24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 43

24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 43
24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 43 Hjá okkur fáið þið mikið úrval af barnabílstólum Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Mikki Mús Dýragarðurinn ÉG VISSI EKKI AÐ GUFFI KYNNI Á MÓTORHJÓL EKKI ÉG HELDUR... HANN ÆTLAR AÐ KOMA OG SÝNA OKKUR ÞAÐ HÉRNA, MIKKI! SJÁÐU MIG! ÞARNA ER HANN! HVERT GETUR HANN HAFA FARIÐ? Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Kattholt er staður þar sem týndir og ráðvilltir kettir geta fengið að búa þangað til eigandi þeirra finnst. Ef eigandinn finnst ekki þarf að finna köttunum nýtt heim- ili. Kettir eru skemmtilegir félagar sem bjóða ást og væntumþykju í skiptum fyrir öruggt heimili. Allir geta farið í Kattholt og ætt- leitt kött sem skoðaður hefur verið af dýralækni og fengið allar spraut- urnar sínar. Börn sem vilja fá kött geta því treyst því að þau fá heilbrigðan kött ef þau sækja hann í Kattholt. Þið þurfið þó að muna að kettir eru ekki leikföng sem þið getið keypt, leikið með í smá tíma og skilað svo. Það þarf að hugsa um ketti á hverjum einasta degi svo lengi sem hann lifir og það er mjög langur tími. Kettir geta lifað í 10-15 ár og jafnvel lengur. Það þarf að hugsa vel um kattasandinn, gefa þeim mat og vatn og gæta þess að klappa þeim og bursta feldinn á hverjum degi. Kattholt tekur að sér tugi katta í hverjum mánuði Kettir leita að góðu heimili LEIKUR VÍSINDAHORNIÐ Girnileg kjötbollusamloka.  8 sneiðar gróft brauð  25 grömm smjör  4 salatblöð  8 kjötbollur, skornar í tvennt  Litlar súrsaðar gúrkur, skornar í tvennt  karsi og appelsínubátar til skreytingar Smyrjið brauðið með smjöri, leggið salat, kjötbollur og gúrkur á og leggið að lokum aðra brauð- sneið ofan á. Skreytið með appels- ínu og karsa. Annað hvort við hlið- ina á eða á milli. Góð uppskrift fyrir börn Í þessum leik geta allt frá tveim- ur til ótakmarkaðs fjölda tekið þátt. Einn þátttakenda hugsar sér einhvern ákveðinn hlut eða hugtak. Hinn eða hinir spyrja þannig spurninga að alltaf sé hægt að svara annaðhvort með já eða nei. Skemmtilegast er að skipta spyrjendum í tvö lið sem spyrja til skiptis. Við hvert já sem liðið fær fær það stig og vinnur þá liðið sem hefur fleiri stig í lokin. Þið getið líka sjálf búið til ein- hverjar öðruvísi reglur og það er líka skemmtilegt að fara í þennan leik þó að leikmenn séu bara tveir. Góðar spurningar eru t.d. Er þetta hlutur? Er þetta hugtak? Einnig að byrja á því að komast að því hvort hluturinn (ef það er hlutur) sé í steinaríkinu, jurtaríkinu eða dýra- ríkinu. Til hluta telst allt sem er áþreif- anlegt, lifandi eða dautt, en hugtök eru óáþreifanleg. Esjan mundi t.d. teljast til hluta þótt hún sé heilt fjall en andrúmsloftið væri hugtak. Rit- gerðin hennar Siggu um sólina er hugtak en bókin sem hún skrifaði hana í er hlutur. Er þetta banani? Spurningaleikur Hvirfilbyljir eða skýstrókar eru ógn- arhvassar en smáar hringiður í neðsta hluta gufuhvolfsins, sumir hafa kannski séð hvirfilbylji í bíó- myndum. Fellibyljir eru hins vegar víðáttumikil óveður sem ná frá yf- irborði jarðar upp að veðrahvörfum. Það er algengt að skýstrókar myndist í fellibyljum. Skýstrókar og fellibyljir myndast í óstöðugu lofti, þegar hlýtt loft er undir köldu lofti. Fellibyljir myndast yfir úthöfum en skýstrókar geta bæði myndast yfir landi og sjó. Fellibyljir lifa dögum saman en skýstrókar stund- um ekki nema í nokkrar mínútur og í mesta lagi örfáar klukku- stundir. Fellibyljir geta ekki myndast við Ísland vegna þess að sjórinn hér er of kaldur. Leifar af fellibyljum berast þó stundum til landsins. Það er oft miðað við að yfirborðshiti sjávar þurfi að vera 26°C hið minnsta til að fellibylur geti myndast. Við suðurströnd Íslands fer sjávarhiti ekki mikið yfir 10°C. Skýstrókar geta hins vegar myndast á Íslandi, en það er afar sjaldgæft. Ellý Sæunn spyr: Hvað er hvirfilbylur? a Af hverju var Jóhann rekinn úr kafbátaliðinu? Hann heimtaði að sofa við opinn glugga.LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is krakkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.