Vikublaðið


Vikublaðið - 16.07.1993, Side 9

Vikublaðið - 16.07.1993, Side 9
VIKUBLAÐIÐ 16.JÚLÍ 1993 9 Merkar tilraunir gerðar á Dalvík Með því að láta eldisfisk hrygna á mismunandi árstímum má margfalda hagkvæmnina í seiðaeldinu er hversu léleg nýtingin er á tækjum og búnaði í seiðaeldinu," segir Olafúr. „Hrygningartími fisksins stendur ekki nema tvo til þrjá mánuði á ári, afganginn af árinu standa kerin og annar búnaður ónotaður. I Evrópu hafa menn ýmist farið út í það að vera með tvær eða fleiri tegundir sem hrygna á mismunandi tímum, eða að láta hluta af klakstofninum hrygna á öðrum tíma. Það er gert með því að breyta hrygningartí- manum með ljósi. Hjá okkur eru lúðueldi á til- raunastigi og við fáum bara hrogn á vorin en þurfúm svo að bíða í ár eftir næstu hrygningu. Þegar Öl- unn á Dalvík fór á hausinn fékk ég þá hugmynd hvort ekki væri hægt að nota aðstöðuna þar til að gera tilraunir með að breyta hrygn- ingartímanum. Þarna var mátulega stór stöð á heppilegum stað því það er ekki svo langt frá höfuð- stöðvunum á Hjalteyri út á Dalvík. Við höfðum samband við Haf- rannsóknastofnunina í Björgvin í Ef forsjálnin sem höfð er að leiðarljósi hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hefði ráðið ferðinni í íslensku fiskeldi væri öðruvísi umhorfs í atvinnugrein- inni en raunin er. Eða skyldu þau vera mörg fiskeldisfyrirtækin sem hafa starfað í sex ár án þess að selja svo mikið sem einn ugga en skulda samt ekki krónu? Hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hefur verið unnið að rannsóknum á því hvort hagkvæmt geti reynst að stunda lúðueldi. Þarna er um ffum- herjastarf að ræða því fyrstu lúðu- seiðin sem lifðu af klak í kerjum fyrirtækisins á Hjalteyri litu dags- ins ljós árið 1990, fimm árum eftir að fyrsta lúðuklakið undir hand- leiðslu manna átti sér stað í heim- inum. Og Ólafúr Halldórsson ffamkvæmdastjóri hefúr góða von um að fyrirtækið verði meðal þeirra fyrstu í heiminum sem setja fjöldaffamleidda lúðu á markað. En hvemig er þetta hægt án þess að taka krónu að láni? Jú, það er gert með því að láta innborgað hlutafé standa undir rekstrargjöld- um ásamt styrkjum úr rannsókna- og vísindasjóðum. Fyrstu árin stóð hlutaféð að öllu leyti undir útgjöld- um en með tímanum hefur hlutur styrkjanna vaxið enda er fyrirtækið í samstarfi við háskóla og vísinda- stofúanir hér á landi, í Noregi og Svíþjóð. Hluthafarnir eru fyrirtæki og einstaklingar - einkum í sjávar- útvegi - ásamt sveitarfélögum og opinberum stofnunum. Stuttur hrygningartími Meðal þeirra síðastnefúdu er Byggðastofúun sem lagði fram eigur fiskeldisfyrirtækisins Öluns hf. á Dalvík sem hlutafé. Þar er nú verið að gera rnerkilegar tilraunir sem gætu valdið tímamótum í fiskeldi og aukið hagkvæmni grein- arinnar vemlega. „Eitt af vandamálum fiskeldisins Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri Fiskeldis EyjaJjarðar til hagri ásamt tveim starfsmönnum á Hjalteyri, þeim Amari Jónssyni líffrteðingi og stöðv- arstjóra á Hjalteyri (tv.) og Steindóri Helgasyni rafvirkja. Alls vinna sex manns hjáfyrirttekinu. Mynd: Þröstur Haraldswn. Sigmar Hjartarson líjfræðingur við töhmna sem stjómar Ijósunum í eldis- kerjunum á Dalvík. Tilraunin snýst um aðplatafiskinn til að hrygna á mis- munandi árstímum. Mynd: Pröstur Haraldsson. Noregi og kynntum þessa hug- mynd okkar, en þar á bæ ráða menn yfir mikilli þekkingu á fisk- eldi. Einnig höfðum við samband við Háskólann í Gautaborg en þar em menn sérffæðingar í hormóna- breytingum í fiski. Við höfum ffá upphafi átt gott samstarf við Haf- rannsóknastofnun í Reykjavík sem hefur ma. lagt okkur til lúðu til að nota í tilraununum. I samráði við þessar stofnanir gerðum við þriggja ára rannsókna- áætlun sem lögð var fyrir rann- sóknaráð Islands, Noregs og Sví- þjóðar, Norræna iðnþróunarsjóð- inn, Norrænu ráðherranefndina og íslenska sjávarútvegsráðuneytið. Þessir aðilar ákváðu að styrkja til- raunina sem hófst í fyrra og á að ljúka í árslok 1994.“ Fiskurinn plataður með Ijósum „Við leggjum alla áherslu á lúðuna þótt við séum einnig með nokkur stykki af hlýra og steinbít í kerjunum. A Dalvík gemm við tilraunir með fiskinn á þann hátt að við skiptum honum í þrennt. Eðlilegur hrygningartími er í mars og einn hópurinn er látinn vera á því rólinu. Öðrum hópnum er flýtt þannig að hann hrygni í nóvember en þeim þriðja seinkað ffam í júlí. Við erum með tölvustýrt ljósakerfi sem við notum til að breyta ljóslot- unum í kerjunum. Forritið sem stjórnar því er frá Háskólanum í Þrándheimi og gefur okkur kost á að haga lýsingunni að vild. Tilraunin hófst í fyrra með því að einum hópnum var flýtt og öðrum seinkað. Það tekur sinn tíma fyrir fiskinn að laga sig að þessurn brey'tingum svo við eigum ekki von á að sjá neinn árangur fyrr en á næsta ári. Við tökum með reglulegu millibili blóðsýni úr 70- 80 fiskum. Þau eru send til Gauta- borgar þar sem fylgst er með hor- mónabreytingum sem verða í fisk- ununi. Framtíðardraumurinn er svo að hrognin verði kreist úr fiskinum á Dalvík og þeim ekið inn á Hjalteyri þar sent seiðaeldið fer fram. Vonandi verður rúta í förum þarna á milli, helst daglega! Hingað til hefur allt gengið vel, fiskurinn þrífst og allt er í lagi. Það hefur sýnt sig í tilraunum erlendis að það er hægt að plata þessi grey, en við nomm eingöngu ljós við tilraun- irnar, engin lyf eða hormónagjafir. Breytingar á ljósi eiga að nægja. Ef þetta gengur eins og við vonum að það geri má líkja þessu við loðnuverksmiðju sem fengi hráefúi átta til tíu mánuði á ári í stað tveggja til þriggja mánaða. Við það margfaldast hagkvæmnin," segir Ólafúr. Styttist í jjóldaframleiðslu Af seiðaeldinu á Hjalteyri er það að ffétta að þar er enn verið að glíma við ýmis vandamál sem tengjast svonefndri ffumfóðrun. Lúðan hrygnir lirfúm sem fæðast með kviðpoka sem hefúr að geyma næringu til fyrstu viknanna. Við umbreytinguna í seiði fer dýrið að taka til sín fæðu úr umhverfinu og þar hafa helstu vandamálin komið upp hingað til. Sú leið hefúr verið valin að rækta fóðrið handa seiðunum en ala þau ekki á náttúrulegu fóðri eins og gert hefur verið í Noregi. Með eigin fóðurffamleiðslu er hægt að stjóma öllu ferlinu frá hrygningu til fullvaxinnar lúðu og útiloka áhrif veðurs og vinda á ffam- ieiðsluna. Síðustu tvö árin hafa verið ffam- leidd þúsundir seiða. I ffamtíðinni er fyrirhugað að flytja þau til Þorlákshafnar þar sem seiðin verða alin upp í sláturstærð, fimm til sjö kíló, en það tekur þrjú ár. I stöðinni í Þorlákshöfn (sem áður hét ísþór hf.) er hægt að framleiða 100-150 tonn af lúðu á ári og auðvelt að auka afkastagetuna upp í 500 tonn ef þörf krefur. Ólafur er bjartsýnn á að fjöldaframleiðsla verði að veruleika á næstu árum. „Við erum á réttri leið. Það tekur sinn tíma að leysa vandamálin en þetta er hægt. Við höfum möguleika á að verða fyrstir í heiminum að koma á fjöldaffam- leiðslu og þá er hagnaðarvonin mikil. Lúða er dýr fiskur, en það verður eflaust sama þróunin og í öðm fisk- eldi að verðið lækkar eftir því sem ffamleiðslan eykst og fleiri fyrir- tæki koma til sögunnar. Okkar möguleiki er sá að verða meðal þeirra fyrstu og nota þann hagnað sem þá fæst til að greiða niður kostnaðinn af rannsóknunum. Eg er á því að við eigum mestan möguleika í kaldsjávartegundum eins og lúðu, en valið á tegundum verður fyrst og síðast að ráðast af - því hvernig samkeppnisaðstaða okkar er á markaði fyrir eldisfisk,“ segir Ólafúr Halldórsson, sjávarlíf- fræðingur og ffamkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar. -ÞH AKKUR hf. Byggingaverktaki Námuvegi 12 Ólafsfirði Kristinn Kr. Ragnarsson og Jón Halldórsson Trésmíðaverkstæði s. 96-62596 Kristinn Kr. Ragnarsson Framleiði pílára í handrið Sími 96-62479 TFíOL L FJJJL L JJfJ PLASTSfJETTJ POTPPJEFJ VATj jstaj jkafj hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamenn... Útibú KEA í Eyjafirði Verslanir á sex stöðwn í Eyjafirði. Vöruhús KEA Matvöruverslanir í göngugötunni KEA á Akureyri GUsileg verslun hlaðin af útilegu- og veiðivörum. Fjórar matvöru- verslanir.; hver með sínu sniði vel stað- settar fyrir ferðafólk. Góða ferð og akið varlega!

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.