24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 08.05.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is Samkomulag sveitarstjórnar Flóa- hrepps og Landsvirkjunar frá júní í fyrra er ólögmætt. Sveitarstjórn- in er heldur ekki skaðabótaskyld gagnvart Landsvirkjun verði ekk- ert úr Urriðafossvirkjun. Þetta segir Arnar Þór Stefánsson lög- maður sem fjallaði um ýmis álita- mál varðandi aðalskipulag Flóa- hrepps og Urriðafossvirkjun á fræðaþingi um Urriðafossvirkjun sem haldið var á mánudag. Valdið hjá sveitarstjórn „Skipulagsvaldið er hjá sveitar- félögum og það á enginn að geta þvingað sveitarstjórnina eða sam- ið svo um að menn skuli fá til- tekið fram í skipulagi. Þeir sem ætla að reisa mannvirki svo sem virkjun þurfa að sæta því að skipulag fer í ákveðinn farveg og þeir eiga ekki að geta keypt sig þar inn,“ segir Arnar Þór. „Það eru tvær umræður í sveit- arstjórn og það er gert ráð fyrir að menn komi að athugasemdum og þær hafi áhrif til breytinga. En ef það er búið er að semja um nið- urstöðuna fyrirfram er gert að engu lögbundið málsmeðferðar- ferli. Þá er það leikrit.“ Umbjóðandi Arnars Þórs, Jón Árni Vignisson í Skálmholti, hefur lagt fram stjórnsýslukæru vegna samkomulags Landsvirkjunar og Flóahrepps. Hún er nú til umfjöll- unar í samgönguráðuneytinu. Ekki lögvernduð krafa Arnar Þór segir hreppinn ekki skaðabótaskyldan gagnvart Lands- virkjun falli hann frá samkomu- laginu. „Landsvirkjun á enga lög- verndaða kröfu til þess að virkjunin fari inn á skipulag. Það er bara val sveitarstjórna,“ segir hann. Landsvirkjun getur ekki hafið virkjunarframkvæmdir nema hafa samið við landeigendur eða beitt eignarnámi. Flóinn er frjáls  Sveitarstjórn Flóahrepps hvorki bundin né skaðabótaskyld gagnvart Landsvirkjun ➤ Samkvæmt samkomulagisveitarstjórnar Flóahrepps og Landsvirkjunar mun Lands- virkjun m.a. beita sér fyrir og kosta endurbætur á GSM- símakerfinu í Flóanum. ➤ Þá mun Landsvirkjun leggjavegi og nýja vatnsveitu. ➤ Auk þess leggur Landsvirkjunfram fjörutíu milljóna króna eingreiðslu til sveitarfé- lagsins. SAMKOMULAGIÐ 24stundir/Sigurður Jónsson Urriðafoss í Þjórsá er ekki alfaraleið, en þó er stutt leið þangað frá Suðurlandsvegi. Landhelgisgæslan á að gegna lykilhlutverki af Íslands hálfu við þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um öryggi á N-Atlantshafi. Þetta segir í nýrri landhelgisgæsluáætlun fyrir árin 2008 til 2010. Í áætluninni segir að tækjakost- ur Landhelgisgæslunnar muni efl- ast til mikilla muna á næstu árum með nýrri flugvél og nýju varð- skipi sem búin eru fullkomnasta tækjabúnaði. Einnig hefur verið gengið frá samkomulagi milli Ís- lands og Noregs um útboð á þremur nýjum björgunarþyrlum sem afhentar verða á árunum 2011 til 2014. Með búnaðinum verði Land- helgisgæslan betur í stakk búin að sinna hlutverki sínu, hvort sem horft er til gæslu landhelginnar, björgunar eða mengunarvarna. „Í ljósi stóraukinnar skipaumferðar um Norður-Atlantshaf í nágrenni Íslands með olíu, gas og önnur mengandi efni eykst hætta á mengunarslysum í íslensku efna- hagslögsögunni.“ Áætlunin er sögð taka á þeirri breyttu heimsmynd sem við blasi í löggæslumálum á starfssvæði Gæslunnar og leggi þannig aukna áherslu á varnir gegn hryðjuverk- um og skipulagðri glæpastarfsemi sem og landamæraeftirlit. aí Ný landhelgisgæsluáætlun kynnt Tækjakostur eflist Háskólinn á Akureyri Hjúkrunarfræði Frá því að ég ákvað að fara í hjúkrunarfræði kom ekkert annað en HA til greina. Ég var búin að heyra að skólinn væri góður og persónulegur og það heillaði mig. Bekkirnir eru passlega stórir og maður nær að kynnast samnemendum vel. Mér finnst námið hérna frábært, hér er yndislegt að búa og ég er búin að eignast góða vini. Nám í hjúkrunarfræði skiptist í raunvísindi, hug- og félagsvísindi og hjúkrunarfræði- greinar. Klínískt nám fer fram víða um land eða hjá samstarfsaðilum erlendis og tekur samtals 24 vikur. Eva Björk Axelsdóttir, Hjúkrunarfræðinemi Framúrskarandi kennarar - Frábær aðstaða til náms Litlir námshópar skapa persónulegt námsumhverfi Möguleiki á að taka hluta námsins hjá erlendum samstarfsaðilum MÓTTAKA UMSÓKNA ER HAFIN UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ Kynntu þér nám við Háskólann á Akureyri á www.haskolanam.is RV U N IQ U E 05 08 02 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Umhverfisvottaðar vörur - fyrir sumarbústaðinn, veiðihúsið og ... Servíettur NexxStyle 39x39cm 80stk, ýmsir litir Satiné Clean, gólfsápa Brial Clean, alhliða hreinsiefni Kristalin Clean, baðherbergishreinsir Into WC Clean Lotus eldhúsrúllur Lotus Maraþon Plus Lotur T-Þurrkur Lotus V-Þurrkur Lotus WC pappír Lotus WC Júmbó Á tilboði í maí 2008 Umhverfi svottuð h reinsiefni og papp írsvörur 20% a fsláttur

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.