24 stundir - 08.05.2008, Qupperneq 15
24stundir FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 15
Það hefur ekki mikið fariðfyrir Birni Inga Hrafns-syni eftir að
hann sagði skilið
við borgarpólitík-
ina. Hann unir hins
vegar hag sínum vel
sem blaðamaður á
Markaðnum, við-
skiptablaði Fréttablaðsins. Björn
Ingi er hins vegar spenntur fyrir
haustinu en þá fer hann í loftið
með nýjan sjónvarpsþátt á Stöð 2
í anda Silfurs Egils. Þar ætlar
Björn Ingi að taka pólitíkusa á
beinið, sem varla er vanþörf á, en
sjálfur hefur hann verið sá gestur
sem hvað oftast hefur mætt í
Silfrið. Egill Helgason missir því
einn af uppáhaldsgestum sínum
og fær hann að auki í samkeppni.
Fjör í pólitískri umræðu í haust.
Borgarstjórnarfundur ífyrrakvöld virðist hafa far-ið úr böndunum, enda
dróst hann á langinn. Þegar líða
tók að miðnætti
fóru menn að mis-
mæla sig illilega auk
þess sem flissað var
í salnum eins og í
unglingabekk þar
sem stelpur hópa
sig saman. Það var síðan eftir
miðnætti að borgarstjórnarflokk-
urinn ákvað að taka tilboði
minnihlutans, sem kallar sig Betri
helminginn, um að taka þátt í
keppni um hvort lið hjólar fleiri
daga og fleiri kílómetra í vinnuna
meðan á átakinu „Hjólað í vinn-
una“ stendur. Dofri Her-
mannsson bloggar um þetta og
lýsir yfir ánægju sinni með fram-
takið en sjálfur hjólaði hann í
gærmorgun úr Grafarvoginum.
Það hefur hvílt mikil leyndyfir því hvað stjörnukokk-urinn Siggi Hall ætlar að
taka sér fyrir hendur en hann
hætti með veitinga-
hús sitt Hjá Sigga
Hall fyrir allnokkru.
Nú hefur komið í
ljós að Siggi er að
opna sjávarréttastað
í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar ásamt grænmet-
iskokknum Sæmundi Kristjáns-
syni. Á staðnum verða í boði
sjávar- og grænmetisréttir. Veit-
ingastaðurinn, sem verður opn-
aður í sumar, verður nýtískulegur
og í anda þess alþjóðlega and-
rúmslofts sem ríkir í flugstöðinni,
að því er segir á vef flugstöðv-
arinnar. Vonandi að verðið verði
fyrir buddu alþýðunnar en margir
kvarta yfir hækkandi verðlagi í
flugstöðinni. elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Ekkert eitt vandamál í íslensku
efnahagslífi er mikilvægara en bar-
áttan við verðbólguna. Til lítils er
að semja um kaup og kjör ef verð-
bólgan fer úr böndunum og fjár-
hagur heimilanna raskast verulega
og veldur aukinni hættu á gjald-
þrotum ef ekki verður hratt unnið
á henni. Ekki er um að villast að
verðbólgudraugurinn er kominn
aftur á kreik og samhent átak þarf
til að kveða hann niður.
Frumorsök verðbólgunnar er
óhófleg þensla undangenginna ára.
Í galopnu hagkerfi hefur sjálfstæð
peningastefna Seðlabankans lítil
áhrif á raunverulega efnahagsstarf-
semi. Um skeið tókst að halda aft-
ur af verðbólgunni með háu vaxta-
stigi. Þó tókst ekki að létta á
verðbólguþrýstingnum, hann var
einungis geymdur í formi of hás
gengis. Ástandið þoldi ekki stór-
felld áföll í fjármálaheiminum,
blaðran sprakk og verðbólguflóðið
skall á þjóðinni.
Stundum er sagt að skýringin á
hömluleysi þjóðarinnar í fjármál-
um sé því um að kenna hve ungt
fólk stýrir helstu fyrirtækjum og að
lítið sé hlustað á reynslurök. Það er
þó ofsögum sagt að unga kynslóð-
in í dag beri ekki skynbragð á
verðbólgu. Að minnsta kosti er
það ekki reynslan á mínu heimili.
Dóttir mín 9 ára hefur miklar
áhyggjur af verðbólgunni, enda
eini almennilegi sparifjáreigandinn
á heimilinu. Henni stendur ekki á
sama um neikvæða raunávöxtun í
sparibauknum sem verðbólgan
veldur. Já, verðbólgan hún étur
litlu börnin sín, sungu Hrekkju-
svínin. Er nema von að börn séu
óttaslegin við þessar aðstæður.
Dóttir mín veit reyndar líka
hvernig á að vinna bug á verðbólg-
unni. Það er að minnsta kosti sam-
eiginlegur skilningur okkar feðgina
að frumorsök verðbólgu er sú að
fólk og fyrirtæki eyða meiru en
þau afla. Við þurfum því að draga
úr eyðslunni til að draga tennurn-
ar úr „verðbólguskrímslinu“. Ein-
falt ekki satt og auðskiljanlegt.
Vinsælli teljast þó aðferðir sem
ekkert snerta mann sjálfan. Lækk-
un á hinu og þessu gjaldinu er til
að mynda nærtæk skyndilausn.
Slíkt er þó sjaldnast nema tilfærsla
á fjármunum frá skattgreiðendum
til neytenda. Óljóst er hverjir
græða á þeim býttum. Frekari
skattalækkanir en þegar hafa verið
boðaðar eru aukinheldur þenslu-
hvetjandi og lítt til þess fallnar að
draga úr eyðslu. Fleiri töfralausnir
eru vafalaust nærtækar en flestar
eiga þær það sammerkt að byggja á
þeirri forsendu að tveir plús tveir
geri fimm. Af eðlilegum ástæðum
skilur dóttir mín ekkert í slíkri vit-
leysu.
Það var ánægjulegt hve sam-
stilltir fulltrúar hins opinbera og
helstu samtaka á vinnumarkaði
voru að loknum fundi sínum í
Ráðherrabústaðnum á miðviku-
daginn. Engar skyndilausnir voru
boðaðar að sinni, enda þær ekki
til. Þess í stað sett af stað sameig-
inleg vinna við greiningu á vand-
anum og úrlausnum sem virka.
Á sama tíma og ábyrg stjórnvöld
og aðilar vinnumarkaðarins lýsa
yfir samstöðu virkjar stjórnarand-
staðan óánægjukórinn. Að sjálf-
sögðu geta stjórnvöld ekki kveink-
að sér undan því þótt óánægja sé
með slæmar efnahagshorfur. Efna-
hagsástandið er og verður ofarlega
í hugum fólks, einkum í niður-
sveiflu og því verður ekki breytt.
Það er þó ábyrgðarhluti að ala sér-
staklega á óánægjunni og gefa fólki
falskar vonir um einfaldar lausnir
á erfiðum úrlausnarefnum.
Sérstaka athygli vekur málflutn-
ingur Framsóknarflokksins sem er
að stórum hluta ábyrgur fyrir því
ójafnvægi sem ríkt hefur í efna-
hagsmálum undanfarin ár og þeim
vanda sem sprunginni eignaverðs-
bólu fylgir. Væri ekki meiri sómi
að því að sýna samstöðu með
ábyrgum stjórnmálamönnum og
aðilum vinnumarkaðarins sem
glíma við erfiða stöðu? Hefur ein-
hver trú á því að efnahagsmálum
þjóðarinnar væri betur komið í
höndum Framsóknarflokks Guðna
Ágústssonar?
Höfundur er aðstoðarmaður við-
skiptaráðherra
Vandinn með
verðbólguna
VIÐHORF aJón Þór Sturluson
Á sama tíma
og ábyrg
stjórnvöld og
aðilar vinnu-
markaðarins
lýsa yfir sam-
stöðu virkjar
stjórnarandstaðan
óánægjukórinn.
Útsala
Útsala
Útsala
Útsasala
ala
Útsala Útsala
Útsala
Hrein
orka
Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun
er 72% á Íslandi en um 6-7% innan Evrópusam-
bandsins og um 13% á heimsvísu.
www.samorka/dagurvatnsins.is
Afgreiðslustarf
Þórsbakarí bistró
Ármúla 21
Afgreiðslustarf í boði fyrir viðmótsþýðan,
hressan og snyrtilegan starfskraft sem elskar
að bjóða fram góðan mat, frábær og holl
brauð og ómótstæðilegar kökur.
Framtíðarstarf.
Hringið í síma 588 0780 milli kl. 9 og 12.