Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 4

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 4
ÓQEÐFE LLDASTA FRÉTT VIKUNNAR Ógeðfelldasta frétt vikunnar hlýtur að vera frétt Tímans síðast- liðinn föstudag undir fyrirsögn- Brevtingar á sölu dýra- lyfia óviðunandi fvrir bændur: Alltað dagabið eftir penísillíni í fréttinni er greint frá því að túlkun heilbrigðisráðuneytisins á nýjum lyfjalögum valdi því að bændur geti þurft að bíða í allt að þrjá daga eftir penísillíni handa sjúkum skepnum sínum. Það er ótal margt ógeðfellt við þessa frétt. í íyrsta lagi er það ógeðfellt að Tím- inn skuli vorkenna bændum þetta ffemur en saklausum skepnunum, sem þó eru þær sem helstar líða fyr- ir krankleika sinn. En ffamsetning Tímans á þessari „ekki-frétt“ er jafnvel enn ógeðfelldari, því þegar hún er lesin áfram kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist. Túlkun lag- anna er nefhilega á þá leið að dýra- læknum sé óheimilt að reka farand- apótek eins og verið hefur. Á hinn bóginn mega þeir, sem fyrr, selja lyf til þess að mæta meðferðarþörf þar til unnt er að útvega viðkomandi lyf í lyfjabúð. Og þar stendur hinn ógeðfelldi hnífúr í kúnni, ef svo má að orði komast. Það kemur nefni- lega í ljós að bændur nenna ekki í apótekið. Sums staðar eiga þeir reyndar óhægt um vik vegna mjög mikilla fjarlægða, en þá geta þeir nýtt sér póstþjónustuna. Einhverjir hafa reyndar gert það, meðal ann- ars sá bóndi, sem fyrirsögnin vísaði til, en meira að segja í því tilfelli virðast heimildir vera lítt traustar. Þessi ógeðfellda „ekki-frétt“ stend- ur engan veginn undir þeirri ógeð- felldu fjórdálkafyrirsögn, sem henni er skenkt. Ekki síst þegar í Ijós kemur að hún fjallar ekki um veikar skepnur eða vont ráðuneyti, heldur lata og ógeðfellda bændur. Sveinssynir lagnir í innkaupum Q Café Ópera í nýjum höndum © Sœnskar frústrasjónir á bókmenntaþingi Q Péturfœr sér kók eir bræður IBenedikt Sveinsson og Einar Sveinsson þykja lagnir kaupa- héðnar og hafa komist fremur ódýrt yfir eignir sem áður voru að einhverju eða öllu leyti [ eigu almennings. Eins og flestum ætti að vera enn í fersku minnj var Bene- dikt Sveinsson í forystu þeirra sem fengu SR-mjöl á slikk frá ríkissjóði. Nú hefur Einar Sveinsson, sem er einn aðal- eigandi Nesskipa, krækt í vænan hluta af Smjörlíki-Sól hf. fyrir þægi- lega upphaeð, en það fyrirtæki var í gjörgæslu hjá Iðnlánasjóði og Iðn- þróun- arsjóði sem báðir Jóhann Jóhannsson hefur tek- ið við starfi rekstrarstjóra á Café Óperu í Lækjargötu. Áð- ur gegndi Valur Magnússon starf- inu en hann hyggst nú hefja eigin veitingarekstur að Vesturgötu 2. Jóhann hefur séð um Café Ro- mance undanfarin tvö ár og er því ekki óvanur þessum atvinnugeira... teljast fyrirlesturinn Karlmannlegt þunglyndi og kvenleg hystería í sænskum 19. aldar bókmenntum. eru sjóðir í opin- berri eigu... Fyrirlestrarnir sem boðið verður upp á þinginu um bókmenntir og kynferði sem hefst á sunnudaginn eru eilítið sérhæfðir oft á tíðum. Meðal þeirra hlýtur að PÉTUR BJÖRNSSON, stjórnarformaður Vífilfells, hefur aukið hlutabréfaeign sína í fyrirtækinu. Að undanförnu hefur hann keypt bréf af Iðunni Björnsdóttur systur sinni og KristjAni Kjartanssyni eiginmanni hennar. Hlutur hjónanna var Hanna Ragnarsdóttir brýtur enn umgengnisrétt Díans Vais Beitir enn fýrir sig lögreglu og felur drenginn „Mér er gjörsamlega fyrirmun- að að skilja hvað fer í gegnum höfuðið á þessari konu,“ sagði ís- lenski Búlgarinn, Dían Valur Dentchev, um barnsmóður sína, Hönnu Ragnarsdóttur í samtali við EINTAK í gær, en hún hefur að engu haft samning þann sem þau gerðu 29. júní síð- astliðinn um umgengni Díans við son þeirra. „Kirkjan ætlaði að hafa milligöngu með umgengn- ina en tilraunir þeirra presta sem hafa haft afskipti af málinu hafa verið árangurslausar,“ bætti Dían við vonsvikinn. EINTAK hefur undirritaðan samning foreldranna undir höndum og staðfestingu á hon- um gerða af Sýslumanninum í Reykjavík 7. júlí 1994. Með samn- ingnum voru fyrri úrskurðir Sýslumanns og dómsmálaráðu- neytisins felldir úr gildi. I fyrstu grein samningsins segir: „Dían Valur skal hafa umgengni við son okkar aðra hvora helgi frá kl. 10.00 að laugardagsmorgni til kl. 18.00 á sunnudagskvöldi“, en þrátt fyrir að Hanna hafi undir- ritað samninginn hefur Dían Val- ur farið er- NAFNSPJALD VIKWNNAR few# SIGURJÓN RAGNAR! Sú stétt sem er hvað iðnust við að dreifa nafnspjöldum hér á Islandi eru Ijósmyndarar. Nafnspjald þessarar viku er einmitt slíkrar ættar en það er komið frá Ijósmyndaranum Sígurjóni Ragnari. Þetta er ákaf- lega fábrotið spjald og hefur að öllum líkindum verið gert í svokall- aðri nafnspjaldavél. Sá sem ætlar að búa sér til nafnspjald í slíkri vél byrjar á því að setja ákveðna peningaupphæð í vélína. Eftir það get- ur viðkomandi slegið þær upplýsingar inn sem hann vill að birtist á nafnspjaldinu og stundum er einnig hægt að velja einhvers konar tákn til að skreyta spjaldið. Þannig er hönnun nafnspjaldsins alfarið í höndum eigandans. Það eru nokkur atriði sem benda til þess að nafnspjald vikunnar sé gert í slíkri vél. Til að byrja með er myndin af myndavélinni sem er á því einföld tölvuteikning sem er dæmigerð fyrir slíkar vélar. Einnig bendir uppsetning upplýs- inga á spjaldinu til þess að eigandinn hafi slegið þær inn í flýti. Upphrópunarmerkið á eftir nafn- inu þjónar engum tilgangi, og er reyndar algjörlega út úr korti. Hið sama gildir um símanúmerið, en það er einkennt upp á enskan máta „Tel“ en símboðanúmerið einfaldlega „Símboði". LJÓSMYNDARI TEL.: 91-11181 - SÍMBOÐI: 984-52236 indisleysu um 26 prósent en eftir kaupin á Pétur 78 prósent í fyrirtækinu.Við- skiptin eru sögð í tengslum við sameiningu Vífilfells og Þórð- ar Sveinssonar og Co. við Björn Ólafsson hf. sem er móðurfélag fyrir- tækjanna en ákvörð- un um sameininguna var tekin á aðalfundi þeirra fyrir skömmu. Nafn nýju fyrirtækja- samsteypunnar verður að sjálfsögðu Vífilfell hf.... þegar hann hefur leitað eftir um- gengninni. Hanna hringdi á lögreglu 16. júlí þegar Dían kom í votta viður- vist að sækja drenginn og er það í tólfta skipti sem hún beitir lög- reglunni íyrir sig í máli þessu. í skeyti sem Dían sendi Hönnu í kjölfarið, kemur fram að hann hefur upplýst lögregluna um eðli deilunnar og lögregluyfirvöld staðfest að þau muni ekki láta misnota sig framar í þessu máli. Hann vísar einnig í skeytinu til þess að Hanna brjóti grundvallar- mannréttindi drengsins með hátterni sínu og segir að andleg grimmd hennar gagnvart drengnum sé með öllu óþolandi. Um helgina mun Dían enn á ný láta reyna á samninginn og EINTAK mun íylgjast náið með framvindu málsins sem enn virð- ist komið í hnút. Umgengnissamningurinn var gerður sem kunnugt er í kjölfar hungurverkfalls Díans Vals sem stóð yfir í 49 daga en Hanna Ragnarsdóttir hefúr komið í veg fyrir umgengni feðganna síðan í október 1993. Fimmtudagurinn 28. júlí Ég sneri aftur í bæinn í morgun og hætti aö elta Jóku. Hún má eiga þennan landsbyggöarlýö fyr- ir mér. Ég veit ekki þvað ég var að hugsa. Að þetta væri mitt fólk? í krumpugöllum úr kaupfé- lögunum á sunnudögum og angandi af fiski þess á milli. Mér leiö eins og breskum nýlendu- herra innan um frumbyggja, Þegar ég baö um te leit þetta lið á mig eins og ég væri að lýsa því yfir að ég væri pervert eða hómósexúal. Þegar ég kom inn á einhverja af þessum sjoppubúllum og bað um létt salat eða pasta hló þetta lið og slengdi í mig hamborgara og kokteilsósu. Nei, þetta fólk má fara til fjandans mín vegna. Þá er betra að vera angurvært skáld í huggulegri íbúð í miðbænum en að vera leiðtogi þessa lýðs. Fostudagurinn 2ý. júlí Ég er aftur sestur við skrifborðið mitt sem mér finnst orðið alltof ungt nú þegar ég er orðinn skáld. Það átti vel við þegar ég var hugmynda- smiður frjálshyggjuaflanna og boðberi nýrra tíma. Þá horfði ég fram og nýtískuhúsgögn, hraðskreiðir bílar og tískusniðin jakkaföt áttu við mig. Skáldin standa hins vegar traustum fótum Hortíðinni og skilja samtímann út frá henní. Ég er því farinn að þrá antik, citröen- bragga og tweed-jakkaföt og jafnvel prjónabindi. Þegar hesturinn prjónar þi forða ég mér í skyndi Ef ég gæli prjónað þi mundi ég prjóna mér bindi Laugardagurinn JO. júlí Skáldfákurinn svífur enn fyrir utan gluggann minn og fyllir hug minn meiri kyrrð en ég hef fengið að njóta. Jafnvel einfaldar hugsanir fela í sér dýpt sem mér var áður hulin. Jafnvel einföld orð sem ég set niður á blað öðlast líf. Fjandinn hiröi hagfræði og aðra dauða hugsun. Lengi lifi listin og lífið. Skál! Ég er meira að segja farinn að sulla í rauðvíni eins og vinstribulla. SunnudagurinnJJ. júlí Ég orti ekkert í dag. Ekki frekar en í gær þegar ég sat einn í skáldadraumum mínum og drakk. Og því meira sem ég drakk af rauðvíninu því minna gat ég teygt af skáldabikarnum. Og undir kvöld rakst ég á bréf sem ekki hafði hvarflað að mér að opna á meðan ég var í skáldahamnum. Glaðninginn frá skattinum. Helvítis fíflin höfðu neitað mér um skattafslátt vegna fatakaupa og fatahreinsunar, strikuðu yfir kostnaðarliði vegna bókakaupa og kaffidrykkju, vildu ekki skilja að háskólaborgari eins og ég þarf að eyða kvöld- stund yfir vínglasi meö lærisveinum sínum. Hel- vítis endurskoðendabullur. Mánudagurinn 1. ágúst Ég hugsaði minn gang í nótt. í fyrsta lagi þá er það ekki líkt skáldi að vera að fjargviðrast út af frádráttarliöum á skattaframtali. í öðru lagi hef ég heyrt að listamenn borga ekki skatta. Vinur minn, listmálarinn, borgar aldrei skatt heldur treður hann bara málverkum upp á ríki og borg og er þá kvitt við skattinn. Ef ég ætla að verða skáld verð ég að hegða mér eins og skáld. Ég hringdi því í gjaldheimtustjóra og bauö honum fimm erinda Ijóð um skattheimtumenn, bæði á tímum Jesú og eins í dag. Hann hló ekki einu sinni heldur skellti á. Þriðjudagurinn 2. ágúst Enn get ég ekki ort. Fyrstvar það rauðvinið og síðan fjárhagsáhyggjur. Ég skil þetta ekki. Ég hélt að þetta tvennt væru fylgifiskar skálda. En kannski er ég ekki nógu mikið skáld til að þola vín eða hungur. Ég vildi ég kynni að finna til. Miðvikudagurinn3> ágúst Ég er aftur sokkinn í sama þunglyndið og fyrr. Eg sé þaö nú að skáldadraumarnir voru bara flótti. Nú þegar þeir eru gufaðir upp er ég aftur orðinn hugsuður sem enginn hlustará, áhrifa- maður án áhrifa. Kannski ætti ég að snúa mér að einhverju líkamlegu erfiði sem fær mig til að gleyma. Kannski ætti ég að fara á sjóinn. + FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.