Vikublaðið


Vikublaðið - 08.04.1994, Page 13

Vikublaðið - 08.04.1994, Page 13
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994 13 Kntrin Fjeldsted: Efhagrœðing þýðir bara fiekkun á störfiwt verður það að kallast félagslegt hryðjnverk. Sumar konurnar sem Hulda talaði við höfðu lagt í það að leita aðstoðar hjá stóru atvinnuþróunarsjóðunum. - Þar voru konurnar beðnar um allskyns upplýsingar og áætlanir sem kostaði meira að vinna en nam upp- hæðinni sem konurnar fóru fram á, sagði Hulda. Nefndin um atvinnumál kvenna notaði tíunda hluta ráðstöfunaríjáfins til námsstyrkja fyrir atvinnulausar konur. Þrír skólar skipulögðu nám fyrir rúmlega 50 konur og Hulda sagði reynsluna af þessum þætti verk- efnisins jákvæða. Hún var þó ekki á- nægð með það hvernig opinbera kerf- ið virkaði sem heild og sagði það ekki sniðið fyrir þá sem ættu að njóta þess heldur væri ætlast til að Fólk lagaði sig að kerfinu. Hulda sagði reynsluna af starfi nefndarinnar eindregið benda til þess að mikil þörf væri fyrir stuðning við konur sem reyna að auka atvinnu- möguleika sína. Hún nefndi tvö atriði sem mikilvægt væri að hafa í huga í þessu samhengi. 1 fyrsta lagi að beina athyglinni að þeirn sem ekki eiga greiðan aðgang að bönkum og lána- stofnunum. I öðru lagi að fylgja út- hlutuðuin styrk vel eftir. - Við verðum að hætta að líta svo á að ástandið núna sé bara vondur draumur. Atvinnuleysið er vandamál sem koinið er til að vera. Það eru eng- ar patentlausnir til og átaksverkefnin sem sveitarfélög hafa staðið að eru skannntímalausnir, sagði Hulda og brýndi rnenn til að leita frambúðar- lausna á atvinnuleysisvandanum. Félagsleg hryðjuverk Katrín Fjeldsted flutti næsta erindi og sagðist tala sem læknir en ekki borgarfulltrúi. Ilún sagði afleiðingar langvarandi atvinnuleysis vera bæði félagslegar og líkamlegar. Vöðva- bólga, höfuðverkur, síþreyta, hjóna- erjur og sjálfsvíg væri veruleiki sem heimilislæknar kynntust hjá atvinnu- lausum mönnum og konuin. Katrín sagði að jafnvel þeir sem hefðu ntenntað sig og sérhæft ættu erfitt nteð að fá vinnu. Langskóla- gengið fólk ætti oft erfitt með að fá störf sem ekki krefðust fagkunnáttu vegna þess að atvánnurekendur gerðu ekki ráð fyrir að það staldraði lengi við og réðu heldur ófaglærða. Islendingar eru góðu vanir, sagði Katrín, og taldi að við gæmm bjargað okkur í bráð ineð því að herða sultar- ólina. Hún varaði við ýmsum þeim hugmyndum sem uppi eru í opinberri umræðu nú um stundir. Katrín vitnaði í nýlega grein Péturs I. Péturssonar læknis sem skrifaði að það væri ekkert annað en félagslegt hryðjuverk að auka atvinnuleysi af kredduþjónkun einni saman. - Ef hagræðing þýðir bara fækkun á störfum verður það að kallast félags- legt hryðjuverk, sagði Katrín. Björn Grétar Sveinsson formaður Verkamannasambands Islands hóf mál sitt með þeirri fullyrðingu að þjóðféjagið allt ætti að bera byrðar at- vinnuleysisins en ekki þolendurnir. Hann taldi verkalýðshreyfinguna ekki hafii notað tímann vel á meðan at- vinnuleysi var óþekkt. Þá hefði verka- lýðshreyfinging átt að gangast fyrir breytingum á atvinnuleysistrygging- um en núna sé erfitt að hnika kerfinu. Björn Grétar þekkir ekki atvinnu- leysi af eigin raun, nema hluta úr vetri árið 1969, og því fékk hann ungan mann til að skrifii nokkrar línur um þá raun að vera att'innulaus. Björn Grét- ar las upphátt það sein ungi maðurinn hafði skrifað og niðurlagið var svona: „...þetta helvíti hlýtur að taka enda.“ - Hagtölur lýsa ekki ástandinu. Tíu til fimmtán þúsund börn líða á sinn hljóða og sársaukafulla hátt vegna at- vinnuleysisins, sagði Björn Grétar. Við berum öll ábyrgð Björn Grétar gerði að umtalsefni það viðhorf, sem hann sagði að væri ótrúlega algengt, að atvinnuleysingjar nenntu ekki að vinna. Hann sagði ekkert hæft í því að heilbrigt fólk á starfsaldri vildi ekki atvinnu og að þetta viðhorf væri til marks um að mienn vildu ekki horfast í áugu við vcruleikann. - Okkur kemur þetta ástand við. Hinn atvinnulausi gemr ekki borið á- byrgð á því að vera atvinnulaus. Það er þjóðfélagið allt sem ber ábyrgð, sagði Björn Grétar og hélt áfram: - Af hverju er það sjálfgefið að hér skuli vera atvinnuleysi? Er það af því að við erum í samstarfi við Evrópu- þjóðir? Eg segi nei. Síðasti fyrirlesarinn var Gestur Guðmundsson félagsffæðingur sem kannað hefur aminnuleysi ungs fólks fyrir félagsmálaráðuneytið. Hann hnykkti á því sem kom frain í rnáli Halldórs að á Norðurlöndum er rétt- ur atvinnurekenda til að ráðskast með starfsfólk sitt mun takmarkaðri en á íslandi. Langtímaatvinnuleysi meðal ungs fólks hefur fimmfaldast hér á landi á undanförnum árum. - Við erurn að eignast kynslóð þar sem hluti sjálfsímyndarinnar er að vera atvinnulaus. Atvinnuleysið verð- ur fljótt lífstíll og \áð erum þegar farin að skapa þannig hópa, sagði Gesmr. Ungmennum sem hafa starfs- menntun fækkar og Gestur telur að skólakerfið hafi ekki brugðist við þró- un síðustu ára. Ungu fólki þyrfti að gera auðveldara að sækja skóla, nánis- framboð þarf að auka, sérstaklega í starfsnámi, og það inætti gjarnan vera í samstarfi við atvinnulífið. 1 Noregi hefur hugmj'ndin um „ungdomsgaranti" skotið rótum en hún kveður á um að allir eigi rétt á námi og starfi. I Svíþjóð og Dan- mörku eru atvinnurekendur skuld- bundnir til að taka að sér að ráða til sín tiltekinn fjölda fólks í starfsnám. Gestur sagði hverskyns starfsmennt- un gagnast fólki, ekki aðeins á því sviði sem starfsmenntunin væri veitt. Ilcfbundin átaksverkefni sagði Gestur að væru gagnslaus. Þau bjargi fólki aðeins í skamman tíma frá at- vinnuleysi, síðan sæki aftur í sama far. - Það er verkefni þjóðarsáttar at- vinnurekenda og verkalýðshreyfingar að deila vinnunni bemr, til dæmis með hlutastörfum og námsleyfum, sagði Gesmr. Þurfum nýja hugsun Eftir að frummælendur höfðu lokið máli sínu voru almennar umræður. Guðrún Helgadóttir fúndarstjóri spurði um ástæður atvinnuleysisins. - Er það ríkisstjórninni að kenna? Eg hef ákveðnar efasemdir um að hún ein beri ábyrgðina, sagði Guðrún og efaðist jafnfrantt um réttmæti þess að tala um kreppu þegar loðnan mokveiddist. Björn Grétar Sveinsson sagði það ekki vera framtíð íslensks verkafólks að keppa við Asíuþjóðir um láglauna- störfi eins og suntir vildu vera láta. Hann sagði verkalýðshreyfinguna hafa staðið í þeirri trú að verið væri að semja um atvinnu í síðusm tveim kjarasamningum og að hreyfingin sætti sig ekki við að tíu prósent at- vinnuleysi sc bara ákveðin hagstærð. Halldór Grönvold benti á að í um- ræðunni um atvinnuleysi staðhæfðu sumir að verkalýðshreyfingin stæði frammi fyrir tveim kostum. Annars vegar að feta bandarísku leiðina út úr atvinnuleysi með því að fjölga lág- launástörfum og hinsvegar væri um að ræða evrópsku fyrirmyndina; að sætta sig við atvinnuleysi. I smttu máli stendur valið á milli fátæktar eða at- vinnuleysis. Halldór hafnar báðuin kostunum. - Við þurfunt að finna þriðju leið- ina og tíl þess að þróa hana þurfum við bandamenn í pólitíska kerfinu, sagði Halldór. Guðrún Helgadóttir taldi verka- lýðshreyfinguna eiga sér bakhjarl í pólitíska kerfinu þótt sambandið þar á rnilli hafi verið vanrækt um hríð. Guðrún sleit fundi með því að leggja áherslu á að við þyrftum nýja hugsun til að takast á við vandann sem við blasir. pv Lausa mvndagátunnar j síðasta blaði cr: „Albert hiyggbraut Árna Sigfusson eftir uppgjör Markúsai '1

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.