Vikublaðið - 19.11.1992, Síða 16
VIKUBUKÐIÐ
Óheft sókn á
/
Islandsmið
Steingrímur Hermannsson, Kristín Astgeirsdóttir og Svavar Gestsson
töldu vaxtalœkkun fœra leið.
Fyrsti sameiginlegi og opinberi ftmdur stjómar-
andstöðuflokkanna
Efasemdir um friðunargildi kvótakerfisins vegna lélegra aflabragða
Afli á úthaldsdag 20% minni og stóraukinn kostnaður á hvert kíló.
Samstaða um
aðalatriðin
Vikublaðið hefur það eftir
áreiðanlegum heimildum að í röð-
um útgerðarmanna gæti nú sívax-
andi efasemda um að kvótakerfið
sé það verndartæki fyrir botnfisk-
tegundir sem því er ætlað að vera.
Til viðbótar fyrri efasemdum, svo
sem vegna þess hve miklu hefur
verið hent, tilfærslu á veiðiheim-
ildum fra bátum til togara og auk-
inni sókn í smáfisk, komi nú sú
staðreynd að þegar aflabrögð séu
léleg valdi kvótakerfið því að sótt
sé af sífellt meiri þunga.
Þær fullyrðingar heyrast að það
hefði sáralitlu breytt, hvað sóknar-
þunga togaraflotans snertir, þótt alls
enginn kvóti hefði verið við lýði frá
og með hausti 1991. Aflabrögð hafi
einfaldlega verið það léleg, sérstak-
lega af þorski, að flotinn hafi verið
keyrður á fullu og reyndar ekki dug-
að til. Möguleikar útgerðaraðila til
að færa veiðiheimildir (geyma) milli
ára voru mjög víða fullnýttir við síð-
ustu kvótaáramót sl. haust og þá hafi
kvótinn einfaldlega hætt að skipta
máli.
Fyrirtæki sem bæði reka útgerð og
fiskvinnslu eru mikið til hætt að
reyna að beina sókninni í ákveðnar
tegundir heldur er farið út með því
hugarfari að ná í einhvern afla, og
svo er kvóta skipt eftir þörfum.
Reyndur útgerðarmaður sagði við
tíðindamann Vikublaðsins að hann
sæi ekki annað en að sóknarmynstrið
væri að færast í svipað horf og það
var fyrir daga kvótakerfisins.
Algert áhugaleysi á veiðiheimild-
um Hagræðingarsjóðs ber þessu
ástandi einnig vitni þó að fleira komi
reyndar til.
Við þessar aðstæður kernur mun-
urinn á aflamarkskerfinu og öðrum
friðunarráðstöfunum skýrt í ljós.
Aflamarkið getur valdið því (þegar
til er í landinu floti nteð gífurlega af-
kastagetu) að sóknin vex og vex með
minnkandi afla. Sóknartakmarkanir
eða svæðis- og/eða veiðarfærabundn-
ar friðunaraðgerðir eiga það hins
vegar yfírleitt sammerkt að í þeim
felst a.m.k. einhver hlutfallsleg frið-
un, jafnt fyrir stóran sem lítinn stofn,
við góð jafnt sem léleg skilyrði.
Afleiðing lélegri aflabragða og
um leið viss sönnun þess að kvóta-
kerfið er lítil verndaraðgerð, a.m.k. á
hefðbundinni veiðislóð togara þessa
mánuðina, er svo stóraukinn kostn-
aður við útgerðina.
Samkvæmt upplýsingum frá tog-
araútgerðum fyrir norðan er afli á út-
haldsdag nálægt 20% minni sl. ár
heldur en í góðum árum þar á undan.
Tilkostnaður við veiðarnar minnkar
aftur á móti lítið, svo útkoman verð-
ur stóraukinn kostnaður á hvert kíló.
Á fjölmcnnum fundi scm Al-
þýðubandalagið í Reykjavík efndi
til á Hótel Lind sl. þriðjudags-
kvöld kom fram samstaða um öll
meginatriði efnahagsmála í máli
fulltrúa núverandi stjórnarand-
stöðuflokka. Það var enda mat
þeirra að létt verk yrði að mynda
ríkisstjórn Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Kvennalista
ef flokkarnir hlytu tilskilinn
stuðning.
Þetta var fyrsti opinberi og al-
menni fundurinn sem fulltrúar
stjómarandstöðuflokkanna hafa efnt
til sameiginlega á kjörtímabilinu. í
máli Kristínar Ástgeirsdóttur,
Kvennalista, Steingríms Hermanns-
sonar, Framsóknarflokki, og Svavars
Gestssonar, Alþýðubandalagi, var
áhersla lögð á 2-3 % vaxtalækkun og
skyldu stjórnvalda til þess að beita
sér af fullum þrótti í slíkri viðleitni.
Kristín og Steingrímur tóku sérstak-
lega undir þau orð Svavars að sem
upphafsaðgerð þyrfti að afnema fjár-
magnsvísitölur því að lánskjaravísi-
talan hefði tilhneigingu til þess að
frysta ástandið.
Það var mat frummælendanna
þriggja að stjórnarmyndun flokka
þeirra væri annarrar handar verk,
þegar og ef þeir fengju aðstöðu og
meirihluta til. Samstaða væri um öll
meginatriði efnahagsstefnu og þess-
vegna væri stjórnarmyndun létt verk.
Það vakti sérstaka athygli að
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, sagði að
samningurinn unt Evrópska efna-
hagssvæðið stangaðist tvímælalaust
á við stjórnarskrá íslenska lýðveldis-
ins.
Askriftarsmii
Vikublaðsins
er 17 500
Vikublaðið þakkar þeim u.þ.b. eitt þúsund einstaklingum
og fjölskyldum sem gerst hafa áskrifendur að blaðinu á þann
veg að greiða þrjá mánuði fyrirfram. Þessir þúsundmenningar
hafa látið Vikublaðinu í té nesti og nýja skó og sýnt útgáfunni
kærkomið trúnaðartraust.
Vikublaðið er einnig sent fyrrverandi áskrifendum Þjóð-
viljans í trausti þess að í þeim hópi séu fjölmargir sem gerast
vilja fastir áskrifendur að nýja blaðinu. Þeir eru vinsamlega
beðnir að hafa samband í áskriftarsíma sem er 91 - 17 500 og
láta vita hvort þeir vilja fá Vikublaðið sent áfram.
s
Askriftargjald er kr. 1000 á mánuði en þeir sem greiða með
Visa eða Eurocard fá 10% afslátt.
Vikublaðið hefur hafið göngu sína.
Siáist með í förina.