Vikublaðið - 19.11.1992, Síða 9

Vikublaðið - 19.11.1992, Síða 9
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 VIKUBLAÐIÐ 9 ÞINGMÁL Jöfhunarsjóður annar ríkSssjóður!!! „Ég gagnrýni efnistök sveitarfélaganefndar en tel engu að síður nauð- synlegt að endurskipuleggja stjórnsýsluna og þar með skipan landsins í sveitarfélög,“ segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður í viðtali, en athygli hefur vakið að hann skilað séráliti, er nefndin lét frá sér fara áfangaskýrslu í lok síðasta mánaðar. Kristinn telur að höfð séu enda- skipti á hlutunum hjá nefndinni. Áður en farið sé að endurskipu- leggja mörk sveitarfélaga þurfi að gera grein fyrir markmiðum stjórnsýslunnar í heild, ekki aðeins stjórnsýslu sveitarfélaga heldur einnig rikisins. Nauðsynlegt sé að endurskipuleggja stjórnsýsluna alla vegna þess að verkaskipting innan hennar sé óskýr og samhæfing lílil ntilli stofnana. Áfram sé því hætta á að verkefni blandist og skarist þannig að um tvíverknað og skrif- finnsku verði að ræða. Fram- kvæmdavaldið, hvort heldur sé hjá ríki eða sveitarfélögum, einkennist af samþjöppun valds til fámenns hóps manna. Nauðsynlegt sé að setja löggjöf um upplýsingaskyldu stjórnvalda og ennfremur sérstök stjórnsýslulög, þar sem m.a. verði gert ráð fyrir stjórnsýsludómstól. í séráliti sínu segir Kristinn að þar sem markmiðin með samein- ingu sveitarfélaga séu óljós verði niðurstaðan í skýrslu sveitarfélaga- nefndar mótsagnakennd. Annars vegar sé ætlunin að efla sveitarfé- lögin og gera þau hæfari til að ráða við verkefni sín og hins vegar sé niðurstaðan að þörf verði á stórauk- inni jöfnun tekna milli þeirra í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. í reynd verði Jöfnunarsjóður annar ríkissjóður. Kristinn segir ýmsar tillögur í skýrslunni gagnlegar til umræðu unt skipan stjórnsýslunnar og til- lögugerð sem miðar að því að við- halda samfelldri byggð í landinu. „Tvennt er rétt að undirstrika: Ég tel að menntakerfið eigi að vera á höndum ríkisins, þar með talinn grunnskólinn, og að kosningafyrir- komulag við sameiningu sveitarfé- laga eigi að grundvallast á rétti hvers sveitarfélags, sem er yfir mörkum um lágmarksíbúafjölda, til að ráða sinni framtíð." Hér er átt við að heildarniður- staða í atkvæðagreiðslum misstórra sveitarfélaga á tilteknu svæði geti ekki ráðið úrslitum heldur niður- staðan í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Þá telur Kristinn að fulltrúaráðs- fundur Sambands sveitarfélaga sé of fámennur vettvangur sveitar- stjómarmanna til þess að endur- spegla vilja sveitarstjórna landsins, en á honum hefur sveitarfélaga- nefnd byggt störf sín. Þá bendir hann á að fyrir Alþingi liggi stjóm- arfrumvörp um Framkvæmdasjóð aldraðra og ný hafnalög sem séu hornrétt á hugmyndir sveitarfélaga- nefndar. „Það er eins og nefndin sé keyrð áfram af einhverju fyrirfram ákveðnu tímaplani einstakra ráð- herra um ákvarðanir í janúar og gef- ist ekki tími til þess að ígrunda verkefni sitt sem skyldi." Hvorki Alþýðubandalagið sem Ilokkur né þingflokkur þess hafa mótað af- stöðu til tillagna sveitarfélaga- nefndar. Kristinn H. Gunnarsson: Markmiðin eru óljós og þess vegna verður niðurstaðan mótsagna- kennd. Kristinn telur að höfð séu enda- skipti á hlutiimim hjá nefitd- iiini. Aður enfarið sé að endur- skipuleggja mörk sveitarfélaga þurfi aö gera grein fyrir mark- miðum stjórnsýslunnar í heild, ekki aðeins stjórnsýslu sveitar- félaga heldur einnig ríkisins. Mand sker sig úr Efnahagsmálaráðuneyti? Viðfangsefni hreyfingarinnar hafa líka breyst. Til hennar em gerðar auknar kröfur á sviði starfsmenntun- ar. Það má reyndar segja það í heild um viðfangsefni verkalýðshreyfing- arinnar að komi félagsmenn ekki til hreyfingarinnar þá verði hún að koma til þeirra með einhverju móti. - Grípur ekki verkalýðshreyf- ingin inn í þjóðarpólitíkina á allt annan hátt en hún gerði áður fyrr? - Jú, drottinn minn dýri! Það má kannski segja að árið 1990 hafi verið framið valdarán. Þessir svokölluðu aðilar vinnumarkaðarins tóku völdin af ríkisstjórn og settu upp ákveðna efnahagsáætlun. Margir vilja að eitt- hvað svipað gerist núna. Auðvitað eru þessar breytingar til komnar vegna þess að hækkanir á grunnkaupi hafa ekki dugað vel til að tryggja kaupmátt og því hefur orðið að grípa til annarra aðferða. Tilgang- urinn hlýtur að vera sá að menn fái eitthvað fyrir þessar krónur sem þeir fá í launaumslagið. Það hefur orðið til þess að menn hafa farið að hugsa um hve margt annað en upphæðin í launaumslaginu hefur áhrif á kjör. Fólk er með skuldir og borgar vexti, verðlagið skiptir mjög miklu máli - í stuttu máli sagt allt umhverfi manna mótar kjör þeirra. Þetta veldur því að hreyfingin verður að hafa áhrif á efnahagseftir- lit á hverjum tíma Hlutverk verkalýðshreyfingar- innar Ég er þó alls ekki þeirrar skoðunar að það sé hlutverk verkalýðshreyf- ingarinnar að stjórna efnahagsmál- um á íslandi. Hreyfingin má alls ekki láta gera sig að eina ábyrga að- ilanum í þjóðfélaginu. Nú bíður rík- isstjórnin og segir: Við erum að bíða eftir tillögum frá aðilum vinnumark- aðarins. Þetta segja þeir sem voru kosnir til að stjórna landinu. Svo er engin samstaða í röðum atvinnurek- enda. Þeir geta ekki komið með neinar tillögur. Á þá verkalýðshreyf- ingin ein að koma með tillögur í efnahagsmálum? Á hreyfingin að koma með tillögur urn að skerða kjör eigin félagsmanna? Við þær aðstæður er hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að verja sfna félagsmenn og reyna að beita áhrifum sínum í þá átt að kjaraskerð- ing komi sem sanngjarnast niður - þ.e. lendi fyrst og fremst á betur stæðu hópunum í samfélaginu. Margir telja að kjaraskerðing sé að ganga yfir þessa þjóð og það er óhjákvæmilegt ef tekjur hennar í heild eru að ntinnka. Það er ekki hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að stjórna framkvæmdum á slíkri kjaraskerðingu. Efnahagsaðgerðir eru viðfangsefni ríkisstjórnar. Verka- lýðshreyfingin hefur ekki forsendur til að vera gerandinn í því máli. Hún hefur ekki umboð til þess og ekki þau tæki sem þarf til að fylgja því eftir. Verkalýðshreyfingin getur ekki sett lög. Ef hún á að gera efnahags- ráðstafanir verður hún að fá löggjaf- arvald. - Yrði þingið þá ekki lagt niður í sparnaðarskyni? - Það væri sjálfgefið. En í alvöru talað held ég að það sé hættuleg þró- un ef verkalýðshreyfingin er að verða sá aðili í þjóðfélaginu sem allt- af tekur á sig alla ábyrgð. Þetta lið sem vill að verkalýðs- hreyfingin sé svona ábyrg skammtar sér meira og minna allt sjálft. Taktu til dæmis bankana. Ekki veit ég hversu oft er búið að reyna að semja um að lækka vexti í þessu landi. Rík- ið tekur líka alltaf það sem það telur sig þurl'a og sker niður það sem það vill skera. Þá er ekki verið að tala um samráð. Þá hugsar hver um sig og það verður verkalýðshreyfingin að gera líka. Hún á að hugsa um sig og sína félagsmenn en ekki vera örygg- isventill á samfélaginu. Kristján Jóhann Jónsson I samanburði við önnur norræn ríki er hlutdcild sveitarfélaga í samneyslu á Islandi mun lægri, en hlutdeild ríkisins hærri. Á Islandi sinnir ríkið ýmsum fjárfrekum verkefnum sem sveitarfélög ann- ast annarsstaðar á Norðurlöndum vegna þess hve öflug þau eru. Þetla kemur fram í áfangaskýrslu sveitarfélaganefndar og segir m. a. að það sé eðlilegt að ríkisvaldið ann- ist fleiri verkefni á Islandi en gerisl í grannlöndunum vegna þess hve sveitarfélög hér á landi séu fámenn. Einnig valdi fámennið í landinu því að nálægð ríkisins við íbúana sé meiri en annarsstaðar á Norðurlönd- um. Samanburður á verkefnum sveit- arfélaga á Norðurlöndum leiðir í ljós að þau eru mjög svipuð ef ísland er undanskilið. Grunnskólar eru alls staðar verk- efni sveitarfélaga en á íslandi greiðir ríkið Iaun en sveitarfélögin sjá um rekstur skólanna. Heilsugæsla er verkefni ríkisins á íslandi en sveitarfélaga í Noregi og Danmörku, léna í Svíþjóð en í Finn- landi er heilsugæsla verkefni byggðasamlaga. Löggæsla er hvergi verkefni sveit- arfélaga en fyrirkomulag hafnamála virðist vera með mismunandi hætti. Framhaldsskólar og sjúkrahús eru verkefni fylkja í Noregi, amta í Dan- mörku, léna í Svíþjóð (ekki allir framhaldsskólar) og byggðasamlaga í Finnlandi (ekki allir). Hér á landi sér ríkið um þessa þætti. Þjónusta við fatlaða er almennt verkefni sveitarfélaga en stofnanir fyrir fatlaða eru oft reknar af milli- stjómsýslustigum. Hér á landi rekur ríkið ýmsar stofnanir fatlaðra en sveitarfélögin annast ýmsa þjónustu við þá.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.