Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Side 3

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Side 3
Hann fagði líf siff í við að aðsfoða brezka fanga. í brejcka sjónvarpinu var fyrir um það bil tyeimur árum rætt viö japanskan lútherstrúarprest, lág- vaxinn mann að nafni Kiyoshi ~Watanabe. Meöan á útsendingunni stóð vöknaöi mörgum af starfs- mönnum sjónvarpsins um augu, og viðtalið hafði mikil áhrif á sjónvarpsnotendur viðs vegar um landið. Daginn eftir að viðtalið birtist, sat Liam Nolan, sjónvarpsmaður- inn, sem hafði rætt við prestinn, ásamt honum á litlum veitinga- stað i Lundúnum. Þá gekk ein af Þjónustustúlkunum, sem lengi hafði starað á Japanann, að borði Þeirra og sagði; Fyrirgefið, en er Þetta ekki japanski maðurinn, sem var í sjónvarpinu i gærkvöldi? Henni var sagt að svo væri, og þá MAOURINN tók hún í höndina á Watanabe og sagði: — Þangað til í gærkvöldi hataði ég alla Japani, af því að þeir píndu bróður minn til bana í Hong Kong. En nú get ég ekki hatað þá lengur, herra, eftir að hafa séð yður, því nú veit ég, að það eru líka til góðhjartaðir Jap- anar. Guð blessi yður, herra. Japaninn litli skildi ekki alveg, það sem hún sagði, en þegar Nolan var búinn að endursegja það á leiðinni til gistihússins, komst hann við af fögnuði. Nokkrum mínútum síðar voru þeir staddir í mannþröng við neðanjarðarstöð, og þá ruddi stórvaxinn maður með rauðleitt andlit sér braut til þeirra, rétti fram höndina og sagði: — Ég sá yður í sjónvarpinu í gær, herra. Mér er það mikill heiður að mega að taka í hönd yð- ar. Watanabe eða „John frændi,” eins og hann hefur líka verið kall- aður, brosti, en gat ekkert sagt, þvi að tárin streymdu nú aftur niður kinnar hans. Sjórnandi sjónvarpsþáttarins, Liam Nolan hefur nú skrifað bók um þennan japanska mann, sem mjög hrærði brezka sjónvarps- notendur. Litli maðurinn frá Nana- taki heitir bókin, og hún er ekki mikil vöxtum, hún fjallar samt um mikilmenni, einn þeirra óþekktu manna sem á striðsárunum hættu lífi sínu til að hjálpa meðbræðrum sínum og líkna þeim í hörmungum þeirra. Hann varð þeim ógleyman- legur, sem kynntúst honum og þegar sagan var dregin fram mörg- um árum eftir stríðið, átti hún mik- ALÞÝÐUBLABIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 291

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.