Vikublaðið - 15.03.1996, Side 11
VIKUBLAÐIÐ 15. MARS 1996
11
Alþýðubandalags-
dagar fyrir noröan
Þingmennimir Steingrímur J. Sig-
fiisson og Svavar Gestsson voru í
fararbroddi þegar Alþýðubanda-
lagið og óháðir efhdu til velheppn-
aðra Alþýðubandalagsdaga á
Norðausturlandi fýrir skömmu.
Miðað við afleitt veður má það
heita gott að tekist iuifi að efiia
flesta dagskrárliðina og það við á-
gæta aðsókn.
„Ofan í þessa einmunatíð sem ríkt
hefur kom þetta staka hret einmitt
þegar dagskráin stóð yfir. Við urðum
því að hrjótast um í mismunandi
veðrum og ljóst að ekki gátu allir tek-
ið þátt í þessu sem vildu. En það tókst
að fara að mestu í gegnum dagskrána
og þrátt fyrir allt voru fundimir vel
sóttir og umræðumar h'flegar,“ segir
Steingrímur J. um Alþýðubandalags-
dagana.
Almennir stjómmálafundir vora
haldnir á Húsavík, Þórshöfn og Rauf-
arhöfn, en fund á Kópaskeri varð að
fella niður sökum veðursins. „Þetta
vom líflegir fundir og ýmislegt annað
sem brennur á fólld á þessum stöðiim
en þau sem þjóðarsálin fyrir sunnan
er upptekin af. Hér ræddu menn mál-
efni undirstöðuatvinnuveganna en
fjölyrtu ekkert um Langholtskirkju-
mál eða Guðmundar- og Geirfinns-
mál, sem er ágætt að mínu mati,“ seg-
ir Steingrímur.
Að kvöldi 24. febrúar fylktu síðan
Alþýðubandalagsmenn og smðnings-
menn liði á Hafharbarinn á Þórshöfn,
þar sem haldin var kvöldvaka með
fjölbreyttri dagskrá og em meðfylgj-
andi myndir þaðan.
Blásarínn á myndinni er niörgum les-
cndum Vikublaðsins að góðu kunnur.
Steinar Harðarson og félagar voru
þama að koma ffam opinberlega í
fyrsta sinn, en örugglega ekla það síð-
asta, miðað við undirtektir.
Hluti gesta á kvöldvökunni í visdegum húsakynnum Hafnarbarsins.
Húsbréf
húsbréfa í
4. flokki 1992 og
4. flokki 1994
Innlausnardagur 15. mars 1996.
4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.452.881 kr. 1.290.576 kr. 129.058 kr. 12.906 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð- I n n la i isna rverð ■
5.000.000 kr. 5.497.121 kr.
1.000.000 kr. 1.099.424 kr.
100.000 kr. 109.942 kr.
10.000 kr. 10.994 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
KÖ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFAOEILD • SUBURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
Laugardagsfundir
ABR
Stjórn ABR hefur ákveðið að
halda laugardagsfundi kl. 10-12:30
með borgarfulltrúum og þing-
mönnum Reykjavíkur 1 mars og
apríl að Laugavegi 3.
16. mars
Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður
Guðrún Ágústsdóttir
borgarfiilltrúL
Ögmundur Jónasson
alþingismaður.
Svavar Gestsson
alþingismaður.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórn ABR
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í éftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 22. útdráttur
1. flokki 1990 - 19. útdráttur
2. flokki 1990 - 18. útdráttur
2. flokki 1991 - 16. útdráttur
3. flokki 1992 -11. útdráttur
2. flokki 1993 - 7. útdráttur
2. flokki 1994 - 4. útdráttur
3. flokki 1994 - 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í Morgunblaðinu föstudaginn 8.
mars. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
f I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SiMI 569 690
Sndsp^unn
.../'þágu mannúðar og vísinda...
BARNASPITALI HRINGSINS
Sérfræðingur
Staða sérfræðings í bamalækningum er laus til umsóknar.
Starfsvettvangur er Barnaspítali Hringsins og starfssvið mið-
ast að verulegu leyti við bráðamóttöku sjúklinga. Ákveðin
rannsóknar-, þróunar- og kennsluverkefni fylgja stððunni.
Staðan verður fyrst um sinn greidd af styrktarfé.
Umsóknum fylgi nákvæm greinargerð um nám og fyrri störf
ásamt ritskrá o.fl. (curriculum vitae). Umsóknum skal skila til
forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins er veitir nánari upp-
lýsingar. Umsóknarfrestur ertil 1. maí 1996.
LYFLÆKNINGADEILD
Deildarlæknar
Stöður deildarlækna við lyflækningadeild Landspítalans eru
lausar til umsóknar. Um er að ræða 6-12 mánaða stöður sem
veitast frá 1. júní, 1. júlí eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir berist til Þórðar Harðarsonar, prófessors, lyf-
lækningadeild Landspítalans fyrir 22. mars n.k.
Nánari upplýsingar veita Þórður Harðarson prófessor, Sigurð-
ur Guðmundsson yfirlæknir og Sigurður Böðvarsson umsjóna-
læknir, sími 560 1000 - kalltæki.
LYFLÆKNINGADEILD
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til að taka næturvaktir á geðdeild-
um á Landspítalalóð. 2-3 vaktir að meðaltali í viku. Um er að
ræða tímabundna afleysingu í eitt ár vegna barnsburðarleyfis.
Einnig er óskað eftir hjúkrunarfræðingum á aðrar geðdeildir
Landspttalans. Um er að ræða fjölþætta og áhugaverða hjúkr-
un. í boði er einstaklingsbundin starfsþjálfun.
Starfshlutfall og vaktir eftir samkomulagi. Leikskóli er í tengsl-
um við spítalann.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Guðnadóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, sími 560 2600.