24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 21
24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 21
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@24stundir.is
„Ég tók nú eiginlega lokaákvörðun
um þetta í miðju hlaupi. Mér fannst
eins og líkaminn tæki ákvörðunina,
eins skringilega og það hljómar. Ég
stoppaði ósjálfrátt eftir átta grindur
og horfði bara á hinar stelpurnar
hlaupa í mark og mér fannst ekkert
eins og að ég væri að taka ákvörðun
um að stoppa. Þetta var svo ofboðs-
lega ómeðvitað. Þá vissi ég bara að
þetta var seinasta hlaupið mitt og
að nóg væri komið. Tankurinn var
einfaldlega bensínlaus,“ sagði Silja,
sem hefur alla tíð verið mikil
keppnismanneskja en síðustu ár
hafa reynst líkamanum erfið.
„Líkaminn þarf hvíld“
„Þetta er náttúrlega mikil
ákvörðun því líf mitt hefur snúist
um frjálsar íþróttir síðan ég byrjaði
að æfa þær á fullu 17 ára gömul. En
ég er bara orðin ofboðslega þreytt,
allar æfingar eru of erfiðar og lík-
aminn þarf bara algjörlega að fá
hvíld. Ég lenti í mjög slæmri of-
þjálfun í fyrra og hef bara ekki náð
mér síðan, og er svoleiðis að kreista
fram síðustu dropana með því að
keppa á Meistaramótinu um
helgina.
Í hittifyrra var ég búin að æfa
mjög vel og það átti að vera árið
sem ég myndi virkilega ná mínu
besta, en svo bæði handarbrotnaði
ég og reif læri. Þegar ég mátti svo
byrja að æfa aftur fór ég svolítið yfir
strikið og byrjaði hreinlega af allt of
miklum krafti. Á tímabili var ég
hætt að geta sofið, borðaði lítið og
hugsaði bara um að æfa og æfa á
fullu,“ sagði Silja, og það kom að
því að líkami hennar sagði einfald-
lega stopp, á einni af óteljandi æf-
ingum hennar í Kaplakrika.
Hjartatruflanir á æfingu
„Ég var bara á æfingu þegar ég
fékk allt í einu hjartatruflun og það
fékk mig á endanum til að staldra
aðeins við. Ég reyndar fór og bað
þjálfara sem var þarna um að fylgj-
ast með mér ef ske kynni að ég
myndi hníga niður aftur og kalla þá
á sjúkrabíl, og kláraði svo æfinguna.
Eftir þessa æfingu varð ég bara veik.
Ég fattaði það ekki strax og fór bara
út og æfði en allt í einu var allt orð-
ið ótrúlega erfitt og ég orðin mjög
kraftlaus. Það var svo á Íslands-
mótinu innanhúss í fyrra að ég var
að hlaupa 60 metra hlaup og fékk
bara „blackout“ og man eiginlega
ekkert eftir hlaupinu, sem þó var
bara 60 metrar. Þá hugsaði ég með
mér: jæja, ókey, það er eitthvað að
mér, best að fara og kíkja í einhverj-
ar rannsóknir.“
Eins og stálsleginn karlmaður
„Það gerði ég en allar rannsóknir
sýndu að ég væri bara eins og stál-
sleginn karlmaður, slíkt var formið,
en samt sáu læknarnir að ég gat
varla komist upp stigann til þeirra.
Þeir vildu meina að ég hefði örugg-
lega fengið vírus og síðan æft mikið
þrátt fyrir hann,“ sagði Silja, sem
greip hins vegar fyrsta tækifæri til
að fara á hlaupabrautina að nýju.
Lærði að hlaupa upp á nýtt
„Þegar ég gat byrjað að æfa aftur
þurfti ég hreinlega að læra að
hlaupa upp á nýtt því ég hreyfði t.d.
hægri höndina fram um leið og
hægri löppina sem maður á auðvit-
að ekki að gera. Svo tók ég stærri
skref með hægri löppinni eins og ég
væri að hlaupa í hringi. Þannig að
líkaminn fór greinilega alveg í köku
og mér er ekkert búið að líða vel
síðan. Ég reyndi samt að ýta þessu
til hliðar og ætlaði mér að komast á
Ólympíuleikana í ár, en svo er ég
líka búin að vera að meiðast og ég
get einfaldlega ekki látið áfram eins
og ekkert sé að,“ sagði Silja, sem
leggur á það áherslu að allt geti
gerst í framtíðinni.
„Ég þoli ekki að lesa það í blöð-
unum að ég sé að leggja skóna á
hilluna því þá finnst mér eins og að
ég muni ekki geta tekið þá fram aft-
ur. Ég er auðvitað að hætta en það
getur vel verið að ég keppi eitthvað
aftur þegar líkaminn er orðinn betri
þó ég muni aldrei aftur æfa af sama
kappi og síðustu ár. Ég mun samt
aldrei keppa til þess að ná þriðja eða
fjórða sæti og vil frekar hætta bara á
toppnum.“
Sendir burt með æluna í kokinu
Silja hefur æft íþróttir frá unga
aldri en hefur einbeitt sér að frjáls-
um íþróttum frá 17 ára aldri. Hún
hefur rakað saman verðlaunum á
frjálsíþróttamótum síðustu ár enda
verið fljótasta kona landsins, og er
enn.
Silja hefur staðið í þjálfun upp á
síðkastið og fengið til sín fólk úr
ýmsum áttum, til að mynda knatt-
spyrnumenn á borð við landsliðs-
manninn Emil Hallfreðsson. Hún
hefur nú skráð sig í einkaþjálfara-
nám við ÍAK næsta vetur. „Ég hef
rosalegan áhuga á öllu sem viðkem-
ur líkamanum og þetta nám hjálpar
mér að fræðast um meiðslaforvarn-
ir, uppbyggingu eftir meiðsli og
annað slíkt,“ sagði Silja, sem sam-
hliða námi mun þjálfa í vetur og
komandi ár.
„Ég þjálfa aðallega frjálsíþrótta-
fólk en hef verið að þjálfa nokkra
fótboltastráka úr yngri flokkum FH
og var með kvennaliðið í styrktar-
þjálfun síðasta vetur. Svo þjálfaði ég
Matthías Vilhjálmsson úr FH í vet-
ur, Gylfa Þór [Sigurðsson] úr Read-
ing í sumar og Emil Hallfreðsson í
kjölfarið. Það hljómar auðvitað
mjög auðvelt að hlaupa, en það er
hægt að læra svo mörg tækniatriði
og gera æfingar til að ná forskoti á
andstæðinginn. Ég tók reyndar
Emil líka í alvöru hlaupa-þrek-
hringi og hann fór burt með æluna
í kokinu.
Mér finnst þetta alveg hrikalega
gaman og þegar ég sé íþróttamenn-
ina verða betri finnst mér það mjög
góð tilfinning,“ sagði Silja.
Keppnisskapið hefur fylgt henni í
gegnum tíðina og Silja segir ólíklegt
annað en að hún verði viðloðandi
hvers kyns íþróttir um ókomna tíð
til að svala sigurþorstanum.
„Kíki kannski í handboltann“
„Það er aldrei að vita nema ég
kíki á handboltaæfingu í vetur og ég
væri alveg til í að prófa alla vega
einn leik og skora eins og eitt mark.
Svo voru stelpurnar í fótboltanum
hjá FH að grínast með að ég ætti að
koma og spila á kantinum hjá þeim.
Ég get nú alveg hlaupið hratt en ég
kann að vísu ekkert að sparka í
boltann.
Maður verður alla vega að finna
sér eitthvað að gera því ég er svo
mikil keppnismanneskja. Við Vign-
ir [Grétar Stefánsson, eiginmaður
Silju] megum ekki kíkja út í búð
saman því þá erum við farin að
keppa um hvort okkar verður fyrst
heim.“
Bless Silja kveður um helgina
grindurnar sem hún hefur
flogið yfir síðustu ár á Laug-
ardalsvellinum.
„Bensínlaus tankur“
Hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir keppir á sínu síðasta móti um helgina í Laugardalnum
Líkaminn sagði að lokum stopp vegna gífurlegs æfingaálags þessarar miklu keppnismanneskju
Ein sigursælasta frjáls-
íþróttakona landsins,
hlaupadrottningin Silja
Úlfarsdóttir, hefur rakað
saman verðlaunum í hin-
um ýmsu hlaupum gegn-
um tíðina. Nú er komið
að tímamótum í hennar
lífi því Silja keppir um
helgina á sínu síðasta
móti.
➤ Silja er 27 ára og hefur æftfrjálsíþróttir frá 17 ára aldri
en áður æfði hún fótbolta og
handbolta. Hún er ein sig-
ursælasta frjálsíþróttakona
landsins enda unnið ófáa
sigra á hlaupabrautinni síð-
ustu ár.
➤ Silja er FH-ingur í húð og hárog keppir um helgina á sínu
síðasta móti fyrir félagið en
þá fer fram Meistaramót Ís-
lands á Laugardalsvelli.
SILJA ÚLFARSDÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Allar rannsóknir sýndu að ég væri bara eins og stál-
sleginn karlmaður, slíkt var formið, en samt sáu
læknarnir að ég gat varla komist upp stigann til þeirra.