24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
Helgið ykkur land!
Nánari upplýsingar í síma 893 5046 og á www.fjallaland.is og
www.leirubakki.is
Allir velkomnir að koma og skoða!
Til sölu mjög fallegar lóðir í Fjallalandi við Leiru-
bakka. Kjarri- og mosavaxið hraun. Sögufrægt
hérað, mikil fjallasýn, veðursæld og hlý sumur.
Endalausir útivistarmöguleikar.
Allt eignarlóðir. Lóðirnar seljast með vegi að
lóðamörkum, kalt vatn og rafmagn komið í götur.
Hitaveita verður í boði.
Golfvöllur í undirbúningi.
Kaup á landi er örugg fjárfesting.
Aðeins 100 km frá Reykjavík.
Fjölbreytileg þjónusta við lóðareigendur heima
á Leirubakka: Verslun, bensínstöð, veitingahús,
hótel, Heklusetur með Heklusýningu, hestaleiga,
reiðskóli, skipulegar sögu- og
menningargöngur og margt fleira.
Það er næstum viðtekin venja að
fjármagn skorti í rekstur heilbrigð-
isþjónustu hér á landi, þannig að
sjaldan eða aldrei virðist vera hægt
að greina fjárþörf fram í tímann á
fjárlögum milli ára.
Vissulega eru ákveðnir óvissu-
þættir, s.s. varðandi bráðasjúkra-
húsin í Reykjavík, en áætlanagerð
af ýmsum toga hefur fleygt fram og
það hlýtur að vera hægt að áætla
nægilegt fjármagn í þau nauðsyn-
legu verkefni milli ára betur en gert
hefur verið.
Handahófskenndur sparnaður á
ekki við á þessu sviði þjóðlífsins
þótt sannarlega þurfi að vera til
staðar aðhald í rekstri eins og alls
staðar.
Reglulegt innra eftirlit hins op-
inbera í úttektum á rekstri stofn-
ana á að duga.
Allir sitji við sama borð
Að sjálfsögðu eiga landsmenn
allir að njóta grunnþjónustu við
heilbrigði, hvar sem þeir búa á
landinu og allsendis ekki að þurfa
að berjast við ráðamenn varðandi
sparnaðarhugmyndir í formi nið-
urskurðar. Gott aðgengi í heilsu-
gæslu er forvörn og tryggja þarf
þjónustu eftir þörfum hvarvetna á
landinu. Sérfræðiþjónusta sem fólk
utan af landi þarf að sækja til
Reykjavíkur þarf og verður að lúta
kostnaðarþátttöku hins opinbera í
formi ferðakostnaðar. Formaður
Styrktarfélags HSS benti á það ný-
lega að einungis 78 þúsund krónur
á íbúa væri sú upphæð sem varið
væri á fjárlögum til Suðurnesja-
manna meðan tæplega tvöfalt hærri
upphæð væri til staðar annars stað-
ar á landinu. Séu tölur þessar réttar
er þar á ferð augljós mismunun.
Skýrari skil
Því miður virðast ekki nægilega
skörp skil milli þess hvað flokkast
sem kostnaður sveitarfélaga ann-
ars vegar og kostnaður ríkisins
hins vegar þegar kemur að verk-
efnum sem hafa með heilbrigðis-
þjónustu að gera og falla innan
ramma félagsmálaþjónustu sveit-
arfélaganna, s.s. ýmsum verkefn-
um í öldrunarþjónustu og með-
ferðarúrræðum ýmiss konar sem
varða börn og ungmenni. Skýrari
mynd af fjárþörf til verkefna hvers
konar þarf að vera fyrir hendi þar
sem hægt er að greina kostnað
milli málaflokka, öllum til hags-
bóta.
Höfundur er alþingismaður Frjálslynda
flokksins í Suðurkjördæmi
Skortir heildaryfirsýn
yfir heilbrigðismál?
UMRÆÐAN aGrétar Mar Jónsson
Handahófs-
kenndur
sparnaður á
ekki við á
þessu sviði
þjóðlífsins
þótt sann-
arlega þurfi að vera til
staðar aðhald í rekstri
eins og alls staðar.
Heilbrigðisþjónusta Gott aðgengi
í heilsugæslu er forvörn og tryggja
þarf þjónustu að þörfum hvarvetna á
landinu.
Athygli vekur að í leiðara Magn-
úsar Halldórssonar í 24 stundum
sl. miðvikudag er lagt út af tæplega
sex ára gamalli greinargerð Eddu
Rósar Karlsdóttur, þáverandi
stjórnarmanns í Landsvirkjun, sem
fylgdi bókun hennar þegar stjórn
fyrirtækisins ákvað að ráðast í
Kárahnjúkavirkjun og gera orku-
sölusamning við Alcoa.
Sitthvað hefur breyst í orkumál-
um og stöðu Landsvirkjunar frá
þeim tíma. Áhyggjur Eddu Rósar
sem lagt er út af í leiðaranum hafa
einnig reynst ástæðulausar í ljósi at-
burða síðan í ársbyrjun 2003. Þá er
staða í orku- og efnahagsmálum Ís-
lands og umheimsins allt önnur nú
en þá.
Viðunandi ávöxtun
Rétt er að minna á að þrátt fyrir
þau atriði sem Edda tiltekur og
Magnús vitnar í þá taldi Edda að
þau gögn sem lágu fyrir stjórninni
sýndu að Kárahnjúkavirkjun
mundi skila Landsvirkjun viðun-
andi ávöxtun á eigin fé miðað við
ávöxtunarkröfu sem þá var gerð til
sambærilegra fyrirtækja erlendis.
Bygging Kárahnjúkavirkjunar yki
verðmæti Landsvirkjunar. Enda
studdi Edda Rós byggingu virkjun-
arinnar og gerð sölusamnings eins
og allir stjórnarmenn nema einn.
Þessi gamla greinargerð leiðir
leiðarahöfundinn Magnús á villi-
götur í efasemdum um ágæti orku-
sölu til stóriðju. Nefna má þrenns
konar misskilning:
Rangt er að starfsemi Lands-
virkjunar sé ekki skattlögð. Lagður
hefur verið 23,5 prósenta tekju-
skattur á Landsvirkjun sem sam-
eignarfyrirtæki frá árinu 2006. Til
samanburðar greiða hlutafélög 18
prósenta tekjuskatt.
Mun meiri arðsemi
Ábyrgð eigenda Landsvirkjunar
bætir lánskjör Landsvirkjunar og
fyrir það greiðir Landsvirkjun
þeim ábyrgðargjald. En í arðsem-
isútreikningum við mat á verkefn-
um er reiknað með lánakjörum
sem samsvara því að ekki sé um
eigendaábyrgð ríkisins að ræða.
Þetta á einnig við um endurskoð-
aða arðsemisútreikninga vegna
Kárahnjúkavirkjunar sem sýna nú
mun meiri arðsemi en lagt var upp
með. Við mat á arðsemi þeirra
verkefna á Suður- og Norðurlandi
sem Landsvirkjun vinnur nú að er
miðað við lánskjör sambærilegra
fyrirtækja á almennum markaði.
Hækkandi orkuverð
Magnús bendir réttilega á hækk-
andi orkuverð í heiminum en telur
að Landsvirkjun og afskipti stjórn-
málamanna í gegnum opinberan
rekstur valdi því að Landsvirkjun fái
ekki hlutdeild í þessu hækkandi verði.
Sala á raforku til álversins í Reyð-
arfirði talar sínu máli um að þessi
röksemd stenst ekki. Samhliða háu
orkuverði hefur hrávöruverð í heim-
inum hækkað. Þar sem raforkuverðið
er tengt verði hrávörunnar áls á
heimsmarkaði hefur Landsvirkjun
einmitt notið hærra raforkuverðs í
takt við þróunina alþjóðlega.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar
Umræða
á villigötum
UMRÆÐAN aÞorsteinn Hilmarsson
Þar sem raf-
orkuverðið er
tengt verði
hrávörunnar
áls á heims-
markaði hef-
ur Lands-
virkjun einmitt notið
hærra raforkuverðs í takt
við þróunina alþjóðlega.
Það lá við að mér svelgdist á
kaffinu þegar ég las fyrirsögnina á
pistli bæjarstjórans í Kópavogi í 24
stundum í gær: „Íbúasamráð“. Þar
hefur bæjarstjórinn og oddviti
meirihluta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks uppi ákaflega
fimlegar æfingar um það sem hann
kallar „íbúasamráð“.
Hingað til hafa íbúar Kópavogs
margir hverjir ekki farið varhluta af
útgáfu meirihlutans af íbúasam-
ráði. Þetta eru náttúrlega öfugmæli
hjá bæjarstjóranum en sýnir glögg-
lega hversu ósvífnir menn geta
orðið.
Í pistlinum gerir bæjarstjórinn
skipulagið á Kársnesi að umtals-
efni. Ef tekið er mið af ummælum
forsvarsmanna íbúasamtakanna á
Kársnesi í fjölmiðlum um nýjar til-
lögur bæjaryfirvalda um skipulag á
Kársnesi og borið saman við það
sem oddviti Sjálfstæðisflokksins og
bæjarstjóri Kópavogs segir í pistl-
inum sést að hann fer með ósann-
indi.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég, sem íbúi í Kópavogi, verð fyrir
barðinu á „íbúasamráði“ meirhlut-
ans. Fyrir nokkrum árum ætluðu
bæjaryfirvöld að standa fyrir bygg-
ingu á Digraneskirkju á milli
tveggja íbúðagatna, Lyngheiðar og
Melheiðar. Þrátt fyrir hörð mót-
mæli okkar íbúanna var ljóst að
bæjaryfirvöld ætluðu að ná málinu
fram með illu. Eftir langan slag
fjölmenntu íbúar, ásamt öðrum
íbúum í nágrenninu, á aðalfund
safnaðarins, yfirtóku aðalfundinn
og skiluðu lóðinni til bæjarins.
Íbúasamráð, íbúalýðræði? Nú-
verandi meirihluti í Kópavogi veit
ekki hvað það er. Og nú byrja þeir
aftur að reyna að keyra yfir íbúa á
Kársnesi. Og af hverju? Vegna þess
að hér eru stærri hagsmunir, meiri
peningar í húfi fyrir spillingaröflin
í Sjálfstæðisflokknum. Aftur mun
íbúalýðræðið á Kársnesi felast í því
að svínbeygja meirihlutann til
samráðs við íbúa með mótmælum.
Því spyr ég stjórn Betri byggðar á
Kársnesi: Hvenær má ég hengja aft-
ur upp mótmælaborðann minn?
Höfundur er íbúi við Skólagerði
Íbúasamráð
bæjarstjórans
UMRÆÐAN aHelgi Helgason
Þetta eru
náttúrlega
öfugmæli hjá
bæjarstjór-
anum en sýn-
ir glögglega
hversu
ósvífnir
menn geta orðið.