Vikublaðið


Vikublaðið - 08.04.1994, Síða 15

Vikublaðið - 08.04.1994, Síða 15
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994 15 4$r FLOKKSSTARFID Æskulýðsfylking Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík Næsti opni fundur hefur yfirskriftina Peningar og Pólitík Hann verður haldinn mið- vikudaginn 13. apríl að Laugavegi 3, efstu hæð kl. 20:30. Frummælend- ur verða Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður og Þorbjörn Broddason dósent. Aðalfundur Aðalfundur ÆFR verður haldinn fimm'tudags- kvöldið 21. apríl kl. 20:30 að Laugavegi 3, efstu hæð. Dagskrá: 1. Baráttan um borgina. Unga R-listakonan Sigþrúður Gunn- arsdóttir stappar í okkur stálinu. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Önnur mál. Stjórn ÆFR Alþýðubandalagið Akranesi Opið í REIN öll mánudagskvöld kl. 20:30 - 22:00. Mánudaginn 11. apríl í Rein kl. 20:30 Málefnavinna: ATVINNUMÁL Brynja Þorbjarnardóttir atvinnufulltrúi mætir. Miðvikudaginn 13. apríl í Garðaseli kl. 20:30 Málefnavinna: LEIKSKÓLAMÁL Sigrún Gísladóttir dagvistarfulltrúi mætir. Mánudaginn 18. apríl f Rein kl. 20:30 Málefnavinna: FÉLAGSMÁL, BARNAVERNDAR- OG FRAMFÆRSLUMÁL. Sólveig Reynisdóttir félagsmálastjóri mætir. Allt áhugafólk velkomið. - Frambjóðendur Alþýðubandatagið á Akureyri Opið hús verður í Lárusarhúsi laugardaginn 9. apríl kl. 10:30 -12:00. Kaffi og hressileg dægur- málaumræða. - Fjölmennið Mánudagskvöldið 11. aprfl Bæjarmálaráðsfundur kl. 20:30 og umræður um menningarmál. Þröstur Ásmundsson flytur pistil. Mætið og skráið ykkur í hópa, sem vinna að stefnuskránni fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Stjórnin VERÐANDI Landsfundur Verðandi verður haldinn í Iðjusaln- um Skipholti 50 c, 9.-10. apríl 1994 Laugardagur: Kl. 14:00 Fundur settur og kosning fundarstjóra 1. Ávarp formanns 2. Skýrsla stjórnar 3. Kynning framboða til stjórnar 4. Kynning málefnahópa 5. Hlé-skemmtiatriði 6. Starf málefnahópa 1) Stjórnskipunarhópur 2) Utanríkismálahópur 3) Sjávarútvegsmálahópur 4) Mennta- og menningarmálahópur 5) Efnahags-, verkalýðs- og atvinnu.m. hópur Kl. 18:00 Fundi frestað Kl. 20:00 Erkiteiti í Austurstræti 10a, 3. hæð Sunnudagur: Kl. 13:00 Fundi framhaldið 1. Kosning stjórnar (Kjörkassar opnirtil kl. 14:00) 2. Framhald málefnahópa 3. Önnur mál 4. Kynning á starfi málefnahópa Efnisatriði í málefnagrundvelli kynnt 5. Kynning nýrrar stjórnar 6. Ávarp formanns Kl. 16:00 Landsfundi slitið Nýir félagar geta gengið í samtökin meðan á landsfundi stendur og tekið fullan þátt í störfum hans. Ungt félagshyggjufólk er hvatt til þess að mæta á landsfundinn og taka þátt í því að móta þessa ungu hreyfingu. Stjórn Verðandi Steingrímur J. Sigfússon Þorbjörn Broddason Nes-listinn Framboð vinstri- manna á Seltjarnar- nesi •. “ ;»»*«* i’í í Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar fýrir fjórum árum var stofnað félag einstaklinga í framhaldi af viðræðum milli Al- þýðubandalagsins og Framsóknarflokksins. í félaginu er félagshyggjufólk með aðrar áherslur í bæjarmálefirum en núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins. Félagið, Bæjar- málafélagið, hefur haft tvo fulltrúa af sjö í bæjarstjórn. Þrátt fyrir fáa fulltrúa hefur náðst nokkur árangur og er þar skemmst að minnast þegar tókst að koma í veg fyrir að á- ætlun meirihlutans sem fól í sér eyðileggingu náttúru og fornminja með lagningu hringvegar vestast á nesinu. Þá risu gamlir sem ungir Seltirningar upp og afstýrðu slysi. Bæjarmálafélagið hefur á að skipa fólki með þekkingu sem það hefur skipað í nefndir bæjarfélagsins. Við höfum lagt áherslu á fagmennsku og dreifingu valds. Þessu er öðruvísi farið hjá meirihlutanum sem leggur áherslu á sam- þjöppun valds þar sem bæjarfulltrúar sitja í sem flestuin nefndum. Sem dæmi má nefna að þar sem bæjarstjórinn er ekki fulltrúi í nefnd er hann ritari nokkurra nefnda og hef- urþannig ægivald yfir helstu málaflökkum í bænum. I janúar síðastliðnum ákvað Framsóknarflokkurinn að bjóða fram sérlista. Eftir nokkrar úrtölur snerist Framsóknarmönnum hugur enda var sú ákvörðun í hróp- legu ósamræmi við hið góða samstarf í Bæjarmálafélaginu. Á aðalfúndi félagsins var eftirfarandi listi samþykktur: 1. Siv Fríðleifsdóttir, sjúkraþjálfari. 2. Eggert Eggertsson, lyfjafræðingur. 3. Katrín Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur. 4. Högni Óskarsson, læknir. 5. Arnþór Helgason, deildarstjóri. 6. Sunneva Hafsteinsdóttir, kennari. 7. Sverrir Ólafsson, rafmagnsverkfræðingur. 8. Ómar Siggeirsson, verslunarstjóri. 9. Laufey Steingrímsdóttir, næringarfræðingur. 10. Guðmundur Sigurðsson, læknir. 11. Anna Guðmundsdóttir, háskólanemi. 12. Valgerður Janusdóttir, kennari. 13. Jóhann Pétur Sveinsson, lögffæðingur. 14. Guðrún Þorbergsdóttir, framkvæmdastjóri. Seltjarnarnes er fullbyggt bæjarfélag þótt meirihlutinn hafi ekki skynjað það enn. Þannig er komið upp alveg nýtt ástand fyrir bæjarfélag á Islandi. Bærinn getur ekki lengur þanið sig út og því verða áherslur í bæjarpólitíkinni allt aðrar. Það er mjög spennandi verkefni að huga að innri uppbyggingu bæjarfélagsins, samskiptum íbúa og stofnana, fjölskyldunni í leik og starfi. Nes-listinn er á fúllu í málefnavinnu og mun leggja fram stefnumarkmið sín von bráðar. Við gerum ekki ráð fyrir því að ná meirihluta, en við vonumst til að fá þrjá bæjarfull- trúa. Við það fjölgar fulltrúum okkar í nefndum og þannig geturn við náð frain áherslubreytingu sem við skynjum að meirihluti íbúa Seltjarnarness vill en vegna ótrúlegrar í- haldssemi og hollustu við Sjálfstæðisflokkinn hefúr ekki það þorað að breyta til. Eggert Eggertsson. Gjaldskrá fyrir debetkort og tékkaviðskipti DEBETKORT - ódýrari kostur Innstæðueigendur og lántakendur greiða um 80% af kostnaði við tékkaþjónustuna Viðskiptavinir Búnaðarbankans greiða nú kr. 10,80 fyrir hvert tékkaeyðublað en kostnaður bankans vegna hvers útgefins tékka er rúmar 50 krónur. Vaxtamunur bankans hefur jafnað þann halla sem verið hefur á tékka- þjónustunni. Með öðrum orðum, innstæðueigendur og lántakendur hafa greitt um 80% af kostnaði við þessa þjónustu. Breytt stefna - sá sem notar þjónustuna greiðir þann kostnað sem henni fylgir Stórlega niðurgreidd tékkaþjónusta hefur lengi einkennt bankastarfsemina um heim allan. Að undanförnu hafa bankar víða um heim verið að breyta um stefnu I þá átt að sá sem notar bankaþjónustuna greiði þann kostnað sem henni fylgir. Þetta hefur leitt til verulegrar hækkunar á verðlagningu tékkaþjónustu. Helstu bankar og spari- sjóðir í Noregi taka nú á bilinu 50 til 100 ísl. krónur fyrir hvern útgefinn tþkka og dæmi finnast um hærri gjöld bæði í Noregi og Svíþjóð. Bankastjórn Búnaðarbankans telur eðlilegt og nauð- synlegt að taka upp breytta stefnu við verðlagningu á þjónustu bankans I samræmi við framangreint. Lækkun vaxtamunar bankans á síðustu mánuðum gerir slíka stefnubreytingu enn nauðsynlegri en ella. Tékkar á undanhaldi sem greiðslumiðill I þessu sambandi skal lögð áhersla á að tékkar eru á undanhaldi sem greiðslumiðill um allan heim. Tékkar uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru I dag um þægindi, hraða og öryggi við miðlun fjár. Líklega er notkun tékka hvergi á byggðu'bóli eins almenn og hér á landi og snertir því breyting yfir I hagkvæmari greiðslumiðil tiltölulega fleiri hér á landi en annars staðar. Ýrniskonar rafrænar greiðslur hafa smám saman verið að ýta tékkunum til hliðar og eru hin nýju debetkort mikilvægur þáttur I þeirri þróun en svo sem flestum landsmönnum mun kunnugt hófst útgáfa þeirra ( desember sl. Korthafar eru nú orðnir yfir 21.000 talsins. Samningar hafa þegar verið gerðir við yfir 500 aðila um móttöku debetkortanna og alls eru um 1200 kaupmenn og þjónustuaðilar með búnað fyrir rafræn viðskipti. ( upphafi var tilkynnt að debetkortin yrðu gjaldfrjáls fyrir korthafa fyrstu mánuðina en síðan yrðu tekin upp gjöld sem nálguðust það að standa undir stofnkostnaði og rekstri þessa nýja greiðslukerfis. Ljóst var strax I upphafi að kostnaður við debetkortin yrði verulega minni en kostnaður við tékkaþjónustuna. Jafnframt eru debetkortin miklum mun þægilegri, hraðvirkari og öruggari greiðslumáti en tékkarnir. Bankastjórn Búnaðarbankans hefur I Ijósi framanritaðs ákveðið eftirfarandi gjaldskrá fyrir debetkortaþjónustuna og tékkaþjónustuna: Debetkortagjald........ 270 kr. á ári frá 1. júlí 1994 Færslugjald v/debetkorts ... 9 kr. hver færsla frá 1. júní 1994 Færslugjald v/tékka.....19 kr. hver færsla frá 15. maí 1994 Færslugjöldin verða skulduð á viðkomandi reikning 10. dag hvers mánaðar vegna færslna næstliðins mánaðar. Debetkortin hafa mun víðtækara notkunargildi en tékkar en engu að síður munu korthafar að meðaltali greiða lægri gjöld til bankans en nú eru greidd af tékkaútgefendum í stórlega niðurgreiddu tékkakerfi. Þrátt fyrir þá hækkun á tékkaþjónustunni sem nú er auglýst munu útgefendur tékka einungis standa undir innan við 60% af þeim kostnaði sem fylgir þessari þjónustu. 0 BLINAÐARBANKi ÍSLANDS I

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.