24 stundir - 08.05.2008, Síða 32

24 stundir - 08.05.2008, Síða 32
Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 í dag Fimmtudagur 8. maí 2008  Hið konunglega fjelag verður lagt niður því fé- lagsmönnum er aldrei boð- ið í konunglegar veislur. » Meira í Morgunblaðinu Klökk og spæld  „Það er bara verið að toga,“ segir Einar Bárð- arson en ný plata Garðars Thórs Cortes er væntanleg. »Meira í Morgunblaðinu Í ójöfnum leik?  Í leik kjósa menn að fremja glæpi og drepa fólk. Verða þeir ónæmir fyrir ofbeldi fyrir vikið? » Meira í Morgunblaðinu Ofbeldi og glæpir reykjavíkreykjavík 32 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Markmenn geta enst endalaust ef þeir hugsa vel um líkamann. Ég er með samn- ing við Val til 2010 þannig að ég er ekkert á þeim buxunum að fara að hætta. Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Það sem við erum að reyna að gera er að skapa vettvang fyrir hönnuði til að koma vörunum sín- um á framfæri,“ segir Kjartan Sturluson en hann, ásamt Ingva Þór Guðmundssyni, opnaði fyrir skömmu netverslunina Birki- land.com þar sem áhugasamir að- ilar, jafnt íslenskir sem erlendir, geta fjárfest í vandaðri íslenskri hönnun. Kjartan er kannski ekki vel þekktur í hinum íslenska hönn- unarheimi en í íþróttaheiminum er hann vel þekktur, enda mark- vörður í knattspyrnuliði Íslands- meistara Vals. Stærsti markaðurinn erlendis Kjartan segir að tilgangurinn með netversluninni sé fyrst og fremst sá að ná augum erlendra aðila, enda metur hann það svo að þar sé stærsti markaðurinn. Hann bætir við að þó svo að verslunin hafi ekki verið lengi á netinu hafi þeir félagar þegar fengið góðar við- tökur. „Við höfum fengið alveg ótrú- lega góðar viðtökur. Eftir að fólk fór að frétta af þessu þá hafa fjöl- margir hönnuðir haft samband við okkur af fyrra bragði og vilja taka þátt. Við finnum alveg að það er þörf fyrir þetta.“ Það finnst eflaust mörgum vera langur vegur frá því að standa á milli stanganna á knattspyrnu- marki og að versla með hönnun á netinu. Kjartan segir þó að þetta hafi legið beint við í sínu tilfelli. „Ég er viðskiptafræðingur frá Há- skóla Íslands. Svo ákvað ég að fara í framhaldsnám, tók mér frí árið 2004, fór til Mílanó og lærði þar hönnunarstjórnun. Þannig að þetta lá beinast við.“ Hann segir að eftir að heim var komið og boltinn var farinn að rúlla á ný hafi hann leitað að vettvangi til að nýta nám sitt og þá hafi hugmyndin um net- verslunina birst. Markverðir geta enst endalaust Kjartan þvertekur fyrir það að með því að setja þessa netverslun á laggirnir sé hann að leggja grunn- inn að því að hætta afskiptum sín- um af knattspyrnu. Hanskarnir eru ekki á leiðinni á hilluna, andstæð- ingum Vals eflaust til mikillar gremju. „Nei, nei, ég á fjögur góð ár eftir í fótboltanum. Markmenn geta enst endalaust ef þeir hugsa vel um líkamann. Ég er með samning við Val til 2010 þannig að ég er ekkert á þeim buxunum að fara að hætta.“ Kjartan Sturluson ekki við eina fjölina felldur Markvörður selur íslenska hönnun ➤ Kjartan hefur leikið 4 A-landsleiki og fengið á sig ein- ungis eitt mark. ➤ Hann hóf knattspyrnuferilsinn með Fylki árið 1994 og lék í Árbænum til ársins 2003. ➤ Hann hefur tvisvar sinnum lit-ið rauða spjaldið á ferlinum. KJARTAN STURLUSON Markvörður Vals, Kjartan Sturluson, hefur opnað netverslunina Birki- land.com þar sem íslensk hönnun er til sölu. Hann vill skapa vettvang þar sem hönnuðir geta komið sér á framfæri. Fjölhæfur Kjart- an Svífur milli stanganna og selur íslenska hönnun á netinu. 24stundir/Frikki MYNDASÖGUR Aðþrengdur JÚ ÞÚ ERT MEÐ ÞAÐ. EKKI SÝNA ÞAÐ ÞÁ BREIÐIST ÞAÐ ÚT. Bizzaró Bizzaró Þegar ég var ungur, þá var fjöldinn allur af fólki eins og ég enn lífandi, allir í heiminum voru ungir og „Madonna“ var stytta í kirkjunni. Ekki hoppa Bubbi minn! Vorið er alveg handan við hornið! Ég lofa þér því!

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.