24 stundir - 31.07.2008, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir
FÉ OG FRAMI
frettir24stundir.is a
Það er alltaf ódýrara að taka á
móti símtali en að hringja heim.
Símnotandinn á Íslandi borgar bara
venjulegt gjald.
SALA
JPY 0,7844 0,26%
EUR 125,04 0,96%
GVT 160,62 0,71%
SALA
USD 80,20 0,29%
GBP 158,75 0,63%
DKK 16,757 0,96%
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@24stundir.is
Hvort sem sumarferðalaginu er
heitið í jóska sveit, á frönsku rí-
víeruna, á Rauða torgið í Moskvu
eða eitthvað allt annað er enginn
tilneyddur að slíta sambandi við
heimahagana. Raunar er svo auð-
velt að vera farsímatengdur að
margir hafa snúið heim til svim-
andi símreiknings eftir að hafa gef-
ið kostnaðarmeðvitundinni hvíld í
útlöndum.
Aftengja talhólf og senda sms
Á vefsíðum símafyrirtækjanna er
bent á að ýmislegt má hafa í huga
til að lágmarka símkostnaðinn í út-
löndum. Einföldustu viðmiðin eru
að fyrir þann sem staddur er er-
lendis er alltaf ódýrara að taka á
móti símtali en að hringja heim. Þá
er almennt ódýrara að senda sms-
skilaboð en að hringja.
Á síðu Vodafone er þó bent á að í
flestum tilvikum sé ódýrara að
hringja en að eiga „sms-samtal“,
það er að segja ef fleiri en þrjú sms
eru send úr símanum. Hin sígilda
sparnaðarleið að senda ókeypis sms
af netinu er auðvitað gild fyrir þá
sem hafa aðgang að netinu. Ókeyp-
is er að taka á móti sms-skilaboð
erlendis.
Loks borgar sig oft að aftengja
talhólfið, því rukkað er fyrir símtöl
sem færast inn í það.
Gengið stýrir verðskránni
Líkt og við á um innanlandssím-
töl eru ýmis tilboð sem gera sím-
notkun erlendis ódýrari en ella.
Síminn og Vodafone bjóða nokkuð
sambærilega þjónustu, Þú í útlönd-
um og Vodafone Passport. Hún
felst í því að greitt er ákveðið gjald í
upphafi símtals og síðan á tuttugu
mínútna fresti. Þess á milli er mín-
útugjald hið sama og innanlands.
Upphafsgjaldið er gjarnan u.þ.b.
ein evra og fer því kostnaðurinn
eftir genginu á hverjum tíma.
Þannig birta t.d. Tal og Vodafone
verðskrá sína í evrum, enda samn-
ingar gerðir í þeirri mynt. Sigmar
Vilhjálmsson, upplýsingafulltrúi
Tals, bendir á að í ljósi sviptinga á
genginu sé „einfaldast og hreinleg-
ast að birta hana í evrum“.
Verðskrá Símans er aftur á móti
endurskoðuð einu sinni í mánuði,
og endurspeglar þá gengið hverju
sinni.
Frelsið ekki í boði alls staðar
Áðurnefnd þjónusta er þó aðeins
í boði fyrir þá sem eru í áskrift og
gildir aðallega í Vestur-Evrópu.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, bendir á að í
sumum löndum sé rauntímarukk-
un, þ.e. frelsi, ekki í boði, þótt svo
sé í flestum löndum og þeim fjölgi
stöðugt. Allir geti þó fært sig tíma-
bundið yfir í áskrift ef leiðin liggur
á þannig slóðir.
Á ferð og flugi er ekki alltaf auð-
velt að nálgast netsamband og því
þægilegt að geta notað netið í sím-
anum sínum. Almennt nota margir
sér t.d. að fá tölvupóstinn í símann,
samkvæmt upplýsingum frá Nova.
Notendur eru þó hvattir til að
kynna sér verðskrár fyrirtækja í
viðkomandi landi. Tölvupóstur
krefst að vísu lítils gagnaflutnings,
en á hinn bóginn getur verið dýrt
að vafra mikið á netinu.
HVAÐ KOSTAR...
Síminn Vodafone* Tal* Nova
(Þú í útlöndum) (Passport)
Að hringja í 5 mín til Íslands frá Danmörku
fast gjald 132 124 0 3,5
mínútuverð 11,5 11,4 76 50
samtals 189,5 181,0 382,2 253,5
Að fá 5 mín símtal frá Íslandi í Danmörku
fast gjald 132 124 0
mínútugjald 0 0 38 30
samtals 132,0 124,0 188,0 150,0
Að senda sms 54 65 65 45
*m.v. gengi evru í gær.
Þú í útlöndum og Vodafone Passport eru aðeins í boði í áskrift og aðallega í V-Evrópu.
Hjá Nova og Tal er sama verð í Frelsi og í áskrift. 24stundir/BMS
Ódýrara að
senda sms
Borgar sig að aftengja talhólfið áður en haldið er utan
Frelsi virkar oftast en ekki endilega á fjarlægum slóðum
➤ Ef tveir íslenskir farsímar eru íútlöndum og hringja sín á
milli greiðir sá sem hringir
fyrir símtal til Íslands. Sá sem
hringt er í greiðir fyrir símtal
frá Íslandi til viðkomandi
lands.
➤ Ef dvalið er í landi til lengritíma getur borgað sig að
kaupa fyrirframgreitt símkort
á staðnum. Því fylgir þó auð-
vitað nýtt símanúmer.
SÍMINN Í ÚTLÖNDUM
MARKAÐURINN Í GÆR
!" #$
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
01
2
345
61
'
'7.
.8
1
*9
/
01,,
: ,
; 1 ;
,/
!
"
:,
0
, <
" & >
4?4?@?3
@3A@B@B>
A5B44??C
@>B4C>ADBD
34DDD
+
5C@@>?AC>
C5D3C@D@3
+
3>D545>>
CCB@C4@A3
+
+
+
>
3B4?4D
+
CAAB3A
+
+
+
@A34A>>>>
+
+
4EB?
5E?4
C5E>>
4ECC
@?EA4
@?E@5
@AE>>
A>DE>>
CCEA>
D3ED>
3E>@
BE>D
@E5C
D5E>>
+
@B3E>>
@5B5E>>
C@3E>>
@3DE>>
+
+
+
?BA>E>>
+
+
4EBB
5E5>
C5E@5
4ECD
@?ED?
@?E35
@AE@>
A@>E>>
CCEB>
D?E5>
3EC>
BE@3
@E53
D5EB>
+
@BDE>>
@4>>E>>
C@5E>>
@??E>>
C@EB>
+
DE5>
5>C5E>>
@>E5>
5E>>
./
,
+
?
?
@B
3?
3
+
33
C5
+
3
CB
+
+
+
+
C
+
5
+
+
+
@C
+
+
F
, ,
CBAC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
CBAC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
CBAC>>D
3>AC>>D
3>AC>>D
CDAC>>D
CBAC>>D
BAC>>D
C5AC>>D
3>AC>>D
C?AC>>D
3>AC>>D
@4AC>>D
4@CC>>A
34C>>D
3>AC>>D
CDAC>>D
A3C>>D
● Úrvalsvísitala kauphallarinnar
lækkaði um 1,1% í gær. Lokagildi
hennar var 4.094 stig.
● Mest lækkuðu Kaupþing, um
1,9%, Straumur-Burðarás, um
1,8% og Glitnir, um 1%.
● Mest hækkuðu Century Al-
uminum, um 9,3%, Exista, um
2,3% og Föroya Banki, um 2,2%.
● Mestu viðskiptin voru með bréf
Glitnis, fyrir 1,1 milljarð króna. Í
heild námu hlutabréfaviðskipti 2,4
milljörðum króna, en viðskipti með
skuldabréf námu 9,8 milljörðum.
● Gengi krónunnar veiktist um
0,4% í gær og endaði gengis-
vísitalan í 161 stigi. Bandaríkja-
dalur kostaði í lok gærdagsins
80,5 krónur, evra 125,3 krónur,
pundið 159,2 krónur og dönsk
króna kostaði 16,8 íslenskar
krónur.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hefur undirritað frum-
varp um að stofnaður verði sjóð-
ur til að styðja þá 400.000
húsnæðiseigendur vestanhafs
sem eiga í greiðsluvanda.
Sjóðurinn á að gera þeim kleift að
fá endurfjármögnun á rík-
isstyrktum og hagstæðari kjör-
um, í stað þess að glata heimilum
sínum. Áætlað er að sjóðurinn
geti tryggt 300 milljarða dala
virði af slíkum lánum. hþ
Sjóður til húsnæðislána
SPRON tapaði fimm millj-
örðum króna á öðrum
fjórðungi ársins, sam-
anborið við 5,4 milljarða
króna hagnað á sama tíma-
bili í fyrra. Í tilkynningu
SPRON segir að þróun á
hlutabréfamarkaði hafi
leitt til 4,9 milljarða króna
gengistaps.
Þá varð 3,7 milljarða tap á
rekstrinum sjálfum.
Á fyrri helmingi ársins
nemur tap félagsins 13,5
milljörðum króna. Heildareignir hafa aukist um 10% á þessum tíma
og námu í júnílok 246,7 milljörðum króna.
Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri segir í tilkynningu að líkt og
undanfarna ársfjórðunga líði afkoma sjóðsins fyrir óhagstæðar mark-
aðsaðstæður. Undangengin hagræðing í rekstri hafi skilað þeim rekstr-
arkostnaði sem fram kom nú, en árangurinn muni halda áfram að
koma í ljós eftir því sem líður á árið. hþ
SPRON tapaði fimm milljörðum
Eimskipafélagið hefur gert sam-
komulag við tvo af fyrrverandi
eigendum Innovate í Bretlandi.
Þeir Stephen Savage og Stephen
Dargavel munu skila yfir 55
milljónum hluta í Eimskip sem
gefnir voru út vegna kaupa á
hlutafé Innovate í júní 2007.
Um er að ræða 2,95% hlut í félag-
inu. Verðmæti bréfanna var í júní
2007 2,5 milljarðar króna, en var
í gær 792 milljónir króna.
Eimskip á nú 8,5% hlut í sjálfu
sér, að því er fram kemur í til-
kynningu félagsins. hþ
Skila 2,9% hlut
í Eimskip
Tap á rekstri 365 Media Scand-
inavia, útgáfufélagi Nyhedsavisen
í Danmörku, nam sjö milljörðum
króna fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað. Þetta kemur, að
sögn danskra fjölmiðla, fram í
ársreikningi félagsins, sem skilað
var í gær til danska fyrirtækjaeft-
irlitsins.
Dreifingarkostnaður blaðsins
nam 204,1 milljón danskra
króna, eða nærri 1 milljón
danskra króna hvern útgáfudag
blaðsins. mbl.is
Milljarðatap hjá
Nyhedsavisen