Eintak

Issue

Eintak - 04.08.1994, Page 25

Eintak - 04.08.1994, Page 25
I febrúarlok verður West Side sýnt í fyrsta sin ur það á Stóra sviðinu. Karl Ágúst Úlfs- son er bæði þýðandi og leikstjóri upp- setningarinnar en hann er nú kominn heim 'að loknu tveggja ára námi í Bandaríkjunum. Danshöf- undur verður Kenn Oldfield sem vann einnig í uppfærslu My Fair Lady og sýndi þar vel hvers hann er megnugur. Síðasta frumsýningin á Stóra sviði Þjóðleikhússins verður Nýtt íslenskt verk eftir Guðmund Steinsson. Leikrit hans Stundarfriður var sýnt tvö leikár í röð í Þjóðleikhúsinu fyrir 15 árum sem og sýnt í sjónvarpi. Nýja leikritið hans Guðmundar fjallar um sömu fjöl- skylduna og fara sömu leik- arar með hlut- verkin: Helgi Skúlason og Kristbjörg Kjeld leika hjónin en börn þeirra leika Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson og Guðrún Gísladóttir. Einnig hafa 2 til 3 aðrar persónur bæst við. Stefán Baldursson leik- stýrir og Þórunn S. Þorgríms- dóttir hannar leikmynd en það gerðu þau einnig í Stundarfriði. ! janúar verður sýnt á Litla svið- inu mestþýdda nútímaleikritið í heiminum í dag. Það er bandarískt og heitir Oleanna og er eftir David Mamet. Hann hefur skrifað mörg leikrit um dag- ana og hefur verk hans, Tilbrigði við önd, verið sýnt af Alþýðuleik- húsinu. Sagt er að Oleanna fjalli urn kynferðislega áreitni en í raun og veru er það um mikið rneira. Það segir frá samskiptum háskóla- kennara og stúlku sem er nemandi hans. Þórhallur Sigurðsson leik- stýrir verkinu en Hallgrímur H. Helgason þýddi það yfir á ís- lensku. Undir vorið sýnir Þjóðleikhúsið svo þýskt leikrit eftir Dorst sem í þýðingu Bjarna Jónssonar heitir Fernando Krapp skrifaði mér bréf Leikritið verður sýnt á Litla sviðinu og íjallar um eina konu og tvo karlmenn og þær ólíku myndir sem ástin getur tekið á sig. Andrés Sigurvinsson leikstýrir verkinu. Einnig fýrirhugar Þjóðleikhúsið leiklestra, kabarett-sýningu og far- andsýningu fyrir börn. Jafnframt verður haldið áfram að sýna Gauragang eftir Ólaf Hauk Sím- onarson en það var sýnt 40 sinn- um fyrir fullu húsið á síðasta leikári. Einnig verður Gaukshreiðr- ið tekið upp aftur. © Story . á Islandi og verð- Nafn: Tómas Tómasson Fæðingardagur: 28. desember 1966 Hæð: 187 cm Þyngd: Aðeins of þungur Háralitur: Ljós Augnlitur: Blár Sérkenni: Djúp rödd Hver? Tómas Tómasson er ungur bassasöngvari sem vakið hefur mikla athygli fyrir fagra og kraft- mikla rödd sína. Hér heima söng Tómas með íslensku óperunni í Rigoletto, Othello og Töfraflaut- unni en í vetur hefur hann numið söng við hinn virta skóla Royal College of Music í London. Auk söngnámsins kom Tómas fram víða á tónleikum í Englandi á und- anförnu ári. Hvað? Tómas lauk fyrra árinu af tveimur í skólanum í vor og er kominn í heimahagana í langþráð sumar- leyfi. „Þetta er búin að vera rnikil vinna í vetur,“ segir hann. „Eftir að skólanum lauk í vor söng ég víða, nteðal annars sem kórlimur í óperunni Aidu í Covent Garden en Kristján Jóhannsson söng aðal- hlutverkið í nokkrum af þeim sýn- ingum, sem voru mjög skemmti- legar.“ Hvernig? Tómas segist hafa fengið áhuga á að syngja í menntaskóla. „Ég hafði ekki opnað munninn fyrr en ég fór í inntökupróf í kór Menntaskólans við Hamrahlíð og ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti sungið. Það var ekki fyrr en ég var að Ijúka stúdentsprófi sem ég fór síðan í fyrsta söngtímann í Tónlistarskól- anum og þá var ekki aftur snúið,“ segir hann. Hvers vegna? Tómas ætlar ekki bara að hvíla sig á Islandi því í haust syngur hann eitt af aðalhlutverkunum í Valdi örlaganna eftir Verdi sem sett verður á svið í Þjóðleikhúsinu í uppfærslu Sveins Einarssonar. „Eg verð í hlutverki markgreifa sem er tveggja barna faðir en dóttir hans, Leonora, er aðalkvenhetjan í verkinu. Kristján Jóhannsson syng- ur hlutverk Alvaros sem er aðal tenórinn en hann er ástfanginn af Leonoru,“ segir Tómas. „Mark- greifinn deyr af voðaskoti og for- mælir dóttur sinni í andaslitrunum og út á það gengur óperan." Hvert? Tómas segir að lítið sé um tækifæri fyrir söngvara á Islandi og því stefni hann að því að komast í eitt- hvert óperuhús erlendis þegar hann hefur lokið náminu. © tjaldinu í emn og hálfan tíma áður en myndin byrjar fyrir alvöru. Stuttu síðar er hún búin. Píanó ★** Óskarsverðlaunaður leikur í að- al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate **★ Ástir undir mexíkóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Bíódagar í raun er atriðiö þar sem bóndinn fer f sagnakeppni viö Kanann nægt tilefni til að sjá myndina. Stúikan mín 2 My Girl 2 **★ Mynd sem er um og fyrir gelgjur — og ágæt sem slfk. Þeir sem eru komnir ytir hana eða hata aldrei orðiö fyrir henni geta meira að segja haff nokkuð gaman af. Dreggjar dagsins Remains of the Day **** Magnaðverk. SÖGUBÍÓ Maverick ** Bfómynd byggö á sixtís sjón- varpslöggunni sem skaut allt í tætlur. Járnvilji Iron Will ** Ævintýramynd frá Walt Disney sem fær mann til að velta fyrir sér hvers vegna leiknu myndirnar frá fyrirtækinu eru svona miklu verri en teiknimyndirnar. Ef til vill eru bær búnar til í allt annarri deild. 991770 Þacf er beM eftir þe'r á Stejnumótalínunní FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994 25

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.