Vikublaðið - 10.06.1994, Qupperneq 1
Ungt fólk og
Reykjavíkurlistinn
Unga fólkið fylkti sér um R-
listann. Það hefur fæst áhuga á
að starfa í gömlu flokkunum.
Ingibjörg Stefánsdóttir út-
skýrir málið. Bls. 5
REYKJAVÍKUR
LISTINN
Krafa um nýjan
flokk
Á fundi Birtingar með Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
kom ffam eindregin ósk um að
stofnuð yrðu samtök um
Reykjavíkurlistann. Bls. 4
Helga og máttugu
meyjarnar
Bergþór Bjarnason ræðir við
Helgu Kress um bók hennar,
kvennafræði og karlveldi,
Sverrismálið og margt fleira.
Bls. 8-9
22. tbl. 3. árg.
10. júní 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Reykjavík-
urflstinn
fær lykla-
völdin á
mánudag
Aukafundur verður haldinn í
borgarstjóm Reykjavíkur
mánudaginn 13. júní og
hefst hann kl. 17. Um leið gerist
það sem meirihluti reykvískra kjós-
enda bað um; Reykjavíkurlistinn
tekur formlega við lyklavöldunum í
boginni en Sjálfstæðisflokkurinn
fær það vanþakkláta hlutverk að
vera í minnihluta.
Á fundinum verður kjörið í helstu
embætti; Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
kjörin borgarstjóri og Sigrún Magn-
úsdóttir forseti borgarstjórnar, auk
tveggja varaforseta og skrifara. Á
reglulegum fundi borgarstjórnar
fimmtudaginn 16. júní er síðan að
vænta kjörs í nefhdir, stjórnir og ráð
borgarinnar en síðustu daga hafa efstu
menn Reykjavíkurlistans unnið í því
að manna nefndirnar, sem eru fjöl-
margar. Meðal þess sem frágengið er
er að Guðrún Ágústsdóttir verður for-
maður borgarráðs.
Guðrún Ágústsdóttir segir að vel
gangi að undirbúa valdaskiptin.
„Þrettándi júní verður merkisdagur í
sögu bogarinnar. Það mega engir
veikir hlekkir verða í okkar samstarfi
og það er siðferðileg skylda okkar að
bregðast ekki vonum kjósenda. Engin
teikn eru á lofti um deilur þótt slúður
hafi birst um hið gagnstæða. Það hef-
ur enginn skuggi fallið á samstöðuna,"
segir Guðrún.
Alþýðu-
bandalagið
víða í forystu
Af 36 stærstu þéttbýlisstöð-
um landsins, kaupstöðun-
um 30 og 6 stærstu kauptúnum
(þar sem greidd atkvæði voru
fleiri en 500) er Alþýðubanda-
lagið nú aðili að 13 meirihlut-
um en var aðili að 10 á síðasta
kjörtímabili.
Af þessum 13 stöðum bauð Al-
þýðubandalagið fram undir eigin ;
bókstaf á 10 stöðum; í Mosfells-
bæ, á Húsavík, Grundarfirði, í 5
Neskaupstað, á Eskifirði, í Hafh- j
arfirði, á Akranesi, Egilsstöðum, '
Vopnafirði og í Snæfellsbæ. Al- I
þýðubandalagið stóð að sameig- í
j inlegu framboði á þremur þessara
staða; í Reykjavík, á Dalvík og
Selfossi. Þá er alþýðubandalags-
fólk að finna á þremur óháðum
listum sem allir eru í meirihluta; í
Vesturbyggð, á Siglufirði og í
Hornafjarðarbæ.
Á þremur stöðum er Alþýðu-
bandalagið ekki lengur í meiri-
hlutasamstarfi; á Isafirði, í Hvera-
gerði og á Akureyri.
Sjá nánar umfjöllun á bls. 3.
Alþýðubandalagið í
meirihluta í Hafnarfirði
„Vona að þessi erfiða fæðing skili heilbrigðu og hraustu barni,“ segir Magnús Jón Árna-
son,verðandi bæjarstjóri Hafnaríjarðar. Kratar óhressir með að missa völdin: Kjósendur
voru blekktir, segir Tryggvi Harðarsson, fráfarandi formaður bæjarráðs
Alþýðubandalagið og Sjálf-
stæðisflokkurinn hafa tekið
saman höndum um myndun
meirihluta í bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar. Magnús Jón Amason, Al-
þýðubandalagi, verður bæjarstjóri
og endurspeglar það góðan kosn-
ingasigur G-listans í nýafstöðnum
bæjarstjómarkosningum þar sem
tveir menn Iistans náðu kjöri,
Magnús Jón og Lúðvík Geirsson.
Að sögn Magnúsar Jóns, verðandi
bæjarstjóra, var það erfið fæðing að
mynda meirihlutann. „En ég vona að
þessi erfiða fæðing skili heilbrigðu og
hraustu barni og hefðum við reyndar
ekki farið út í þetta nema hafa fulla trú
á að það gæti gengið. I okkar huga var
undirstrikað að samstarfið yrði byggt
á jafnræði, trúnaði og heilindum og
það mun ganga eftir,“ segir Magnús
Jón.
Bæjarstjórinn verðandi segip að það
séu atvinnumálin sem brenni heitast á
Hafnfirðingum eins og svo víða um
landið. „Atvinnulífið er grundvöllur-
inn undir öllu öðru hér en ég segi
annars eins og í kosningabaráttunni
að það er þrennt sem verður að huga
að; að allir geti framfleytt sér og sín-
um, að allir hafi þak yfir höfuðið og að
allir séu vissir um öryggi barna sinna.
Hvað annað varðar blasir við að það
þarf að taka vel á fjármálum bæjarins.
Það hefur átt sér stað mikil uppbygg-
ing í bænum og margt vel gert en
skuldirnar eru orðnar of miklar. Við
viljum taka á þessum skuldum því að
forsenda áframhaldandi uppbygging-
Hinn nýi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Magnús Jón Árnason, við dyr ráðhússins. ,,At-
vinnulífið er grundvöllurinn undir öllu öðru hér en ég segi annars eins og í kosninga-
baráttunni að það er þrennt sem verður að huga að; að allir geti framfleytt sér og
sínum, að allir hafi þak yfir höfuðið og að allir séu vissir um öryggi barna sinna."
Guðmundur Árni og Össur
í stað Jóhönnu og Jóns?
Formannsslagurinn í Alþýðu-
flokknuin veldur slíkri van-
líðan hjá óbreyttum flokks-
mönnum að þeir telja margir
hverjir farsælast að sniðganga bæði
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðlierra og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra.
Meðal flokksmanna er rædd sú
hugmynd að skipta bæði Jóni Baldvin
og Jóhönnu út. Með því að endurnýja
forystuna á róttækan hátt telja menn
að möguleiki sé á því að flokkurinn fái
nýtt yfirbragð. Nöfn þeirra Guð-
mundar Árna Stefánssonar heilbrigð-
isráðherra og Ossurar Skarphéðins-
sonar umhverfisráðherra eru í um-
ræðunni manna á meðal.
Össur Skarphéðinsson hefur látið
það leka út að hann kynni að hafa
áhuga á varaformannsembættinu og
með sögunni er látið fylgja að hann
styðji Jón Baldvin til áframhaldandi
formennsku. Össur hefur hingað til
verið talinn til þeirra sein hallir eru
úndir pólitísk sjónarmið Jóhönnu.
Guðmundur Arni Stefánsson var
sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar mjög
gagnrýninn á forystu Jóns Baldvins en
eftir að Guðmundur varð ráðherra
hefur minna borið á gagnrýninni.
Guðmundur Árni hefur ekkert viljað
gefa upp um afstöðu sína til for-
mannsslagsins í Alþýðuflokknum.
Hvert stefnir hugur Guðmundar Árna?
ar er að fjármálin séu í iagi,“ segir
Magnús Jón.
1 samkomulagi flokkanna er ffá því
gengið að Sjálfstæðisflokkurinn fái
forseta bæjarstjórnar og formann bæj-
arráðs. Magnús Jón sagði aðspurður
að fréttir DV og Stöðvar 2 um ýmis
embætti væru hreinar rangfærslur, svo
sem um embætti aðstoðarbæjarstjóra
og upplýsingafulltrúa en því var hald-
ið fram að Lúðvík Geirsson hefði sóst
eftir slíkum embættum.
Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði
eru að vonum óhressir með að missa
völdin í bænum og segist Tryggvi
Harðarsson, fráfarandi formaður bæj-
arráðs, óttast að átta ára framfaraskeið
sé á enda. „Miðað við gang samninga-
viðræðnanna milli Ihalds og komma
er ég ekki bjartsýnn á framhaldið.
Þeim tókst að ifysta sig saman og það
hefur reyndar komið ffani hjá Jóhanni
Bergþórssyni að þetta hafi verið ffá-
gcngið fyrir kosningar. Miðað við þær
yfirlýsingar hafa þessir flokkar biekkt
kjósendur. Mér sýnist þetta koma ber-
lega í ljós með því að samningavið-
ræðurnar snerust fyrst og fremst um
embætti og stöðuveitingar en ekki
málefni," segir Tryggvi.
Kristín Árna
aðstoðarmaður
borgarstjóra
AUt bendir til þess að á
næstu dögum verði gengið
frá ráðningu Kristínar A. Ama-
dóttur sem pólitísks aðstoðar-
manns Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra en
þær hafa verið samstarfskonur
til langs tíma.
Kristín átti sæti á Reykjavíkur-
listanum og hefur verið deildar-
stjóri alþjóðadeildar Háskóla Is-
lands síðastliðin þrjú ár. Hún er
37 ára og er með BA-próf í ensku
og fjölmiðlaffæðum. Kristín er
Breiðhyltingur og þriggja barna
tnóðir en eiginmaður hennar er
Valur Harðarson.
Þess má geta að Kristín er syst-
ir Halldórs Árnasonar, aðstoðar-
rnanns Þorsteins Pálssonar sjáv-
arútvegsráðherra, og Guðmund-
ar Árnasonar, deildarstjóra í for-
sætisráðuneyti Davíðs Oddsson-
ar. Þá er systir Kristínar Sigrún
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Rauða kross Islands, og bróðir
hennar Björn Árnason, fram-
kvæmdastjóri Brimrúnar.