24 stundir - 27.06.2008, Page 1
24stundirföstudagur27. júní 2008120. tölublað 4. árgangur
...ferskleiki er okkar fag !
Melabúðin
Hagamel
Reykjavík
Þín verslun
Seljabraut
Reykjavík
Spar
Bæjarlind
Kópavogi
Kassinn
Norðurtanga
Ólafsvík
Kostur
Holtsgötu
Njarðvík
Tíu ár eru síðan ný VW Bjalla kom aftur
á markað og varð vinsælli en nokkru
sinni. Jóhannes í Bónus er mikill bíla-
áhugamaður og flutti inn þá
fyrstu sem vakti mikla athygli.
Alltaf vinsæl
BÍLAR»28
Ólöf Arnalds samdi lag sérstaklega
fyrir Náttúrutónleikana sem hún spil-
ar á á morgun. Þá verður hún í beinni
útsendingu á National Geographic.
Lagið fæst gefins á netinu.
Baráttusöngur Ólafar
FÓLK»38
Á ferð og
flugi í sumar
11
11
9
11 9
VEÐRIÐ Í DAG »2
Góð veiði hefur verið í Laxá í Að-
aldal frá því áin opnaði fyrir veiði-
mönnum en öllum löxum hefur
verið sleppt og á þá sett
sérstök senditæki.
Laxar með senditæki
»30
Ásta Birna Magnúsdóttir frá Djúpa-
vogi er ný vonarstjarna í golfinu en
hún hefur reyndar komið víða við í
í mörgum íþróttagrein-
um, m.a. frjálsum.
Vonarstjarna í golfi
»15
Hamingjan hefur náð tökum á íbú-
um á Hólmavík sem bjóða lands-
mönnum upp á ljúfa helgi með til-
heyrandi
skemmtilegheitum.
Hamingja á Hólmavík
»27
SÉRBLAÐ
24stundirFÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008
17
Þeim fjölgar sem ferðast í þeim tilgangi aðkynnast matarmenningu annarra landa. Mat-gæðingar á ferðalagi um New York hafa umótal margt að velja. Beyglur í Brooklyn, sushi áManhattan, ítalskan mat í Meat Packingdistrict og auðvitað dim sumí Chinatown.
Bragðað á New York
»22
Í grennd við Reykjavík má finnaáhugaverða staði. Rjómabúið áBaugsstöðum er þeirra á með-al. Safnið er opið gestum álaugardögum og sunnudögumfrá eitt til sex frá og
með 28. júní. »21
Kolbrún Björnsdóttir hefur aldreikomið til New York. Engu að síðurer hún hugfangin af borginni ogiðar í skinninu að heimsækja hanaí haust og upplifa stemninguna íkringum forsetakosn-ingarnar.
Kosningadrama í haust
»18
Mynd/Auður Karítas
FERÐALÖG
Rjómabú á Suðurlandi
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@24STUNDIR.IS
NEYTENDAVAKTIN »4
54% munur á
tjaldsvæðum
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Fimmtu hverri 11 ára íslenskri
stelpu finnst hún vera of feit, eða
20%, en 38% 15 ára stelpna. Ís-
lensku stelpurnar telja sig, eins og
stelpur í mörgum öðrum löndum,
miklu feitari en þær eru í raun og
veru. Þetta er meðal þess sem kom
fram í könnunum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar á heilsu
og líðan ungmenna í 37 löndum.
Raunveruleg þyngd íslenskra
stelpna, miðað við alþjóðlega lík-
amsþyngdarstuðulinn BMI fyrir
unglinga, er svipuð og hjá mörgum
þjóðum, að sögn Þórodds Bjarna-
sonar, prófessors við Háskólann á
Akureyri, sem stjórnaði rannsókn-
inni á Íslandi. „Um 12% 15 ára ís-
lenskra stelpna eru of feit, sem er
svipað og hjá mörgum öðrum
þjóðum,“ greinir Þóroddur frá.
Strákarnir með þeim þyngstu
15 ára íslenskir strákar eru hins
vegar meðal þeirra þyngstu en þeir
eru í 5. sæti. „Íslenskir strákar fitna
með aldrinum en ekki stelpur.
Samt finnst fleiri stelpum en
strákum þær vera feitari en þær eru
í raun og veru,“ segir Þóroddur.
Hluti skýringarinnar á því
hversu miklar áhyggjur stelpur
hafa af þyngdinni er samband
mæðra og dætra, að því er sænski
sálfræðingurinn Kristina Elfhag,
sem starfar við Karólínsku stofn-
unina í Stokkhólmi, greinir frá í
viðtali við Svenska Dagbladet.
Hún segir börn herma eftir
mæðrum sínum. „Þær kvarta und-
an þyngd sinni og eru almennt
óánægðar með líkama sinn. Auð-
vitað hefur þetta áhrif.“
Sálfræðingurinn bendir jafn-
framt á að mæður borði sætindi sér
til huggunar og haldi síðan í við
sig. Slíkt sé ekki heppilegt fyrir
börn sem eigi ekki að hugsa um ka-
loríur.
Kröfur um ákveðið útlit eiga
einnig þátt í því hversu mikið
stelpur hugsa um þyngd, að mati
sálfræðingsins. „Nú eiga börn að
líta út eins og fullorðnir, þau eiga
að vera í þröngum fatnaði og bux-
um sem ná ekki upp í mittið. Þetta
vekur mikla athygli á sjálfum lík-
amanum.“
11 ára með
áhyggjur
af þyngd
Áhyggjur stelpna áhrif frá mæðrum 15
ára íslenskir strákar meðal þeirra þyngstu
➤ 11 ára: 20% stelpna og strákasegjast of feit. 10% stelpna
og 15% stráka eru of þung.
➤ 13 ára: 35% stelpna og 24%stráka segjast of feit. 12%
stelpna og 16% stráka eru of
þung.
➤ 15 ára: 38 % stelpna og 22%stráka segjast of feit. 12%
stelpna og 22% stráka eru of
þung.
ÞYNGD ÍSLENSKRA BARNA
„Fyrir okkur snýst þetta um að kirkjan sé fyrir alla og að hún standi fyrir
mannréttindum,“ segir Árni. Parið kynntist fyrir sex árum í Bandaríkj-
unum og heldur í viku brúðkaupsferð um landið eftir athöfnina. „Við
fögnum þessari breytingu en lögin ættu ekki að vera tvenns konar heldur
jöfn yfir alla,“ segir Árni. Í dag fá trúfélögin vígslurétt fyrir stað-
festingu samvistar á 30 ára afmælisdegi samtakanna 7́8.
Árni Þór og Paris Prince verða fyrsta sam-
kynhneigða parið sem vígist í þjóðkirkjunni
24stundir/Frikki
„Ég fann mér
minn prins“
»6
Umhverfisverndarsinnar innan
Samfylkingarinnar eru óánægðir
með það að ný álver séu að verða
að veruleika. Álver á
Bakka nær en áður.
Vonbrigði innan
Samfylkingar
»4
Foreldrar Samtaka fatlaðra barna
fagna því að Jóhanna Sigurð-
ardóttir hafi brugðist við bágri
stöðu. Ekki er þó nóg
gert, að mati þeirra.
Skref í rétta átt
en ekki nóg samt
»6
Spænskir þingmenn hafa tekið vel í
tillögu um að veita öpum aukin
réttindi. Nokkrar tegundir apa
munu njóta réttinda til
lífs og frelsis.
Mannapar að fá
mannréttindi?
»8
Sérfræðingur við Commerzbank
telur að heimsmarkaðsverð á olíu
lækki á næstunni. Hann hvetur til
fjárfestinga á hrá-
vörumörkuðum.
Olíuverð við það
að ná toppnum
»14 »12