24 stundir - 27.06.2008, Síða 2
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Verulegir erfiðleikar eru framund-
an í innanlandsflugi á næstu miss-
erum. Með hækkandi rekstrar-
kostnaði og erfiðu efnahagsástandi
lítur allt út fyrir að innanlandsflug-
félögin þurfi að rifa seglin og draga
úr umsvifum sínum.
Þurfa að fækka starfsfólki
Hörður Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Flugfélagsins Ernis
segir allan rekstarkostnað hafa
hækkað gífurlega. „Við eru með
allar okkar tekjur í íslenskum
krónum en öll aðföng, eldsneyti og
varahlutir eru í erlendri mynt. Því
hefur lágt gengi krónunnar veruleg
áhrif á reksturinn.“
Hörður segir allar líkur séu á að
félagið muni fækka ferðum í áætl-
unarflugi næsta vetur. „Það er líka
ljóst að við munum þurfa að
hækka fargjöld eitthvað hjá okkur.
Við höfum enga aðra leið. Ég held
að við verðum líka að draga saman
í mannahaldi.“
Lítið svigrúm er til að fækka í
flugflotanum að sögn Harðar en
það geti þó orðið þrautalendingin.
Eldsneytiskostnaður 50% hærri
Árni Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands segir að
stóri þátturinn í erfiðara rekstrar-
umhverfi sé eldsneytisverðið.
„Eldsneytið hefur bæði hækkað og
sömuleiðis hefur íslenska krónan
veikst. Frá áramótum hefur elds-
neytiskostnaður hjá fyrirtækinu
aukist um fimmtíu prósent þegar
allt er talið. Eldsneytiskostnaður-
inn er nálægt því að vera fjórtán
prósent af heildarrekstrarkostnaði
hjá fyrirtækinu þannig að það er
klárt að reksturinn hefur þyngst
umtalsvert.“
Flugfélagið leggur eldsneytis-
gjald á flugleiðir sem hefur ekki
hækkað að undanförnu en að sögn
Árna stendur til að það gerist á
allra næstu dögum. Ekki hefur ver-
ið tekin ákvörðun um hversu mikil
hækkunin verður.
Flugfélagið hefur fækkað ferð-
um á Egilsstaði umtalsvert að und-
anförnu og líkur eru á að sú þróun
haldi áfram.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Flugfélögin
til lendingar
Eldsneytiskostnaður hefur aukist um helming hjá Flugfélagi Ís-
lands frá áramótum Búist við fækkun starfsfólks hjá Erni
➤ Ekki er hægt að merkja sam-drátt í farþegafjölda í innan-
landsflugi það sem af er ári.
➤ Að sögn forsvarsmanna flug-félaganna virðast æ fleiri
kjósa flugi en ekki bíl.
➤ Hins vegar sé ljóst að ef að lá-deyða í efnahagslífinu verður
viðvarandi eitthvað áfram
getur það haft veruleg áhrif.
INNANLANDSFLUG
Innritun Hart er í ári hjá inn-
anlandsflugfélögunum og
búast má við samdrætti á
næstu misserum.
24stundir/Sverrir
2 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8
Ársverðbólga mælist nú 12,7%,
sem er mesta verðbólga sem
mælst hefur síðan í ágúst 1990,
þegar hún mældist 14,2%. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofunn-
ar um vísitölu neysluveðs í júní,
sem hækkaði um 0,89% frá fyrri
mánuði.
Ef horft er á síðustu þrjá mán-
uði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 5,8% sem jafngildir
25,1% verðbólgu á ári.
„Þetta er verulegur skellur fyrir
íslensk heimili og ég óttast mjög
að á mörgum heimilum, ekki síst
meðal yngri hópa sem hafa nýlega
fjárfest og skulda mikið, muni
eitthvað láta undan,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. Hann segir
neytendur finna mikið fyrir þess-
ari miklu verðbólgu. Hækkun af-
borgana af verðtryggðum lánum
komi illa við marga, og eins aukin
útgjöld vegna hækkandi neyslu-
verðs.
Laun hins almenna neytanda
hafa alls ekki hækkað í takt við
neysluverð, segir Jóhannes. „Það
liggur alveg ljóst fyrir að allur sá
ávinningur sem varð af síðustu
kjarasamningum er fokinn út í
veður og vind, þannig að fólk er
verr statt í dag en það var fyrir
kjarasamninga.“
Verð á bensíni hækkaði um
7,2% í júní, kostnaður vegna eigin
húsnæðis hækkaði um 0,4% og
kostnaður vegna leiguhúsnæðis
um 4,3%. hlynur@24stundir.is
Ávinningur af síðustu kjarasamningum „fokinn út í veður og vind“
Mesta verðbólga í átján ár
Launahækkanir fuðra upp
Verðbólga mælist nú 12,7%.
Unnið var að því að fjarlægja jarð-
veg af byggingasvæði við Langafit í
Garðabæ í gær, en í fyrradag fund-
ust þar bein sem grunur leikur á að
geti verið smituð af miltisbrandi.
„Það er verið að setja jarðveginn í
poka og kör, sem síðan verður
skóflað inn í gám,“ sagði Gunnar
Örn Guðmundsson, héraðs-
dýralæknir Gullbringu- og Kjós-
arumdæmis, sem stjórnaði aðgerð-
um á svæðinu er 24 stundir náðu
tali af honum í gær. Hann sagðist vonast til þess að beinin verði
brennd. „Þetta er ekki mjög smitandi fyrir menn, en það er samt
ákveðin áhætta sem í þessu felst.“ Hann telur mjög ósennilegt að það
liggi nokkurn tíma fyrir hvort beinið var sýkt.
Unnið var að uppgreftri á svæðinu þegar beinin komu í ljós. Gunnar
segir að grunur leiki á að um árið 1940 hafi verið urðaðar milt-
isbrandssmitaðar kýr á svæðinu. hos
Varúð vegna miltisbrands
Seðlabankinn bauð í gær út tvo
flokka af stuttum ríkisbréfum
fyrir 25 milljarða króna. Tilboð
bárust í öll bréfin. Tilboðunum
var tekið. Stjórnvöld tilkynntu
19. júní að boðin yrðu út stutt
bréf í þremur flokkum fyrir 75
milljarða króna.
ejg
Ríkisbréfin
seldust öll
AFS-skiptinemasamtökin á Ís-
landi leita nú af fósturfjöl-
skyldum næsta veturar en meðal
þeirra sem leitað hefur verið til af
því tilefni eru Samtökin 78.
„Ég veit ekki til þess að samkyn-
hneigðir Íslendingar hafi tekið að
sér skiptinema áður,“ segir Eyrún
Eyþórsdóttir, framkvæmdastjóri
AFS á Íslandi. „Margir halda að
það séu bara einhverjar ákveðnar
kjarnafjölskyldur sem geti hýst
en fjölbreytileikinn er svo mikill
og hefðbundna kjarnafjölskyldan
er í raun ekki til í dag. Þess vegna
finnst okkur bara eðlilegt að allir
geti tekið að sér skiptinema.“
Samkynhneigðum býðst að hýsa
STUTT
● Rannsókn á slysi
Lögreglan lýsir eftir vitnum að
slysi við Kópavogslæk,
aðfaranótt laugardagsins 21.
júní, þar sem farþegi í fólksbíl
lést. Lögregla biður vitni að
slysinu um að hafa samband í
síma 444 1100.
● Leiðrétt Í Klippt og skorið í
gær var sagt frá bloggi Péturs
Gunnarssonar og sumt eignað
Maríu Kristjánsdóttur, sem
sagði aðeins: „Mér sýnist líka
af yfirlýsingum bankastjóra
Landsbankans að þáttur í
þessum aðgerðum þeirra sé
líka að svínbeygja okkur til að
halda áfram álversuppbygg-
ingu.“
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Maður lenti á dögunum í því
óhappi að ganga í hnappheld-
una án þess að muna að hann
væri þegar kvæntur.
Fundu yfirvöld 30 ára hjú-
skaparvottorð mannsins í fór-
um sínum. Kannaðist hann
við að hafa verið á 28 daga
drykkjutúr þegar þetta var en
mundi aðeins óljóst eftir kon-
unni sem hann tók sér. aij
Gleymdi fyrri spúsu
Tvíkvæntur
SKONDIÐ
Heilbrigðisráðuneytið segir að
stöðluð RAI-mæling á hjúkr-
unarþyngd ráði
daggjöldum til
hjúkrunarheim-
ila, en ekki rekstr-
arform. Ráðu-
neytið hafnar
samanburði á
daggjöldum
Droplaugarstaða,
Heilsuvernd-
arstöðvarinnar og Landakots, þar
sem þjónustan sé ólík og ósam-
bærileg. Daggjöld hjúkrunarheim-
ila eru um 17-18 þúsund krónur,
en Heilsuverndarstöðin fær tæp 23
þúsund.
Hjúkrunarþyngd ræður
Ráðuneyti út-
skýrir ólík gjöld
Norðaustan eða breytileg átt, 3-8 m/s. Létt-
skýjað um norðvestan- og vestanvert landið,
en annars skýjað með köflum og víða skúrir
fram á kvöld. Hiti 7 til 15 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
11
11
9
11 9
Léttskýjað og skýjað til skiptis
Norðlæg átt, 8-13 m/s um vestanvert landið,
en annars hægari. Víða rigning með köflum
og jafnvel slydda til fjalla, en lengst af þurrt
og bjart veður SV-lands. Hiti 4 til 15 stig, hlýj-
ast suðvestantil.
VEÐRIÐ Á MORGUN
11
10
7
7 8
Þurrt og bjart á Suðurlandi
VÍÐA UM HEIM
Algarve 31
Amsterdam 20
Alicante 30
Barcelona 28
Berlín 25
Las Palmas 24
Dublin 14
Frankfurt 20
Glasgow 14
Brussel 20
Hamborg 21
Helsinki 12
Kaupmannahöfn 22
London 21
Madrid 34
Mílanó 33
Montreal 20
Lúxemborg 21
New York 24
Nuuk 5
Orlando 24
Osló 19
Genf 27
París 23
Mallorca 30
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 9