Eintak

Tölublað

Eintak - 28.07.1994, Blaðsíða 32

Eintak - 28.07.1994, Blaðsíða 32
i í i i i I . HPMg " ■ v ^ví *i VIÉMÍxlgi^iíÉM » * - ..- m Bikarke venna Skefjunqur ht KR og Breiðablik i úrslit Það verða lið KR og Breiðabliks sem munu leika til úrslita í bikar- keppni kvenna, en liðin unnu sinn undanúrslitaleikinn hvort í gær- kvöld. KR-stúlkur tóku á móti Vals- stúlkum í Frostaskjólinu í gær- kvöldi í sól og hita. Liðin áttust við nokkrum dögum áður í deildinni og þá höfðu Hlíðarendastúlkur bet- ur, 3:2, í hörkuspennandi leik. Strax á upphafsmínútunum var ljóst að um opinn leik yrði að ræða, Hjör- dís Símonardóttir kom Val yfir á fjórðu mínútu og skömmu síðar hafði Ásthildur Helgadóttir jafn- að fyrir KR og þrátt fyrir mörg ágæt tækifæri Valsstúlkna til að bæta við mörkum var staðan þessi í leikhléi. I seinni hálfleik var sem allar varnir opnuðust hjá liðunum og sóknirnar komu hver af annarri hjá báðum liðum. Bryndís Valsdóttir kom Val yfir en um miðjan seinni hálfleik jafnaði Guðrún Jóna Kristjánsdóttir fyrir KR og var síðan aftur á ferðinni tíu mínútum síðar með þriðja mark KR. Sex mínútum síðar jók Helena Ólafs- dóttir muninn með laglegu marki og á lokamínútunum minnkaði Hjördis Símonardóttir síðan mun- inn fyrir Val með stórglæsilegu langskoti. Ari Þórðarson bætti síð- an við heilum fimm mínútum við venjulegan leiktíma og rétt undir lokin vildu Valsstúlkur fá víta- spyrnu er brotið var á einum leik- manni þeirra en ekkert var dæmt. KR-stúlkur munu mæta Blika- stelpum í úrslitaleiknum en þær unnu lið IBA örugglega, 4:0, í gær- kvöld. Þær Ásta B. Gunnlaugs- dóttir og Olga Færsteth skoruðu tvö mörk hvor í leiknum og var sig- ur þeirra aldrei í hættu.O Landsmótið í golfi á Akureyri Sigurpáll efstureftir tvo hringi Akureyringurinn Sigurpáll Geir Sveinsson hefur forystu í meistaraflokki karla á Iandsmót- inu í golfi sem fram fer á Jaðar- svelli á Akureyri þessa dagana. Tveir hringir eru að baki og hefur Sigurpáll leikið best báða hring- ina og hefur þrjú högg á næsta mann, sem er Kristinn G. Bjarnason ffá Golfklúbbinum Leyni. Sigurpáll lék á 70 höggum á þriðjudag og í gær á 71 höggi og er því samanlagt með 141 högg. Kristinn hefur leikið á 72 höggum báða dagana, samtals 144 högg. Björgvin Sigurbergsson GK, er í þriðja sæti á 145 höggum og í 4-5 sæti eru þeir Örn Arnarson GA og Guðmundur Svein- bjömsson GK á 146 höggum. Tveir hringir eru eftir, sá fyrri í dag og sá seinni á föstudag, en þá lýkur mótinu. Sigurpáll var að vonum ánægður með árangur sinn en sagðist ekkert vera farinn að hugleiða sigur enn sem komið er. „Ég spila bara mitt golf og úti- loka mig frá öllum öðrum,“ sagði hann eftir seinni hringinn í gær. í meistaraflokki kvenna er Karen Sævarsdóttir GS efst á 156 höggum samtals. Ragnhild- ur Sigurðardóttir GR og Ólöf María Jónsdóttir fylgja hins vegar fast á eftir með 157 högg. Herborg Arnardóttir, sem var með bestan árangur eftir fýrsta hringinn, er nú í þriðja sæti á 160 höggum. I fyrsta flokki kvenna er Björk Ingvarsdóttir GK með 263 högg eftir þrjá hringi en Kristín Elsa Erlendsdóttir kemur á hæla hennar með 264 högg. Kristín er yngsti keppandinn á mótinu, að- eins 12 ára gömul. I fyrsta flokki karla er Ómar Haraldsson GA efstur á 145 höggum og Halldór Birgisson GHH og Sigurður Ringsted GA koma næstir á 149 höggum. © Undanúrslitin í Mjólkurbikarnum Þórsarar í vesturbæinn KR-ingar mæta Þórsurum f und- anúrslitum Mjólkurbikarkeppn- innar og Grindvíkingar sækja Stjörnumenn heim í Garðabæinn. Dregið var í undanúrslitin í gær og var niðurstaðan þessi. Stjörnumenn og Grindvíkingar hafa aldrei náð svo langt í keppn- inni. Ljóst er að annað liðanna kemst í sjálfan úrslitaleikinn og ef Grindvíkingar næðu því væri það í fyrsta sinn í sögu bikarkeppninnar sem lið úr annarri deild kæmist í sjálfan úrslitaleikinn. Grindvíking- ar, sem leika undir stjórn Lúkasar Kostic, klæðast gulum búningum og herma fréttir að knattspyrnu- deild Skagamanna hafi ákveðið að sýna Grindvíkingum stuðning i bikarkeppninni undir Skagaslag- orðinu „Gulir og glaðir.“ Stjörnu- menn eru í erfiðum málum í deild- inni og gera því örugglega allt sem í þeirra vaidi stendur til að komast í sjálfan úrslítaleikinn sem ljóst er að færir félögunum miklar tekjur. Hinn undanúrslitaleikurinn er leikur KR og Þórs í Frostaskjólinu í Reykjavík. Þessi lið háfa öft eldað grátt silfur saman og skemmst er að minnast háðulegrar útreiðar KR-inga fyrir norðan um daginn er. þeir töpuðu 4:2. Þórsarar hafa hins vegar ekki sýnt sama kraft á útivöllum eins og heima og það sama má reyndar segja um KR-inga, þótt með öfugum formerkj- um sé, þeir leika mun betur á útivöllum en heima þessa dagana. Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, sagði eftir drátt- inn að hann hefði haft þetta á tilfinningunni. „Maður verður bara að mæta því sem manni er skammtað. Úr því sem komið er, er ljóst að liðin fjögur eru öll sterk og ætla sér stóra hluti. Við töpuðum illa fyrir þeim í deildinni og höfum því harma að hefna. Okkur hefur ekkert gengið á heimavelli en ætlum að breyta því gegn Stjörnunni í kvöld. Þess vegna verða engin álög á heimavellinum þegar út í bikarleikinn kemur.“ Og hverjir eru svo óskamótherj- arnir í bikarúrslitaleik? „Bæði lið geta unnið og hinn undanúrslitaleikurinn verður mjög spennandi. Auðvitað væri gaman að mæta Grindvíkingum, þar á ég marga vini, Kostic er mikill vinur minn og svo er konan mín ættuð frá Grindavík þannig að það væri auðvitað mjög gaman.“ Hver fær hann? Það verða Þórsarar, Grindvík- ingar, KR-ingar og Stjörnu- menn sem kijást um þennan eftirsótta bikar þann 17. ágúst. Hér bregða þeir Guðjón Þórð- arson, þjálfari KR, og Kristján Kristjánsson, formaður knatt- spyrnudeildar Þórs, á leik eftir dráttinn í gær. Mjólkurbikarinn KR-ingar spila vel í Kópavoginum Eru reglumar úreltar? Til vamar gegn skeHilegum leiðind- um 28 Gunnar Smári leggurtil Skrúfið takkana undan tuddunum! Grindvíkingar áfram Haukur hetja í vrta spymukeppni Fylkismenn úr leik Stjaman í undanúr- slit í fýrsta sinn 31 Ellefta umferð Bubbi Morthens spáir 31 Valsmenn vilja leika á Hlíðarenda í

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.