Vikublaðið - 08.04.1994, Page 1
Kvenmynd fjöl-
miðlanna
Bert hold og tælandi stúlkur
troðfyila hvern miðilinn á
fætur öðrum en málefnaleg-
um frétttaviðtölum við konur
fjölgar lítið. BIs. 8-9
ValJakobínu
Rithöfundurinn, bóndakonan
og sósíalistinn Jakobína Sig-
urðardóttir skilur effir djúp
spor í íslenskum bókmenntum
og baráttuhreyfingu vinstri-
manna. Bls. 5
Utanríkismál og
atvinnuleysið
Á vinstrivængnum eru hefð-
bundin baráttumál tekin til
urnræðu í ljósi breyttra tíma og
ný vandamál kalla á róttæka
stefhumótun. Bls. 12,13 og 14
13. tbl. 3. árg.
8. apríl 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Ingibjörg Sólrún
nýtnr meira trausts en Árni
Reykjavíkurlistinn er með 57,6 prósent samkvæmt könnun Hagvangs.
60,7 prósent treysta Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur betur en Árna Sigfússyni.
Skoðanakönnun sem Hag-
vangur opinberaði í gær sýnir
að væri gengið tíl borgar-
stjómarkosninga núna fengi
Reykjavíkurlistinn 57,6 prósent at-
kvæða en Sjálfstæðisflokkurinn
42,4 prósent. Þessi niðurstaða gef-
ur Reykjavíkurlistanum níu borg-
arfulltrúa, en miðað við skekkju-
mörk er stutt í að þeir séu átta. Þá
leiðir könnunin í ljós að 60,7 pró-
sent treysta Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur betur en Ama Sigfús-
syni tíl að stjóma borginni, en 39,3
prósent treystu Ama betur.
Niðurstöðurnar sýna að fylgi
Reykjavíkurlistans gæfi honum nú níu
manns í borgarstjórn en Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi sex. Hér er miðað við
þá sem afstöðu tóku í könnuninni, en
16,3 prósent tóku ekki afstöðu. Sam-
kvæmt því væri Gunnar Gissurarson
tækniffæðingur inni. Hins vegar ligg-
ur fylgi Reykjavíkurlistans samkvæmt
könnuninni mjög nálægt mörkum átt-
unda og níunda manns og ineð hlið-
sjón af nýlegri könnun Gallups, sem
sýndi nokkra sókn Sjálfstæðisflokks-
ins, virðist mega gera ráð fyrir því að
fylgið sé heldur að síga niður á við hjá
Reykjavíkurlistanum að óbreytm.
Bendir ýmislegt til þess að næstu vik-
urnar verði baráttan um áttunda sæt-
ið; um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur alþingismann hjá Reykjavíkurlist-
anum og Þorberg Aðalsteinsson
handboltaþjálfara hjá Sjálfstæðis-
flokknum.
Könnun Hagvangs var gerð í tveim
lotum fyrir og eftir páskahátíðarnar.
Náði úrtakið til 958 kjósenda á aldrin-
um 18 til 75 ára, en svarhlutfall reynd-
ist 70,9 prósent.
- Sjá nánari umfjöllun um
Reykjavíkurlistann á bls. 2 og
baksíðu.
Hrafninn floginn - óreiðan eftir
Pétur Guðfinnsson hefur tekið
við starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri ríkissjónvarpsins á
ný og Hrafn Gunnlaugsson farinn á
annan vettvang. Samkvæmt heirn-
ildum Vikublaðsins mætír Pétri hár
stafli af vandamálum efirir eins árs
stjómartíð Hrafns. Má nefna að á
fyrstu þrem mánuðum þessa árs
var Hrafh búinn að eyða tæplega
helmingnum af 31 milljón króna
útgjaldaramma skrifstofu fram-
kvæmdastjóra og gera auk þess
samninga til lengri tíma sem efrir
er að greiða.
Erfiðasta glíman á fyrstu vikum
Péturs verður þó að leysa fjárhagsleg
vandamál fféttastofu og íþróttadeildar
sjónvarpsins. Að óbreyttu vantar al-
gerlega fé til að standa straum af
kostnaði vegna kosningasjónvarps og
vegna sýninga leikja frá heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu. Við mótun
fjárhagsáætlunar þessa árs sýndi
Hrafii íþróttadeildinni lítinn skilning
og er alls óvíst að knattspyrnuunn-
endur fái HM-leikina, þótt búið sé að
greiða réttindin eða um helming af
alls 13 milljón króna kostnaði. Annar
kostur er sagður að skera niður inn-
lent íþróttaefni, nema til komi sérstök
aukafjárveiting.
I raun hefði staðan verið enn verri
ef samþykktar hefðu verið róttækar
niðurskurðartillögur sem Hrafn
kynnti deildarstjórum í janúar, án
undanfarandi samráðs. Eftir storma-
sama fundi ákvað Heimir Steinsson
útvarpsstjóri að leggja ffam sínar til-
lögur með hliðsjón af tillögum Hrafns
og þar vantaði t.d. fé í kosningasjón-
varp og HM. í tillögum Heimis var
gert ráð fyrir endurskoðun þessara tdl-
lagna um miðjan apríl.
Formaður Framsóknarflokks-
ins í opinbera rannsókn
Skiptastjóri þrotabús útgáfufé-
lags Tímans skrifar svarta
skýrslu um ráðstafanir for-
manns Framsóknarflokksins og vill
láta reyna á þær fyrir dómsstólum.
Samþykktar kröfur eru á bilinu 30 -
35 milljónir króna en peningaeign
þrotabúsins er um 10 milljónir
króna.
Skiptastjóri þrotabús Mótvægis hf.
sem gaf út dagblaðið Tímann til ára-
rnóta lagði ffam skýrslu á miðvikudag
þar sem forsvarsmenn fyrirtækisins og
Steingrímur Hermannsson forntaður
Framsóknarflokksins eru gagnrýndir
fyrir aðgerðir sem þeir stóðu fyrir síð-
ustu mánuðina sem 'l'íminn var á á-
byrgð Framsóknarflokksins.
Skiptastjórinn, Brynjólfur Kjart-
ansson, segir í skýrslu sinni „að full
ástæða er til þess að rannsaka gaurn-
gæfilega ýrnsar aðgerðir forsvars-
manna félagsins."
Eigendur DV tóku við rekstri Tím-
ans um áramót og Brynjólfur hefur
eftir þeirn að þeir hafi ekki keypt á-
skrifendaskránna afMótvægi hf. held-
ur af Framsóknarflokknum. „Ef rétt
er þá hefur Framsóknarflokkurinn
selt sömu skrána tvisvar," skrifar
Brynjólfúr en flokkurinn hafði áður
selt Mótvægi hf. sömu skrá.
Mótvægi hf. tók við rekstri Tfmans
á síðasta ári þegar Framsóknarflokk-
urinn reyndi að fá fleiri aðila til að
taka þátt í útgáfunni. Eftir sem áður
var flokkurinn stærsti eigandi blaðsins
og Steingrímur Hermannsson sá
maður sem hafði mest áhrif á stefnu
útgáfufélagsins, bæði sem stjórnar-
ntaður í Mótvægi og formaður Fram-
sóknarflokksins.
I skýrslu sinni skrifar skiptastjórinn
að „formaður stjórnar Mótvægis hf.,
sem er formaður Framsóknarflokks-
ins [samdi við] framkvæmdastjóra
Framsóknarflokksins um endurgjald
fyrir notkun á nafninu „Tíminn" og
skyldi endurgjaldið vera í því fólgið að
flokkurinn fengi, án greiðslu, auglýs-
ingar allt að fyrir kr. 250.000 á mán-
uði miðað við gildandi auglýsinga-
taxta án afsláttar. Sérstök ástæða er til
þess að láta reyna á samning þennan
fyrir dómstólum.“
Skiptastjóri hefur samþykkt kröfur
að upphæð 30 milljónum króna. Þar
af eru almennar kröfúr um 23 milljón-
ir. I'organgskröfur starfsmanna nema
um 15 milljónum króna en af þeim
hefur skiptastjóri samþykkti 7 millj-
ónir. Þessi upphæð gæti hækkað.
Stærsti kröfúhafinn er Landsbank-
inn með 10 milljóna króna kröfú.
Prentsmiðjan Oddi hefúr lýst kröfum
upp á 8,5 milljónir og fengið þær sam-
þykktar.
Peningaeign Mótvægis er um 10
milljónir króna og því er ólíklegt að
nokkuð fáist upp í almennar kröfur.
Stærsti kröfúhafinn með forgangs-
kröfur er Blaðamannafélag íslands og
lífeyrissjóður félagsins með 1,3 millj-
ónir króna.
í skýrslu skiptastjóra koma ffarn al-
varlegar athugasemdir unt greiðslu
Framsóknarflokksins á hlutafé og tal-
að um að það hafi verið greitt með
verðlitlum tækjum og viðskiptavild.
Þá er efast um lögmæti hlutafjáraukn-
ingar í félaginu og verður endurskoð-
andi fenginn til að fara yfir þær ráð-
stafanir.
„Ljóst er að rekstri félagsins var
haldið áffam löngu eftir að gefa átti
félagið upp til gjaldþrotaskipta og án
þess að nokkur leið út úr vandanum
hafi verið í sjónmáli," segir í niðurlagi
skýrslu skiptastjóra Mótvægis hf.