24 stundir - 08.05.2008, Síða 20

24 stundir - 08.05.2008, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Það er einungis ein hamingja í lífinu, að elska og vera elskaður. George Sand Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is Rafn Hafnfjörð sýnir þessa dagana í Start Art á Laugavegi ljósmyndir af Dverghömrum á Síðu. Mynd- irnar eru frá þessu ári og því síð- asta. „Þær eru örlítið brot af þeim undraheimi sem Ísland býr yfir,“ segir hann. Rafn, sem verður áttræður á þessu ári, er kunnur hér á landi og erlendis fyrir ljósmyndir sínar. Áhugi hans á íslenskri náttúru hefur fylgt honum frá barnæsku. Form og litir „Æskuheimili mitt var í ná- grenni við Hamarinn í Hafnar- firði. Um átta ára aldur fór ég að sækja þangað og horfa á þau fjöl- breyttu form og liti sem þar er að finna,“ segir hann. „Þangað var gott að leita og láta hugann reika með ómótaðar hugleiðingar um framtíðina. Ég leitaði einnig af- dreps fyrir regni og roki í skjóli við klettana, talaði við steinana og las í mosaskófirnar. Þetta var minn griðastaður og töfraheimur. Augu mín opnuðust fyrir því smáa í náttúrunni. Allar götur síðan hafa ferðir út í náttúruna verið mín lífsfylling og þá helst með veiði- stöngina á annarri öxlinni og myndavélina á hinni.“ Mikilvæg landkynning Áhugi Rafns á ljósmyndun vaknaði þegar hann fékk myndavél í fermingargjöf. „Ég byrjaði strax að nota myndavélina til að tjá til- finningar mínar og sótti mjög í að mynda landslagið,“ segir Rafn. Rafn stofnaði árið 1954 prent- smiðjuna Litbrá og hóf markvisst að ljósmynda náttúru Íslands árið 1960 í þeim tilgangi að kynna Ís- land erlendis. „Ég fór út í náttúr- una um helgar og tók landslags- myndir. Myndir af fossum, fjöllum og hverasvæðum sem fóru í kynningarbæklinga, fyrst fyrir Loftleiðir og síðan fyrir Ferðaskrif- stofu ríkisins og aðrar ferðaskrif- stofur. Ég fékk gríðarlega góð við- brögð við þessum myndum og þær voru miklu meiri landkynn- ing en margir átta sig á,“ segir Rafn. Á ferlinum hefur hann tekið tugi þúsunda mynda og er enn að. „Ég kann ekki að útskýra ljós- myndaáhuga minn. Hann hefur fylgt mér í gegnum lífið. Það eina sem ég get sagt er að hann veitir mér lífsfyllingu,“ segir hann. Rafn Hafnfjörð „Ég kann ekki að útskýra ljósmyndaáhuga minn.“ Rafn Hafnfjörð sýnir ljósmyndir af Dverghömrum Undraheimar Íslands ➤ Rafn var einn af sjö stofn-endum Litla ljósmynda- klúbbsins árið 1955 og hélt ásamt fjórum félögum sínum fræga ljósmyndasýningu í Bogasalnum árið 1966. ➤ Bókaforlagið Salka gefur útbókina Focus on Iceland með 600 myndum eftir Rafn. Ari Trausti Guðmundsson skrifar texta bókarinnar. MAÐURINN Rafn Hafnfjörð sýnir í Start Art ljósmyndir af Dverghömrum. „Þær eru örlítið brot af þeim undraheimi sem Ísland býr yfir,“ segir hann um myndirnar. Ein af myndum Rafns í Start Art „Þær eru örlítið brot af þeim undra- heimi sem Ísland býr yfir,“ segir hann um myndirnar. 24stundir/G.Rúnar Á þessum degi árið 1986 varð Clint Eastwood bæjarstjóri í Carmel. Hann skellti sér í kosningabar- áttu á síðustu stundu en fékk 72,5 prósent greiddra atkvæða. Laun hans í bæjarstjóraembætti voru 200 dollarar. Carmel er lítill bær í Kaliforníu með 4000 íbúa. Þar er iðandi menningarlíf og íbúar eru vel stæðir. Eastwood varð vinsæll bæjarstjóri en ákvað að gefa ekki kost á sér annað kjörtímabil. Á bæj- arstjóraárum sínum gerði hann myndirnar Heart- break Ridge og Bird. Eastwood hefur verið yfirlýstur repúblikani frá árinu 1951. Hann studdi Richard Nixon í forseta- kosningum árið 1968 og Arnold Schwarzenegger sem ríkisstjóra í Kaliforníu árin 2003 og 2006. Hann segir mottó sitt í lífinu vera: Fólk á að láta hvert annað í friði. Clint verður bæjarstjóri MENNINGARMOLINN AFMÆLI Í DAG Betty Ford forsetafrú, 1918 Vivienne Westwood fatahönnuður, 1941 Julian Lennon tónlistarmaður, 1963 Nýjar vörur Stærðir 40-60 Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15 10. Dvergurinn Rauðgrani G.T. Rotman 9. Óreiða á striga Kristín Marja Baldursdóttir 8. Alfinnur álfakóngur G.T. Rotman 7. Aska Yrsa Sigurðardóttir 6. Áður en ég dey Jenny Downham 5. Þúsund bjartar sólir - kilja Khaled Hosseini 4. Sjortarinn - kilja James Patterson 3. Dísa ljósálfur G.T. Rotman 2. Steinsmiðurinn - kilja Camilla Läckberg 1. Þórarinn Eldjárn - Kvæðasafn Þórarinn Eldjárn Listinn er gerður út frá sölu í Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar 30.04. 2008 -06.05.2008. METSÖLULISTI Bækur á íslensku 10. After Dark Haruki Murakami 9. Ghost Robert Harris 8. Lollipop Shoes Joanne Harris 7. Witch of Portobello Paulo Coelho 6. Blood of Flowers Anita Amirrezvani 5. 501 Must-See Destinations Bounty Books 4. Bad Luck and Trouble Lee Child 3. Exit Music Ian Rankin 2. Good Guy Dean Koontz 1. Children of Hurin J. R. R. Tolkien Listinn er gerður út frá sölu dagana 29.04.2008 - 05.05.2008 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar METSÖLULISTI Erlendar bækur Í kvöld, 8. maí kl. 20.00, held- ur Þorvaldur Kristinn Þor- valdsson, bassi, útskrift- artónleika í Salnum í Kópavogi. Hann flytur lög eft- ir Bach, Beethoven, Verdi, Pjotr I. Tschaikovsky og Karl O. Runólfsson. Þorvaldur í Salnum

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.