24 stundir - 27.06.2008, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
Á Stokkseyri og Eyrarbakka er
nóg um að vera. Kajakaferðir eru
farnar frá Stokkseyri og þar má
einnig heimsækja Tónminjasetrið,
Draugasafnið, Álfa og Tröllasafnið
og Veiðisafnið svo eitthvað sé
nefnt. Á Eyrarbakka má heimsækja
Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á
Eyrarbakka, einu elsta og merkasta
húsi landsins.
Blómlegt tónlistarlíf
Einn þekktasti Stokkseyringur
20. aldarinnar er organleikarinn og
tónskáldið dr. Páll Ísólfsson (1893-
1974). Hann átti sumarbústað
austast í þorpinu og héldu ætt-
menn hans uppi blómlegu tónlist-
arlífi á svæðinu. Í dag stendur
minnisvarði Páls Ísólfssonar við
sumarbústaðinn sem nefndur er
Ísólfsskáli.
Eyrarbakki
Vegna umfangs viðskipta og
verslunar á Eyrarbakka á miðöld-
um telja sagnfræðingar að sá stað-
ur hafi öðrum fremur hérlendis
haft burði til þess að þar mynd-
aðist þéttbýlisstaður eða bær. Í
sögu bæjarins segir að blómatími
Eyrarbakka hafi verið frá miðri 19.
öld og á fyrstu áratugum 20. aldar.
Þá myndaðist þéttbýliskjarni um-
hverfis hús dönsku verslunarinnar
og íbúum fjölgaði ört. Flestir urðu
þeir um 1920 tæplega 1000 manns.
maria@24stundir.is
Fallegir staðir í grennd við Reykjavík
Eyrarbakki og Stokkseyri
24stundir/Þorkell Þorkelsson
Merkt hús Húsið á Eyrarbakka hýsir byggðasafn Árnesinga og er eitt
margra safna á Suðurlandi.
Þekktur Hús dr. Páls Ísólfssonar.
Til London
með slikk
Nú þegar ekki má reykja yfir bjór-
glasinu á krám í London geta ef til
vill einhverjir tekið upp á því að
prjóna. Að minnsta kosti er það
móðins á I Knit prjónaklúbbnum.
I Knit London, 106 Lower Marsh,
SE1 (www.iknit.org.uk). Ferðast
með Waterloo-lestarleið.
Prjón og bjór
Á Grays Antiques markaðnum má
finna yfir 200 sölubása sem bjóða
varning á mjög hagstæðu verði.
Þar má finna ótrúlegustu hluti frá
öllum heimshornum, allt frá
dúkkuhúsum til samúræjasverða.
Ferðast með Bond lestarleið að 58
Davies St og 1-7 Davies Mews, W1.
Grays markaður
Nunhead-kirkjugarðurinn í Lind-
en Grove er frá Viktoríutíma-
bilinu. Garðurinn geymir þús-
undir af styttum af verndarenglum
og dýrlingum frá tímabilinu og um
hann flögra sjaldgæf fiðrildi, spæt-
ur og aðrir fagrir fuglar. Ekki
gleyma myndavélinni! Ferðast með
Nunhead-lestarleið.
Grafarölt
sumarferdir.is
...eru betri en aðrar
Jólin komin í sölu!
Kanarí & Tenerife
Besta verðið bókast fyrst