24 stundir - 27.06.2008, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
FÉ OG FRAMI
frettir24stundir.is a
Ef olíubólan springur, sem hún
gerir líklega, mun olíuverð þó
ekki fara mikið niður fyrir 100 dollara
á tunnu.
SALA
JPY 0,7477 0,94%
EUR 127,04 1,09%
GVT 162,83 0,81%
SALA
USD 80,68 0,00%
GBP 160,33 1,03%
DKK 17,030 1,07%
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Heimsmarkaðsverð á olíu er líkast
til við það að toppa og gæti tekið að
lækka eftir í mesta lagi þrjá til fjóra
mánuði, segir Eugen Weinberg,
hrávörusérfræðingur hjá hinum
þýska Commerzbank.
„Ef olíubólan springur, sem hún
gerir líklega, mun olíuverð þó ekki
fara mikið niður fyrir 100 dollara á
tunnu,“ segir Weinberg, en tunnan
kostar um 135 dollara í dag. Ein
ástæða þess að olíuverð lækkar ekki
meira sé sú að framleiðsluverð hef-
ur hækkað mikið.
Dregur úr ríkisstyrkjum
Gríðarleg og stöðug aukning í
bílaflota Kínverja og Indverja hefur
átt stóran hlut í aukinni eftirspurn
eftir olíu undanfarið, bendir Wein-
berg á, en fjöldi seldra bíla í Kína á
ári óx úr 500 þúsund bílum árið
2001 í rúmlega 4,5 milljónir bíla ár-
ið 2007.
Styrkir úr buddu stjórnvalda í
Kína og Indlandi hafa að hluta stað-
ið undir aukinni olíunotkun í þess-
um löndum, en þar sem til stendur
að minnka styrkina gæti dregið úr
aukningu eftirspurnar, segir Wein-
berg. Þó muni vöxtur hagkerfa og
mannfjölda þessara landa áfram
valda mikilli eftirspurn eftir olíu.
„Þótt hægi á vexti kínverska hag-
kerfisins mun Indland halda áfram
að vaxa,“ sagði Weinberg, sem ráð-
leggur fjárfestum að horfa sérstak-
lega til Indlands á næstu fimm til
sjö árum.
Fjárfesti í hrávörum
Weinberg ráðleggur fjárfestum
einnig að tryggja ávallt að ákveðinn
hluti eignasafns þeirra séu hrávör-
ur. Fjárfestingar á hrávörumarkaði
tryggi að verðmæti eignasafna taki
ekki miklar dýfur, enda sé ólíklegt
að verðmæti slíkra eigna minnki
þótt niðursveifla sé á fjármálamörk-
uðum.
Undir það tekur Þorvaldur Lúð-
vík Sigurjónsson, forstjóri Saga
Capital, en Saga Capital stóð fyrir
fundi sem Weinberg talaði á í gær.
„Megin tilgangurinn með þessum
fundi var að vekja athygli á hrávör-
um sem valkosti í eignasöfnum.
Fjárfestar hafa hingað til verið að
kaupa aðallega gjaldeyri, skuldabréf
og hlutabréf til að ávaxta sitt pund,
en við vildum sýna fram á að með
því að blanda hrávörum inn í
eignasafnið eru allar líkur á því að
fjárfestar njóti meiri ávöxtunar.“
Hann segir að Íslandingar hafi að
undanförnu aukið fjárfestingar á
hrávörumörkuðum, þótt enn séu
þær ekki umfangsmiklar.
Hrávörur enn eftir að hækka
Líklegt er að eftirspurn eftir flest-
um hrávörum, t.d. landbúnaðar-
vörum og áli, eigi eftir að halda
áfram að aukast og verð þeirra
hækka, segir Weinberg. „Þótt
kreppan verði umtalsverð í Banda-
ríkjunum, eins og stefnir í, munu
viðskipti með hrávöru milli Asíu-
landa halda hrávörumarkaðnum
líflegum.“
Bendir hann á að þróunin sé sú
að í stað þess að þróunarlönd flytji
lang stærstan hluta hrávara til þró-
aðra landa, eins og verið hefur
hingað til, séu vörurnar í síauknum
mæli seldar milli þróunarlanda.
Tækifæri í landbúnaði
Weinberg segir mikil fjárfesting-
artækifæri í landbúnaði, enda eigi
verð t.d. kjöts, korns og sojabauna
eftir að hækka í verði. Eftirspurn
eftir korni hefur aukist, ekki síst
vegna aukinnar framleiðslu á líf-
rænu eldsneyti, og verð þess hækk-
að. Þótt aukin velmegun í þróun-
arríkjum á borð við Kína valdi því
að fólkið vilji „borða betur“ - þ.e.
auka hlut kjöts í fæðunni á kostnað
t.d. kornmetis - mun eftirspurn eft-
ir korni og sojabaunum halda
áfram að aukast enda þarf að fóðra
dýrin, segir Weinberg.
Verð á áli mun hækka
Þá spáir hann því að verð á áli
hækki talsvert á næstunni vegna
minni álframleiðslu í Kína, en þar
er notað þriðjungur af því áli sem
framleitt er í heiminum. Vegna
mikilla ríkisstyrkja til rafmagns-
framleiðslu í Kína hefur hingað til
verið framleitt meira ál þar í landi
en hagkvæmt er, segir Weinberg,
rafmagnskostnaður er 60% af
kostnaði við álframleiðslu.
Ákvörðun hefur verið tekin í
Kína um að minnka ríkisstyrki til
rafmagnsframleiðslu, sem muni
minnka álframleiðslu þar í landi og
auka innflutning Kínverja á áli.
Athygli vakin á hrávörum
Weinberg hvetur til fjárfest-
inga á hrávörumörkuðum.
Fjárfestingartæki-
færi í hrávöru
Heimsmarkaðsverð olíu mun líklega lækka innan fjögurra mánaða, segir sérfræðingur
➤ Verð á hráolíu á heimsmark-aði í dag er um 135 dalir fyrir
hverja tunnu.
➤ Forseti OPEC, samtaka helstuolíuríkja heims, spáir því að
verð á hráolíu gæti farið í 150
til 170 dali tunnan.
➤ Aðrir hafa spáð því að verð átunnunni munu fara yfir 200
dollara, og sumir jafnvel yfir
300 dollara.
DÝR OLÍUTUNNA
MARKAÐURINN Í GÆR
!" ##$
!"
#$
%
&"
'()*+
',-. /0.
"1
2
345
"!
! 61
! ("" (7/
/81
+9
"0
1- -
: -
;"1
-0
!
"
:-
- < =
# '
>4?@ABB
CBDDD444A
D5B?D543C
C?D@3D@BD>
C53AA3C
CA>5?4A4?
@BBA35>>@
3?3@DCAD>
CD53C@@5B
C>?4@5>D
3CC3CD35?
,
C>?CA@4A
A3A5BBB
4@A3BBBB
B
5A4A54
@?D4D@
>3BBC@>
,
,
,
CA4??BBBB
,
,
4E34
A?E35
@E43
C5E>B
CDE3B
C5E?B
@@>EBB
A3E3B
?BE5B
3E3>
?E?5
AEBD
?AE5B
CEC5
@EAC
C?CEBB
C5DBEBB
A@>EBB
CDBEBB
,
,
,
5A>5EBB
CBEBB
,
4EDD
A?E@5
@E@B
C5E>5
CDEDB
C4EC5
@@?EBB
A3EDB
?BE>B
3EDB
?E??
AEB@
?3ECB
CEC>
@EA>
C?DEBB
C54>EBB
A>BEBB
CDAEBB
AAEBB
,
>E5B
534BEBB
,
5E5B
/0
- 3
AC
3>
A3
A
D
5B
A?
3
?
AA
,
5
3
?
,
C
3
CC
,
,
,
>
,
,
F"
- "-
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
AD4ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A54ABB>
A44ABB>
A44ABB>
A44ABB>
C34ABB>
4CAABB@
34ABB>
A44ABB>
AB4ABB>
@3ABB>
● Mestu viðskipti í Kauphöllinni í
gær voru með bréf í Glitni banka,
fyrir rúma 1,9 milljarða.
● Mest hækkuðu bréf Alfesca hf.,
en þau hækkuðu um 2,27%. Bréf
í Össuri hækkuðu um 1,09%.
● Mest lækkuðu bréf í Sparisjóði
Reykjavíkur, eða um 5,77%. Bréf í
Exista lækkuðu um 5,32%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
1,58% í Kauphöllinni í gær, og
var lokagildi hennar 4.445,55
stig.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 4,37% í gær. Þýska
DAX-vísitalan lækkaði um 2,4%
og breska FTSE-vísitalan um 2,6%.
● Íslenska krónan veiktist um
0,78% í gær og var gengisvísitalan
162,3 stig í lok dags.
Tækifæri í nú-
verandi ástandi
„Ég álít að mikil tækifæri felist í
því að koma inn á markaðinn eins
og efnahagsástandið er nú,“ segir
Halldór Óskar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi.
„Við byrjum með hreint borð og
erum því ef til vill í betri stöðu en
þeir sem eru í þessum bransa fyrir.
Svo má ekki gleyma því að efna-
hagsástandið á eftir að batna.“
Einn mesti frumkvöðull tölvu-
byltingarinnar, Bill Gates, mun á
föstudaginn láta af störfum sem
forstjóri Microsoft eftir 30 ára
starf. Við starfi hans tekur náinn
samstarfsmaður og skólafélagi
Steve Ballmer. Sem stærsti hlut-
hafi Microsoft mun Gates áfram
eiga sæti í stjórn fyrirtækisins, en
mun að öðru leyti alfarið snúa sér
að góðgerðarmálum. hh
Bill Gates hættir
hjá Microsoft
Stofnfundur Keflavíkurflugvallar
ohf, opinbers hlutafélags um
þjónustu og uppbyggingu á
Keflavíkurflugvelli var haldinn í
gær. Félagið tekur yfir rekstur
Flugmálastjórnar og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar frá og með 1.
janúar 2009. Á fundinum sagði
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra meðal annars að með
stofnun hins nýja félags væri
stefnt að aukinni hagræðingu og
skilvirkni.
Keflavíkurflug-
völlur ohf.
25% AFSLÁTTUR
SUMARTILBOÐ
®
- Lifið heil