Vikublaðið - 08.04.1994, Page 9
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994
prósent viðmælenda í ÍTéttatímum
sjónvarpsstöðvanna beggja eru karlar
en 16 prósent konur. I könnun hjá
Jafnréttisráði 1989 eru konur 13 pró-
sent og í könnun Jafnréttisráðs 1990
eru konur 12,5 prósent viðmælenda.
Niðurstöður þessara kannanna eru
mjög svipaðar og í könnun Sigrúnar
Stefánsdóttur. Niðurstöðurnar segir
hópur Elínar og Hrefnu sem að könn-
uninni stóð vera í samræmi við aðrar,
þ.e. að hlutur kvenna sé rýr þrátt fyrir
að þær láti meira til sín taka á nær öll-
urn sviðum þjóðfélagsins.
Rannsóknin beindist einnig að því
hvort írekar væri talað við karla á Al-
þingi en konur og voru niðurstöður
mjög á einn veg. Hjá Ríkissjónvarpinu
var rætt við eina konu á meðan á
könnuninni stóð ef frá eru taldar tvær
Kvennalistaþingkonur. Þetta var Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra. A Stöð 2 var tálað við tvær kon-
ur fyrir utan eina þingkonu Kvenna-
listans, Jóhönnu Sigurðardóttur og
Sólveigu Pémrsdótmr hjá Sjálfstæðis-
flokki. Hlutfall þingkvenna í viðtölum
er þrefalt hjá Stöð 2 miðað við Ríkis-
sjónvarpið.
Fréttaramminn rýmkast
Fjarvera kvenna úr fréttum hefur
smndum verið skýrð með því að íf étt-
ir endurspegli raunveruleikann og
hann sé svona. Konur gegni ekki
ábyrgðar- og stjórnunarstöðum.
Einnig með því að konur fáist ekki í
viðtöl. Sigrún Stefánsdóttir telur
raunveruleikann ekki jafri slæman og
fréttir gefi til kynna. Hún tekur þó
undir að konur fáist síður í viðtöl en
karlar en að því sé hægt að breyta með
dálítiili þolinmæði. Með konum þurfi
að vinna aðeins öðruvísi, t.d. segja
þeim að viðtalið megi endurtaka ef
það misheppnast. „Fréttaramminn
hefúr rýmkast á s.l. 10 árum konum í
hag og margt sem áður var talið til
„mjúkra kvennamála" á nú greiðari
aðgang inn í fréttir. Eg held að ný
kynslóð af körlum hjálpi þar. Karlar
sem eru hættir að líta á það sem einka-
mál kvenna að börn komist á barna-
heimili og hlutirnir gangi eins og þeir
eiga að gera heima fyrir því að þeir
eru orðnir þar meiri þátttakendur."
Bakslag eða ekki bakslag
Eyja Margrét segir ástæðuna fyrir
því hvernig konur birtast í hlöðunum
vera hakslag í jafnréttisbaráttunni og
það þurfi ekki annað en að fylgjast
með miðlunum um tíma til að sjá
bakslagið. „Nekt eða ekki nekt er ekki
endilega spurningin heldur er magnið
af myndunt sem sýna „fállegar konur“
í fjölmiðlum og uppsetningin á mynd-
unum áhyggjuefni. Áhugi á fegurðar-
samkeppnum er mildll og enginn seg-
ir neitt við því. Konur eru hræddar við
að gagnrýna fegurðarsamkeppnir
vegna þess að þær verði stimplaðar
ljótar og öfundssjúkar. Ungar konur
vilja eiga þann möguleika að fá að vera
gjaldgengar sem eitthvað annað en
hara kynverur.“
Sigrún vill ekki kalla þessar myndir
bakslag í jafiiréttisbaráttunni heldur
tímabundna tilraun blaðanna til nýj-
unga. Hún segir jafnréttisumræðuna
vera að fara inn á ný svið og með kyn-
slóð ungra kvenna verði ánægjuleg
endurnýjun á henni.
„Við erum samt aftarlega á merinni
miðað við nágrannalöndin og okkur
hefur gengið verr að ná jafhrétti í
stöðuveitingum, launamálum og inni
á fjölmiðlunum sem mér finnst stór-
mál. Hvers vegna veit ég ekki. Ég hef
líka miklar áhyggjur af stöðu kvenna í
atvinnuleysinu. Konur eru hræddar
um að missa vinnuna og eru jafnvel
farnar að fá spurningar um hvort þær
ætli að eiga börn næstu 5 árin þegar
þær sækja um vinnu.“
Eyja segir fölmiðla oft kallaða
spegla samtímans og þeir hafi áhrif á
hugmyndir okkur. „Þess vegna skiptir
máli hvernig veruleikinn birtist í fjöl-
miðlum, þar á meðal hvernig ímynd
kvenna er í iniðlunum.“
Er eitthvað að frétta-
matinu?
Ef marka má þá kvenmynd sem
birtist í óvísindalegri athugun Ýrnissa
kvenna er hún ffernur einlit. Er það
virkilega staðreynd að algengasta
kvenímynd sem á prenti iná sjá séu
ungar og fallegar stúlkur sem hafa
mjög takmörkuð not fyrir andlegt
atgerfi sitt? Þær innihaldsgreiningar
sem gerðar hafa verið hér á landi sýna
allar það sama, konur eru í miklum
minnihluta sem viðmælendur þrátt
fyrir að vera helmingur landsmanna.
Einhver rnyndi kannski svara því til
að konur séu ekki í valdastöðum, að-
eins 24 prósent þingmanna og svo
frainvegis. En á móti má spyrja hvort
eitthvað sé að fréttamatinu eða þeim
ramma sem virðist notaður til að
ákvarða hvað er frétt.
Bergþór Bjamason.
Helstu niður-
stöður úp pann-
súkn Sigrúnap
Stefánsdúttup á
fpáttum á tíma-
bilinu 1966-86
Sigrún Stefánsdóttir,
fréttamaður
„Ég hef áhyggjur af
stöðu kvenna í atvinnu-
leysinu. Konur eru
hræddar um vinnuna
og jafnvel farnar að fá
spurningar um það
hvort þœr œtli að eiga
börn nœstu fimm árin
þegar að þœr sœkja um
vinnu. “
73 prósent allra viðtala eru unnin af karlfréttamönnum en 27 prósent af fréttakonum.
Nœrri tvöfalt meiri líkur eru á því að fréttakona taki viðtal við konu en að fréttamaður geri slíkt
hið sama.
Rúmlega helmingi ólíklegra er að viðtal við konu sé sett fremst í röðina í fréttatíma (1-5 sœti) en
viðtal við karlmann.
Álíka líklegt er að viðtöl sem konur og karlar taka séu sett ífyrst til fimmta sœti í röðinni ífrétta-
tíma.
Um nokkra málaflokka voru íslenskar konur sjaldan eða aldrei spurðar út í, meðal annars það sem
skipti mestufyrir íslenskan efnahag, sjávarútvegsmál, orkumál, iðnaðarmál, efnahags- og utanrík-
ispólitík.
Um þrjá málaflokka var oftar talað við konur en karla, dagvistarmál, jafnréttismál og umönnun
aldraðra.
Engar merkjanlegar breytingar urðu á fjölda viðtala við konur eða sem voru tekin af konum í ís-
lenska sjónvarpinu í tengslum við kvennafrídaginn 1975, sem fékk mikla. fjölmiðlaumfjóllun, kjör
Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta íslands 1980, eða alþjóðlega kvennaráratuginn 1975-86.
2000
1600
1200
800
400
Kvennal. Alþýðubl. Alþýðubl. Frams.fl. Frams.fl. Alþýðu.fl. Alþýðu.fl. Sjálfst.fl. Sjálfst.fl.
konur karlar konur karlar konur karlar konur karlar konur
Til leigu
einbýlishús í Fossvogsdal í Kópavogi í allt að þrjá mánuði
frá 1. júní. Leigist með húsbúnaði. Leiga samkomulag.
Áhugasamir hafi samband í síma 91-699687 eða 91-
622421
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í lóðarframkvæmdir við Austurbæjarskóla.
Helstu magntölur eru:
Jarðvegsskipti 1.500 m3
Malbikun 2.000 m2
Lagnir 200 Im
Beð 2.000 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn kr. 10.000,-skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26. apríl 1994, kl.
14.00.
Hluti niðurstaðna könuunar nemenda ífjöhniðlafi œði við Háskúla Islands. A myndinni má sjá skiptingu fi éttatíma milli al-
þingiskarla og alþingiskvenna. Aðeins tvœr konnrfyrir utan þijárþingkonur Kvennalistans komast ífréttir, Sólveig Pétnrs-
dóttir (citt viðtal) ogjóhanna Signrðardóttir sem skýrir sig sjálft. Tíminn er í sekúndum.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800