24 stundir


24 stundir - 31.07.2008, Qupperneq 12

24 stundir - 31.07.2008, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Konum fjölgar í Kvennaathvarfinu miðað við sama tíma í fyrra og eru vísbendingar um að heimilisofbeldi fari vaxandi. Það veldur áhyggjum. Áttatíu konur hafa dvalið í athvarfinu það sem af er ári, en þær voru hundrað allt árið í fyrra. Á árinu hafa 88 tilkynningar um heimilisofbeldi borist lögreglunni. Eyrún Jónsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttöku Landspítala, segir kon- ur sem beittar eru ofbeldi oft ekki leita til móttökunnar fyrr en áverkarnir verða sýnilegir; þegar þær eru barðar í andlitið. Ingólfur V. Gíslason félagsfræðingur og Eyrún segja efnahagsástandið líklegustu ástæðuna. „Ef þessi samdráttur núna leiðir til mikilla þrenginga hjá fjölskyldum þá myndi maður almennt ætla að það ýtti undir heimilis- ofbeldi,“ segir Ingólfur. Eyrún segir að vanmáttur árásarmannsins orsaki stjórnunarþörf hans sem aukist við þrengingarnar og þar með ofbeld- isþörfin. Ingólfur segir að ofbeldisfólk hafi oft upplifað ástvinamissi eða svik í bernsku sem það óttist að verða fyrir aftur. Með því er hann ekki að rétt- læta verknaðinn, heldur þekkir hann hvatirnar, sem gefur von um að hægt sé að vinna með þeim sem beita ofbeldi. Það hefur Ingólfur gert, en hann er verkefnisstjóri Karla til ábyrgðar, sem er meðferðarúrræði fyrir slíkt ógæfufólk. 130 karlar og ein kona hafa leitað aðstoðar, en aðeins þrjátíu þeirra útskrifast. Það sýnir hve vandinn er djúpstæður í sálum þeirra. Fólk sem verður vitni að heimiliserjum og ofbeldi á það til að líta und- an, hugsa um friðhelgi einkalífsins og að það sem gerist innan veggja heimila sé einkamál. Fórnarlambið verði sjálft að átta sig og leita hjálpar. Hins vegar má sjá á fleiri tilkynningum til barnaverndarnefnda, þegar fólk grunar foreldra um vanrækslu barna sinna, að það hikar ekki við að rétta þeim sem ekki geta varið sig hjálparhönd. Það tekur upp tólið og hringir í barnaverndaryfirvöld eða lögregluna. Barnaverndar- yfirvöldum ber að fara yfir allar tilkynningar. Væri það ekki til sóma ef fólk hugsaði eins til fullorðinna í raunum og tilkynnti lögreglu um hugsanlegt heimilis- ofbeldi? Jafnvel að lögreglan gæti þá vísað beiðnunum til teymis sérfræðinga sem hefði samband við heim- ilisfólkið og gengi úr skugga um að heimilishaldið væri í lagi? Fórnarlömbin eru í lífshættu. Fullyrða má að ekk- ert okkar vilji upplifa fleiri fréttir af andlátum vegna heimilisofbeldis hér á landi. Þetta eru hættutímar. Kjaftshögg Það eru mikil vonbrigði að Doha viðræðurnar fóru út um þúfur. Ég var farin að hlakka til að sjá styrkjakerfi landbúnaðarins breytast. Nú þurfum við lík- lega að bíða í fjöldamörg ár í viðbót en þessi samningur sem rætt var um hefur verið í viðræðum í 7 ár. Og þetta var ekki bara mikilvægt fyrir Ísland sem er með allt of háa landbúnaðarstyrki, í raun ekkert mikilvægt, miðað við öll þau vanþróuðu lönd sem þurfa á þessu að halda til að byggja upp nauðsynlega þjónustu í löndum sínum. Já, í mínum huga er niðurstaða Doha ægileg. Þetta er sorgleg niðurstaða. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir thorbjorghelga.eyjan.is Vonbrigði BLOGGARINN Nálægðin við einstaklinginn er svo mikil og margir vita að við- komandi er öndvegis. En það er aukaatriði. Alveg eins og persóna borgarstjóra. Af hverju er úti- lokað að ákvörð- un borgarstjóra hafi eingöngu verið faglegs eðl- is? Þarf valdhroki og mannvonska að koma við sögu? Það að stjórnmálamenn beiti valdi sínu er ekki sjálfkrafa misbeiting valds. Stjórnmálamenn sem þora að hafa skoðanir og standa við þær eru fátíðir. Ég mun aldrei greiða Ólafi atkvæði mitt en ber þó virðingu fyrir því að hann þori að standa við sín prinsipp … Rögnvaldur Hreiðarsson roggi.eyjan.is Prinsippmaður Hugmyndir um að Urriðafoss verði fallegri og betri eftir virkjun ríma vel við hugmyndir virkj- anasérfræðinga um að hægt sé að virkja Dettifoss, Gullfoss og aðra fossa á þennan hátt. Á ráðstefnu einni rakti sér- fræðingur áætlun um virkjun Detti- foss sem byggðist á því að hægt yrði að auglýsa hann áfram sem kraftmesta foss Evr- ópu þótt vatn yrði tekið af hon- um vegna virkjunar! Áætlunin byggist á rannsókn, sem gerð var á viðhorfum ferða- manna við fossinn eitt sumar. Á kuldakafla minnkaði rennslið um hann úr 400 rúmmetrum niður í 160 rúmmetra ... Ómar Ragnarsson omarragnarsson.blog.is Fallegir fossar Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@24stundir.is Miðbænum í Reykjavík hefur verið líkt við unga konu. Ungfrú Reykjavík er falleg, góð og klár. Um nokkurt skeið hafa ákafir vonbiðlar verið á eftir henni. Þeir hafa hins vegar nálgast hana með því að segja henni að nú sé hún farin að eldast og láta á sjá. Hún sé því ekki í aðstöðu til annars en að taka því sem býðst. Ungfrú Reykjavík á nokkrar málgefnar og stundum meinfýsnar frænkur. Þær eru óþreytandi við að benda á galla hennar, ekki hvað síst útlitslega. Frænkurnar skilja ekkert í því að stelpan ætli að leyfa sér að vera vandlát, meira að segja við eignamenn. Einstæð stúlkan, ætlar hún að pipra? Nú síðast var listamaður á eftir henni. Sá er mikill fengur, að eigin mati. Hann hefur verið „á milli heimila“ en býðst til að taka stúlkuna að sér. Ástandið er farið að taka sinn toll hjá ungfrú Reykjavík. Hún er oft niðurbrotin og hefur um nokkurra ára skeið verið nánast óvinnufær vegna ágangs og óvissu. Hún þakkar því lista- manninum fyrir að líta við sér. Listamaðurinn ætlar reyndar að flytja inn á hana með allt sitt hafurtask. Hann tekur mikið pláss og fer fram á að hún rými til fyrir sig. Hann vill líka brjóta niður veggi því hann áformar að byggja út í lóðina. Ungfrú Reykjavík kann ekki við að segja nei við svona merkan mann. Hún biður hins vegar um leyfi til að halda eftir þremur gömlum stólum, erfða- gripum frá langömmu. Listamaðurinn heldur nú ekki! Þess háttar gamalt drasl passar ekki inn á heimili hans. Hann getur ekki verið þekktur fyrir annað en að vera mó- dern. Hinum skapheita listamanni misbýður algjörlega ósvífni konunnar. Veit hún ekki að hann getur bara farið eitthvað annað? Frænkurnar taka undir og minna á að hún sé ekki í neinni aðstöðu til að setja mönnum afarkosti, svona komi maður ekki fram við merkilegan listamann. Þegar betur er að gáð er ungfrú Reykja- vík miklu efnilegri en frænkurnar og vonbiðlarnir gera sér grein fyrir. Fái hún að þroskast á eigin forsendum munum við sjá að ungfrúin er afburðakona á flestum sviðum. Ef hún gefur hins vegar stöðugt eftir og lætur brjóta sig niður, situr hún á endanum ein eftir í tómu og hripleku húsi á nauðungaruppboði með brostnar vonir og stórkostleg fyr- irheit að eilífu glötuð. Ungfrú Reykjavík ÁLIT Sigmundur Davíð Gunn- laugsson LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646 Útsalan í fullumgangi 20 -70% afsláttur

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.