24 stundir - 27.06.2008, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
svo endum við með orgeltónum á
miðnætti,“ segir hún.
Íbúar með opið hús
Hefð er fyrir því að Eyrbekking-
ar bjóði gestum og gangandi heim
til sín á þessari Jónsmessuhátíð. Að
þessu sinni verður heimboð í
þremur húsum eftir hádegi á laug-
ardag, þar á meðal í Gunnars-
hólma. „Það er stórt hús sem hjón-
in Bryndís Stefánsdóttir og Lars
Tørgersen hafa gert upp en þau eru
bæði arkitektar og búsett í Dan-
mörku,“ segir Ingibjörg og bendir
á að staðarsmiðirnir Guðmundur
og Gísli Kristjánssynir hafi séð um
endurgerðina. „Húsið er mjög
flott. Það heldur útlitinu en er með
smáviðbótum sem færa það nær
nútímanum og gera það þægi-
legra,“ bætir hún við.
Söguganga um þorpið
Einnig er hefð fyrir því að
Magnús Karel Hannesson leiði
sögugöngu um þorpið og verður
engin breyting þar á að þessu sinni.
„Þetta er klukkutímaganga og hún
er alltaf mjög vel sótt. Hann tekur
fyrir hluta þorpsins og fléttar inn í
gönguna til dæmis verslunarsögu,
tónlistarsögu eða sögu af húsum og
mönnum,“ segir Ingibjörg.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
vefnum www.eyrarbakki.is.
Jónsmessuhátíð Eyrarbakki ið-
ar af lífi á árlegri Jónsmessuhátíð í
kvöld og á morgun.
Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka í tíunda skipti
Fjör á Eyrarbakka
Eyrbekkingar efna til há-
tíðar í tilefni Jónsmessu
um helgina. Nokkrir íbú-
ar bjóða gestum til stofu,
gengið verður um sögu-
slóðir og kveikt í Jóns-
messubrennu.
➤ Hápunktur hátíðarinnar erJónsmessubrenna í fjörunni
vestan við þorpið á laug-
ardagskvöld kl. 22.
➤ Bakkabandið spilar undirsöng og dansi og Eyrbekking-
urinn Íris Böðvarsdóttir
ávarpar gesti.
JÓNSMESSUHÁTÍÐ
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Eyrbekkingar efna til árlegrar Jóns-
messuhátíðar í kvöld og á morgun
en þetta er í tíunda skipti sem há-
tíðin er haldin. Dagskráin er að
mestu leyti með hefðbundnu sniði
að sögn Ingibjargar Eiríksdóttur
sem á sæti í undirbúningsnefnd
hátíðarinnar. „Við tökum reyndar
smáforskot á hátíðina á föstudags-
kvöld sem hefur ekki verið gert áð-
ur. Jóhann Óli Hilmarsson verður
með göngu í fuglafriðlandinu og
Það verður vart þverfótað fyrir
loðnum ferfætlingum í reiðhöll
Fáks í Víðidal um helgina. Um
570 hundar af 84 kynjum mæta í
dóm á hundasýningu Hunda-
ræktarfélags Íslands. Sýningin fer
fram laugardag og sunnudag og
hefjast dómar kl. 9 árdegis báða
dagana og standa fram eftir degi.
Úrslit hefjast milli kl. 15 og 16 á
sunnudegi og kemur þá í ljós
hvaða hundar bera af að mati
dómara.
Öflugt barna- og unglingastarf
fer fram innan félagsins og að
þessu sinni tekur 31 ungmenni
þátt í keppni ungra sýnenda á
laugardeginum.
Fimm dómarar frá þremur lönd-
um dæma á sýningunni.
Í anddyri reiðhallarinnar verða
kynningarbásar um ólík hunda-
kyn. Þar gefst gestum og gang-
andi kostur á að kynnast hund-
um og ræða við hundeigendur.
Jafnframt verða á staðnum kynn-
ingar- og sölubásar.
Hundar fylla reiðhöllina
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þetta er klukkutímaganga og hún er alltaf
mjög vel sótt. Hann tekur fyrir hluta þorpsins
og fléttar inn í gönguna til dæmis verslunarsögu,
tónlistarsögu eða sögu af húsum og mönnum.
Hvellur - Smiðjuvegi 30 - Kópavogi - Sími 577 6400 – www.hvellur.com
BOSS
• 5,5 hestafla HONDA motor
• 53 cm sláttubreidd
• Drif
• Járnhjól með legum
• Safnkassi
helgin