24 stundir - 27.06.2008, Síða 23
24stundir FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 23
Samkvæmt upplýsingum á vef
Skjaladagsins nær saga vegabréfa
langt aftur í aldir. Þar segir að óvíst
sé hvenær fyrstu íslensku vegabréf-
in urðu til en árið 1782 hafi fimm
sýslumenn á Íslandi skrifað bréf til
konungs og beðið um leyfi til þess
að mega taka 8 skildinga fyrir hvert
vegabréf, sem þeir gáfu út. Sú ráð-
stöfun að sýslumenn gæfu út vega-
bréf hefur síðan haldist óbreytt all-
ar götur til dagsins í dag. Um og
eftir 1900 var farið að halda betur
utan um útgefin vegabréf og útlit
þeirra varð staðlað auk þess sem
með tilkomu ljósmyndatækninnar
var farið að setja ljósmyndir af við-
komandi í vegabréfin.
Umsóknarferlið
Allar upplýsingar um vegabréf
má finna á vefslóðinni www.vega-
bref.is. Þar segir meðal annars að
vegabréf skuli gefið út innan 10
daga frá umsókn. Þó er einnig
mögulegt að fá vegabréf afgreitt
með styttri afgreiðslufresti, jafnvel
samdægurs, en slíkt kostar tvöfalt
meira en venjuleg afgreiðsla. Fyrir
Íslendinga búsetta erlendis er einn-
ig hægt að sækja um vegabréf í
sendiráðum Íslands í Kaupmanna-
höfn, Osló, Stokkhólmi, London,
Berlín og Washington DC.
Nútíminn
Árið 2006 tóku gildi rafræn
vegabréf en í þeim er örflaga sem
varðveittar eru í upplýsingar unnar
úr stafrænni mynd af viðkomandi.
Einnig eru þar varðveittar upplýs-
ingar unnar úr fingraskanni vega-
bréfshafa. Var nauðsynlegt að hefja
útgáfu slíkra vegabréfa hér á landi
til þess að tryggja Íslendingum við-
unandi ferðafrelsi í alþjóða-
samfélagi nútímans.
maria@24stundir.is
Saga vegabréfa nær langt aftur í aldir
Útlit staðlað eftir 1900
24stundir/Kristinn
Nýja vegabréfið Það er með plastsíðu með persónuupplýsingum og mynd auk
tölvurandar með sömu upplýsingum sem lesin er vélrænt.
Það er frábær reynsla fyrir fólk á
öllum aldri að fara í málaskóla.
Margir velja að fara til Frakklands,
Spánar eða Ítalíu en einnig er hægt
að sækja námskeið t.d. í Sviss og á
Möltu. Fyrir þá sem vilja halda
sínu sjálfstæði er gott að leigja sér
sjálfur íbúð en fjölskyldudvöl getur
líka verið skemmtileg og flýtt mjög
fyrir framförum í tungumálinu.
Sniðugt getur verið að fara í frí og
nota af því eina viku í námskeið.
Frí og mála-
námskeið
Sumum finnst betra að geyma
vegabréfið sitt í þar tilgerðri kápu
þar sem það getur þvælst og orðið
ljótt á ferðalögum. Stundum týnist
það líka í veskinu. Þessar vegabréf-
skápur eru hannaðar af enska fyr-
irtækinu Edu.Brasil sem staðsett er
í London og eru til í ýmsum litum
og gerðum. Þeir sem eru hand-
lagnir gætu líka búið til sínar eigin
og leyft sköpunargleðinni að ráða
ferðinni.
Litríkar vega-
bréfskápur
Fyrir þá sem hafa gaman af dálítið
öðruvísi ferðabókum má mæla
með bók Bill Bryson Neither here
nor there. Bryson skefur ekkert ut-
an af því í þessari bók og segir það
sem honum finnst um löndin sem
hann ferðast til og íbúa þeirra.
Bryson er bandarískur en hefur
búið lengi í Bretlandi og leggur í
bókinni í ferðalög um fornar slóðir
sínar í Evrópu.
Fyndin leiðsögn
um Evrópu
A
R
G
U
S
/
0
8
-0
2
5
6
Hin nýuppgerða Sundlaug Kópavogs er öll hin glæsilegasta og leitun að öðru
eins. Hún er búin nýjustu tækni og öryggiskerfið er það besta sem völ er á.
Í Sundlaug Kópavogs er úr nógu að velja, jafnt fyrir unga sem aldna: Frábærar
úti- og innilaugar, huggulegir heitir pottar, þægileg vaðlaug, spennandi
rennibrautir og hvers kyns önnur aðstaða til góðrar hreyfingar, slökunar og
skemmtunar.
Er hægt að hugsa sér það dásamlegra?
GLÆSILEG
SUNDLAUG!
KOMDU Í SUND!
SUNDLAUG KÓPAVOGS
v/ Borgarholtsbraut • s. 570 0470 • Opið virka daga kl. 6:30-22:30 og um helgar kl. 8:00-22:00