24 stundir - 27.06.2008, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
Opið má.-fö. kl. 11-18,
lau. kl. 11-16
Dalvegi 16a, Kóp.
rauðu múrsteinshúsunum
www.nora.is
Rómantík í
lautarferðinni
„Ég hef heita samúð með launa-
fólki. En nú er mér, andskotinn
hafi það, nóg boðið. Hvaða
skæruhernaður er í gangi hjá
flugumferðarstjórum?
Þeir koma mér að þessu sinni fyr-
ir augu sem ofdekraðir andskotar
og þeir þekkja greinilega ekki
sinn vitjunartíma.“
Jenný Anna Baldursdóttir
jenfo.blog.is
„Nú ætlar Björk og fleiri að halda
náttúruverndartónleika um
helgina. Fannst fyndið að heyra á
Rás 2, hvar menn geta lagt til þess
að komast í þvottalaugarnar. Er
málið að skella sér upp í pikkann
með tvöföldu á aftan, skella dísel
pinnanum í gólfið og bruna nið-
ur eftir til að lofa náttúruna?“
Tómas Hafliðason
eyjan.is/goto/tomash
„Þágufallssýki, óþarfastafsetning-
arvillur og aðrar þess háttar am-
bögur leiðast mér. Í gær heyrði ég
í manni sem er að reyna við Erm-
arsund eitt skiptið enn og er nú
búinn að fresta því. Hann talaði
um nýjan útbúnað við „næring-
artöku“. Ég fæ kjánahroll þegar
ég heyri í svona snillingum.“
Yngvi Högnason
yngvii.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
Í gærmorgun varð það ljóst að
sjónvarpsstöðin National Geog-
raphic hefur samþykkt að senda
beint út um allan heim frá Nátt-
úrutónleikunum í Laugardalnum á
morgun. Baráttuöskur Bjarkar til
verndunar íslenskrar náttúru mun
því bergmála langt út fyrir land-
steinanna.
En það eru fleiri að syngja bar-
áttusöngva, því í gær sleppti Ólöf
Arnalds, er spilar á milli Bjarkar og
Sigur Rósar, splunkunýju lagi á
netið. Það heitir Af Stað og er afar
vel heppnað til samsöngs.
„Já, það var pælingin, þetta er
svona smá slagari,“ segir Ólöf Arn-
alds. „Þetta leitaði á mig í byrjun
vikunnar. Þetta gerðist ofsalega
hratt. Það var alveg glænýtt þegar
ég tók það upp. Ég ákvað bara að
gefa málstaðnum lagið þar sem
það er búið til sérstaklega fyrir
þessa tónleika.“
Áhugasamir geta nálgast lagið,
endurgjaldslaust, á slóðinni
www.nattura.info/Olof_Arn-
alds_AfStad.mp3.
Sjálfboðaliða vantar
Tónleikahaldarar auglýstu svo í
gær eftir sjálfboðaliðum til þess að
vinna á tónleikunum á laugardag.
„Við þurfum fólk frá 18 ára og
eldri við uppsetningu á tjöldum
sem þurfa að rísa í dag og á laug-
ardag,“ segir Margrét Vilhjálms-
dóttir leikkona sem er einn af
skipuleggjendum tónleikanna.
„Þar verða náttúruvernd-
arsamtökin með sín athvörf. Þarna
verða líka vörukynningar frá Fair
Trade, Hljómalind, Villimey og
fleiri náttúruvænum hliðum.“
Einnig þarf að búa til vegvís-
iskilti sem hengja á upp um allan
dalinn með upplýsingum um stað-
setningar fyrir veitingar, salerni og
annað slíkt. Áhugasamir geta sent
póst á natturainfo@gmail.com.
Sigur Rósar-lundur
Samtökin Sól á Suðurlandi, er
berjast gegn frekari virkjun á
Þjórsá, gróðursettu á laugardag á
svæðinu 1001 bjarkir og nokkrar
harðgerðar rósir til heiðurs lista-
mannanna. Vigdís Finnbogadóttir
gaf garðinum þrjár háar bjarkir.
Eina fyrir pilta, aðra fyrir stúlkur
og þá þriðju fyrir öll ófæddu börn-
in. Garðurinn hlaut nafnið Sigur
Rósar-lundur.
Náttúrutónleikar Bjarkar ná langt út fyrir landsteinanna
National Geog-
raphic í beinni
National Geographic
mun senda út beint frá
Náttúrutónleikunum.
Ólöf Arnalds hefur svo
samið sérstakt baráttulag
af tilefninu. Sigur Rósar-
lundur verður til.
Margrét Leitar af sjálfboðaliðum.
Morgunblaðið/Golli
Ólöf Arnalds Samdi
lag á mánudag og
sleppti því lausu í gær.
HEYRST HEFUR …
Stefán Hilmarsson og félagar í Sálinni ætla að gera
tilraun til þess að bjarga sumarslagaraskortinum í
ár. Á dögunum sendi sveitin út frá sér lagið Gott að
vera til sem er fjörugur rokk-poppari að hætti
Gumma Jóns. Lagið er fyrsta nýja lagið af þremur er
koma út á væntanlegri safnplötu í haust ásamt veg-
legri DVD-útgáfu og heimildamynd vegna 20 ára
afmæli sveitarinnar. bös
Ragnar Zolberg og félagar í Sign hafa hljóðritað
Iron Maiden lagið Run to the Hills fyrir safnplötu
til heiðurs gömlu goðanna. Platan mun fylgja frítt
með breska þungarokkstímaritinu Kerrang! Metal-
lica eru á meðal þeirra sveita er taka þátt á plötunni
en Sign breyta laginu það mikið að þeir búast við
mismunandi viðbrögðum frá aðdáendum Iron
Maiden. bös
Vefverslunin inmate.is hefur nú sett á sölu boli með
ásjónu Jakobs Frímanns Magnússonar, miðborg-
arstjóra, með undirskriftinni „Remove Your Art“.
Talsmenn fyrirtækisins, er vinnur m.a. með föng-
um, segja bolinn hannaðan af íslenskum úða-
brúsalistamanni og sé skírskotun í pirring ungs
listafólks yfir því að málað hafi verið yfir listaverk
þeirra á veggjum í miðborginni. bös
„Nafnið heillar mig nú ekkert
sérstaklega, en ég tel þó að íslensk
tunga muni lifa þetta af, líkt og
gerðist með Sinalco og Spur-
Cola,“ segir Mörður Árnason ís-
lenskufræðingur, aðspurður um
ágæti nýs íslensks gosdrykkjar frá
Ölgerðinni, sem heitir Rí-Mix.
Aðeins í boði í sumar
„Þetta er sennilega fyrsti íslenski
gosdrykkurinn í þrjú ár, síðan
rauða appelsínið kom á markað,“
segir Halldóra Tryggvadóttir,
vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni.
„Drykkurinn verður þó aðeins
fáanlegur í sumar, á meðan birgðir
endast.“ Aðspurð hvort hún óttist
að viðbrögð málfarsfasista verði
neikvæð segir Halldóra: „Nei, ég
vona ekki. Enda er þetta á ís-
lensku, Rí-Mix, en ekki Re-Mix!“
Gagnrýni á gosdrykkinn
Drykkurinn inniheldur blöndu
af ferskju-, appelsínu- og ástarald-
insbragði, og verður að segjast að
ískaldur er hann einkar góður við
þorsta, á sólríkum sumardegi. En á
hinn bóginn má spyrja hvaða kaldi
gosdrykkur sé það ekki, við sömu
aðstæður.
Nafnið verður að teljast ágæt-
lega heppnað, þó svo að það sé
ansi enskuskotið. Það er grípandi,
hittir naglann á höfuðið og er bara
helvíti sniðugt. En þrátt fyrir ágætt
bragð og nafn, þá er helst til of
mikil kolsýra í drykknum að mati
undirritaðs, og verður hún til þess
að viðkomandi þarf mikið að ropa,
sem er hvimleitt, innan um
annað fólk.
Þrjár stjörnur af fimm.
traustis@24stundir.is
Ölgerðin sendir frá sér Rí-Mix
Suðrænn, seiðandi
sumardrykkur
Endurhljóðblöndun Rí-Mix er eflaust
fín blanda í bolluna í sumar.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
3 2 6 1 4 8 7 5 9
4 5 7 6 2 9 3 8 1
8 9 1 3 5 7 2 4 6
5 1 9 7 6 4 8 2 3
6 7 3 8 9 2 4 1 5
2 4 8 5 1 3 9 6 7
7 6 4 2 3 1 5 9 8
9 3 5 4 8 6 1 7 2
1 8 2 9 7 5 6 3 4
Stjörnuspáin segir að þú hafir heppnina
með þér í dag og eigir ekki að vera hrædd-
ur við að taka áhættu
a
Við Masseyjum þetta einhvern
veginn. Honum ætti að þykja
heiður að.
Bjarni, samþykkir Sir Alex slíka útreið?
Bjarni Guðmundsson hjá Landbúnaðarsafninu á Hvann-
eyri stendur fyrir Ferguson-akstri um Borgarfjörð þann
13. júlí. Tekið skal fram, að keppt er á traktorum, en ekki
þjálfara Manchester United.
FÓLK
24@24stundir.is fréttir