Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 24

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 24
Krník Mynd um mynd RIkissjönvarpið HvIta tjaldið ★ RIkissjónvarpið BIödagar baksviðs ★★★ Það er fátt sem mér þykir leiðin- legra en myndir um gerð annarra mynda. Það er mjög sjaldgæft að þær séu annað en ódýrar auglýsingar og þær skilja yfirleitt ekki nokkurn skapaðan hlut eftir af ffóðleik. Mest fjalla þær um hvernig áhættuleikar- arnir báru sig að, hvernig tækni- brellumennirnir líta út og svo segja aðalleikararnir okkar frá því hvernig týpur þeir eru að leika. Nú í seinni tíð þykir engin mynd meðal mynda nema að mynd sé um hana gerð og nú hefur hafið göngu sína hjá ríkinu þáttur sem sýnir ekk- ert annað en svona myndir. Honum hefúr verið gefið hið frumlega nafh Hvíta tjaldið (það eru alla vega tíu útvarpsþættir á hinum ýmsu stöðv- um sem hafa heitið nákvæmlega þessu nafni) og er hann í stjórn Val- gerðar Matthíasdóttur. Ég nenni nú ekki að vera að eyða mörgum orðum á þennan þátt. Hann er eflaust ágætur fyrir þá sem þurfa karakterlýsingar og þess háttar áður en þeir drífa sig í bíó. Um daginn var svo sýnd íslensk mynd um gerð íslenskrar myndar, það er að segja Bíódaga Friðriks Þórs. Það má kannski segja að þar hafi verið á ferðinni undantekningin sem sannar regluna, því ég skemmti mér bara ágætlega yfir henni. Þarna var náttúrlega engum áhættuleikur- um fyrir að fara, en í staðinn var fó- kuserað á hluti eins og leikmynda- smíði, búningahönnun og ýmislegt forvitnilegt. Eg er ekki ffá því að í þessu tilfelli hafi myndin um gerð myndarinnar verið skemmtilegri en myndin sjálf. Popp ÓTTARR PROPPÉ Það þaggar enginn í Böminum David Byrne: David Byrne ★★★★ David Byme forsprakki Talking Heads poppsveitarinnar sem íslensk- ir pönkarar skírðu lögin sín effir. Sérvitri gáfupopparinn sem gerði bíómynd um versfunarmiðstöðvar og hætti afskiptum af venjulegu poppi til þess að gefa út plötur með afrískri og brasilískri tónlist í sam- vinnu við tugi skælbrosandi einka- vini sína ffá framandi álfum. Hans vitræna hátign er sumsé kominn aft- ur í poppið þar sem mörgum okkar þótti hann alltaf best eiga heima. Talking Heads var ein nokkurra sveita frá New York sem slógu í gegn á árunum 1976 til 1978. Sveitirnar áttu það helst sameiginlegt, utan það að vera aldrei neitt líkar, að vera kenndar við pönkbúlluna CBGB’s við aðal rónastræti borgarinnar. Nú, Blondies unnu með glampródúsern- um Chinn og slógu í gegn diskó. The Ramours slógu aldrei í gegn en náðu að vinna með Phil Spector, eru enn að og sjá enga ástæðu til að breyta neinu í sínu pönki. Aðrir úr þessari senu dóu og enn aðrir gleymdust og standa enn niðri á CBGB’s við bola- söluna og vonast til þess að einhver þekki þá af gömlum myndum. Talk- ing Heads áttu stórglæsilegan feril þangað til sveitin var opinberlega blásin af fyrir fimm eða sex árum. Kvartettinn vann mikið með Brian Eno, ambienttrölli með meiru. Framleiddi furðuvídeó við litlu lögin sín og hlaut talsverða lýðhylli fyrir. Hol rödd Byrnes söng agndofa um hversdaglega hluti. Furðulostinn eins og breskur landkönnuður á Ak- ureyri. MTV-kynslóðin var alveg til í að taka ástfóstri við þennan hættu- litla ameríska súrrealisma sem not- aðist ekki við hættulegri yrkisefni en búsáhöld og álfa. Hrifningin er enn til staðar en Byrne gleymdi sér og kom niður á jörðina í nokkur ár. Með þessari nýju plötu er hann kominn aftur út fýrir gufúhvolfið. Rökhyggjan nagaði rykið halelúja! Og fýrinn á leiðinni til að trylla landslýð í Háskólacinema eftir mán- uð. Á þessari plötu er Byrne aftur kominn með lítið þriggja manna band og bætir Iitlu við. Hér er þessi gamli góði mættur með skemmtileg- um lögum sem koma sífellt á óvart þó þau virki á köflum eins og gamlir félagar. Útsetningar allar með smekklegasta móti og hljóðfæraleik- urinn óaðfinnanlegur. Byrne og fé- lagar eru óumdeilanlega að leita aft- ur að einfeldninni sem einkenndi Talandi höfuð í gamla daga. Meistar- inn sem margir héldu endanlega út- brunninn hefur aftur fundið galdur- inn í tónlistinni. Því ef það er eitt- hvað betra en að drekkja einföldum melódíum í Wagnerískum útsetn- ingum er það hæfileikinn að gera þær skemmtilegar með töfraformúl- unni trommur-gítar-bassi-rödd.© Alfrœðitónaþjónustan} góðan dag! Iah Wobble’s invaders of the he- art: Take mf. to god ★ Það er ákveðin klíka tónlistar- manna sem lifir á jaðri poppsins, heimstónlistarinnar, djassins, rokks- ins og allt hvað. Þessi hópur virðist lifa fyrir það eitt að blanda saman hinum ólíkustu stefnum og nota sem flest hljóðfæri sem enginn hefúr minnst á fýrr. Stórvesír þessa hóps er auðvitað upptökustjórinn slyngi, Bill Laswell en samstarfshópurinn margfaldast á hverjum degi og er Bretinn Jah Wobble fastur með- limur í félagsskapnum. Á nýjustu plötu sinni hefúr Wobble safnað um sig gríðarstórum hópi alls kyns lista- manna sem eflaust eru að krukka meistaraverk hver í sínu horni en samsuðan hljómar.. .ja eins og sam- suða. Hljóðfæraleikur er óvíða betri en á þessari plötu og öðrum af svip- uðu sauðahúsi, en einhvern veginn hefur það hingað til ekki nægt til að knýja pöpulinn að hátölurunum nema þá helst öðrum hljóðfæraleik- urum. Svo er og um skífu þessa. Það er ljótt að segja að svo vel unnin plata geti verið afspyrnu slæm. En það er erfitt að hlusta á þessa plötu nema þá til þess að dunda sér við að greina ex- ótísk hljóðfæri og sérhæfða skala úr tónarfi Inka. Það gæti verið spenn- andi samkvæmisleikur út af fýrir sig en varla mikið meira. Umslag plöt- unnar og konseptið á bak við hana eru listasmíð en það nægir illa til þess að koma plötum á fóninn. Alla vega hjá undirrituðum. © (deiglunni heitir sýningin í Listasafni íslands. Þar eru sýnd verk frá árunum 1930-1944 og er reynt aö varpa Ijósi á þau umbrol sem uiöu þegar gamalgróiö bændasamlélagiö mælti vax- andi borgarmenningu einkum í myndlist, list- iðn, hönnun og byggingarlist. Þetta er mjög at- hyglisverö sýning og greinilega mikil vinna á bak við heimildasöfnunina. Sjáiö þessa sýn- ingu. íslandsmerki og súlnaverk Sigurjóns Ól- afssonar er yfirskrift sýningarinnar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Sýningin stendur út árið. Leikhúsin hefja starfsemi sína á haustin og brátt fara Borgarleik- húsið og Þjóðleikhúsið að keppast um hylli leikhúsáhugafólks. Því er ekki úr vegi að athuga hvað þau ætla að bjóða upp á til að stytta landsmönnum veturinn. Leikárið 1994-1995 í Borgarleik- húsinu hefst með frumsýningu leikritsins Óskin en undirtitillinn er Galdra-Loftur eftir Jóhann Sigurjónsson. Leik- gerðin sem leikið er eftir að þessu sinni er eftir Pál Baldvin Bald- vinsson og er hann jafnframt leik- stjóri. Aðeins sex leikarar taka þátt í þessari leikgerð og með aðalhlut- verk fara þau Bene- dikt Er- lingsson sem leikur Galdra-Loft, Margrét Vilhjálms- dóttir sem fer með hlutverk Dísu og Sigrún Edda Björnsdóttir sem leikur Steinunni. Þau Benedikt og Margrét útskrifuðust úr Leiklistar- skóla íslands síðastliðið vor og vöktu athygli fýrir góða frammi- stöðu í lokaverkefninu, Sumargest- um eftir Gorkí. Óskin verður sýnd á Litla sviðinu. Leynimelur 13 verður frumsýndur á Stóra sviðinu í september í leikstjórn Ásdísar Skúladóttur. Þetta er farsi eftir þá Emil Thoroddsen, Harald Á. Sigurðsson og Indriða Waage. Verkið fjallar um klæðskera sem byggir mikið hús en verður fyrir því að ríkið tekur það eignarhaldi og alls kyns fólk flytur inn. Meðal leikara eru þau Þröstur Leó Gunnarsson, Sigurður Karlsson, Guðmundur Ólafsson, Guðrún Ás- mundsdóttir, Jakob Þór Einarsson og Margrét Helga Jó- hannsdóttir. Einnig koma fram þær Guðlaug E. Ólafsdóttir og Katrín Þorkelsdóttir sem úskrif- uðust úr Leildistarskóla íslands síðastliðið vor. Hvað með Leond- ardo? er slóvenskt leikrit eftir Evald Flis- ar og niunu sýningar hefjast á því á Stóra sviðinu í október. Því leik- stýrir Hallmar Sigurðsson. Verk- ið er sagt vera grátbroslegur gam- anleikur. I nóvember verður unglingaleik- ritið Ófælna stúlkan eftir Anton Helga Jónsson frum- sýnt á Litla sviðinu. Hlín Agnarsdóttir leikstýrir því og meðal þeirra sem fara með hlutverk verða þau Árni Pétur Guð- jónsson, Benedikt Er- lingsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ellert A. Ingimundarson ogSig- rún Edda Björnsdóttir. Söngleikurinn Kabarett verður frumsýndur á Stóra sviðinu í janúar. Guðjón Petersen annast leikstjórn en þau Edda Heiðrún Backman ogIngvar E. Sigurðs- son eru í aðalhlut- verkum sem þau Sally Bowles og skemmtana- stjórinn. Meðal ann- arra leikara eru þau Hanna María Karlsdótt- ir, Steinn Ármann Magnússon, Guðlaug E. Ólafsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir. Dansarar úr Is- lenska dansflokknum koma einnig fram. Ný þýðing verður notuð í leikritinu en hún er eftir Karl Ág- úst Úlfsson. Framtíðardraugar heitir nýtt leikrit eftir Þór Tulinius sem byrjað verður að sýna á Litla sviðinu í febrúar. Þór leikstýrir verkinu sjálfur. Framtíðardraugar er ævintýrasaga um lánsamt óláns- fólk og gerist árið 2009.1 verkinu er fjallað um ungt og atvinnulaust fólk sem stofnar miðilsstofu. Ekki fer allt eins og ætlað er. Ekki hefur enn verið ákveðið hverjir fara með aðalhlutverk í Framtíðardraugum. Sömu sögu er að segja um leik- ritið Heimur svörtu fiðrildanna sem enn er verið að þýða og sér Hjörtur Pálsson um þann starfa. Ætl- unin er að frumsýna leikritið á Stóra svið- inu í mars. Höfundur er hin finnska Leena Lander en leik- stjóri verður Kjartan Ragnars- son. Heimur svörtu fiðrildanna er átakanlegt og miskunnarlaust leik- rit sem fjallar um dreng sem tekinn er frá foreldrum sínum og komið fýrir á betrunarhæli. Þjóðleikhúsið hefur starfsárið með því að frumsýna óperuna Vald örlaganna eftir Verdi hinn 17. september á Stóra sviðinu. Þetta er frumflutn- ingur óperunnar hér á landi og syngur Krist- ján Jóhanns- son aðalhlut- verkið. Með önnur hlut- verk fara Viðar Gunnarsson, Elsa Waage, Tómas Tóm- asson, Elín Ósk Óskars- dóttir og skipta þeir Keith Reed og Trond Halstein Moe einu hlutverkanna á milli sín. Sveinn Einarsson leikstýrir óperunni en leikmyndahönnuður er Hlín Gunnarsdóttir. Á Smíðaverkstæðinu verður verk Guðbergs Bergssonar, Sannarsögur úr sálarlífi systra sýnt í leik- gerð Viðars Eggerts- sonar sem jafnframt er leikstjóri. Snorri Freyr Hilm- arsson hannaði leikmynd- ina. Með helstu hlut- verk fara þau Ingrid Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Þóra Friðriksdóttir og Valdimar Örn Flygenring. Sannar sögur úr sálarlífi systra var sýnt á Listahátíð í Reykjavík í sumar og hlaut góðar viðtökur. Einleikurinn Dóttir Lúsifers eftir Bandaríkjamanninn William Luce verður frumsýndur á Litla sviðinu um mánaðamótin sept- ember-október. Leikritið er byggt á ævi dönsku skáldkonunnar Karen Blixen. Bríet Héðinsdóttir fer með hlutverk hennar en Ólöf Eld- járn þýddi verkið. Leikstjóri er Há- var Sigurjónsson. Til stóð að sýna Dóttur Lúsifers á síðasta leik- ári en það datt upp fyrir. Þann 22. október verður Snædrottning H.C. Andersen frumsýnd á Litla sviðinu. Leikgerðin er eftir mann að nafni Schwartz en Árni Berg- mann þýðir verkið yfir á íslensku. Snædrottningin var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu fýrir 40 árum og var fýrsta barnaleikritið sem þar var sett á svið. Guðný Richards gerir leikmyndina. „The Rise and Fall of Little Voice “ eftir Jim Cartwright verður tekið til sýninga á Smíðaverkstæðinu. Ekki hefur enn verið fundinn ís- lenskur titill á leikritið. Leikhús- áhugafólk kannast eflaust við Cartwright því hann er sá sami og gerði Stræti sem sýnt var á Smíða- verkstæðinu á þarsíðasta leikári. Árni Ibsen þýðir verkið en Hávar Sigurjónsson leikstýrir sýning- unni. Verkið fjallar um mæðgur sem búa saman. Móðirin er drykk- felld en dóttirin er ósköp hlédræg og gerir sér það helst til dundurs að hlusta á grammófónplötur sem faðir hennar hefur arfleitt hana af. Hún verður loks býsna lunkin í að herma eftir frægum söngkonum. Leikritið var valið besta gamanleik- ritið í Bretlandi í hitteðfýrra. Jólaleikrit Þjóðleikhússins er Fávitinn eftir Dostojevski í þýðingu Ingi- bjargar Har- aldsdóttur. Leikgerðin er bresk og er hún eftir Sim- on Gray. Sýn- ingin er afar mannmörg og viðamikil. Ver- ið er að ganga frá því um þessar mundir hver leikstýrir sýn- ingunni. Húbert Nói Jóhannesson er meö mjög góöa sýningu á Sólon íslandus. Felix Eyjólfsson meö sýningu á 22. Þetta eru ógeðslega ijótar myndir. Hin mexíkóska Beatriz Ezban ermeö mál- verkasýningu í Portinu Hafnarlirði. BÍÓBORGIN IVIaverick ★★ Jody Foster skýtur James Garner og Mel Gibson rel fyrir rass í þessum grínvestra sem er lengri en hann er fyndinn. Þrumu-Jack ★ Ástralir elska Paul Hogan og þreytast eflaust ekki á aö sjá hann í þessari mynd. Ööru máli gegnir um Islendinga. Hvað pirrar Gilbert Grape What’s Eating Gilbert Grape ★★★ Ein af þessum myndum sem maöur gleymir sér yfir. Blákaldur raunveruleiki Realíty Bites ★★★ Góö skemmtun fyrir unglinga. BÍÓHÖLLIN SteinaldarmennirnirThe Flintstone ★ Eftir hina ágætu sendingu frá steinöld í Júragarðin- um kemur hér ein mjög vond. Manni verður nánast illt (veskinu aö sjá jafn mörgum milljón- um kastaö á glæ. Bíódagar ★★★ Falleg en dálítiö gölluð mynd. Byrjar vel en leiðist út í hálfgerða ára- mótasketsa og endar í langri jarðarför. Lögregluskólinn — Leyniförtil Moskvu Police Academy — Mission to Moscow. ★ Yf- irþyrmandi vitleysa sem er alltaf sjaldan skemmtileg. Ace Ventura ★★★ Davíð Alexander, 9ára gagnrýnandi EINTAKS, segir myndina fyndna. Fullorönir geta hlegiö meö góðum vilja. HÁSKÓLABÍÓ Steinaldarmennirnir The Flintstone ★ Mis- lukkuð skemmtun sem veröur nánast óbærilega leiðinleg þegar á líður. Flest barnanna heföu frekar kosið teiknimyndirnar. Veröld Waynes 2 Wayne's World 2 ★★★ Sannkölluð gleöimynd. Löggan í Beverly Hills 3 Beverly Hills Coþ 3 ★ Þaö er löngu komið í Ijós aö Eddie Murphy er einnar hliðar maður. Ef rnaöur snýr honum viö þá er sama lagið hinum megin. Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet ★★ Gamanmynd um homma í felum. Beint á ská 33 1/3 Naked Gun 331/3 The Final Insult ★ Frekar dapurleg tilraun til aö halda lífi í þessari seríu. Meö góöum hug má þó hlæja hér og hvar. LAUGARÁSBÍÓ Krákan The Crow ★★ Mynd fyrir áhugamenn um rokk, dulrænu, teiknimyndir og annaö þess- legt. Serial Mom ★★★ Fyndin og bara rétt mátu- lega geggjuö svo ýmsir aðrir en einlægir John Waters-aðdáendur geta haft gaman af. Ögrun Sirens ★★ Innihaldslaus og snubbótt saga sem heföi mátt klára fyrir hlé. Þólt sumar konurnar séu full jussulegar geta karlar skemmt sér við aö horfa á prestsfrúna. Og konurnar á Hugh Grant. Þessi tvö eiga stjörnurnar. REGNBOGINN Svínin þagna The Silence of the Ham 0 Steypa. Gestirnir Les Visiteurs ★ ★ ★ Frönsk della sem má hafa mikið gaman af. Hraður og hlaö- inn farsi. Sugar Hill ★ Sýrópiö og sykurinn drýpur at FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994 1

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.