24 stundir - 27.06.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
„Í ljósi stöðunnar hvetjum við
fólk sem á bókað flug til þess að
fylgjast með á textavarpinu eða á
vefnum hvort einhver breyting er
fyrirhuguð á brottfarartíma,“ sagði
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair síðdegis í gær
þegar flugumferðarstjórar sátu enn
á samningafundi ríkissáttasemjara.
Komi til verkfalls þeirra eru rask-
anir og tafir á flugi svo til óhjá-
kvæmilegar, en ekki er hægt að slá
því föstu hversu miklar þær verða.
„Við vonumst að sjálfsögðu til þess
að ekki komi til verkfallsins. En
þangað til það skýrist getum við
ekkert gefið út um mögulegar
breytingar.“
Matthías Imsland, fram-
kvæmdastjóri Iceland Express tek-
ur í sama streng. „Ef ekki kemur til
verkfallsins sjáum við fram á að
áætlun okkar haldist,“ segir hann.
„Annars fáum við tvær heimildir til
brottfarar á þessum tíma og kom-
um til með að vernda þá staði þar
sem við búumst við að sé sem mest
tengiflug, eins og London og Kaup-
mannahöfn. En ekkert verður gefið
út fyrr en nær dregur þannig að
farþegar verða að fylgjast vel með.“
Ekki verður þó um neinar und-
anþágur að ræða fyrir innanlands-
flug. „Eins og þetta snýr að okkur
þá eru þetta um 16 flugferðir sem
verkfallið hefur áhrif á ef til þess
kemur. Við lokuðum fyrir nýjar
bókanir á þessar flugferðir í gær
[fyrradag] til að gæta varúðar og
bjóðum farþegum okkar jafnframt
upp á að breyta bókunum sínum á
aðrar ferðir seinna um daginn án
kostnaðar. Einnig geta farþegarnir
fengið endurgreiðslu á fargjaldinu.
En við munum upplýsa um stöð-
una á heimasíðu okkar jafnóðum
og eitthvað gerist,“ segir Árni
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Flugfélags Íslands.
Verkfall flugumferðarstjóra raskar flugi innanlands og utan
Brýnt að fylgjast með þegar nær dregur
➤ Deilan snýst um vinnufyr-irkomulag þar sem flug-
umferðarstjórar vilja minnka
yfirvinnu með breyttu fyr-
irkomulagi.
DEILAN
Flugtak Komi til verkfalls
flugumferðarstjóra verður
röskun á flugi óhjá-
kvæmileg.
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Fyrir okkur snýst þetta um að
kirkjan sé fyrir alla og standi sterk
sem ein helsta mannréttindastofn-
un í heiminum,“ segir Árni Þór
Arnþórsson. Paris Prince, unnusti
hans, er bandarískur og ólst upp
við kristin viðhorf. „Við erum trú-
aðir en við ræktum trúna með okk-
ar eigin lagi,“ segir Árni.
Vígsluréttur trúfélaga
„Við vissum ekki að við yrðum
þeir fyrstu sem láta gefa sig saman
eftir breytingu laga um rétt trú-
félaga til vígslu samkynhneigðra,“
segir Árni. „Við erum öll jöfn fyrir
guði,“ segir hann.
Paris nefnir að Ísland hafi þá
ímynd að vera framarlega hvað
varðar mannréttindi og jafnrétti.
„Ég er mjög ánægður með að vera
hérna og taka þátt í þessu veiga-
mikla skrefi í átt til frekari breyt-
inga,“ segir Paris. Hann telur að lög
um vígslu para innan kirkjunnar
eigi að gilda jafnt um alla. „Ég lít
þannig á að hugtakið „aðskilin en
jöfn“ þýði að fólk sé þá ekki jafnt og
það er rangt,“ segir Paris.
Stórt skref í rétta átt
„Þetta er stórt og jákvætt skref í
rétta átt, segir Hrafnkell Tjörvi
Stefánsson hjá Samtökunum ’78.
Tvennskonar lög eru í gildi, annars
vegar fyrir gagnkynhneigð pör og
hinsvegar samkynhneigð pör.
„Lögin um staðfestingu samvistar
samkynhneigðra para eru úrelt og
því ætti að sameina þessa tvo laga-
bálka í einn,“ segir hann. Bjarni
Karlsson, sem mun gefa parið sam-
an í Laugarneskirkju, telur að með
lagabreytingunni sé tekið mikil-
vægt skref. „Þetta snýst um lýð-
heilsu, að við lifum í samfélagi þar
sem við umberum ekki bara heldur
virðum fólk og líf þess.“
„Við erum öll jöfn
frammi fyrir guði“
Árni og Paris láta pússa sig saman við hátíðlega athöfn í Laugarneskirkju í byrjun júlí
Árni Þór er prófessor og Paris Prince óperusöngvari en þeir kynntust í gegnum vin
Sr. Bjarni fagnar breytingum
á vígslurétti kirkjunnar
➤ Lög um vígslurétt trúfélagatil að staðfesta samvist sam-
kynhneigðra para taka gildi.
➤ Samtökin ’78 eiga þrjátíu áraafmæli í dag á alþjóðlegum
baráttudegi hinsegin fólks.
27. JÚNÍ 2008
„Við fögnum framkvæmdaáætl-
unum félagsmálaráðherra varð-
andi að bregðast við brýnni bú-
setuþörf fatlaðra barna,“ segir
Helga Hjörleifsdóttir, formaður
foreldrasamtaka fatlaðra.
Hún telur að stoðþjónusta við
fötluð börn skipti gríðarlegu miklu
máli í lífi fólks. „Þegar engin
skammtímavistun er eða stuðn-
ingsfjölskylda til staðar verður
álagið á sumum heimilum hins
vegar of mikið.“
Stoðþjónustu ábótavant
Helga telur að ef aukið verði við
stoðþjónustu við fötluð börn verði
einnig að efla til muna möguleika
foreldra á að hafa börn sína heima.
„Hraðinn í þjóðfélaginu og
vinnuharka gæti hins vegar leitt til
þess að biðin eftir þjónustu verður
sumum óbærileg,“ segir hún.
Helga segir að foreldrar fatlaðra
barna fagni umræðunni og fyrir-
hugaðri aðgerðaáætlun í mála-
flokknum mjög en bætir við að
stoðþjónustunni sé ábótavant.
Hrefna Haraldsdóttir, foreldraráð-
gjafi hjá Sjónarhóli, telur að fólk
þurfi að bíða of lengi eftir þjónustu
við fötluð börn sín.
„Foreldrar fá ónóg svör hvenær
börnin fá þjónustuna og það getur
verið mjög erfitt fyrir fjölskyldur
fatlaðra barna,“ segir hún.
„Það þarf að meta uppeldis- og
ummönnunarstörf að verðleikum,
bæði í umræðu, viðhorfi og í laun-
um,“ segir Hrefna. asab@24stundir.is
Fagna framkvæmdaáætlunum um búsetuúrræði fatlaðra barna
Skref í áttina en ekki nóg
Sjónarhóll Frá málþingi
Sjónarhóls fyrr á árinu.
Amnesty International krefst
þess að ríki heims virði algjört
bann við pyndingum. Sam-
tökin hafa upplýsingar um
pyndingar í 81 landi.
26. júní er alþjóðlegur dagur
Sameinuðu þjóðanna til
stuðnings fórnarlömbum
pyndinga. Samtökin vilja að
allir sem gerast sekir um
pyndingar verði sóttir til saka.
Virða ekki bannið
Fólk er pyndað
í 81 landi
„Þetta er baráttumál sem við
höfum lengi barist fyrir, þ.e.
að vígja samkynhneigð pör,“
segir Hilmar Örn Hilmarsson
Allsherjargoði og for-
stöðumaður Ásatrúarfélags-
ins. „Þetta hefur lengi verið
deilumál innan þjóðkirkj-
unnar en þessum breytingum
ber að fagna,“ segir hann.
„Nú er loks hægt að vígja pör-
in án þess að gera það eftir
staðfestingu samvistar.“ bee
Ásatrúarfélagið
Breytingunum
ber að fagna