Eintak - 04.08.1994, Side 25
I febrúarlok verður
West Side
sýnt í fyrsta sin
ur það á Stóra
sviðinu. Karl
Ágúst Úlfs-
son er bæði
þýðandi og
leikstjóri upp-
setningarinnar
en hann er nú
kominn heim
'að loknu
tveggja ára
námi í Bandaríkjunum. Danshöf-
undur verður Kenn Oldfield sem
vann einnig í uppfærslu My Fair
Lady og sýndi þar vel hvers hann er
megnugur.
Síðasta frumsýningin á Stóra
sviði Þjóðleikhússins verður
Nýtt íslenskt verk
eftir Guðmund Steinsson. Leikrit
hans Stundarfriður var sýnt tvö
leikár í röð í Þjóðleikhúsinu fyrir 15
árum sem og sýnt í sjónvarpi. Nýja
leikritið hans Guðmundar fjallar
um sömu fjöl-
skylduna og
fara sömu leik-
arar með hlut-
verkin: Helgi
Skúlason og
Kristbjörg
Kjeld leika
hjónin en börn
þeirra leika
Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Sigurður Sigur-
jónsson og Guðrún Gísladóttir.
Einnig hafa 2 til 3 aðrar persónur
bæst við. Stefán Baldursson leik-
stýrir og Þórunn S. Þorgríms-
dóttir hannar leikmynd en það
gerðu þau einnig í Stundarfriði.
! janúar verður sýnt á Litla svið-
inu mestþýdda nútímaleikritið í
heiminum í dag. Það er bandarískt
og heitir
Oleanna
og er eftir David Mamet. Hann
hefur skrifað mörg leikrit um dag-
ana og hefur verk hans, Tilbrigði
við önd, verið sýnt af Alþýðuleik-
húsinu. Sagt er að Oleanna fjalli
urn kynferðislega áreitni en í raun
og veru er það um mikið rneira.
Það segir frá samskiptum háskóla-
kennara og stúlku sem er nemandi
hans. Þórhallur Sigurðsson leik-
stýrir verkinu en Hallgrímur H.
Helgason þýddi það yfir á ís-
lensku.
Undir vorið sýnir Þjóðleikhúsið
svo þýskt leikrit eftir Dorst sem í
þýðingu Bjarna Jónssonar heitir
Fernando Krapp
skrifaði mér bréf
Leikritið verður sýnt á Litla sviðinu
og íjallar um eina konu og tvo
karlmenn og þær ólíku myndir
sem ástin getur tekið á sig. Andrés
Sigurvinsson leikstýrir verkinu.
Einnig fýrirhugar Þjóðleikhúsið
leiklestra, kabarett-sýningu og far-
andsýningu fyrir börn. Jafnframt
verður haldið
áfram að sýna
Gauragang eftir
Ólaf Hauk Sím-
onarson en það
var sýnt 40 sinn-
um fyrir fullu
húsið á síðasta
leikári. Einnig verður Gaukshreiðr-
ið tekið upp aftur. ©
Story
. á Islandi og verð-
Nafn: Tómas Tómasson
Fæðingardagur: 28. desember 1966
Hæð: 187 cm
Þyngd: Aðeins of þungur
Háralitur: Ljós
Augnlitur: Blár
Sérkenni: Djúp rödd
Hver?
Tómas Tómasson er ungur
bassasöngvari sem vakið hefur
mikla athygli fyrir fagra og kraft-
mikla rödd sína. Hér heima söng
Tómas með íslensku óperunni í
Rigoletto, Othello og Töfraflaut-
unni en í vetur hefur hann numið
söng við hinn virta skóla Royal
College of Music í London. Auk
söngnámsins kom Tómas fram
víða á tónleikum í Englandi á und-
anförnu ári.
Hvað?
Tómas lauk fyrra árinu af tveimur í
skólanum í vor og er kominn í
heimahagana í langþráð sumar-
leyfi. „Þetta er búin að vera rnikil
vinna í vetur,“ segir hann. „Eftir að
skólanum lauk í vor söng ég víða,
nteðal annars sem kórlimur í
óperunni Aidu í Covent Garden en
Kristján Jóhannsson söng aðal-
hlutverkið í nokkrum af þeim sýn-
ingum, sem voru mjög skemmti-
legar.“
Hvernig?
Tómas segist hafa fengið áhuga á
að syngja í menntaskóla. „Ég hafði
ekki opnað munninn fyrr en ég fór
í inntökupróf í kór Menntaskólans
við Hamrahlíð og ég hafði ekki
hugmynd um að ég gæti sungið.
Það var ekki fyrr en ég var að Ijúka
stúdentsprófi sem ég fór síðan í
fyrsta söngtímann í Tónlistarskól-
anum og þá var ekki aftur snúið,“
segir hann.
Hvers vegna?
Tómas ætlar ekki bara að hvíla sig
á Islandi því í haust syngur hann
eitt af aðalhlutverkunum í Valdi
örlaganna eftir Verdi sem sett
verður á svið í Þjóðleikhúsinu í
uppfærslu Sveins Einarssonar.
„Eg verð í hlutverki markgreifa
sem er tveggja barna faðir en dóttir
hans, Leonora, er aðalkvenhetjan í
verkinu. Kristján Jóhannsson syng-
ur hlutverk Alvaros sem er aðal
tenórinn en hann er ástfanginn af
Leonoru,“ segir Tómas. „Mark-
greifinn deyr af voðaskoti og for-
mælir dóttur sinni í andaslitrunum
og út á það gengur óperan."
Hvert?
Tómas segir að lítið sé um tækifæri
fyrir söngvara á Islandi og því
stefni hann að því að komast í eitt-
hvert óperuhús erlendis þegar
hann hefur lokið náminu. ©
tjaldinu í emn og hálfan tíma áður en myndin
byrjar fyrir alvöru. Stuttu síðar er hún búin.
Píanó ★** Óskarsverðlaunaður leikur í að-
al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga.
Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol-
ate **★ Ástir undir mexíkóskum mána.
STJÖRNUBÍÓ
Bíódagar í raun er atriðiö þar sem bóndinn fer
f sagnakeppni viö Kanann nægt tilefni til að sjá
myndina.
Stúikan mín 2 My Girl 2 **★ Mynd sem er
um og fyrir gelgjur — og ágæt sem slfk. Þeir
sem eru komnir ytir hana eða hata aldrei orðiö
fyrir henni geta meira að segja haff nokkuð
gaman af.
Dreggjar dagsins Remains of the Day
**** Magnaðverk.
SÖGUBÍÓ
Maverick ** Bfómynd byggö á sixtís sjón-
varpslöggunni sem skaut allt í tætlur.
Járnvilji Iron Will ** Ævintýramynd frá Walt
Disney sem fær mann til að velta fyrir sér hvers
vegna leiknu myndirnar frá fyrirtækinu eru
svona miklu verri en teiknimyndirnar. Ef til vill
eru bær búnar til í allt annarri deild.
991770
Þacf er beM eftir þe'r á Stejnumótalínunní
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
25