24 stundir - 27.06.2008, Side 4

24 stundir - 27.06.2008, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is „Einu breytingarnar eru þær að við ætlum að spýta í lófana,“ segir Bergur Elías Ágústsson sveitastjóri um framlengda viljayfirlýsingu Norðurþings, ríkisstjórnarinnar og Alcoa um byggingu álvers á Bakka, sem hann undirritaði í gær ásamt Össuri Skarphéðinssyni iðnaðar- ráðherra og Bernt Reitan, aðstoð- arforstjóra Alcoa. „Því stærra, því betra“ Reitan segist vera ánægður með áframhald verkefnisins og hann segir Alcoa komið til að vera. „Stefnan er að byggja álver með 250 þúsund tonna framleiðslugetu. En ef nægileg orka færst til þess að knýja stærra álver þá munum við stækka það. Því stærra, því betra,“ segir hann. Þýðingarmikið Bergur Elías segir undirritunina vera mjög þýðingarmikla fyrir framgang verkefnisins. „Þetta þýðir einfaldlega að það kemur annar hraði á verkefnið,“ segir hann. „Ef allt fer að óskum þá vitum við að á Húsavík mun fjölga um eitt þús- und til tólf hundruð manns. Við vitum líka að þarna verða um 400 störf og afleidd störf um 150,“ bæt- ir hann við. Bergur Elías segir að álverið verði hornsteinn í sam- félaginu. Gert er ráð fyrir að það hefji starfsemi árið 2015. Vill meira Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa. Spýtt í lófana á Húsavík  Viljayfirlýsing um uppbygginu álvers við Húsavík framlengd  „Því stærra, því betra,“ segir Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa ➤ Gert er ráð fyrir að afkasta-getan verði 250 þúsund tonn á ári eftir fyrsta áfanga. ➤ Til þess þarf 400 MW raforkusem verður sótt á há- hitasvæði í nágrenninu. ÁLVER Á BAKKA Lögregla var kölluð út til að stöðva garðslátt í Mosfellsbæ í fyrrinótt. Þegar komið var á staðinn, var garðeigandinn farinn inn til sín og engin vél- arhljóð heyrðust. Dugmiklir sláttumenn í þétt- býli, sem ekki finna sér annan tíma en um miðja nótt til að slá garðinn sinn, valda árlega svefntruflunum í nágrenni sínu og er þá lögregla stund- um kölluð út. Í 4. gr. lögreglu- samþykktar segir að bannað sé að hafast nokkuð að, sem veldur ónæði eða raskar næt- urró manna. Lögreglan biður fólk að hafa þetta hugfast. Sláttur um miðja nótt Lögreglan í garðinn Flugliðum um borð í vélum Ice- landair í öllu flugi til Evrópu fækk- ar úr fimm í fjóra frá og með 1. nóvember næstkomandi. Frá og með 1. júlí verða fjórir flugliðar um borð á leiðum með fáum farþeg- um. Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir breytinguna þó ekki munu koma til með að bitna á öryggi um borð. „Boeing-verksmiðjurnar gera þá kröfu að í hverri vél sé einn flugliði á hver 50 sæti, en sætafjöldi í vélum Icelandair er undir 200. Frá og með síðasta vori fékk félagið formlega viðurkenningu á því að í vélunum væru sannarlega færri en 200 sæti og því væri leyfilegt að vera með fjóra flugliða um borð. Hér er því ekki um að ræða undanþágur frá reglum um öryggi farþega eða áhafnar, enda held ég ekki að félag- ið færi að ganga svo langt að fara fram á slíkar undanþágur, auk þess sem mínir félagsmenn myndu aldrei samþykkja að taka þátt í slíku,“ segir hún. Frá því í fyrravor hafa ávallt ver- ið fjórir flugliðar um borð í flugi félagsins vestur um haf. Flugliðar Icelandair í Evrópuflugi Fækkar úr fimm í fjóra Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Gerð var verðkönnun á tjaldsvæðum á Norðurlandi fyrir 2 nætur og miðað við hjón með 2 börn (5 og 10 ára) í fellihýsi með rafmagni. Ekki er tekið tillit til þjónustu og gæða. Vert er að benda á að kaupa má kort sem veitir aðgang að 33 tjaldsvæðum á landinu öllu (án rafmagns) á kr. 12.900. Hægt er að gista á hverju tjaldsvæði fjóra samfellda daga í senn. Sjá nán- ar á utilegukort.is 54% munur á tjaldsvæðum Brynhildur Pétursdóttir NEYTENDAVAKTIN Tjaldsvæði á Norðurlandi Verð Munur Heiðarbær, Reykjahverfi 2600 Bakkaflöt, Varmahlíð 3400 31% Vaglaskógi, Fnjóskadal 3600 38% Tjaldstæðið Ásbyrgi 3800 46% Tjadsvæðið Hamrar, Akureyri 4000 54% Hlíð, Mývatn 4000 54% Meistara-flokkssúpur Masterklass M E Ð M Æ L I Nýjung Girnileg nýjung – 2 í pakka. Tilvalið í ferðalagið. Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00 Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík sími 568 2870 Útsala! www.friendtex.is Mikið úrval af fallegum fatnaði Dúndur útsala ! Laugavegi 63 • S: 551 4422 STÓRÚTSALA HAFIN 30%-70% AFSLÁTTUR „Þessi ákvörðun var tekin áður, þar að auki er þarna um að ræða svæði sem fyrri ríkisstjórn hafði ákveðið að nýta með þessum hætti,“ segir Össur Skarpshéðins- son iðnaðarráðherra um það hvort sú ákvörðun hans að framlengja viljayfirlýsingu, um byggingu ál- vers á Bakka stangist á við Fagra Ís- land, umhverfisstefnu Samfylking- arinnar. Þar segir: „Samfylkingin vill slá ákvörðunum um frekari stóriðjuframkvæmdir á frest þang- að til fyrir liggur nauðsynleg heild- arsýn yfir verðmæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra verið tryggð.“ Hann segir ekki um nýja ákvörðun að ræða heldur sé verið að framlengja viljayfirlýsingu for- vera síns. Býsna svekkjandi Dofri Hermannsson, einn höf- unda Fagra Íslands, segist vera býsna svekktur með að nú stefni í að tvö ný álver verði að veruleika. „Við fórum með Fagra Ísland inn í stjórnarmyndunarviðræður. Við erum í stjórnarsamstarfi við flokk sem er hlynntur stóriðju. Sam- komulagið sem við náðum er að ekki verði farið inn á fleiri óröskuð svæði, farið yrði í að gera ramma- áætlun um náttúruvernd og nýt- ingu og farið í að vinna í því að koma einhverjum stjórntækjum aftur á málaflokkinn.“ Umhverfisvæn stóriðja Össur segir ekki ómögulegt að ná takmarki ríkisstjórnarinnar um samdrátt í losun gróðurhúsaloft- tegunda. „Ég tel að Íslendingar muni ná skilningi umheimsins varðandi þessa tegund af stóriðju sem er tiltölulega umhverfisvæn miðað við þá sem knúin er af kol- um,“ segir hann. Dofri segir að í Fagra Íslandi sé fjallað um minni losun á gróður- húsalofttegundum. „Ef við erum að fara að reisa álver í Helguvík og á Bakka og sprengja þar með heim- ildir okkar þá erum við komin í berhögg við Fagra Ísland,“ segir hann. elias@24 stundir.is Iðnaðarráðherra segir álver á Bakka ekki stangast á við Fagra Ísland Framlenging ekki ný ákvörðun

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.