Eintak - 14.04.1994, Page 25
Steingrímur Þessi maður er
með ekta Ray-Ban gleraugu,
hann eríekta Fraser-mokka-
jakka, íekta Melka-skyrtu, með
ekta ítalskt silkibindi og í ekta
skoskri ullarpeysu, það eina
sem ekki er ekta er hárið á hon-
um.
Lárus Misskilinn lögfræðingur
með Ray-Ban, langaði alltaf til
að verða flugmaður en gat það
ekki þar sem hann greindist lit-
blindur í æsku.
Einar Örn Mokkajakki og sól-
gleraugu, aðlagað íslenskt útlit
úr mafíósamyndum.
Hilmar Örn Yfirveguð töffara-
gleraugu sem eru sérhönnuð
fyrir áhrifin sem þau valda þeg-
ar þau eru tekin niður.
Einar örn Testing one two test-
ing. Er rok eða rigning eða sól?
Hilmar örn Gleraugu fyrir fólk
sem vill fá einhvern lit í gráan
hversdagsleikann. Líka góð fyrir
hausverk og timburmenn.
Jón Þetta kallar maður að
kunna að útbúa sig fyrir íslensk-
ar aðstæður, það má rigna,
snjóa, blása og sólin skína, það
bítur ekkert á henni.
Lárus Nútímaleg gleraugu frá
þekktum framleiðanda, tvilitt
gler, létt umgjörð sem fer vel á
nefi, stöðva útfjólubláa geisla
og eru með ekta gyllingu. Þrátt
fyrir allt þetta eru þau afskap-
a lummó.
Einar örn Nýjasta tíska, eins og
allir vita þurfa sólgleraugu líka
að vera með vængi.
Jón Hún er nýkomin úr lagn-
ingu og er óhress á svipinn
vegna þess að það er hvasst og
hún gleymdi slæðurínj, Hún
klikkaði hins vegar ekki é gler-
augunum sem eru stækkuð út-
gáfa af kisugleraugum.
Steingrímur Hún er örugglega
búin að vera í Reykjavik í allan
vetur og þetta er dagurinn sem
hún ætlar heim til Norðfjarðar. í
því tilefni hefur hún ákveðið að
setja upp þessi dæmigerðu
hippagleraugu og dressa sig
upp. Hún vill láta alla heima
halda að hún hafi verið svona
mikil skvísa íReykjavík. Ef vel er
að gáð séstyfir öxlina á henni
að hún er að koma út úr búð-
inni Stíl.
Hilmar örn Ömmugleraugu og
mömmugleraugu sem urðu að
dótturgleraugum. Sýna hvernig
fólk getur orðið spes á nítján
ára fresti.
Lárus Þessi fór til sjóngler-
augnafræðings og bað um gler-
augu sem pössuðu hennar
andlitsfalli, það klikkaði.
Einar Örn Sólin er kringlótt, þú
ert það líka, gleraugun eru í stíl
við ykkur báðar.
Steingrímur Þessi hefur keypt
gleraugun ÍLondon á hinni
frægu götu Bayswater-
Bridgeroad. Þetta eru alvöru
Wakefer gullspangargleraugu
og efég þekki það rétt hafa þau
ekki kostað undir 150 pundum.
Hann leyfði sér að kaupa svona
dýrgleraugu afþvíað hann var
nýbúinn að fá styrk úr kvik-
myndasjóði.
Hilmar örn Listamannagleraugu
sem hafa þann tilgang að dylja
það hvort augun séu innsogin
eða í útgeislun, það erhvort
menn séu skapandi eða ekki.
Einar Örn Sólin er kringlótt, þú
ert það ekki. Kringlótt gleraugu
í sól bera vott um sól-sjóndepru
og æðibunukast í að komast út
í sólina.
Jón Þrífóturinn á öxlinni bendir
til þess að hann sé á leiðinni að
fara að búa til bíómynd. Og
hann er búinn að setja upp sól-
gleraugun inni, kannski á þetta
brot úr nokkurra ára gömium
dægurlagatexta við hann: „The
future is so bright you got to
wear shades,"
Hilmar Öm Þetta eru gleraugu
sem segja að fólk hafi haft það
mjöggott í ágúst 1962.
8
Steingrímur Þessi kona er
greinilega nýkomin úr Kolaport-
inu og hefur keypt gleraugun
þar. Hún hefur verið svo ánægð
með þau að hún hefur sett þau
strax upp þar inni og er ekki
enn búin að setja þau niður.
Hilmar Örn Kona sem er á vit-
lausum stað, á vitlausum tíma
og í vitlausu landi. Að bera gler-
augu á þennan hátt á best við á
skuggsælum stað við sundlaug-
arbarm á frönsku riveriunni
kringum 1971.
Jón Þessi kona notar sólgler-
augun sem hárspöng og sýnir
að hægt er að nýta gleraugun til
annars en að verjast geislum
sólarinnar.
Steingrímur Þessi hefur ekki
gengið hægt um gleðinnar dyr
síðustu daga. Hann er bæði
Ijósfælinn og vill ekki vera áber-
andi. En gleraugun og húfan
hafa þveröfug áhrif, og það vita
allir hvað hefur gengið á. Konan
á bak við er leifar af skemmtun-
inni.
Hilmar Örn Útivistargleraugu,
sérhönnuð fyrir fólk sem þrjósk-
ast við að halda að það sé gott
veður á íslandi og að það sé
gaman að fara í Landmanna-
laugar.
Einar Örn Þeir sem kaupa sér
Ray-Ban eru svo forvitnir að
vita hvort einhverjir aðrir séu
með þannig gleraugu lika, en í
þessu tilfelli vildi konan vita
hvort skeggið hefði fylgt með í
kaupunum að gleraugunum.
Jón Mér sýnist þetta vera svo-
kölluð laxveiðigleraugu sem
hafa þann fágæta eiginleika að
veiðimennirnir sjá bráðina í
gegnum vatnsyfirborðið og
geta þvíkastað agninu á réttan
stað.
Jón Þetta er fín kona, ípels og
með forláta loðhúfu. Gleraugun
eru sígild og undirstrika að hún
velur hlutina gaumgæfilega áð-
ur en hún kaupir þá og er tilbú-
in að borga fyrir gæði, hún vill
örugglega ekki sjá neitt drasl.
Einar Örn Testing one two test-
ing. Er rok eða rigning eða sól?
Það er allt elskan, eins og
venjulega, öll veður í einu.
FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994
25