bankadeildinni og þekkjum hvað til þarf. Í kvöld hefjast vestur í Banda- ríkjunum fjögurra liða úrslit NHL- íshokkídeildarinnar þar sem mæt- ast annars vegar Pittsburg og Phila- delphia og hins vegar Detroit og Dallas. Fræðingar flestir eru óhræddir að veðja á að í úrslitin fari lið Detroit og Pittsburg. Forvitnilegt, enda Detroit félag hinna gömlu kempna meðan helstu stjörnur Pittsburg eru nýlausir við ung- lingabólurnar. Fjögurra liða úrslit NHL hefjast í kvöld Pittsburg eða Detroit „Víst er þetta dálítil hækkun en miðaverð á leiki í Landsbankadeild hefur ekki hækkað í fimm ár og brýn þörf var þar á,“ segir Gísli Gíslason í Félagi formanna knatt- spyrnuliða í Landsbankadeildinni, en þar á bæ hafa menn ákveðið 300 króna hækkun á miðaverði milli ára. Barnagjöld hækka þó ekki. Gísli ítrekar reyndar að strangt til tekið sé þó ekki um hækkun að ræða þar sem miðar í forsölu á net- inu fáist á 1200 krónur sem sé sama verð og síðasta sumar. „Þannig er hægt að spara umtals- verðar upphæðir auk þess sem hvert og eitt félag býður stuðnings- mönnum sínum upp á pakkaverð sem er bæði lægra og hærra en þetta. En þetta er lágmarkshækkun enda hafa rekstrarliðir knatt- spyrnudeilda hækkað mikið eins og annað undanfarin ár.“ Miðaverð á Landsbankadeildina hækkar 1500 krónur á leikinn Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Við hlökkum til að spila okkar fyrsta leik frá upphafi í efstu deild íslensku knattspyrnunnar og ætl- um að selja okkur dýrt og reyna að tryggja að nafn Fjölnis verði lengur meðal liða í Landsbanka- deildinni en eitt tímabil,“ segir Ásmundur Arnarsson, þjálfari ný- liða Fjölnis. Hann gerir ráð fyrir að spennustigið í fyrsta leiknum gegn Þrótti verði hærra en ella enda bæði lið nýliðar og viður- eignir liðanna í neðri deildum hafa jafnan verið fjörugar rimm- ur. Hópurinn? „Við höfum styrkt okkur með nokkrum vel völdum leikmönn- um sem reynslu hafa af efstu deild og teljum okkur í ágætum málum þó að vissulega sé stigsmunur á að leika í efstu deild og þeirri fyrstu.“ Þróttur? „Tölfræðin gegn Þrótturum er okkur hagstæð upp á síðkastið og við hræðumst þá ekkert en spenn- an verður mikil í þessum fyrsta leik og auðvitað leika bæði lið upp á stig í honum. Hann verður í öllu falli skemmtilegur.“ Deildin? „Kannski má segja að einn af jákvæðu punktunum sé að við er- um vanir því leikálagi úr fyrstu deild sem nú er tekið upp í þeirri efstu og þekkjum hvað til þarf. En enginn vafi leikur á að fjölmörg liðanna eru afar sterk og þetta verður langt sumar en við ætlum að hafa gaman af.“ Spáin? „Valsmenn eru líklegastir til af- reka eins og sakir standa. Botn- baráttan mun standa milli nýju liðanna.“ Seljum okkur dýrt gegn Þrótti  Fjölnismenn hafa haft tangarhald á Þrótti undanfarin ár ➤ Engir voruhættulegri fyr- ir framan markið en Fjölnismenn fyrir ári. Skor- aði liðið 61 mark, fjórtán mörkum fleiri en næstu lið, eða tæplega þrjú mörk í leik. FYRIR ÁRI Fyrsta skiptið Fjölnir sem félag leik- ur sinn fyrsta leik í efstu deild knatt- spyrnunnar á laugardaginn. Morgunblaðið/Sverrir LANDSBANKADEILDIN 2008 Þróttur - Fjölnir laugardagur 10. maí

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.