Vikublaðið


Vikublaðið - 08.04.1994, Qupperneq 3

Vikublaðið - 08.04.1994, Qupperneq 3
VIKUBLAÐIÐ 8. APRÍL 1994 Stjórnmátin 3 Arni Sigfusson Johnsen raulaði „Skattalagið" sitt fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar 1990. Þá var Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson heim við hlið. I texta sínum kvartaði Arni yfir þvf að fólk væri að sökkva dýpra í „skatta- flórinn" en boðaði að landnáms- draumurinn yrði látinn rætast. Og 1991 yfirgaf Davíð Oddsson borgar- stjórastólinn og settist að í forsætis- ráðuneytinu. Og Friðrik „Báknið burt“ Sophusson settist að í fjár- málaráðuneytinu. Hefur draumurinn ræst? Er verið að moka skattaflórinn? Hetjurnar hans Arna heimta þriðjungi hœrri skatt Framreiknað til núvirðis voru beinir skattar (aðallega tekjuskattur og eignaskattar) einstaklinga til ríkis- ins að meðaltali 13.139 milljónir króna á ári á tímabilinu 1988 til 1990. Þetta meðaltal hækkaði í 16.044 millj- ónir á tímabilinu 1991 til 1993 eða um 22,1 prósent að raungildi (heimild: fjármálaráðuneytið). Og samkvæmt fjárlögum fyrir 1994 á að innheifnta 17.425 milljónir króna í beinum sköttum á einstaklinga í ár. Þetta þýðir að í ár niunu Friðrik, Davíð ogjón Baldvin skattleggja ein- staklinga um 4,3 milljarða króna meir en Olafur, Steingrímur og Jón gerðu og Arni söng um. Munurinn er 32,6 prósent. Fólkið í landinu hefur sigið þriðjungi neðar í skattaflórinn. Og hvað gerir Árni? Nú „syngur“ hann um 10 lykla í atvinnumálum, þar sem trompið er að vísa á sanminga við ríkisstjórnina um skattalækkun á fyr- irtækin í borginni. Skattar á fólk hækka og hækka en Árni biður Friðrik að vera fyrirtækjunum góður. nna Skattajlór jyrirtækja gljáfœgður? En það hefur Friðrik einmitt leitast við að vera. Á valdatíma núverandi ríkisstjórnar hafa beinir skattar fyr- irtækja lækkað úr 4.954 milljónum (meðaltal 1991 til 1993) í 3.920 millj- ónir (fjárlög 1994) vegna lækkunar tekjuskatts og eignaskatts. Og er þá ótalin 5 milljarða króna niðurfelling aðstöðugjalds. Friðrik Sophusson og félagar tóku nefnilega völdin af Árna Sigfússyni Johnsen og öðrum sveitarstjórnarmönnum og afnant aðstöðugjald fyrirtækjanna. En hann hækkaði skatta fólksins til að bæta borginni og öðrum sveitar- stjórnum tekjumissinn. Skattaflór fyr- irtækjanna var ntokaður og skítnum vippað yfir í skattaflór fólksins. Og bætt unt betur. Þegar á heildina er litið hafa skattar og gjöld hins opinbera á einstaklinga hækkað á tímabili núverandi stjórnar um nettó 6,8 milljarða, en skattar og gjöld á fyrirtæki lækkað nettó unt 5,7 milljarða. Hér er allt tínt til, líka lækkun virðisaukaskatts á matvæli. Hér kernur margt til, fyrir utan beina hækkun á staðgreiðslunni. Per- sónuafsláttur hefur lækkað. Barna- bætur hafa lækkað. Vaxtabætur hafa lækkað. Og áffam mætti telja. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði þriðjungi hærri Hvað hefur Reykjavíkuríhaldið gert í skatttekjumálum sínum síðustu árin? Borgin fær 80 prósent aðstöðugjalds- ins endurgreitt frá ríkinu og fær síðan heimild til að hækka fasteignagjöldin með meiru. Reykjavíkurborg nýtir sér að fullu þá heiinild að hækka fasteignagjöld á Arna Sigfússonar Johnsen ppll lllll fkattalaýtö eftir Árna Sigfússon Johnsen borgarstjóra Sjálfstaeðistlokksins Er land cr þjáð og þnkið djúpum sánivt, þjóbin kreppt, afsköttum niðurlút, þá leitar hugur að landnámsmannaánim. Hví lögðn þeir íferðir hiúgað ÚU Svörin höfmn við á reiðum höndum. Er hclsið hafði skattafyrir vönd, þá sigldu þeir íleit að nýjum löndum og lögðii að við ísakalda strönd. viðlag: Þeir sögðu: Við böfunt skömm á skattastjórnum og skulum aldrei leyfa slíkar hér. Við munum kefa í miðstýringarkórnum og kjósa aukið valdfrelsi, kjósa aukið sjálfstæði, kjósa frelsisstjðm er þessi fer. En núna cr bún Snorrabúðin stekkur og Steingrímur að hækka skatta og giyón. Dýprafólk t skattaflórinn sckkur, áfjóshitanum fitna Óli ogjón. Við scgjuvi: (viðlag) Enn er von og ástceða að kætast þvííslands ævi ekki er nærri bálf vjð munuvi láta landná/nsdrauniinn rætast uvt frclsi til að hjálpa okkw sjálf. Við segjum: (viðlag) atvinnuhúsnæði í ár; gjaldið fer úr 1,19 í 1,4 prósent. Gera önnur sveitarfélög slíkt hið sama? Mjög fá, aðeins 9 af 31 kaupstöðum landsins. Meðaltalið hjá Kópavogi, Seltjarnar- nesi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garða- bæ og Keflavík er 1,067 prósent. Hlutfallslega er fasteignaskatturinn á atvinnuhúsnæði 31,2 prósent hærri í Reykjavík en í þessum sex nágranna- bæjarfélögum. ETm leið rukkar Reykjavík hærri fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði en flestir aðrir kaupstaðir. í ár er álagn- ingarprósentan 0,421 prósent í Reykjavík. Aðeins 4 af 31 kaupstöðum eru með hærri álagningu. I ofan- greindum sex kaupstöðutn er meðal- talið 0,37 prósent. Hlutfallslega er fasteignaskatturinn 13,8 prósent hærri í Reykjavík en í þessum bæjar- félögum. Afhverju innheimta þeir skattinn á skrifstofii- og verslunarhúsnæði? Þegar Friðrik tók aðstöðugjaldið af sveitarfélögunum afhenti hann þeint á móti hinn illa þokkaða sérstaka skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Þeg- ar Árni kynnti „lykla“ sína lagði hann til afnám þessa skatts. Sveitarfélögin voru samt ekki nauðbeygð til að nýta sér þennan skatt frekar en þau vildu eða þurftu. En Reykjavíkurborg tekur í ár skattinn á verslunar- og skrifstofu- húsnæði fegins hendi ffá ríkinu og leggur hann á af fullum þunga, 1,25 prósent. Árna og félögum var og er fullkom- lega frjálst að fara að fordæmi Garð- bæinga, Seltirninga, Dalvíkinga, Ol- afsfirðinga og Vestmannaeyinga og innheimta þennan skatt alls ekld. Eða hafa hann 0,9 prósent eins og níu sveitarfélög gera, t.d. Mosfellsbær, Akranes og Hveragerði. En Markús Örn og Arni völdu að innheimta skattinn og gjörnýta hann. Og ekki má gleyma því að unt 70 prósent þessa skatts kemur ffá skrif- stofu- og verslunarfyrirtækjum í Reykjavík. Útsvarið hækkað um 2.500 krónur ájjölskyldu Og ekki er Árni beinlínis frumlegur að leggja til að skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði verði lagður niður. Skatturinn var búinn til 1979 og allar götur síðan hafa sjálfstæðismenn lofað afnámi hans. Það tókst ekki þótt Al- bert Guðmundssyni, Þorsteini Páls- syni og Friðrik Sophussyni hafi boðist vist í fjármálaráðuneytinu. Friðrik ákvað að inoka þennan skatt yfir í flór sveitarfélaganna. I viðkomandi tekju- stofnalögum er beinlínis gert ráð fyrir því að þessi skattur falli síðan inn í núverandi fyrirkoinulag fasteigna- skatta. Árni leggur ineð öðrum orðum til afnám skatts sem átti hvort sem er að fjúka. Þarna vantar hljóðstafi og stuðla, eins og surns staðar í Skatta- laginu hans Árna. En hvað með blessaða útsvarið, hefur það ekki farið lækkandi hjá borgaríhaldinu? Að sönnu er útsvarsálagningin í heimiluðu lág- marld í Reykjavík. Búið að vera 6,7 prósent undanfarin ár. 1988 til 1990 námu útsvarstekjur borgarinnar að ineðaltali 5.829 milljónum króna á núvirði á ári eða 61.202 krónur á hvern íbúa. 1991 til 1993 námu út- svarstekjurnar síðan 6.144 milljónum króna að meðaltali á ári. Hækkunin er 315 milljónir eða nær 2.500 lcrónur á hverja þögurra rnanna fjölskyldu. Og í ár hækkar ú'tsvarið hjá öllum sveitar- félögum, hjá Reykjavík úr 6,7 í 8',4 prósent. Megum við heldur heyra Þykkvahæjarkartöflumar Samkvæmt upplýsingum embættis Ríkisskattstjóra úr skattskrá 1993 voru lagðar á einstaklinga alls 44,5 milljarðar króna í tekjuskatti, eignar- sköttum óg útsvari, en á fyrirtæki (lögaðila) 5 milljarðar í tekjuskatti og eignarsköttum. Onnur bein gjöld eru léttvæg fundin eftir afnám aðstöðu- gjaldsins. Innbyrðis skipting þarna á milli eru 90 prósent á rnóti 10 pró- sent. Hví ekki ganga skrefið til fulls og afnema þessa skatta á fyrirtækin í nafni atvinnuleysisins? Til að bæta hinu opinbera tekjumissinn þyrfti að hækka skatta einstaklinga uin „aðeins“ 11 prósent. Eigum við ekki að láta einstaklinga fá 50 prósent stað- greiðsluhlutfall? Er ekki lítil fórn fyrir fólkið í landinu að taka á sig skatta fyrirtækja eins og Eimskips, olíufélag- anna, ttyggingafélaganna og fésýslu- fyrirtækjanna, ef það reddar einhverj- um vinnu? Skyldi það annars hryggja Arna Sigfússon Johnsen að Hæstiréttur úr- skurðaði nýverið að Sameinaðir verk- takar skjddu greiða skatt af hinum umtöluðu 900 milljónum af hermang- inu? Þannig blasa staðreyndirnar við. Beinir skattar sem fólkið borgar hafa hækkað að raungildi um þriðjung frá því núverandi ríkisstjórn tók við. Einstaklingar borga 9 af hverjum 10 krónum til hins opinbera. Ymsir óbeinir skattar sem fólkið borgar hafa og hækkað, svo sem bifreiðagjöldin. Reykjavíkuríhaldið rukkar hærri fast- eignaskatta af atyinnuhúsnæði en flestir aðrir kaupstaðir. Það rukkar líka hærri fasteignaskatta af íbúðar- húsnæði en flestir aðrir kaupstaðir. Það gjörnýtir skattinn af skrifstofu- og verslunarhúsnæði þótt 14 kaup- staðir geri það ekki. Og hvað býður Árni upp á? Flýti- firningar. ^ Utboð F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið „Borgarvegur, stofnlögn". Verkið felst í að leggja tvöfalda stofnlögn fyrir hitaveitu á um 800 m löngum kafla meðfram fyrirhuguðum Borgarvegi í Borgarholti. Stofnlögnin er 0300 og 0350 mm stálpípur í plastkápu. Einnig skal steypa tvo brunna á lögnina, sjóða pípulögn i þeim og full- gera þá að öðru leyti. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1994. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, gegn kr. 15.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19. apríl 1994, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.