Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 15.09.1994, Qupperneq 7

Eintak - 15.09.1994, Qupperneq 7
 iHc <> >«:<»!»' ; ÍM k*S K«"lx s&Bat 'lc-ni'Ci.-itavfliHi . Hv» <r vA <!•; <H> imi; Kntaxy. *■;<»! <<«»* ‘x'* *s«3 W 'vVv'V /X* ; :*<«uí.x3.<. tUrUx ÍX<> •-> Oyp :U tU; : 5SS; Dsw«s tliöuðu?! Bííiiguf tðrstnrt En islsaðik llsker luiríösfts flskctcfiet I Bwsen - med lertk ttík íltektó Ira smuttftatlet Sslset ttnrkstóa - ftett tii pclílisl duknel epp, oq den isttke tttksten bte Wtt na isnken! Bek ttskekauens larte Se 09 Hats skluflc kamera... Framboðsmál Jóhönnu Ögmundur Jónasson „Það hafa verið ísambandi við mig ýmsir sem eru áhugamenn um einhvers konar samfylkingu á vinstri vængnum. “ Ólína Þorvarðardóttir „Ég er í öllu falli stuðningsmað- ur hennar og mun reyna að vinna henni gagn eins og ég get. “ LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR „Ég hef engan metnað ípólitík, að minnsta kosti ekki núna. “ Meiri geijun en þegar Vilmundur bauð fram segir Þorlákur Helgason, einn helsti stuðningsmaður Jóhönnu. Fleiri sýna áhuga á að taka sæti á lista Jóhönnu. Það hefur sýnt sig í skoðana- könnunum undanfarna daga að stuðningur við hugsanlegt sérfram- boð Jóhönnu Sigurðardóttur er mjög mikill. Jóhanna hefur ekki lýst því formlega yfir að hún hyggi á framboð og er enn innan raða Al- þýðuflolcksins. En hún hefur sagt að hún muni ekki fara fram undir merkjum flokksins. Jóhanna er með dyggan hóp stuðningsmanna í kringum sig og á þessari stundu bendir allt til þess að hún muni innan skamms segja sig úr Alþýðu- flolcknum og blása til frekari iiðs- safnaðar. Skoðanakönnun sem Skáls gerði fýrir EINTAK um síðustu helgi sýnir að Jóhanna nýtur stuðnings um það bil 11 prósent landsmanna en það fylgi myndi tryggja sérfram- boði hennar sjö fulltrúa á Alþingi ef kosið væri núna. Þessar tölur velta óhjákvæmilega upp þessari spurn- ingu: Hvaða fólk er það sem gæti farið inn á þing með Jóhönnu? EINTAK ræddi við nokkra sem hafa verið nefndir í því samhengi um hugsanleg framboðsmál. Skýrist innan nokk- urra daga eða vikna Ólína Þorvarðardóttir er einn af stofnendum Jafnaðarmannafé- lags Islands þar sem marga stuðn- ingsmenn Jóhönnu er að finna. Hún var borgarfulltrúi fyrir Nýjan vettvang á síðasta kjörtímabili og hún hefur verið nefndur sem lík- legur kandídat á lista Jóhönnu. Ólína segir að fólk sé þessa dagana að skoða stöðuna. „Jóhanna er að hugsa sinn gang og fólk víða í kringum hana er að hugsa sinn gang. Það er þrýst mjög á hana að bjóða sig fram en ég á ekki von á því að það skýrist hvort og með hvaða hætti það verður fýrr en eftir nokkrar vikur. Jafnaðar- mannafélag íslands er til dæmis að fara af stað með málefnavinnu og mun gera það upp við sig á opnum félagsfundi í haust með hvaða hætti það vill standa að framgangi jafn- aðarstefnunnar. Þá mun koma í ljós hvort það verði með því að standa að stofnun stjórnmálahreyf- ingar, hvort félagið muni bjóða fram í eigin nafni eða hvort það verður áfram einungis umræðu- vettvangur um jafnaðarstefnuna. Fólk er að spá og spekúlera." Ólína er ekki tilbúin á þessari stundu að svara því hvort hún sé reiðubúin að taka sæti á lista sér- framboðs Jóhönnu ef af verður. „Ég vil ekki svara svona vanga- veltuspurningum. í íýrsta lagi veit ég ekkert hvort Jóhanna býður fram, í öðru lagi veit ég ekki hvort hún færi ein eða í samfylkingu með öðrum en þetta eru hlutir sem þarf að skoða. Ég er í öllu falli stuðn- ingsmaður hennar og mun reyna að vinna henni gagn eins og ég get,“ segir Ólína. Ýmsar vangaveltur hafa verið uppi um að hugsanlega verði mynduð breiðfýlking um framboð Jóhönnu á vinstri væng stjórnmál- anna. Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB, ræddi við Jóhönnu um þetta í sumar og þykir líklegur til að taka sæti á slíkum lista af af yrði. Ögmundur sagði það rétt að við hann hefði verið talað en vildi eldci fara nánar út í þá sálma í bili. „Það hafa verið í sambandi við mig ýmsir sem eru áhugamenn um einhvers konar samfylkingu á þessi mál. Þetta verður að hafa sinn gang, ekkert liggur á. Það er alveg Jdárt að það verður framboð en það á eftir að móta hvernig það verð- ur.“ Þorlákur segir að ekki sé tíma- bært að nefna neina á nafn sem hafi í hyggju að fýlkja sér með Jóhönnu en segir að áhuginn sé mikill. „Það eru margir búnir að melda sig og við höfum talað við marga og það er hugur í fólki. Niðurstöður þessara nýjustu skoðanakannana koma okkur ekkert á óvart.“ Aðspurður um hvort hann sjálf- ur komi til með að vera á lista sér- framboðs Jóhönnu segir Þorlákur að ekki sé tímabært að tala um skipan framboðsmála. „Það er Jdárt mál að ég verð með í baráttunni en við erum ekki farin að raða niður á neina lista. Núna erum við fyrst og fremst að vinna málefnavinnuna og það er margt eftir og ýmislegt á eftir að skýrast. Jóhanna er enn í Alþýðuflokknum, nú fer þing að koma saman og þá er spurning hvernig hennar staða verður. Verður hún tii dæniis í þingflokknum? Þessar línur eiga eftir að skýrast á næstunni.“ Þorlákur hefur milda trú á því að stuðningur við Jóhönnu eigi enn eftir að aukast, því eins og hann bendir á hefur hún fengið mikinn stuðning í skoðanakönnunum þó hún hafi ekki enn tilkynnt að hún ætli í framboð. „Það er mikil stemmning í loft- inu, en einn góður krati sagði við mig að hann fyndi fýrir meiri gerj- un núna en þegar Vilmundur bauð sig fram á sínum tíma og klauf Al- þýðufloldcinn.“ Ýmis fleiri nöfn hafa komið upp í umræðunni um hugsanlegt fram- boð Jóhönnu Sigurðardóttur. Þeirra á meðal eru til dæmis Ragn- heiður Davíðsdóttir, blaðakona og Gunnlaugur Stefánsson, eini stuðningsmaður Jóhönnu í þingliði Alþýðuflokksins. Þessi mál virðast þó vera komin skammt á veg og munu örugglega elcki skýrast fyrr en Jólianna lætur uppi hverjar áætlanir hennar eru. O JÓHANNA SlGURÐARDÓTTIR Skoðanakönnun sem Skál’s gerði fyrir eintak um síðustu helgi sýnir að hún nýtur stuðnings um það bil 11 prósent landsmanna. vinstri vængnum. En það er ekki hægt að tala um neitt áþreifanlegt um þá hluti á þessari stundu. í sumar töluðum við Jóhanna saman og það fór fram viðræður ýmissa aðila sem vilja skoða leiðir til að treysta samstarf félagshyggjuafla. Mitt nafn hefur fýrst og fremst komið til tals í slíku samhengi en ekki á neinn áþreifanlegan hátt í sambandi við lista eða framboð eða annað af slíku tagi,“ sagði Ög- mundur. Lára V. Júlíusdóttir, fýrrver- andi lögfræðingur ASÍ, var vara- þingmaður eitt kjörtímabil fyrir Al- þýðuflokki og aðstoðarmaður Jó- hönnu um tíma. Hún er eindreginn stuðningsmaður Jóhönnu en segir af og frá að hún taki sæti á lista. „Það kemur eldci til mála að ég fari í framboð, það eru hreinar lín- ur. Ég er hins vegar stuðningskona Jóhönnu Sigurðardóttur, eins og ég hefverið og mun vera áfram. Ég hef engan metnað í pólitík, að minnsta kosti ekki núna.“ Meiri gerjun en þegar Vilmundur bauð fram Fjórði kandídatinn sem hefur hvað oftast verið nefndur í sam- bandi við hugsanlega lista Jóhönnu er Þorlákur Helgason, fýrrverandi formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Hann hefur undan- farnar vikur unnið ötullega að þess- um málum. „Við höfum verið að undirbúa Falin myndavél í Se og hor íslenskur sjómaður að selja fisk Norska tímaritið Se og /iordulbjó einn blaðamanna sinna sem ís- lenskan sjómann fýrir skömmu. Því næst ícom hann sér fýrir úti á torgi í Bergen og bauð vegfarend- um fisk úr Smugunni. fslenski fán- inn var hafður við höndina og skilti sem á stóð: „Tilbudur torskur, halvur prisur, direktur fra Smutt- hullur“. Átti það eflaust að koma vegfarendum fýrir sjónir sem ís- lenska og þýða: „Tilboð á þorsld á hálfverði, lieint úr Smugunni." Svo beið blaðamaðurinn eftir viðbrögðum þeirra sem leið sína lögðu um torgið og tók ljósmynd- ari myndir af öllu saman. Þorskastríðið hvarf eins og dögg fýrir sólu og stillti fólk sér upp i röð til að kaupa ódýran fisk. Blaðamað- urin segir í grein sinni að íslenski sjómaðurinn hafi birst bæjarbúum sem ffelsandi engill. Gamall maður hafði orð á því við „sjómanninn" að fýrst fslend- ingar veiddu hvort eð er í Smug- unni væri í lagi að þeir seldu fískinn í Noregi. Fáir sýndu af sér ofstopa en þó lét eldri frú sig hafa það að steyta hnefanum framan í sjó- manninn og sldpa honum að hafa sig á braut. „Mætti ég elcki bjóða þér þorsk?“ spurði sjómaðurinn en konan sagðist, rétt eins og Gunnar á Hiíðarenda forðum, elcki vilja gerast þjófsnautur. © Vegna mistaka Hagstofunnar borgaði hluti safnaðar Grensáskirkju sóknargjöld til Bústaðakirkju. Mistökin uppgötvuðust eftir 10 ár. Formaður sóknarnefndar Grensáskirkju segir skuldina að fullu greidda. Skuldar Bústaðasókn Grensássókn 14 miljjónir? Vegna mistaka Hagstofunnar skuldar Bústaðakirkja Grensás- kirkju milljónir, menn eru ekki á einu máli um liversu margar. Mis- tökin fólust í því að frá árinu 1979 til 1990 skráði Hagstofan fjölda húsa í Fossvoginum í hverfi sem var tiltölulega nýrisið í kringum 1979 til Bústaðasóknar sem réttilega tilheyrðu Grensássókn. fbúum þessara húsa var þjónað af Grensás- kirkju en þeir greiddu sóknargjöld til Bústaðakirkju. Aðili sem starfar innan Grensás- kirkju, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að mistök Hagstofunn- ar hafi uppgötvast árið 1989, eða tíu árum seinna. Hann segir upphæð- ina, sem Grensáskirkja hafi því far- ið á mis við á þessu tímabili, vera á bilinu tólf til fjórtán milljónir, framreiknaðar til dagsins í dag. Sóknarnefnd Grensáskirkju mun hafa leitað til Hagstofunnar og fjár- málaráðuneytisins um leiðréttingu en var synjað um það. Fjármála- ráðuneytið taldi að báðar sóknirnar væru sekar um að hafa ekki leiðrétt þetta sín á milli og taldi kirkjuna sjálfa rétta vettvanginn til að leysa málið. Þá hafi verið leitað til Ólafs Skúlasonar, biskups, en hann hafi ekkert aðhafst í málinu. í framhaldinu mun Grensássókn hafa leitað til Bústaðasóknar um leiðréttingu. Farið var fram á fundahöld með endurskoðendum um málið þannig að Grensássókn gæti fengið uppgert. Þessar samn- ingaumleitanir munu hafa runnið út í sandinn. Árið 1990 greiddi Bú- staðasókn loks tvær milljónir til Grensássóknar og taldi þar með málið útlcljáð. Séra Halldór Gröndal, sóknar- prestur í Grensáskirkju, vill gera sem minnst úr þessu máli. Hann segir að mistökin hafi átt sér stað 1979 en að þau hafi uppgötvast fá- um árum seinna. Halldór sagði að Bústaðasókn hefði greitt mestan hluta skuldarinnar og honum skildist að restin fengist að fullu greidd innan tíðar. Þráinn Þorvaldsson, formaður sóknarnefndar Bústaðakirkju, segir að búið sé að greiða Grensáskirkju tvær milljónir og þar við sitji. Hann telur að skuldin hafi ekki verið hærri. Þráinn segist þó þurfa tíma til að skoða málið þar sem hann hafi að- eins verið formaður sóknarnefndar í þrjú ár og þelcki því elcki málið til hlítar. © FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 7

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.