Vikublaðið


Vikublaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 5
VIKUBLAÐIÐ 24. MARS 1994 Borgarstjórnarkosningarnar STEFNUYFIRLYSING REYKJAVIKURLISTANS Glæsileg höfuðborg er stolt hverrar þjóðar. Gæði hennar felast ekki einungis í fallegu yfirbragði, glæstum húsum og steypt- um akbrautum, heldur fyrst og frernst í aðltúnaði og líðan þeirra sem borg- ina byggja. Þar eiga allir að vera jafh réttháir, ungir og aldnir, konur og karlar, sjúkir og heilbrigðir. Reykjavík getur vissulega státað af nýlegum glæsibyggingum sem sumar hverjar hafa komið óþynnilega við sameiginlega sjóði borgarbúa. A sama tíma er atvinnuleysi í borginni meira en nokkru sinni fyrr og félagsleg þjón- usta hefur hvergi nærri undan. Ut- gjöld borgarinnar vegna gæluverkefiia Sjálfstæðisflokksins á liðnum árum hafa farið vaxandi og skuldir hennar aukist gríðarlega. Við þessar sérstöku aðstæður hafa fern stjórnmálasamtök í Reykjavík - Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Kvennalist- inn - gert ineð sér kosningabandalag við borgarstjórnarkosningarnar vorið 1994. Kosningabandalagið mun leita eftir stuðningi borgarbúa til þess að fá meirihluta í kosningunum þannig að unnt verði að vinna eftir nýjum á- herslum í Reykjavík eftir nær sam- fellda áratuga stjórn Sjálfstæðisflokks- ins. í því skyni er boðinn fram sam- einaður Reykjavíkurlisti fyrrnefndra stjórnmálasamtaka og annars áhuga- fólks um breytta stjórnarhætti í borg- inni. Reykjavíkurlistinn býður fram und- ir kjörorðinu OPIN OG LÝÐRÆÐ- ISLEG BORG - heimili - atvinna - skóli, og vili með því leggja höfuðá- herslu á þá grundvallarþætti sem öðr- um fremur stuðla að velferð einstak- linganna í nútímaborgarasamfélagi. Það er stefita Reykjavíkurlistans að styrkja þessa þætti með því að bæta úr brýnni þörf fyrir betri og sveigjanlcgri þjónustu við reykvískar fjölskyldur, stuðla að aukinni atvinnu, vinsam- legra umhverfi, opnara stjórnkerfi og lýðræðislegri stjórnarháttuin. I starfi sínu mun Reykjavíkurlistinn leitast við að hafa hugmyndir félags- hyggju, kvenfrelsis og umhverfis- verndar að leiðarljósi og leggja áherslu á eftirfarandi inarkmið: Valddreifing og annað viðmót Það er markmið Reykjavíkurlistans að auka valddreifingu í borginni þannig að frumkvæði borgarbúa fái notið sín. Stjórnkerfi borgarinnar verði fært til nútímahorfs, gert lýð- ræðislegra, ábyrgara og skilvirkara en nú er. Þessum markmiðum hyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að setja á stofn embætti umboðsmanns borgarbúa. ♦ Með því að koma á skýrri hverfa- skiptingu borgarinnar með það fyrir augum að íbúarnir geti haft raunveru- leg áhrif á nánasta umhverfi sitt og þá þjónustu sem veitt er í hverfinu. ♦ Með því að auka rétt borgarbúa til að greiða atkvæði um einstök borg- armál. ♦ Með því að koma á meiri sam- vinnu við félagasamtök og safnaðar- starf í hverfunum. ♦ Með því að auka hlut kvenna í embættismannakerfinu og vinna að því að jafna stöðu kynjanna í fyrir- tækjum og stofnunum borgarinnar. ♦ Með því að auka upplýsinga- skyldu borgarstjórnar og stjórnkerfis borgarinnar verulega frá því sem nú er, með það fyrir augum að gera borg- arfulltrúa og embættismenn ábyrgari gagnvart borgarbúum. Atvinna,já takk Það er markmið Reykjavíkurlistans að gera Reykjavík að miðstöð nýsköp- unar og þróunar í atvinnumálum og Qpin og lýðræðisleg borg atvinna - skóli stuðla þannig að fjölbreyttu atvinnu- lífi í framtíðinni. Unnið verði mark- visst að því að draga úr vanda þeirra sem eru atvinnulausir. Þessum markmiðum hyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að gera sóknaráætlun í samvinnu við verkalýðsfélög og at- vinnurekendur í Reykjavík um hvern- ig örva megi hjól atvinnulífsins í borg- inni, skapa störf fyrir þá sem eru at- vinnulausir eða styrkja þá til náms sem gæti bætt stöðu þeirra á vinnu- markaði. ♦ Með því að örva nýsköpun í at- vinnumálum, með samræmdu og skipulögðu stuðningskerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. ♦ Með því að stofna atvinnuþróun- arsjóð sem láni með hagstæðum kjör- um til nýrra verkefna sem líklega eru til að skapa störf til frambúðar. ♦ Með því að móta innkaupa- og útboðsstefnu sem taki mið af inn- lendri framleiðslu. ♦ Með því að skapa störf fyrir ungt fólk svo að starfsorka þess og mennt- un komi sem fyrst að notum í atvinnu- lífinu. ♦ Með því að samhæfa krafta þeirra sem vinna að ferðamálum í borginni og gera borgina að gestgjafa á alþjóð- legan mælikvarða. ♦ Með því að styrkja stöðu Reykja- víkur og stuðla að sátt um hana sem höfuðborg allra landsmanna, sem eflir samvinnu þeirra en ekki sundrungu. ♦ Með því að stuðla að launajöfn- uii milli karla og kvenna í þjónustu borgarinnar, tii dæmis með því að vinna að starfsmati í samvinnu við samtök launafólks. ♦ Með því að leggja áherslu á virka vinnumiðlun þar sem atvinnulaust fólk nýtur athygli og umhyggju. Börnin -fi-amtíð þjóðar- innar Það er markmið Reykjavíkurlistans að búa vel að barnafólki og leggja sitt af mörkum til að skapa öryggi og góð- ar ytri aðstæður í daglegu lífi fjöl- skyldnanna. Foreldrar fái stuðning til að takast á við hlutverk sitt og skólan- um verði sköpuð skilyrði til að sinna því uppeidis- og fræðsluhlutverki sem hann á að gegna í nútímaþjóðfélagi. Þessum markmiðum hyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að vinna markvisst að því að tryggja öllum börnum, sem á þurfa að halda, aðgang að leikskóla þann tíma dags sem foreldrar eru utan heimilis. Möguleikar á mismunandi rekstrarformi og dvalartíma verði auknir. ♦ Með því að endurskoða fyrir- komulag og eftirlit með dagvistun á einkaheimilum með það fyrir augum að gera hana öruggari og betri kost fyrir þá sem það kjósa. ♦ Með því að vinna að einsetningu allra grunnskóla í Reykjavík á næstu 4-6 árum og að skóladagurinn verði samfelldur. Lengd viðvera og/eða skóladagheimili standi þeim börnum til boða, sem á þurfa að halda. ♦ Með því að skipta borginni upp í nokkur skólahverfi með skólanefitd skipaðri fulltrúum viðkomandi hverf- is. ♦ Með því að byggja upp aðgengi- lega íjölskylduráðgjöf þar sem sérstök áhersla verði lögð á þjónustu við fjöl- skyldur barna og ungmenna. ♦ Með því að koina á virku sam- starfi allra þeirra sem vinna að málum barna og unglinga með fyrirbyggjandi starf í huga. ♦ Með því að borgaryfirvöld leggi sitt af mörkum til markvissrar upp- byggingar listnáms, starfs- og verk- náms í framhaldsskólum borgarinnar. Virðing á öllum ævi- skeiðum Það er markmið Reykjavíkurlistans að stuðla að auknum jöfnuði í lífskjör- um borgarbúa þannig að ytri aðstæð- ur komi ekki í veg fyrir að þeir geti lif- að með reisn. Aðstoð einstaklinga og fjölskyldur miðist við að hjálpa þeim til sjálfshjálpar. Þessum markmiðum hyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að félagsleg þjónusta og aðhlynning standi öldruðum til boða þegar þörf er á. ♦ Með því að bæta úr brýnni þörf fyrir þjónustu við aldraða hjúkrunar- sjúklinga og leggja áherslu á uppbygg- ingu hjúkrunarheimila. ♦ Með þvf að beita sér fyrir auknu ffamboði á leiguíbúðum, kaupleiguí- búðum og búseturéttaríbúðum í borginni. ♦ Með því að taka upp náið sam- starf við félög og samtök sem vinna að húsnæðismálum í borginni. ♦ Með því að leggja áherslu á upp- byggingu og aukningu forvarnarstarfs í heilsugæslu og félagslegri þjónustu, ekki síst með tilliti til þess að efla varnir gegn vímuefnum. ♦ Með því að bæta þjónustu við fatlaða og gera hana að eðlileguin þætti í félagsþjónustu borgarinnar. ♦ Með því að gera áætlun um að- gengi fatlaðra í samvinnu við samtök fatlaðra. Vistvæn höjuðborg norðursins Það er markmið Reykjavíkurlistans að Reykjavíkurborg taki forystu í um- hverfismálum hér á landi. Skipulag mannvirkja, borgarhverfa og allrar starfsemi taki mið af náttúrulegu um- hverfi, virði sögu borgarinnar og stuðli að umferðaröryggi og góðri þjónustu í öiluni íbúðarhverfum. Þessum markmiðum þyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að varðveita svæði þar sem eru sérstæði náttúru- eða menn- ingarverðmæti og auðvelda fólki að- gang að þeim til gagns, ánægju og vellíðunar. ♦ Með því að gefa öryggissjónar- miðum meiri forgang en verið hefur við hönnun umferðarmannvirkja og stefna markvisst að því að fækka um- ferðarslysum. ♦ Með því að leggja aukiia áherslu á bættar aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og efla og end- urbæta almenningssamgöngur. ♦ Með því að auka ræktun í borgar- landinu og gera áætlun um umönnun lands. ♦ Með því að endurskoða aðferðir við sorp- og skólpförgun með það að markmiði að auka endurnýtingu og endurvinnslu og að nýta Iífrænan úr- gang til landbóta. Borgarlíf- menningarlíf Það er markmið Reykjavíkurlistans að efla list- og verkmenningu í borg- inni og styrkja Reykjavík sem miðstöð íslensks menningarlífs. Borgin á að stuðla að nýsköpun í menningarmál- um og styðja framtak og menningar- viðleitni áhugamanna og hópa. Borg- aruinhverfið á að hvetja fólk til þátt- töku í menningarlífi og gera því kleift að stunda íþróttir og útiveru sem eðli- legan þátt í daglegu lífi. Þessum markmiðuin hyggst Reykjavíkurlistinn ná með eftirfarandi hætti: ♦ Með því að búa öllum aldurshóp- um aðstöðu til skapandi tómstunda- starfs í hverfum borgarinnar. ♦ Með því að styrkja menningar- hlutverk skólanna og koma á auknu samstarfi milli þeirra og annarra menningarstofnana borgarinnar. ♦ Með því að móta menningar- stefnu í samráði við samtök lista- manna. ♦ Með því að styrkja stöðu handíð- ar og hönnunar í borginni, meðal annars ineð því að auka veg listiðnað- arnáms. ♦ Með því að efla almenningsí- þróttir og stuðla að því að aðgangur almennings að íþróttamannvirkjum í Reykjavík verði greiðari en nú er. ♦ Með því að fela frjálsum félaga- samtökum aukin verkefni á sviði í- þrótta- og tómstundamála. ♦ Með því að fela unglingum aukna ábyrgð á uppbyggingu og rekstri tóm- stundastarfs í þágu þeirra. ♦ Abyrgð ífjármálum og framkvæmdum Það er inarkmið Reykjavíkurlistans að stöðva bruðl og vanhugsaðar skyndiákvarðanir í fjármálum borgar- innar og hefja endurreisn borgarsjóðs. Snúið verði af braut kostnaðarsamra gæluverkefna en þess í stað verði ákvarðanir um verklegar framkvæmd- ir byggðar á þörfum borgarbúa fyrir nýja eða bætta þjónustu. Þessum markmiðum hyggst Reykjavíkurlistinn ná með effirfarandi hætti: ♦ Með því að standa vörð um tekjustofna Reykjavíkur gegn síendur- teknum árásum ríkisvaldsins og vinna að auknii sjálfstæði sveitárfélaga til tekjuöflunar. ♦ Með því að endurskoða rekstur og stjórnkerfi borgarinnar með það fyrir augum að gera það hvort tveggja hagkvæmara og skilvirkara en nú er. ♦ Með því að setja skýrar reglur um framkvæmdir á vegum borgarinn- ar þar sem kveðið verði á um hvernig staðið skuli að frumathugun, áædana- gerð, verklegri framkvæmd og skilamati. ♦ Með því að bjóða út allar ný- ffamkvæmdir sem og allt viðhald þar sem því verður við komið. ♦ Með því að stöðva einkavæðingu þjónustufyrirtækja borgarinnar og færa rekstur SVR í fyrra horf.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.