Vikublaðið - 20.05.1994, Side 13
VIKUBLAÐIÐ 20. MAÍ 1994
13
Kjör starfsfólks í heildagsskólanum:
Einhliða ákvörðun
vinnuveitenda gildir enn
Nú í lok skólaársins gildir einhliða ákvörðun borg-
aryfirvalda um kjör starfsfólks heildagsskólanum
enn. Yfirvöld samþykkja Kennarasambandið ekki
sem viðsemjanda og kröfum þess hefur alfarið verið
hafhað. Kjaramál þeirra starfsmanna „heilsdags-
skólanna“ sem eru í Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar hafa verið sett í nefnd.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Islands segir að
öllum kröíum sambandsins hafi
alfarið verið hainað. Eiríkur segir
kennara sem vinna í „heildagsskólan-
um“ aukalega með kennslu hafa sæmi-
leg kjör en öðru máli gegni um þá sem
eingöngu vinna í „heildagsskólanum."
Reykjavíkurborg hefur ekki samþykkt
Kennarasambandið sem viðsemjanda
fyrir þennan hóp.
Árni hafnaði kröfum
starfsfólksins
I nóvember síðastliðnuin var komið
á fundi með kennurum, fóstrum, for-
manni skólamálaráðs, Arna Sigfússyni
og forstöðumanni skólaskrifstofu
Reykjavíkur, Viktori Guðlaugssyni þar
sem kennarar bentu á fordæmi í kjara-
samningum sínum sem hægt væri að
ganga út ffá. Það fordæmi var sótt í
samninga við kennara úti á landi sein
starfa í heimavistarskólum. Samið hef-
ur verið við sveitarfélögin um greiðslu
fyrir vinnu utan hefðbundinar kennslu
í þessum skólurn. Þessum kröfum var
hafnað.
Annað fordæmi sem hægt væri að
fara eftir er hin svokallaða „Seltjarnar-
nessleið". Bæjaryfirvöld þar hafa samið
við ríkið um greiðslu til kennara fyrir
vinnu í „heildagsskólanum“ þar. Ríkið
krefúr sveitarfélagið síðan um greiðslu
á þessum kostnaði. Að sögn Eiríks
Jónssonar var fyrir stuttu dreift í skól-
ana bréfi frá skólaskrifstofunni þar sem
ffain koin vilji borgaryfirvalda að fara
þessa leið. En effir því sem hann best
veit er slíkur samningur inilli rílds og
borgar ekki í höfn.
I „heildagsskólanum" starfar líka
ófaglært starfsfólk og starfefólk með
aðra uppeldismenntun, s.s. fóstrur.«I
byrjun voru flestdr ófaglærðir í Sókn en
frá áramótum hafa allir starfsmemi
„heildagsskólans" verið í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar.
Að sögn starfsmanns Starfsmannafé-
lagsins er búið að setja á laggirnar
nefnd sem í eiga sæti, auk formanns fé-
lagsins, fulltrúi ffá skólaskrifstofu og
starfsmannahaldi borgarinnar. Hún á
m.a. meta störf þessa hóps. Þá mun
nefndin trúlega ræða urn námskeið fyr-
ir ófaglærða. Starfsmannafélagið Sókn
hefur staðið fyrir námskeiðahaldi fyrir
sína félagsmenn sein starfa t.d. á leik-
skólunum sem metin eru til launa. í
kjarasamningum Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar eru slík námskeið
aftur á móti einskis metin. Því þarf
annað hvort að breyta eða koma upp
námskeiðum á vegum Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Samskipti starfsfólks og
borgaryfirvalda óeðlileg
I greinargerð Kára Arnórssonar um
„heildagsskólann" sent hann skilaði í
desember síðastliðnum bendir hann á
nauðsyn þess að samið verði við Kenn-
arasambandið um kjör kennara við
„heildagsskólann“, en ekld gildi ein-
hliða ákvörðum vinnuveitenda. Ekki
vegna þess að „kennararnir séu endi-
lega verr launaðir en við venjulega
kennslu en kennararnir sem vinna
þetta sem aðalstarf hafa engan samning
um einstök kjarabundin réttindi. Til
þess að samskiptin verði eðlileg þarf að
ganga ffá samningum", segir Kári.
Starfsmannahald borgar-
innar hefur ekki haggast
Hátt á annað ár er liðið síðan „til-
raun um heildagsskóla" hófst í fimm
skólurn borgarinnar. Og heill vetur
síðan „heildagsskóli" var settur á lagg-
imar í öllum skólum borgarinnar.
Ósldljanlegt er að ekki skuli enn vera
búið að ganga ffá kjarasamningum við
starfsfólk heldur einungis farið effir
einhliða ákvörðunum vinnuveitenda.
Sigrún Magnúsdóttir fulltrúi Fram-
sóknarflokks í skólamálaráði segir að
ráðið hafi reynt að knýja á um kjör
starfcfólksins við Starfemannahald
borgarinnar, en þar hafi menn ekki
haggast. En hversvegna meirihlutinn
hafi ekki notað pólitískt vald sitt til þess
að koma málum á hreyfingu, það skilji
hún ekki.
Ekld náðist í Arna Sigfússon, for-
mann skólamálaráðs og borgarstjóra,
til þess að svara þeirri spumingu áður
en blaðið fór í prentun.
L AND S PITALINN
/ þágu mannúðar og vísinda
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS
Deildarlæknir
Deildarlæknir óskast nú þegar á geðdeild Landspítalans í
100% starf.
Upplýsingar veitir Lárus Helgason, yfirlæknir, skor 1, geð-
deild Landspítalans. Sími: 601708. Umsóknir sendist til
Lárusar Helgasonsr, yfirlæknis, geðdeild Landspítalans
v/Eiríksgötu, 101 Reykjavík.
ENDURHÆFINGAR- OG HÆFINGARDEILD
LANDSPÍTALANS í KÓPAVOGI
Þroskaþjálfi/hjúkrunarfræðingur
Þroskaþjálfa eða hjúkrunarfræðing vantar í stöðu yfir-
næturvaktar frá og með 1. júlí í 70% starfshlutfall. Einnig
vantar þroskaþjálfa eða hjúkrunarfræðing vegna sumar-
afleysinga í 70% stöðu yfirnæturvaktar frá miðjum júní.
Nánari upplýsingar gefa Sigríður Harðardóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri og Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi í
síma 602700.
Sagt með niynd
Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir
Lausn myndagátunnar í síðasta blaði er: „Með göngum undir Ermasund er rofin æðilöng einangrun Englands.“