Eintak

Tölublað

Eintak - 04.08.1994, Blaðsíða 12

Eintak - 04.08.1994, Blaðsíða 12
Framboðsmál í Reykjavík Spennandi prófkjör hjá sjáHstæðismönnum Hjá Sjálfstæðisflokki erlíklegt að Markús Öm, Vilhjálmur Þ., Ari Edwald og Davíð Scheving fari íprófkjör. Katrín Fjeldsted læt- ur til skarar skríða. Alþýðubandalagsmenn bíða eftirJóhönnu og kratarleita að eftir- mannihennar. Undirbúningur stjórnmálaflokk- anna í Reykjavík fyrir haustkosn- ingar er nú að fara af stað, hvar í flokki sem borið er niður. Fulltrúa- ráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kemur saman í byrjun næstu viku til að ræða franiboðsmál. Gert er ráð fyrir að stjórnin leggi til að prófkjör fari fram líkt og tíðkast hefur frá 1970 og nær öruggt er að sú tillaga hljóti hljómgrunn. Sam- kvæmt heimildum EINTAKS er reiknað með að efnt verði til próf- kjörs með stuttum fyrirvara til að baráttan gangi sem fyrst yfir og menn fái þannig tíma til að jafna sig að henni lokinni til að stilla saman strengi sína. Spekúlasjónir um það hvernig listi Sjálfstæðisflokksins muni líta út eru þegar komnar á fullt. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á fyrstu þremur sætum listans. Þar sitja ör- uggir, formaðurinn Davíð Odds- son, varaformaðurinn, Friðrik Sophusson og formaður utanrík- ismálanefndar, Björn Bjarnason. Allt getur gerst varðandi sætin þar fyrir neðan en Sjálfstæðisflokkur- inn hefur nú á níu þingmönnum að skipa í borginni. Eyjólfur Konráð Jónsson er fjórði þing- maður Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Þær raddir hafa heyrst innan flokks- ins að hans tími sé liðinn og vonuðust margir eftir því að hann myndi víkja. Hann hefur þó staðfest að hann gefi enn kost á sér. Heimildir innan flokksins telja stöðu hans veika, einkum vegna þess að hann hafi ekki staðið sig sérstaklega vel á þessu kjörtímabili, auk þess sem hann hefur verið frekar upp á kant við flokksfor- ystuna. Til dæmis vék hann úr formannssæti í utanríkismálanefnd fyrir Birni Bjarnasyni. Menn hafa einnig velt því fyrir sér hvort Ingi Björn Al- bertsson myndi gefa kost á sér aftur en hann hefur verið vandræðabarn í þingflokknum og hefur ekki mætt þar á fundi um langt skeið. Honum og formannin- um er ekki vel til vina og skemmst ber að minnast rimmu þeirra varð- andi þyrlumálið þar sem þung orð féllu af vörum beggja. Hann hefur þó sagst ætla í framboð en talið er að staða hans, líkt og Eykons, sé einna veikust af núverandi þing- mönnum. Lára Margrét Ragnarsdóttir rétt slapp inn á þing í síðustu kosn- ingum sem níundi maður á lista í Reykjavik. Staða hennar í dag þykir nokkuð tæp og mun hún, ásamt Inga Birni og Eykoni vera líklegust til að víkja fyrir nýjum frambjóð- endum. Sú staðreynd að Lára Margrét er kona gæti þó reiknast henni til tekna. Kvenþingmennirn- ir eru tveir og innan flokksins er lögð áhersla á að hlutur þeirra verði ekki minni i næstu kosingum. Sól- veig Pétursdóttir sem skipaði sjötta sætið síðast þykir hafa styrkt stöðu sína frekar en hitt og á því væntanlega öruggt sæti. Katrín Fjeldsted, fyrrum borgarfulltrúi, sagði í samtali við EINTAK í gær að hún ætlaði sér að bjóða sig fram og hún gæti því ógnað sæti Láru Margrétar. Staða Guðmundar Hallvarðs- sonar, áttunda þingmanns Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, þykir einnig óljós. Árangur hans í síðasta prófkjöri kom nokkuð á óvart. Hann hefur verið lítt áberandi sem þingmaður í fjölmiðlum en hefur þó sinnt grasrótinni vel, verið í sambandi við sína menn í Sjó- mannafélaginu og tekið í hendur á fólki. Auk Sólveigar Pétursdóttur er búist við að Geir Haarde muni styrkja sína stöðu í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins en hann náði að- eins sjöunda sætinu síðast. Það vilja menn þó skýra með því að hann var í útlöndum á meðan prjófkjörið fór ffam og var hinn afslappaðasti. Nú má hins vegar búast við að hann fari á fullt og ýmsir spá því að hann taki fjórða sætið nú. Hvað endurnýjun á listanum varðar stendur það flokknum nokkuð fyrir þrifum að enginn af núverandi þingmönnum ætla að láta sæti sitt eftir. Einn sjálfstæðis- maður úr röðum þeirra yngri segir það fæla unga menn frá þátttöku í framboði því þeir sjái ekki vinning- slíkur gegn gömlu jálkunum. Ari Edwald, deildarstjóri í dómsmála- þeirri ástæðu að hún þykir hafa verið lítt áberandi á þessu kjörtíma- bili og hreinlega ekki staðið sig vel. Ekki er ljóst hvaða menn muni ógna sætum þeirra Svavars og Guð- rúnar. Aukin heldur er ekki líklegt að efnt verði til prófkjörs í Reykja- vík sökum tímaskorts. Birtingar- menn vilja að prófkjör fari fram og líklegt er að þeir hafi hug á að senda einhverja sinna manna í framboð. Annars vegur spurningin um Jó- hönnu þungt í hugleiðingum Al- þýðubandalagsfólks um framboðs- mál í Reykjavík. Sjálf hefur mg Jóhanna gefið hugmyndum um samstarf á vinstri væng undir fótinn og þá auk Al- þýðubandalagsins, með Kvennalista og Framsóknar- flokki. Áhugi fyrir slíku er mikill meðal stórs hóps í Al- þýðubandalaginu og sam- ráðuneytinu, sagði þó í samtali við EINTAK að hann væri að hugsa um að bjóða sig fram þar sem vöntun væri á yngri mönnum á listann. Ljóst er að Katrín Fjeldsted býð- ur sig fram og nokkuð líklegt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, geri það einnig. Staða hans innan flokksins, líkt og Katrínar, þykir sterk líkt og kom í ljós í prófkjörinu fyrir borgar- stjórnarkosningarnar. Það er þó erfitt að meta styrkleika þessara frambjóðenda þegar að alþingis- kosningum kemur. Markús Orn Antonsson, hefur gefið framboði undir fótinn en menn eru ekki á eitt sáttir um möguleika hans. Ann- ars vegar segja (menn að honum beri að launa fyrir að fórna eigin hagsmunum á kostnað flokkshags- muni með því að víkja úr borgar- stjórastólnum. Á hinn bóginn telja menn að þar hafi hann sýnt pólit- ískan veikleika sinn. Af nýjum mönnum sem ekki hafa tekið þátt í framboði fyrir flokkinn áður má nefna Pál Kr. Pálsson, Jón Ásbergsson, Þór- arinn V. Þórarinsson og Davíð Scheving. Helst er veðjað á að þeir tveir siðarnefndu láti til skarar skríða nú. Þórarinn hefur verið framkvæmdastjóri hjá Vinnuveit- endasambandinu í sjö ár og þykir það dágóður tími. Einnig þykja yfirlýs- ingar hans undanfarin misseri hafa gerst æ pólit- ískari og þykjast menn fmna af þeim framboðs- fnyk. Davíð Scheving hefúr gengið , lengst því hann sagði í samtali við EINTAK í gær að leitað hafi verið til sín undanfarið og að hann sé að hugsa málið. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem leitað hefur verið til hans, enda hefur hann löngum þótt njóta vinsælda meðal landsmanna, þykir hafa til að bera hið mjúka andlit kapítalismans eins og einn viðmælandi blaðsins úr röðum Sjálfstæðisflokksins orðaði það. I þetta sinn hefur hann vænt- anlega minna að gera en áður. Spurnincjin um Jóhonnu Alþýðubandalagið hefur tvo þingmenn í Reykjavík. Svavar Gestsson hefur leitt listann í und- anförnum kosningum og Guðrún Helgadóttir hefur fylgt á hæla hans en hún skipaði annað sætið síðast. Báðir þessir þingmenn hyggjast bjóða sig fram á ný. Margir Al- þýðubandalagsmenn í Reykjavík eru óánægðir með þessa frambjóð- endur, sér í lagi Birtingarmenn. Óánægjan með Svavar byggist helst á því að hann er forsvarsmaður flokkseigendaklíkunnar svokölluðu og er sagður of einhæfur stjórn- málamaður, sér í lagi hvað varðar málsvörn hans fyrir gamlar áhersl- ur flokksins sem helst voru uppi fyrir hrun kommúnismans. Enn fremur er bent á að Alþýðubanda- lagið hafi ekki staðið sig vel í Reykjavík undir forystu hans. Til dæntis hafí bandalagið tapað fylgi í Reykjavík í undanförnum tveimur kosningum þrátt fyrir að flokkur- inn yki fylgi sitt á landsvísu. Óánægjan með Guðrúnu er helst af kvæmt heimildum þaðan er búist við að rætt verði við Jóhönnu á næstu dögum um þetta mál. Birt- ingarmenn eru mjög áhugasamir um samstarf við Jóhönnu og Mörð- ur Árnason, oddviti þeirra, sagði í samtali við EINTAK að kæmi til slíks sameiginlegs framboðs, hvort sem það yrði í slagtogi með öðrum flokkum eða ekki, yrði Jóhanna Sigurðardóttir að sjálfsögðu í fyrsta sæti. Alþýðuflokkurinn hefur verið næststærsti flokkurinn í Reykjavík í undanförnum tveimur kosningum og haft þar þrjá þingmenn. Núna Jón Baldvin, Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Össur Skarphéðins- son. Komi til haustkosninga verð- ur væntanlega ekki viðhaft prófkjör þar á bæ á þeim forsendum að tím- inn sé of knappur. Helstu breyting- arnar hjá Alþýðuflokknum verða væntanlega þær að engin verður Jó- hanna. Og hvar hún verður er óljóst, en verði hún einhvers staðar gæti það haft veruleg áhrif á fylgi flokksins í Reykjavík. Löngum hef- ur verið talið að össur Skarphéð- insson, óviss um sæti sitt í borg- inni, hugsaði sér til hreyfings út á land. Gefi Jóhanna hins vegar ekki kost á sér eru þær vangaveltur hans væntanlega úr sögunni og líklegt að hann taki þá annað sætið. Formað- urinn leitar nú logandi ljósi að málsmetandi aðila í þriðja sætið. Sú leit hefur ekki borið árangur fram að þessu. Að auki er óljóst hverjir fylla sætin næstu fýrir neðan en tal- ið er að formaðurinn vilji sjá menn úr ungliðahreyfingunni sem sam- mála eru honum í ESB-málunum. Finnur Ingólfsson er eini þing- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann bar sigurorð af Guðmundi G. Þórarinssyni í eft- irminnilegum og hörðum próf- kjörsslag fyrir síðustu kosningar. Finnur býður sig fram nú og sama gildir um Ástu Ragnheiði Jó- hannesdóttur, sem skipaði annað sætið síðast. Valdimar K. Jóns- son, formaður fulltrúaráðsins í Reykjavík telur líklegt að flokkur- inn efni til prófkjörs fýrir næstu kosningar eins og venja hefur verið. Hann segir að lík- lega verði prófkjörið bundið við fulltrúaráð- ið sem er skipað 420 mönnumog að kosið verði um fjögur fyrstu sætin. Síðan muni kjör- n e f n d á k v e ð a neðri sæti á 1 istan um. Valdimar segir að margir aðilar hafi haft samband við sig og lýst yfir áhuga á þátttöku í prófkjörinu. Hann telur þó ekki líklegt að Finn- ur fái samkeppni en gerir ráð fyrir mótframboði í annað sætið. Kvennalistinn hefur á þremur þingmönnum í Reykjavík að skipa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór þar fremst í flokki en er nú orðin borgarstjóri. Kristín Einarsdóttir á samkvæmt reglum listans að hætta eftir þetta kjörtímabil þar sem hún hefur að því loknu setið sem þingmaður í átta ár. Hvort hún hættir fékkst ekki staðfest þar sem hún er stödd á kvennaráðstefnu í Finnlandi. Kristín Ástgeirsdóttir, sem er þriðji þingmaður Kvenna- listans í Reykjavík, gerir fastlega ráð fyrir að bjóða sig fram á ný. Hún gerir ráð fyrir að forkönnun verði viðhöfð áður en raðað verður á lista hjá þeim konum, þrátt fyrir að tím- inn sé naumur. Það muni þá skýr- ast í næstu viku eftir að félagsfund- ur fer fram. Ekki er ljóst hvaða kon- ur hyggjast bjóða sig fram til að taka við sætum þeirra Ingibjargar og Kristínar. Kristín Ástgeirsdóttir vildi ekki nefna nein nöfn í því sambandi í samtali við EINTAK. © SVAVAR GESTSSON Yngri allaballar vilja allt til þess vinna að losna við hann úr höfuðborginni. 12 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.