Vikublaðið - 15.03.1996, Page 8
8
VTKUBLAÐIÐ 15.MARS 1996
íslenski dansflokkurinn fnimsýndi um síðustu helgi ballettdagskrána
„Þrenningu“, en þar er boðið upp á þrjú dansverk. I fyrsta lagi „Tilbrigði"
eftir David Greenall við tónlist eftir Wifliam Boyce. I öðru lagi er verkið
,Af mönnum“ eftir Hlíf Svavarsdóttur við tónbst efdr Þorkel Sigurbjöms-
son. I þriðja lagi er „Hjartsláttur" eftir Lám Stefánsdóttur við tónlist
hljómsveitarinnar Dead can dance. „Þrenning" hefur mælst vel fyrir og er
rétt að benda á að tvær sýningar af aðeins fjórum hafa farið ffarn. Myndin
sýnir Jóhann Frey Bjömvinsson, Júlíu Gold og Sigrúnu Guðmundsdóttur
í „Hjartslætti".
Boltinn rúllar í
Smáranum
Næsfkomandi laugardag 16. mars
kl. 17:00 verður heldur betur húllum
hæ í Smáranum í Kópavogi. Knatt-
spymudeild Breiðabliks ætlar að
bjóða uppá stórtónleika með
nokkrum helsm stjömum í íslensku
tónlistarh'fi.
Þeirra á meðal em; Bubbi
Morthens, sem mun spila og syngja,
en það er alltaf spennandi að heyra í
Bubba á tónleikum. Emilíana Torr-
ini ein skæðasta unga stjaman á leik-
sviði listarinnar syngur líka. KK
kemur ffam, en hann hefúr fært okk-
ur blúsinn nær hjartanu.
Nú fyrir nokkmm vikum var
Guðmtmdur Pétursson kosinn gít-
arleikari ársins af stórum hópi leikra
og lærðra. Þegar hann tekur upp
hljóðfærið er aflt í lagi að leggja við
hlustir. Gleði og glaumsveitin Pap-
ar, em sérstakir á sínu sviði og hafa
fyrir löngu skapað sinni eigin létta
og húmoríska stíl. Þá em kallaðir til
leiks Kamivalasextettinn, sem blæs
lífi í samkomuna og gegnir stóra
hlutverld í nýju stórsveitinni Mað-
urinn sem aldrei sefúr.
Sérstaldr kynnar verða á hljóm-
leikunum, en það em þeir Samúel
Om Erlingsson hjá Sjónvarpinu og
Valtýr Bjöm Valtýsson hjá Stöð 2.
Það þarf ekki að hafa áhyggjur af
þeim. Að lokum skal nefndur til sög-
unnar Sigfús Halldórsson tónskáld
og listmálari. Rnattspymudeild
Breiðabliks hefur gert hann að heið-
ursfélaga í sínum röðum. Auðvitað
verða sungin einhver lög eftir Fúsa.
Bandamanna
saga á hljóðbók
Hljóðbókaklúbburinn hefur gefið
út Bandamanna sögu í flutningi
Jakobs Þórs Einarssonar leikara. Til
em tvær gerðir af sögunni og varð sú
lengri fyrir valinu, en hún er varð-
veitt í Möðmvallabók. Með útgáfu
þessari er Hljóðbókaklúbburinn að
auka við það safn af Islendingasög-
um sem þegar er til í hljóðútgáfú, en
það em Brennu-Njáls saga, Egils
saga Skallagrímssonar, Grettis saga,
Laxdæla saga og Gísla saga Súrsson-
ar.
Leikgerð Sveins Einarssonar á
Bandamanna sögu var sýnd fyrir
tveimur árum bæði hér á landi og á
Norðurlöndum. Jakob Þór Einars-
son tók þátt í þeirri uppfærslu og er
því vel heima í sögunni.
Bandamanna saga er á tveimur
snældum (ein og hálf klukkustund)
og er fyrst um sinn aðeins seld félög-
um í Hljóðbókaklúbbnum og kostar
1.475 krónur.
Draumadís
Ásdísar
Thoroddsen
Ný íslensk kvikmynd verður
ffumsýnd á fimmtudaginn í næstu
viku, en það er myndin Draumadís-
in eftir Asdísi Thoroddsen. Hér er
á ferðinni gamansöm Reykjavíkur-
saga um tvær tvítugar vinkonur sem
takast á við drauma sína í viðsjár-
verðu umhverfi íslensks hversdagslífs
og nútímalegra viðskiptahátta.
Ásdís skrifaði handritið og er leik-
stjóri, en hún vakti athygli fyrir
ffumraun sína Inguló fyrir nokkrum
ámm. Framleiðandi er
Martin Schlúter fyrir hönd
Gjólu hfi, en myndin er
gerð í samvinnu við Is-
lensku kvikmyndásam-
steyptma hfi, þýskan með-
ffamleiðanda Ma.Ja.De.
Filmproduktion og þýsku
sjónvarpsstöðvamar ZDF
og ARTE. Myndin hefúr
að auld fengið styrki inn-
anlands.
Draumadís fjallar um tvær
tvítugar stúlkur í Reykjavík
og sýnir myndin aðra þeirra í
„viðsjárverðu umhverfi ís-
lcnsks hversdagslífs“
Stöllumar tvær em leiknar af Silju
Hauksdóttur og Ragnheiði Axel, en í
öðmm hlutverkum era Baltasar
Kormákur, Margrét Ákadóttir,
Bergþóra Aradóttir, Ragnhildur Rú-
ríksdóttir og Magnús Olafsson.
Tökur fóm ffam í fyrravetur og vor,
einkum í Kleppsholtinu, inn við
Sund, í Viðey, á skemmtistaðnum
Tunglinu, Kaffi List og í Perlunni.
Píslarsögu-
myndir Magn-
úsar
Frá og með sunnudeginum næst-
komandi sýnir Magnús Kjartansson
myndlistarmaður málverk í Lista-
safúi Hallgrímskirkju og stendur
sýningin yfir ffam yfir páska.
Sýnd verða tvö gríðarstór mál-
verk, sem Magnús málaði á árunum
1992-93 og tengjast píslarsögu
Krists. Myndimar nefnast „Nætur-
ganga“ og „Kirkjusandur“ og em
eins konar „allegoríur“ eða tákn-
myndir um þjáninguna. Baksvið písl-
arsögu Krists í þessum myndum er
hús á Kirkjusandi í nánasta umhverfi
málarans, stórt skrifstofúhús með
mmspím og tómum gluggum. Þetta
hús (sem áður hýstd viðskiptalegt
stórveldi - innskot Vikublaðsins) er
orðið að tákni sem vísar til mann-
legrar firringar í borgarasamfélagi
nútímans.
Jóhannes úr Kötlum (1899-
1972) hét fúllu nafni Jóhann-
es Bjami Jónasson en var
fyrstu ár sín kallaður Jói í Seli,
ættaður úr Dölum. Hann var
vinstrisinni og sat eitt árið á
þingi sem varaþingmaður. I
Ijóði vikunnar má greina heit-
ar óskir um framtíðarlandið
og þá hörðu mótstöðu sem
hann bjó við í baráttunni.
Landráð
Þú ert ekki Islendingur!
œpa þeir að ?nér,
ef ég sárasaklaust vitni
sannleikanum ber.
Ekki mega iljar mínar
íslenzkt snerta grjót,
ef ég blekktum bróður mínum
bendi á svikiti Ijót.
Ekki má mitt auga skoða
íslenzkt blóm íhlíð,
ef ég hanna örbirgð vora,
ómenningu ogstríð.
Ekki tná mitt eyra hlusta
á íslenzkt lindarhjal,
rat
'rm
og boða
„Báran kveður eins og áður
út viðfjörusand -
en ég á orðið einhvemveginn
ekkett fóðurland“.
Jóhannes úr Kötlum.
Norðurlandaráð
Ritari Flokkahóps
vinstrimanna
Flokkahópur vinstrimanna í Norðurlandaráði óskar eftir að
ráða ritara. Starfið felst í því að styðja samstarfið innan
flokkahópsins og sinna samskiptum við aðra aðila. Aðal-
starfið verður á vettvangi Norðurlandaráðs en einnig er um
að ræða skipulagningu á fundum og ráðstefnum flokkanna.
Ritarinn þarf að hafa þekkingu og reynslu af pólitísku starfi
og hæfileika til að vinna sjálfstætt og í hópstarfi. Hæfni til að
tjá sig í ræðu og riti er einnig mikiisverð.
Ritarinn mun vinna samkvæmt starfslýsingu. Ferðalög
verða þáttur af starfinu en gert er ráð fyrir að ritarinn fái
vinnuaðstöðu í heimalandi sínu. Æskilegt er að ritarinn taki
til starfa sem fyrst. Laun eru samkomulagsatriði. Að öðru
leyti gilda venjulegar reglur um reynslutíma og vinnuað-
stöðu.
Nánari upplýsingar veita Petter Nilsen í Noregi í síma (47)
22 20 69 79, Kjellbjörg Lunde í Noregi í síma (47) 22 31 30
97, Outi Ojala í Finnlandi í síma (358 0) 432 3127 og Maggi
Mikaeisson í Svíþjóð í síma (468) 786 55 57. Einnig er hægt
að snúa sér til Steingríms J. Sigfússonar, fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandaráði.
Umsóknir skulu sendar til Sosialistisk Venstreparti, Storgata
45, N-0182, Noregi fyrir 29. mars.
VINNUSKÓLI
REYKJAVÍKUR
LEIÐBEINENDUR
í SUMARSTÖRF
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir eftirtöldum starfs-
mönnum til starfa sumarið 1996:
1. Leiðbeinendur til að vinna með og stjórna vinnu-
flokkum unglinga.
2. Leiðbeinendur til að starfa með hópi fatlaðra ung-
menna, sem þurfa mikinn stuðning í starfi.
3. Yfirleiðbeinendur sem hafa umsjón með ákveðnum
verkefnum eða vinnusvæðum.
4. Starfsmaður til að undirbúa og stjórna sérstöku
fræðslustarfi Vinnuskólans.
Leiðbeinendur skulu vera 22 ára og æskileg er uppeldis-,
kennslu- og verkmenntun.
Starfstíminn er átta til tíu vikur frá júní til ágúst.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Vinnuskóla Reykjavík-
ur, Engjateigi 11, sími 588 2590.
Þar eru einnig veittar frekari upplýsingar um störfin.
Umsóknarfrestur er til 22. mars n.k.
Engjateigur 11 • 105 Reykjavík
Sími 588 2590 • Fax 588 2597
KODAK
KODAK
KODAK
KODAK
■ ■ ■ ■
KK
ISubbi Morthens Emelfana Torrint
Siflfús Halldórsson