24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 23
24stundir FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 23
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Heilsu- og hvatningarátakið Hjól-
að í vinnuna hófst formlega í gær
en meginmarkmið þess er að vekja
athygli á hjólreiðum sem heilsu-
samlegum, umhverfisvænum og
hagkvæmum samgöngumáta.
Starfsmenn vinnustaða taka þátt í
átakinu og hefur þátttakan aukist
mikið á milli ára.
Heilsufarslegur ávinningur hjól-
reiða er umtalsverður. Í fyrsta lagi
eru þær góð leið til að uppfylla
daglega hreyfiþörf líkamans sem er
að lágmarki 30 mínútur á dag fyrir
fullorðna. Ef menn eru 15 mínútur
á leið til og frá vinnu ná þeir því
marki.
Hjólreiðar sporna við offitu og
lækka tíðni ýmissa sjúkdóma svo
sem vöðva- og liðamótasjúkdóma,
krabbameins, kransæðasjúkdóma
og sykursýki. Jafnframt byggja
menn smátt og smátt upp líkam-
legt úthald sitt með reglulegum
hjólreiðum.
Líkt og önnur hreyfing stuðla
hjólreiðar að bættri andlegri líðan
samhliða því að efla líkamlega
heilsu.
Fjárhagslegur ávinningur
Hjólreiðum fylgir einnig nokkur
fjárhagslegur ávinningur fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki vegna minni
útgjalda og lægri tíðni veikinda og
sjúkdóma sem fylgir heilsusamlegri
lífsstíl.
Þeir sem hyggjast efla heilsuna í
sumar með reglulegum hjólreiðum
mega þó ekki vanrækja öryggið
enda lítill heilsufarslegur ávinning-
ur af því að lenda í hjólreiðaslysi.
Mikilvægt er að sýna varkárni í
umferðinni og fara að settum
reglum. Taka verður tillit til ann-
arra vegfarenda hvort sem þeir eru
gangandi eða akandi. Síðast en ekki
síst ætti hjólreiðafólk að huga vel
að ástandi hjólsins og öryggisbún-
aði til að draga úr hættu á slysum.
Bjalla og keðjuhlíf gerir sitt gagn og
það sama má segja um góðan hlífð-
arhjálm.
Hreyfiþörf fullnægt Margir
uppfylla daglega hreyfiþörf með
því að hjóla til og frá vinnu.
Ýmsir kostir fylgja daglegum hjólreiðum
Hagkvæmar og
heilsusamlegar
Daglegar hjólreiðar eru
heilsusamlegur og hag-
kvæmur kostur enda
sporna þær við ýmsum
sjúkdómum og létta
lund. Ekki má þó gleyma
örygginu því að annars
getur farið illa.
24stundir/Þorkell
Í tilefni af tóbakslausa deginum
ætla Reyksíminn og Lýð-
heilsustöð að veita baráttufólki
gegn tóbaki sérstaka viðurkenn-
ingu. Leitað er að einstaklingi eða
hópi sem með baráttuvilja, fram-
sýni og hugrekki hefur lagt sitt af
mörkum í tóbaksvörnum eða
tóbaksmeðferð þeirra sem heyja
baráttu við tóbakið. Annars vegar
hljóta viðurkenningu heilbrigð-
isstarfsmaður eða hópur heil-
brigðisstarfsmanna sem hafa
unnið sérstaklega við að aðstoða
fólk við að hætta að reykja. Hins
vegar verður verðlaunaður ein-
staklingur sem hefur unnið sér-
staklega að tóbaksvörnum á op-
inberum vettvangi.
Tóbaksvarnaverðlaun
Hjólreiðar eru ekki aðeins góður
kostur til að koma sér til og frá
vinnu heldur eru þær einnig
íþrótt sem fjölskyldan getur
stundað saman. Fátt jafnast á við
að fara í hjólaferðir með börn-
unum um bæinn eða út fyrir bæj-
armörkin. Upplagt er að taka
með nesti sem hægt er að snæða á
vel völdum stað. Slíkar ferðir efla
ekki aðeins líkamlega og andlega
heilsu heldur styrkja þau fjöl-
skyldutengslin.
Íþrótt fyrir alla
fjölskylduna Til að viðhalda áhuganum á hjól-
reiðum er um að gera að prófa
nýjar leiðir öðru hverju. Hjólið er
öðru fremur samgöngutæki sem
gerir manni kleift að nema ný
lönd og kanna ókunnar slóðir.
Einnig er gaman að bregða sér út
úr bænum öðru hverju og hjóla í
guðsgrænni náttúrunni til til-
breytingar.
Góð tilbreyting
Andlegi meistarinn Mata verður
með fyrirlestur (sitting) í Manni
lifandi, Borgartúni 24, í dag kl 20.
Einnig verður hún með eins dags
hugleiðslu í Bláfjöllum laug-
ardaginn 10. maí. Mata hefur
stundað hugleiðslu í tugi ára og
hefur öðlast mikinn styrk, and-
lega visku og kærleiksríka nær-
veru. Hún talar meðal annars um
kærleik í víðasta skilningi þess
orðs þar sem engir dómar eru
lagðir á eitt né neitt en lífið skoð-
að með opnum huga og umburð-
arlyndi og gleði í hjarta.
Fyrirlestur and-
legs meistara
Þeim sem fá ekki nægan næt-
ursvefn er hættara við að þjást af
offitu en þeim sem sofa nóg sam-
kvæmt nýrri rannsókn. Það sama
má segja um þá sem sofa of lengi.
Þeir sem eiga erfitt með svefn eru
einnig líklegri til að reykja og
drekka meira og hreyfa sig ekki
nóg samkvæmt rannsókninni.
Svefn og offita
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Fuerteventura, sem
hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Njóttu
lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað við góðan að-
búnað. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann. Gott íbúðahótel á góðum stað í
Corralejo. Á hótelinu er góð aðstaða, s.s. móttaka, veitinga-
staður, snarl-bar, mini-verslun, þvottaaðstaða, barnaleik-
svæði, sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstaða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Fuerteventura
3. eða 17. júní
frá kr. 44.990
*** Frábært sértilboð ***
Maxorata Beach
Mjög takmarkaður fjöldi íbúða
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 54.990
Netverð á mann, m.v. 2 saman í íbúð á
Maxorata Beach í viku.
Aukavika kr. 10.000.
Sértilboð 3. júní í 2 vikur og 17. júní í
1 eða 2 vikur.
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Maxorata Beach
í viku. Aukavika kr. 10.000.
Sértilboð 3. júní í 2 vikur og 17. júní í
1 eða 2 vikur.