24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 2
● Árásargjarnir og uppstökkir Sjö þurftu fóru á slysadeild eftir líkamsárásir um helgina. Kona handarbrotnaði við að farsíma var hent í hana. Sá sem henti sagði lögreglu að þetta væri óviljaverk, því hann ætlaði að hæfa annað fórnarlamb. Einn lenti á slysadeild eftir að vinnu- félagi sló hann í andlitið með skóflu, svo hann féll við. Sá sem sleginn var hafði fyrst slett úr skóflunni á hinn. ● Leiðrétt: Á greinasíðu í gær var missagt að Brynja Björg Halldórs- dóttir væri formaður Ungra vinstri grænna. Brynja er for- maður UVG í Reykjavík. 2 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 24stundir flugfelag.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK - fyrir þá sem vilja vera fyrstir Til/frá Reykjavík Akureyri 8-12 ferðir á dag Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag Ísafjörður 2-3 ferðir á dag Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt. VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Amsterdam 19 Alicante 27 Barcelona 26 Berlín 18 Las Palmas 26 Dublin 20 Frankfurt 16 Glasgow 17 Brussel 19 Hamborg 19 Helsinki 17 Kaupmannahöfn 18 London 21 Madrid 32 Mílanó 25 Montreal 22 Lúxemborg 14 New York 32 Nuuk 8 Orlando 29 Osló 22 Genf 20 París 23 Mallorca 28 Stokkhólmur 20 Þórshöfn 13 Suðaustan 8-15 m/s en mun hægari aust- antil. Skýjað og dálítil rigning með köflum en léttskýjað norðaustantil. Hiti 8-22 stig, hlýjast austanlands. VEÐRIÐ Í DAG 11 12 18 13 14 Hlýjast austanlands Sunnan- og suðaustanátt, 8-13 m/s vestantil en mun hægari austantil. Dálítil rigning eða súld um landið S- og V-vert en léttskýjað að mestu norðaustan- og austanlands. Hiti allt að 15 til 20 stig en 9 til 14 stig vestantil. VEÐRIÐ Á MORGUN 11 14 17 13 17 Rigning eða súld „Við erum að leita leiða til þess að hagræða enn meira,“ segir Þór- unn Benediktsdóttir, hjúkrunar- forstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, en tekur fram að ekki hafi enn verið ákveðið hvort grípa þarf til slíkra aðgerða. „Það er alveg ljóst að ef til þess kemur þá mun það koma niður á þjónustunni. Þannig að ég skil vel að fólk hafi áhyggjur,“ segir hún. Heilbrigðisstofnunin hefur átt í erfiðleikum vegna fjárskorts og leitar hún nú leiða ásamt heilbrigð- isráðuneytinu út úr þeim. Styrktarfélag Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja sendi frá sér álykt- un á mánudag þar sem lýst var yfir áhyggjum af því að fjárhagsvand- inn muni leiða til mikils niður- skurðar á þjónustu stofnunarinnar. elias@24stundir.is Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Skilur áhyggjurnar „Klukkan fjögur um nóttina kveikti maðurinn á ljósavél og græjum og fór í gang með risa- partí,“ segir starfsmaður á tjald- svæðinu við Laugarvatn um læti 65 ára tjalddólgs í vikunni. Mannin- um var, ásamt tveimur konum, gert að yfirgefa svæðið í lögreglu- fylgd en fólkið var mjög ölvað. „Tjaldvörðurinn vaknaði við lætin en hann yfirgaf svæðið klukkan tvö en hús hans er í um kílómetra fjar- lægð,“ segir starfsmaðurinn. „Það er því ekki eingöngu unga fólkið sem er með vesen,“ segir starfs- maðurinn og bætir við að 30 ára aldurstakmark hafi verið sett á til að koma í veg fyrir óæskilega hóp- myndun unglinga því svæðinu sé ætlað að vera fjölskylduvænt. „Partí eru ekki leyfð á nóttunni,“ segir hann. áb Kveikti á ljósavél og hljómflutningsgræjum Gamall tjalddólgur rekinn af svæðinu Vegagerðin fer ekki í annað en lág- marksviðhald á illa förnum og varasömum vegi í Dyrhólaey. Ekki blasir við að aðrar opinberar stofn- anir hafi handbært fé til fram- kvæmda þar heldur, þótt tugþús- undir ferðamanna sæki staðinn ár hvert. „Opinberar stofnanir hafa ekki mikla peninga,“ segir Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Mýrdals- hreppi sem er þreyttur á að reyna að sækja fé í greipar fjársveltra rík- isstofnana og fá oftast nei. „Dyrhólaey er friðlýst og við höfum sent Umhverfisstofnun erindi um ástandið. Ekki væri verra að peningar til að standa undir viðhaldi svæðsins yrðu til í héraði, en ég ætla ekki að kveikja þá elda að leggja til gjaldtöku við Dyrhólaey, þótt gild rök séu fyrir henni. Þá umræðu verður að taka á almennum og pólitískum for- sendum og með landið allt í huga, “ segir oddviti Mýrdalshrepps, sem telur ferðamannaleiðir afgangsstærð hjá Vegagerðinni. beva Þreyttir á að fá alltaf NEI Fundarseta flugfreyja FÍ með samninganefnd ríkisins var löng og ströng í gær. Meirihluti flug- freyja FÍ felldi kjarasamning sem Flugfreyjufélag Íslands og Flug- félag Íslands undirrituðu 18. júní síðastliðinn sem hljóðaði upp á 3,3% grunnkjarahækkun auk annarrar kjarahagræðingar. áb Enn ósamið eftir langan fund Innkauparáð samþykkti í gær að ganga að tilboði frá litháíska verktakafyrirtækinu Adakris UAB í útboði vegna framkvæmda við Sæmundarskóla. Kostnaðar- áætlun vegna verksins hljóðar upp á 1,35 milljarða, en Adakris bauð 1,16 milljarða eða 86,20% af kostnaðaráætluninni. Ris ehf. átti næstlægsta tilboðið, sem var 30 milljónum króna hærra en tilboð Adakris. Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri mannvirkjaskrif- stofu borgarinnar, gerir ráð fyrir að fyrirtækið ráði sér íslenskan byggingarstjóra og einhverja ís- lenska starfsmenn. hos Borgin tekur tilboði frá Adakris Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Samruni Kaupþings og SPRON mun ekki hafa í för með sér að starfsmönnum verði fækkað um allt að 200, eins og haldið var fram í Morgunblaðinu í gær. Þetta segir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON. Hann segir það standa sem sagt var þegar samrunaáætlun var kynnt. „Þá kom fram að ekki verði farið í stórkostlegar uppsagnir vegna samrunans. Báðir bankar hafa ver- ið að hagræða og munu gera það áfram, sem þýðir einhverja fækkun starfsmanna. Augljóslega mun þessi sameining hafa eitthvað slíkt í för með sér, en ekkert af þeirri stærðargráðu sem þarna var nefnd,“ segir Guðmundur. Ekki búið að ákveða neitt Frétt Morgunblaðsins kom Ólafi Má Svavarssyni, formanni starfs- mannafélags SPRON, einnig í opna skjöldu. „Það er ekki búið að ákveða neitt, þannig að þessi frétt virðist algjörlega úr lausu lofti gripin.“ Hann bendir á að ekki verði hægt að fara yfir það hversu mörg- um, ef einhverjum, verði sagt upp fyrr en samruninn er genginn í gegn. Hann er háður samþykki hluthafafundar SPRON, sem hefur verið boðað til þann 6. ágúst, sam- keppnisyfirvalda og Fjármálaeftir- lits. Fréttir af miklum uppsögnum geta komið starfsmönnum í upp- nám, hvort sem þær eru réttar eða rangar, segir Ólafur. „Það er mikið af fólki í sumarfríum og er kannski statt á miðju tjaldstæði þegar það les fréttir um uppsagnir. Hætt er við því að hjarta þeirra slái hraðar.“ Launakjörin ýkt Í fréttinni var því einnig haldið fram að launakjör ýmissa starfs- manna SPRON verði tekin til end- urskoðunar með samrunanum, enda hafi meðalárslaun starfs- manna SPRON á liðnu ári verið 10 milljónir. Það segir Guðmundur ekki vera rétt. „Samkvæmt Frjálsri verslun voru árslaun í hittifyrra 6,3 millj- ónir og miklu lægri en í öllum við- skiptabönkunum. Í fyrra voru meðalárslaun 7 milljónir.“ Tal um uppsagnir örvar hjartslátt  Sameining SPRON og Kaupþings mun þýða einhverjar upp- sagnir  Fréttir af uppsögnum koma starfsmönnum í uppnám Mótmælir Guðmundur segir ekkert hæft í frétt Morgunblaðsins. ➤ Boðað hefur verið til fundarhluthafa í SPRON þann 6. ágúst, þar sem tekin verður ákvörðun um samruna við Kaupþing. ➤ Stjórnir fyrirtækjannatveggja segja að ekki muni koma til stórkostlegra upp- sagna vegna samrunans. BOÐAÐ TIL FUNDAR Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Borgarstjórnin í Atlanta í Georgíuríki í Bandaríkjunum hefur fallist á að láta mála yfir öll skilti sem á stendur „menn að störfum“ við bygging- arsvæði í borginni. Þóttu skiltin gera lítið úr verkakon- um borgarinnar, þar sem karl- kynsorð var notað. Í framtíð- inni verður þess gætt að skiltin verði kynhlutlaus. aij Menn að störfum Líka konur SKONDIÐ STUTT

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.