Eintak - 28.07.1994, Page 1
Ung stúlka sem var nauðgað af hópi stráka á síðustu þjóðhátíð í Vestmannaeyjum:
„Þeir voru þrír
sem
nau
„Ég var dregin út undir bert loft. Það var sunnu-
dagsmorgunn og albjart. Þeir voru þrír sem nauðg-
uðu mér. Hópur stráka stóð í kringum okkur og
skýldi hinum. Ég veit ekki hvað þeir voru margir.
Mér tókst að umla „hjálp“, en ekki nógu hátt. Strák-
urinn sem hafði varað mig við greip þá fyrir munn-
inn á mér og sagði um leið: „Fyrirgefðu11. Ég man að
ég hafði fæturna beina og einhver hvæsti: „Beygið á
henni lappirnar svo hún sjáist ekki. Svo var sagt við
unga strákinn sem hafði beðið um að fá að kyssa mig:
„Þú ert næstur." Hann neitaði, en hinir brýndu fýrir
honum að hann væri samsekur því hann hafði fylgst
með án þess að hreyfa legg né lið.“
Svona lýsir stúlka, sem var nauðgað af hópi stráka,
atburðum á síðustu þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í
viðtali við EINTAK. Eins og fram kom í EINTAKI á
mánudaginn var hafa Stígamót vakið athygli á hóp-
nauðgunum á útihátíðum. Frásögn þessarar stúlku
sýnir að þær fullyrðingar eru ekki út í loftið.
„Hópnauðganir eru ekkert nýjar en það er nýtt að
þær séu orðnar að fjölmiðlamat. Þær eru alltaf skipu-
lagðar, en það er misjafnt hvort ákveðið hefúr verið
fyrirfram hvert fórnarlambið á að vera,“ segir The-
ódóra Þórarinsdóttir hjá Stígamótum.
„Við vitum ekki hverjir það eru sem standa fyrir
þessum nauðgunum og ef við vissum það bæðum við
náttúrlega lögregluna um að fylgjast vel með þeim,“
segir Theódóra. Hún bendir jafnframt á að strákar
sleppi heldur ekki við að vera nauðgað. „En það er
aðeins annað kynið sem fremur glæpinn. Þeim strák-
um sem hingað koma finnst oft þetra að tala við
kvenfólk enda eru það aðrir karlmenn sem hafa brot-
ið á þeim.“
Þrátt fýrir fullyrðingar Stígamótakvenna segir
Helgi Daníelsson hjá Rannsóknarlögreglunni og
Agnar Angantýsson, lögregluvarðstjóri í Vest-
mannaeyjum, aldrei hafa áður heyrt minnst á skipu-
lagðar hópnauðganir á útihátíðum.
Jafnframt kemur Agnari mjög á óvart að stúlku
hafi verið nauðgað af þremur strákum á síðustu
þjóðhátíð. „Við gerum það sem við getum til að
koma í veg fyrir að svona lagað geti gerst á hverri
þjóðhátíð," segir hann.
„Af þeim fimm nauðgunum sem komið var með
til okkar í Vestmannaeyjum um síðustu verslunar-
mannahelgi var ein kærð til lögreglunnar. Við meg-
um því vel við una,“ segir Theódóra.
Sjá síðu 10 & 11
Sjá síðu 4S12 & 14
Rannsóknin á Gými
Niðurstöðumar
munu verða ein-
kunn um íslenska
hestamennsku
Lögreglustöðin í Garða-
bæ
Verður hugsanlega
opnuð aftur
Hvrtt tjald
Völu Matt
Námskeið fýrir þá
sem vilja búa sér til
silfursjóð
Danskur maður kærður
fyrir að aka utan veaa
Fyrstogf
lendingar ser
sóttirtil saka
Allt um
jakkaföt
jy
eiSöu 3JiJ2j
Sögur af horfnum 2o
verslunarmannahelgum
13 ©si’