Eintak

Issue

Eintak - 04.08.1994, Page 13

Eintak - 04.08.1994, Page 13
Framboðsmál á Reykjanesi Líklegt er talið að röð efstu manna á lista Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi breytist nokkuð fyrir næstu kosningar, hvort sem þær verða haldnar í haust eða næsta vor. Jóhann Ein- varðsson kom inn á þing þegar Steingrímur Hermannsson sett- ist í stól Seðlabankastjóra, en sam- kvæmt heimildum EINTAKS telja flokksmenn hans frekar von á breytingu á listanum fyrir næstu kosingar. Jóhann hefur enn eldd kveðið upp úr með framboð sitt og rétt er að minnast þess að hann þótti heldur óhress með að láta af stöðu sinni, þegar hann settist á þing fyrir Steingrím. Fulltrúaráð flokksins hittist eftir næstu helgi og þar verður lagt á ráðin um skoð- anakönnun sem fram mun fara á kjördæmisþingi. Hjálmar Árna- son, skólastjóri í Keflavík, segir að það komi sterklega til greina að hann bjóði sig fram. Aðrir kandíd- atar Framsóknar eru Siv Friðleifs- dóttir, bæjarfulltrúi á Seltjarnar- nesi, Níels Ámi Lund sem er vara- þingmaður Jóhanns og Páll Magnússon úr Kópavogi. Innan Sjálfstæöisflokksins hefur ekki verið rætt formlega um próf- kjör. Ólafur G. Einarsson, efsti maður á listanum, hefur lýst því yf- ir að hann bjóði sig fram, og Sal- óme Þorkelsdóttir mun ætla slíkt hið sama. Ámi Mathiesen, Sig- ríður A. Þórðardóttir og Ámi R. Árnason ætla öll fram. Sjálfstæðis- JÓHANN ElNVARÐSSON Hefur enn ekki kveðið upp úr með framboð sitt. menn á Reykjanesi hafa undanfarið verið að bera víurnar í Gunnar Inga Birgisson, formann bæjar- ráðs Kópavogs, og nöfn Kristjáns Pálssonar, bæjarstjóra í Njarðvík- um og Viktors Borgars Kjart- anssonar í Keflavík hafa einnig heyrst. Ólafur áfram Alþýðubandalagsmenn í kjör- dæminu hafa ekkert íjallað um framboð sitt en Ólafur Ragnar Steingrímur J. Sigfússon Ekkert fær heldur haggað Steingrími og það sama er í raun að segja með aila þingmenn kjördæmisins. Ólafur G. Einarsson Öruggur í efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Grímsson sagði í samtali við EIN- TAK að hann myndi bjóða sig fram. „Kjördæmisráð flokksins mun íjalla um þessi mál á fundi í kvöld,“ segir Ólafur. Hann segist reikna með haustkosningum, „enda get ég ekki séð hvernig Dav- íð Oddsson getur bakkað með það mál héðan af. Hann hefur sett í gang atburðarásina og það verður erfitt fýrir hann að stoppa hana núna,“ segir Ólafúr. Ekki er ljóst hver koma mun í Halldór Blöndal Hann situr traustur i fyrsta sæti lista sjálfstæðismanna og Tómas Ingi Olrich jafnfastur í öðru sæti. FOSTUDAGSKVOLD: Ólafur Ragnar Grímsson „Davið hefursett i gang atburðarás sem verður erfitt fyrirhann að stöðva.“ staðinn fyrir Önnu Ólafsdóttur Bjömsson, þingkonu Kvennalist- ans í Reykjaneskjördæmi, en sam- kværnt reglum Kvennalistans mun hún hætta þingmennsku eftir næsta þing. Ekki náðist í forsvarskonur Kvennalistans í gær. O Framboðsmál á Norðurlandi eystra Óbreytt ástand Á Norðurlandi eystra er útlit fyr- ir óbreytt ástand á efstu listum allra flokkanna og litlar líkur á látum líkt og áttu sér stað þegar Stefán Val- geirsson var og hét í kosningun- um 1987. Þá sigraði Guðmundur Bjarnason Stefán í prófkjöri sem varð þess valdandi að Stefán bauð fram sérlista. Framsóknarmenn eiga þrjá þing- menn í kjördæminu þá Guðmund Bjarnason, Jóhann G. Sigur- geirsson og Valgerði Sverris- dóttur. Halldór Blöndal skipaði fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins síð- ast og Tómas Ingi Olrich annað. Staða Halldórs þótti veik í kjör- dæminu fýrir síðustu kosningar en heimildir innan Sjálfstæðisfloldcs- ins segja að hann hafi styrkt stöðu sína þar verulega enda verið dug- legur að sinna kjördæminu í ráð- herratíð sinni. Sigbjörn Gunnarsson er eini þingmaður Alþýðuflokksins í kjör- dæminu og sömuleiðis Steingrím- ur J. Sigfússon fyrir Alþýðu- bandalagið. Allir þessir þingmenn gefa kost á sér á ný og ekki er búist við því að einhver hrófli við þeim. Óvíst er hver mun leiða lista Kvennalistans í kjördæminu fyrir næstu kosningar. Málfríður Sig- urðardóttir var síðasti þingmaður þeirra kvenna á svæðinu en það þingsæti fór forgörðum í síðustu kosningum. © Sviptingar í vænd um hjá Framsókn f Framboðsmál á Austurlandi HOLMAR MEÐ Hjörleifur áfram oddviti Alþýðubandalags Allar líkur eru til þess að Hjör- leifur Guttormsson verði áfram efsti maður á lista Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi. Af samtölum við fólk í stjórmálasamtökum þar, má ráða að flokkarnir eru að undir- búa kosningabaráttuna, verði kosið í haust. Ekki er talið að miklar breytingar verði á listum floldcanna á Austurlandi. Framsóknarflokkur- inn verður með prófkjör, og talið er að tveir efstu menn þar á lista, Hall- dór Ásgrímsson og Jón Krist- jánsson standi þar óhaggaðir. En slagurinn um þriðja sætið mun hins vegar standa á milli Karenar Erlu Erlingsdóttur og Jónasar Hallgrímssonar. Þau buðu sig bæði fram síðast og þá lenti Jónas í þriðja sætinu og Karen í því fjórða. Áhrif Jóhönnu Óvissa ríkir hins vegar með framboðsmál Alþýðuflolcksins, sér- staklega eftir að Hermann Sigfús- son, annar maður á lista flolcksins, lýsti á dögunum yfir stuðningi við Jóhönnu Sigurðardóttir sem var á yfirreið um Hérað fýrir skömmu. 'I'alið er að Gunnlaugur Stefáns- son verði áfram í efsta sæti listans á Austurlandi. Egill Jónsson efsti maður á lista Sjálfstæðisflolcksins hefur lýst því yfir að hann muni bjóða sig fram. Næsti maður á listanum er Hrafn- kell Jónsson, verkalýðsfrömuður á Eskiflrði. Að sögn Egils hefur ekki verið ákveðið með prófkjör enn. „Það er hins vegar skoðun mín að haustkosningar séu betri kostur en kosningar í vor, því þá mun þingið leysast upp í prófkjörslag og kosn- ingabaráttu," segir Egill. Alþýðubandalagið held- ur friðinn Samkvæmt heimildum EIN- TAKS, veigra Alþýðubandalags- menn sér við að fara út í fram- boðsslag á borð við þann sem skók innviði flokksins fyrir fjórum ár- um. Þá bauð Einar Már Sigurðar- son sig fram á móti Hjörleifi í fyrsta sætið, og þeirri rimmu lauk með því að Einar var í öðru sæti. Hjörleifur Guttormsson Allar líkur eru til þess að hann verði áfram efsti maður á lista Alþýðubandalagsins á Austur- landi. Ekkert hefur verið ákveðið með uppröðun á listann en samkvæmt öruggum heimildum er það talið tryggt að Hjörleifur vermi efsta sætið. Einar kemur sterklega til greina í annað sætið, en þó telja sumir Alþýðubandalagsmenn það sterkara að fínna kandídat annars staðar en í Neskaupstað, þar sem þeir báðir, Hjörleifúr og Einar, eru þaðan. Ekki tókst að ná í forsvarskonur Kvennalistans á Austurlandi, en þær buðu eldci fram lista í síðustu kosingum. © Hrafnkell Jónsson Hrafnkell hefur aldrei verið stilltur flokksmaður og væri vis með að verma Agli Jónssyni undir uggum. FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994 13

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.