24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 27

24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 27
24stundir MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 27 Christian Bale var tekinn fastur í gær og yfirheyrður í tengslum við líkamsárás. Ekki er vitað ná- kvæmlega hvað gerðist en móðir hans og systir fóru til lögregl- unnar í London þar sem þær héldu því fram að Bale hefði ráð- ist á þær á sunnudaginn. Bale gaf sig sjálfur fram og var í kjölfarið handtekinn og yfirheyrður. At- hygli vakti að lögreglan ákvað að fresta öllum aðgerðum fram yfir frumsýningu The Dark Night. iav Christian Bale handtekinn Rapparinn 50 Cent er víst búinn að fá nóg af plötufyrirtæki sínu, Interscope, og talið er að nýjasta plata hans verði sú síðasta. Kapp- inn hefur nú meiri áhuga á að efla kvikmyndaferilinn. Næsta kvikmynd hans er spennumyndin Righteous Kill en þar leikur hann á móti Al Pacino og Robert De Niro. iav 50 Cent hættur að rappa Sean Penn notaði víst allsérstaka leið til að koma sér í rétta gírinn fyrir erfið hlutverk. Að sögn Gary Oldmans drap Penn í sígarettum á fótleggjum sínum til að auð- velda einbeitingu. Oldman varð vitni að þessu þegar þeir léku saman í kvikmyndinni State of Grace árið 1990 en Penn er nú töluvert eldri og því væntanlega hættur slíkum bjánaskap. iav Drepur í sígar- ettum á fótlegg Kelly Rowland úr Destinýs Child ýfði upp gömul sár í útvarpsviðtali á dögunum. Þar talaði hún um það þegar Michelle Williams kom fyrst inn í grúppuna en á sama tíma buðu þær Farah Franklin vel- komna. Að sögn Rowland var Williams yndisleg og þær féllu strax fyrir henni en Franklin var klikkuð og það var blessun að losna við hana eftir 2 mánuði. iav Klikkun í Destinýs Child Spjallþáttakóngurinn Jay Leno hættir sem stjórnandi kvöldþáttar NBC föstudaginn 29. maí á næsta ári. Fyrsti þáttur arftaka hans, Conans O’Brien, verður sendur út mánudaginn þar á eftir, 1. júní. Lengi hefur legið í loftinu að Leno láti af störfum árið 2009, en engin dagsetning var komin á starfslok hans fyrr en nú. Leno tók við af Johnny Carson sem stjórnandi þáttarins árið 1992 og er án nokk- urs vafa einhver þekktasti sjón- varpsmaður sögunnar. Vilja halda Leno innan NBC Enn er á huldu hvað silfurref- urinn ætlar að taka sér fyrir hendur þegar hann hættir, en þá verður hann nýorðinn 59 ára og á því væntanlega mörg ár eftir í brans- anum. Forsvarsmenn NBC hafa lýst því yfir að þeir vilji halda hon- um innan stöðvarinnar, en talið er að fleiri sjónvarpsstöðvar muni bera víurnar í hann. Conan O’Brien er 45 ára og hef- ur stýrt Late Night Show á NBC frá árinu 1993. Hann hóf ferilinn sem handritshöfundur fyrir Saturday Night Live og síðar Simpson-fjöl- skylduna. O’Brien hefur hlotið Emmy-verðlaun fyrir frammistöðu sína í sjónvarpinu og er afar vinsæll vestanhafs. bjornbragi@24stundir.is Loks komin dagsetning á brotthvarf spjallþáttakóngsins Jay Leno úr kvöldþættinum Jay Leno hættir 29. maí 2009 Kóngurinn og prinsinn Jay Leno ræðir við arftaka sinn, Conan O’Brien. Getty Images Heildsöludreifing og þjónusta: Tæknivörur, Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt M110 fæst hjá Vodafone og Símanum, ÚTIVISTARSÍMINN sem þorir og þolir Flúðasiglingin var rosaleg, allt rennblotnaði en síminn virkaði. Þekki þessi ekki neitt, Fannst þau bara svo ekta þýsk eitthvað. Skemmtilegt sjónarhorn, Nonni skal aldrei komast með tærnar þar sem ég hef hælana. Þetta var frábær ferð og kjötið ljúffengt. Sætt. 30 mínútum áður en sá stóri tók. Nenni þessu varla aftur, en það var gaman meðan á því stóð. Á skíðum skemmti ég mér... Högg,- ryk- og rakavarinn (IP54) • VGA myndavél • Bluetooth Vasaljós • Stereo FM-útvarp • Innbyggður hátalari Blautasta Hróarskeldu- hátíðin hingað til, að utan sem innan.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.